Morgunblaðið - 16.11.1982, Page 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982
Fyrirlestur
um Thorvaldsen
BJARNE Jnrnæs safnvörður við
Thorvaldsen-safnið í Kaupmanna-
höfn hcldur fyrirlestur í Norræna
húsinu miðvikudagskvöld 17. nóv-
embcr kl. 20.30.
Fyrirlesturinn er fluttur á
dönsku og nefnist: „Thorvaldsen
— nogle værker í historisk og poli-
tisk belysning".
Þar fjallar Jernæs um Thor-
valdsen og verk hans og einkum
um stóru minnisvarðanna, en
Thorvaldsen vann nær allar
tegundir minnisvarða, svo sem
brjóstmyndir, riddarastyttur og
graflíkneski.
Ólym pí u happd rættið:
Drætti frest-
að til 4. des.
DRÆTTI hefur verið frestað í
ólympíuhappdrættinu til 4. desem-
ber nk., en draga átti í gær.
Vinningarnir eru 12 skattfrjáls-
ar bifreiðir að verðmæti 2,8 millj-
ónir. Miðar eru seldir úr vinn-
ingsbifreið í Austurstræti.
Athugasemd
VEGNA fréttar í Mbl. 6. nóvem-
ber sl. um lokum Hótels Hvera-
gerðis hefur Lilja K. Möller óskað
að taka fram, að hún hafi ekki
verið gift Einari Loga Einarssyni,
og hún hafi ekki verið viðriðin
kaupin á hótelinu.
Gaman og gífuryrði fuku milli manna en Jón hreppstjóri Egilsson lét Ragnar Tómasson keypti fjóra fola og þar af þrjá dýrustu folana.
það ekki á sig fá og stjórnaði hann uppboðinu af mikilli röggsemi. Hér skoðar hann einn þeirra, Mána frá Stykkishólmi. Ljósm. vk
Líflegt uppboð en lágt verð
á folum stóðhestastöðvarinnar
HATT á annað hundrað manns mættu á hrossauppboð stóðhestastöðvar-
innar síðastliðinn laugardag en þá voru boðnir upp átta folar í eigu
stöðvarinnar. Var uppboðið haldið í húsakynnum stöðvarinnar á Gunn-
arsholti. Heldur var verðið lágt til að byrja með eins og oft vill verða á
upphoðum sem þessum, en fór hækkandi þegar á leið. Það var hreppstjóri
Kangárvallahrcpps, Jón Egilsson á Skipalæk, sem stjórnaði uppboðinu,
auk þess sem hann skemmti mannskapnum með hnittnum athugasemd-
um og góðum tilsvörum.
Fullyrða má að aldrei hafi
jafn efnilegir folar boðist á þess-
um árlegu uppboðum og nú og
töldu menn verðið því frekar
lágt í heildina. Fyrir þessa átta
fola fengust samtals 145 þúsund
krónur og var meðalverðið því
átján þúsund krónur. Hæsta
verð fékkst fyrir Hóla-Blesa frá
Hólum í Hjaltadal, eða 30.500
krónur, næstur kom Mósi frá
Flugumýri, á 27.000 krónur,
Máni frá Stykkishólmi seldist á
23.000 krónur. Athygli vakti að
einn elsti hestur stöðvarinnar,
Svalur frá Svignaskarði, seldist
á aðeins 16.000 krónur en hann
er átta vetra gamall myndarleg-
ur klárhestur með góðu tölti.
Var það mál manna að hér væri
um að ræða þá hestgerð sem
flestir leita sér að og var hann
boðinn síðast upp, sennilega í
þeirri trú að hæst verð fengist
fyrir hann. Ástæðan fyrir þessu
lága verði var ef til vill sú að
áður en byrjað var að bjóða hest-
inn upp kom fram fyrirspurn um
fætur hestsins auk þess sem
fram komu hæpnar athugasemd-
ir meðan boðið var í. Af öðrum
sölum má nefna að Flugar frá
Flugumýri fór á 20.500 krónur,
Rosti frá Ytri-Rauðamel fór á
9.000 krónur, Steinn frá Steinum
fór á 13.000 krónur og Eyvindur
frá Eyvindarhólum seldist á að-
eins 6.000 krónur. Aðspurður
kvaðst Þorkell Bjarnason
hrossaræktarráðunautur og yf-
irmaður stöðvarinnar ekki alls-
kostar ánægður með verðið á fol-
unum en benti þó á að hrossa-
sala væri dræm um þessar
mundir og hefði það vafalaust
áhrif á þetta uppboð. Einnig
voru boðnir upp nokkrir folar í
eigu Gunnarsholts-búsins og var
þar um að ræða fjögurra vetra
ótamda fola og seldust þeir á
rúmlega tíu þúsund hver.
Ljósm. Mbl. Kmilía
Módelsamtökin 20 ára
MODELSAMTÖKIN urðu nýlega
20 ára og var af því tilefni efnt til
hátíðar í veitingahúsinu Broadway
sl. sunnudagskvöld og fór þar fram
tískusýning.
Modelsamtökunum stjórnar Unn-
ur Arngrímsdóttir, en tískusýning-
unni stjórnaði Hermann Ragnar
Stefánsson.
Meðfylgjandi mynd sýnir hluta
sýningarfólksins að afloknu loka-
atriði sýningarinnar, en þá voru
Unni Arngrímsdóttur afhentir
blómvendir.
Stefán Runólfsson, Vestmannaeyjum:
Stjórnvöld verða að liðka
til fyrir skreiðarsölumálum
„ÆTLI við sitjum ekki uppi með um
200 lestir af skreið, sem ekki selst.
En það ætti ekki að vera erfitt að
standa undir afurðalánum vegna
þess, þau eru svo ákaflega ódýr eftir
því sem hinir háu herrar segja. Vit-
anlega er ástandið mjög alvarlegt,
en mér finnst að stjórnvöld hafi ekki
sinnt þessu máli nægilega mikið,“
sagði Stefán Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum, í samtali við
Morgunblaðið.
„Eg tel til dæmis mjög æskilegt
og nauðsynlegt að maður eins og
Jóhannes Nordal, sem er banka-
maður og í stjórn Alþjóðabank-
ans, fari til Nígeríu á vegum ríkis-
stjórnarinnar til að kanna hvort
ekki væri hægt að liðka eitthvað
fyrir þessum viðskiptum. Að mínu
mati væri það snjallt að Jóhannes
færi þarna ásamt sendiherra
okkar í viðkomandi landi. Það er
nauðsynlegt að sinna þessu, það
eru geysilegir fjármunir, sem
liggja hér í landinu í óseldri
skreið. Það er svo margt, sem þarf
að athuga í þessu sambandi. Ef
ekki verður komin einhver hreyf-
ing á skreiðarmálin fyrir vetrar-
vertíð, þá hangir sú hætta yfir, að
menn freistist til þess að minnka
skreiðarframleiðsluna og setja
aflann annaðhvort í salt eða frost
og þá eru þeir markaðir komnir í
hættu líka," sagði Stefán.