Morgunblaðið - 22.12.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 22.12.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982 39 „Sambandsfréttir“: Um 50 tonn af hrossa- kjöti selt til Noregs Samiö við Rússa um sölu ullarvarnings fyrir 2,1 milljón dollara NORÐMENN hafa áhuga á að kaupa héðan 50 tonn af hrossakjöti til afgreiðslu i janúar og febrúar á næsta ári, að því tilskildu, að þeir fái nauðsynleg innflutningsleyfi heima fyrir, að því er segir í nýjasta hefti „Sambandsfrétta". Ennfremur segir, að af hrossa- kjötsframleiðslu þessa árs sé nú þegar búið að flytja út 50—60 tonn, sem farið hafi til Frakk- lands. Þá eru auk þess horfur á að Norðmenn kaupi allt að 600 tonn- um af dilkakjöti til afgreiðslu í maí og júní. Enn er ósamið um verð, og þessi sala er sömuleiðis háð tilskildum innflutningsleyfum til Noregs. IÐNAÐARVÖRUR Hjörtur Eiríksson, framkvæmdastjóri Iðnaðardeildar SÍS, segir í fréttabréfinu, að gerð- ir hafi verið samningar við sov- ézka samvinnusambandið um sölu á talsverðu magni af iðnaðarvör- um til afgreiðslu á næsta ári. Þeg- ar er búið að undirskrifa samn- inga um sölu á ullarfatnaði að fjárhæð 2,1 milljón dollara, og til nýjunga má telja, að einnig voru gerðir samningar um sölu á karlmannaskóm frá skógerðinni að fjárhæð 160 þúsund dollara. Enn er eftir að ræða um og ganga frá sölusamningum fyrir ullar- og skinnavörur við aðra sovézka að- ila, og liggur ekki enn fyrir hver heildarupphæðin verður. BRAGAKAFFI Ný tegund af Braga-kaffi er komin á markaðinn frá Kaffi- brennslu Akureyrar, og er hún seld undir nafninu „Ameríka". Þröstur Sigurðsson, verksmiðju- stjóri, segir í Sambandsfréttum, að um sé að ræða ódýra blöndu og sé hún aðeins seld í eins kílós um- búðum. Allt hefði verið gert til að gera hana sem ódýrasta, enda væri verðið um 15% lægra en á venjulegu Braga-kaffi. Þetta kaffi er aðallega blandað úr kaffiteg- undum frá Mið- og Suður-Amer- íku, og ætlunin er að hafa það á boðstólum með öðrum tegundum verksmiðjunnar. Staða viðskiptabankanna gagnvart Seðlabanka: Neikvæð um 954 millj- ónir króna í október Lausafjárstaðan var neikvæð um 1.044 millj. króna LAUSAFJÁRSTAÐA bankanna var neikvæð um 1.044 milljónir króna í lok októbermánaðar sl., en til sam- anburðar var hún jákvæð um 43 milljónir króna á sama tima í fyrra. Hún hefur því versnað um 1.087 milljónir króna milli ára. Gagnvart Seðlabankanum var staðan neikvæð um 954 milljónir króna í lok október sl., en til sam- anburðar var hún neikvæð um 33 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Staðan hefur því versnað um 921 milljón króna á milli ára. Lausafjárstaða sparisjóða var jákvæð um 38 milljónir króna í októberlok, en til samanburðar var hún jákvæð um 36 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Hún hefur því skánað um 2 milljónir króna á milli ára. Staðan gagnvart Seðlabanka er hins sama, þ.e. jákvæð um 38 milljónir í október- lok, en var jákvæð um 36 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Varðandi bankana má geta þess, að tveir bankar voru með jákvæða lausafjárstöðu og jákvæða stöðu gagnvart Seðlabankanum, en það eru Búnaðarbanki ísiands og Iðn- aðarbanki íslands, sem báðir voru með jákvæða lausafjárstöðu upp á 12 milljónir króna og staða þeirra gagnvart Seðlabanka var enn- fremur jákvæð upp á 12 milljónir króna. Bundnar innstæður bankanna í októberlok voru 1.864 milljónir króna, en voru til samanburðar 1.193 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Aukningin milli ára er því liðlega 56%. Bundnar innstæður sparisjóða í Seðlabankanum voru í októberlok 373 milljónir króna, samanborið við 238 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þær hafa því aukizt um liðlega 56,7% milli ára. Þess má svo geta, að lausa- fjárstaða bankanna versnaði um 430 milljónir króna í októbermán- uði sl. Til samanburðar versnaði hún um 60 milljónir króna í októ- bermánuði á síðasta ári. Staðan gagnvart Seðlabanka versnaði um 243 milljónir króna í október í ár, en um 88 milljónir króna í október á sl. ári. í dag kynnir Ólöf Guðnadóttir hússtjórnarkennari Missið ekki af tækifærínu til aö kynnast möguleikum ör- bylgjuofna við að létta heim- ilishaldið. örbylgjuofninn í verslun okkar frá kl. 3—6. Jólagjöfina í ár: SHARP HUQMBÆR _ HUCMMSR SMABP-f _ . ■ ■■nÍÍÉiBBi UIllili1 HLJOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.