Morgunblaðið - 22.12.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.12.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982 57 fclk í fréttum Vill ekki sleppa kauða + Art Garfunkel, sá sera á sínum tíma tróð upp ásamt Paul Simon, kvað vera gífurlega ástfanginn um þessar mundir og kjósa ekkert fremur en kvænast sinni heitt- elskuðu, Penny Marshall. En málið er víst það, að eigin- kona hans, Linda Grossman, mun ekki vera eins hrifin og berst með kjafti og klóm til að svo verði aldrei, þar sem skilnaður sá sem þau hjón fengu fyrir sjö árum síð- an á Haiti sé ekki löglegur ... „Slagsmál“ við Bítlana + Hljómsveitin The Beatles hefur nú veriö fjarlægö úr vaxmynda- safni Madame Tussaud í Lundún- um vegna „slagsmála" viö lög- reglu. Þetta kann aö hljóma einkenni- lega, en málavextir munu vera þeir aö fyrir skömmu hélt hópur lög- reglumanna jólahátíö innan dyra safnsins. Jólastemmning varö síö- an slík er líöa tók á kvöldið, aö gestirnir fóru aö reyna aö ná sam- bandi viö þá sem safnið gista aö staðaldri, þ.e. vaxmyndirnar. Afleiöingin varö sem sé sú, aö fjarlaegja varö drengina fjóra frá Liverþool aö aflokinni veislu lög- reglumannanna og veröa þeir í viö- gerö yfir jólin. Talsmaöur safnsins hefur þetta um málið aö segja: „Því miöur hafa oröiö nokkrar skemmdir á Bítlunum. Verst var fariö meö Ringo og höfuö hans skemmt. Viö erum tilneyddir aö láta gera á hann nýtt höfuö og því líöa minnst þrír mánuðir þar til Bítl- arnir veröa aftur komnir á sinn staö ..." Lögreglan hefur hins vegar ekki veriö fáanleg til aö ræöa frekar um „slagsmálin" viö Bítlana. Umferðaröngþveiti íLosAngeles ... + Veggmynd nokkur í Los Angeles hefur valdið miklu umferðaröngþveiti að undan- förnu, og er kannski ekki að undra. Þar er nefnilega um að ræða sex metra breiða mynd af frönsku söngkonunni Sylvie Vartan nakinni, sem trónir yf- ir einni breiðgötunni. Leikur- inn er jú til þess gerður að vekja athygli á þriggja daga hljómleikum söngkonunnar, sem væntanlegir eru í borg- inni... Sylvie Vartan er dóttir Búlg- ara nokkurs og á ungverska móður. Hún er allvel þekkt um heiminn, sérstaklega í Japan og Suður-Ameríku, en í Bandaríkjunum mun hún vera lítið þekkt að því er kunnugir segja og ekki veitir því af áhrifamiklum auglýsingum til kynningar ... COSPER Hér eru lyklarnir og skordýraduftið. Ég kem svo rétt strax með rottugildruna. Filip nýtur kvenhylli... + Fimm hundruð brcskar kon- ur hafa nú komiö upp um aig i nýgerðri skoðanakönnun, þar sem fram kemur að Filip prins hefur langtum meiri kvenhylli þar í landi en Sean Connery og Roger Moore til samans .. Þetta varö týöum Ijóst í skoðanakönnun er gerö var á vegum kvennablaös nokkurs þar í landi í þeim tilgangi aö finna best klædda mann tandsins, sem reyndist einnig vera prinsinn Filip. NYTT — NYTT Til jólagjafa: Pils, blússur, peysur, vesti, jakkar, hálsklútar. Glæsilegt úrval. Glugginn Laugavegi 49 Rýmingarsala vegna flutnings búöarinnar. Mikiö úrval af gjafavörum og pottahlífum meö 10—30% afsiætti. Blómabúðin Míra, Suðurveri v/Stigahlíð. OPIÐ TIL KL.10 í KVÖLD Lokað þriðja í jólum Austurstræti 22 Sími frá skiptiborði 85055.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.