Morgunblaðið - 22.12.1982, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.12.1982, Qupperneq 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982 Honda City - Nýr smábíll á markað HONDA-bíIaverksmiðjurnar jap- önsku hyggjast markaðssetja nýjan smábíl á næsta ári, en sá hefur hlotið nafnið Honda City og er í svokölluðum smábíla- flokki. Talsmenn Honda segja bíl- inn sérhannaðan fyrir innan- bæjarumferð, auk þess sem boðið er sérstakt „smámótor- hjól“ með bílnum, sem auðvelt er að koma fyrir í farangurs- geymslu bílsins. Segja Honda- menn mun gæfulegra að aka bílnum á bílastæði fjarri um- ferðarþyngstu stöðunum og aka þaðan síðan á mótorhjól- inu. Bíllinn er framleiddur með 1,2 lítra vél, sem er 61—67 hestafla, eftir óskum hvers og eins. Ennfremur hefur Honda í hyggju að bjóða bílinn í „Turbo-útfærslu". Bíllinn er tvennra dyra, auk stórrar skuthurðar, sem opnar allan afturgaflinn, þannig að hag- anlegt er að ganga um bílinn. City verður boðinn bæði 4ra og 5 gíra, en 4. og 5. gírinn eru í báðum tilfellum nokkurs kon- ar yfirgírar. City er framdrif- inn. City verður framleiddur fyrir heimamarkað fyrst um sinn, en með vorinu er ætlun- in, að markaðssetja hann í Evrópu. Honda City Toyota Starlet Toyota Starlet með nýtt „andlit“ TOYOTA Starlet af 1983-árgerð- inni er mjög lítið breyttur, enda kannski ekki von á miklum breytingum á sama tíma og Toy- ota kemur með nýjan Tercel á markaðinn. Helztu breytingar á Starlet eru þær, að framendinn hefur verið færður niður á við og bíllinn fengið nýtt „andlit". Hann er nokkru straumlínulag- aðri. Miliíonen ^ Volkswagen Wk aus Wolfsburg fl Gamli og nýi tíminn, þegar 20. milljónasti Volkswagen-bíllinn ók dögunum. úr hlaði frá Volkswagen-verksmiðjunum á Volkswagen hefur firam- leitt 20 milljónir bíla Liölega helmingur þeirra af gerðinni VW „Bjalla“ Bílar Sighvatur Blöndahl ÞAU merku tímamót áttu sér stað á dögunum í Wolfsburg í Vestur- Þýzkalandi, að 20 milljónasti Volkswagen-bíllinn ók frá verk- smiðjunum, en sá var af gerðinni VW Golf GTD. Fyrsti Volkswagen-bíllinn kom á götuna árið 1948 og var það svokölluð VW-„bjalla“, með drifi á öllum hjólum. Vegna tímamótanna fékk verksmiðjan að láni eina af elztu „bjöllunum", sem enn er í fullu fjöri og var henni stillt upp við hliðana á Golf-bílnum við hlið verksmiðj- unnar og var þá meðfylgjandi mynd tekin. Það tók Volkswagen liðlega 20 ár að framleiða fyrstu 10 milljón bílana, en síðan ekki nema 13 ár að framleiða næstu 10 milljón bílana. Hjá Volkswagen starfa nú liðlega 58 þúsund starfsmenn, en framleiðslugeta verksmiðj- unnar, sem er ein hin stærsta í veröldinni, er um 3.500 bílar á dag. Liðlega helmingur framleiðsl- unnar er „bjallan", en í gegnum tíðina hafa verið framleiddar 10.838.095 talsins í gegnum tíð- an. Sá bíll, sem er í öðru sæti hjá Volkswagen, er arftaki „bjöll- unnar", Golf, en alls hafa verið framleiddir 3,6 milljónir Golf- bíla. Lítill Subaru á markaö með vori Subaru-verksmiðjurnar jap- önsku kynntu á dögunum nýjan smábíl, sem ætlunin er að mark- aðssetja með vori. Hann er aðeins 3,20 metrar á lengd og er knúinn 2 strokka, 700 rúmsentimetra, 34 hestafla vél. Hámarkshraði bíls- ins er sagður vera um 130 km á klukkustund. Hann er framdrifinn og er fá- anlegur bæði beinskiptur og sjálfskiptur, en hann er fernra Litli Subaruinn. dyra. Litla Subaru-bílnum svip- uki-bílsins, sem notið hefur ar óneitanlega frekar til Suz- töluverðra vinsælda hér á landi. Fóðurgildi heyja á Vesturlandi allt að 30% lakara en í meðalári Rútuferðir: Erfiðleikar á lengri leiðum HEY margra bænda á Vesturlandi frá síðastliðnu sumri hafa reynst ákaflega léleg. Á Snæfellsnesi er fóðurgildi heysins 30% lakara en eðlilegt er talið, en í Borgarfirði er fóðurgildið 17,5% lakara en í meðal- ári. Bjarni Arason í Borgarnesi, framkvæmdastjóri Búnaðarsam- bands Borgarfjarðar, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að sér hefðu borist niðurstöður frá Hvanneyri úr efnarannsóknum á 90 heysýn- um af sambandssvæðinu. Að með- altali þyrfti 2,35 kíló í hverja fóð- ureiningu, en venjulega væri mið- að við að tvö kíló þyrfti í fóðurein- ingu, og skakkar því þarna 17,5%. Bjarni sagði að efnarannsóknirn- ar sýndu að heyin væru óvanalega létt, og kæmi sér það nokkuð á óvart, þar sem heyin væru yfir- leitt ekki illa verkuð. Ástæðan væri líklega sú að gras hefði sprottið mjög ört þegar það fór loks að spretta í vor og ekki hefði náðst að slá nógu fljótt. Þorvaldur Þórðarson í Stykkis- hólmi, ráðunautur hjá Búnaðar- sambandi Snæfellinga, sagði í samtali við Morgunblaðið að hey- sýni af Snæfellsnesi hefðu komið ákaflega illa út úr efnarannsókn- um á Hvanneyri. Meðaltalið sýndi að af þurrheyi þurfti 2,6 kíló í fóð- ureiningu, sem er 30% lélegra en venjulega væri reiknað með. Þor- valdur sagði að þetta segði þó ekki alla söguna, því heyin væru ennþá lakari en þetta segir, þar sem þau væru illa verkuð. Vothey sagði Þorvaldur að komið hefðu betur út. Samt vantaði þar um 10% upp á fóðurgildið. Ástæður þessara lé- legu heyja sagði Þorvaldur ekki vera fyrir hendi, en taldi að þurrk- ur í vor og ör spretta og rigningar þegar loks fór að spretta hefðu þar veruleg* áhrif. Jón Hólm Stefánsson í Búðar- dal, ráðunautur hjá Búnaðarsam- bandi Dalamanna, sagði í samtali við Mbl. að meðaltal úr efnarann- sóknum sýndu að fóðurgildið væri 2,1 til 2,2 kíló í fóðureiningu á sambandssvæði Búnaðarsam- bands Dalamanna. Mikið vantaði á prótein í heyin til að þau gætu talist eðlileg. Jón Hólm sagði að ástæðan væri vafalaust sá þurrk- ur sem var í júní og sá afbrigðilegi vöxtur grassins sem síðan varð þegar það fór að vaxa. Jón Hólm sagði að heyin væru þó vel verkuð og nægjanleg að magni. RÚTUFERÐIR til og frá Reykjavík gengu greiðlega á styttri leióum um helgina, en miklar tafír og erfiðleik- ar urðu á lengri leiðum, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk á Bifreiðastöð íslands í gær. Ferðir til og frá Borgarnesi, Keflavík og Selfossi gengu greið- lega, en bíll sem fór til Hafnar í Hornafirði á laugardag og vænt- anlegur var til borgarinnar á sunnudag, var ennþá á Höfn um miðjan dag í gær. Þá var ekki reynt að fara til Ak- ureyrar -og rútu frá Snæfellsnesi seinkaði um nokkra klukkutíma, einnig rútu frá Búðardal. Góðar horfur þóttu á því að ekið yrði á öllum leiðum í dag, þriðju- dag, þar sem víða eru þjóðvegir ruddir á þriðjudögum. Þannig verður reynt að fara bæði til Ak- ureyrar og Hafnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.