Morgunblaðið - 22.12.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982
47
Stuðmenn eru bezta dægur-
hljómsveit landsins og það
sanna þeir með þessari plötu,
enda eru á ferðinni alvöru
listamenn sem ganga fast og
ákveðið til verks, en gleyma
samt ekki að þeir eru mann-
eskjur og hafa aðeins 200 ár
framundan. Lögin á plötunni
vinna hraðbyri á við nánari
kynningu, öll nema eitt, það
er seintuggið eins og gömul
kleina. Stuðmenn hafa skap-
að sér sérstæðan stíl í túlkun
sinni á mannlífinu og maður
þarf að venjast þeim eins og
öllu sem stendur upp úr, vega
það og meta. Einn textinn ber
þó af öllum hinum í gaman-
semi og góðum framburði,
það er Maó Gling, bráðsmell-
inn texti, sunginn með suð-
ur-kínverskum hreim og
brandarinn undir lokin er
eins og óvænt rúsína áður en
kemur að endanum.
Nokkur laganna eru líkleg
til þess að njóta mikillar
lýðhylli og skal þar fyrst
nefna Úti í Eyjum, sem er
eins konar minningarljóð um
Einsa kalda úr Eyjum. Lag
þetta var hugsað sl. sumar
sem Þjóðhátíðarlag í Vest-
mannaeyjum þar sem Stuð-
menn komu hressilega við
sögu, en þar sem pósturinn er
svo seinn, en Eyjamenn skjót-
ir að taka ákvarðanir, voru
þeir búnir að velja þjóðhá-
tíðarlag þegar Stuðmanna-
lagið barst. En það er önnur
saga. Úti í Eyjum grípur svo
fólk að ég hef heyrt vita lag-
lausan mann syngja það há-
stöfum og óaðfinnanlega.
Stuðmenn taka upp á ýmsu
óvæntu, það er þeirra líf og
yndi, og í tónlistartilþrifum
má nefna hin brasilísku nátt-
úruhljóð, sem þeir túlka í
upphafi Sigurjóns digra.
Lög Stuðmanna eru Bee
Bob-lög, í gamla rokkstílnum,
enda er takturinn ekkert slor
og laglínan gerð af fagmönn-
um. Þeir kunna að gera grín
að hlutunum án þess að vera
með nokkra óvild eða lurðu-
hátt og aðal þeirra félaga er
vandvirkni. Plötuna hafa þeir
tekið upp í eigin upptökusal,
Grettisgati við Grettisgötu í
Reykjavík, Hljóðrita og
Stemmu og hefur sá þáttur
heppnast ekki síður en annað
á plötunni sem er sem sagt
bæði vönduð og skemmtileg.
Stuðmenn koma sífellt á
óvart og það er auðvelt að
skemmta sér með þeim og
maður rekur ósjálfrátt upp
rokur, til dæmis þegar Ást-
ardúettinn dunar.
Ef Stuðmenn tækju þátt í
Evrópukeppni sjónvarps-
stöðva, myndu þeir að sjálf-
sögðu koma á óvart, og sigra.
Stuðmenn eru Ásgeir Osk-
arsson, Egill Ólafsson, Jakob
Magnússon, Tómas M. Tóm-
asson, Valgeir Guðjónsson og
Þórður Árnason.
Grýlurnar eru Herdís Hall-
varðsdóttir, Inga Rún Pálma-
dóttir, Linda Björk Hreiðars-
dóttir og Ragnhildur Gísla-
dóttir.
Það er ástæða til að óska
þessu fólki til hamingju með
vel unnið verk.
Mývatnssveit:
Rysjótt tíð,
en fært
Björk, Mývalnssveit, 20. desember.
HER HEFUR verið risjótt tíð að
undanrdrnu. í síðustu viku gekk á
með éljum flesta daga. Þó setti ekki
niður verulegan snjó. Færð á vegum
var nokkuð góð, t.d. komu bílar
austur af Hólsfjöllum sl. föstudag og
gekk sæmilega.
Á laugardag komst frost í 22
stig hér. En á sunnudag og mánu-
dag hefur verið norð-austan
hvassviðri með snjókomu og mikl-
um skafrenningi. Tafsamt hefur
reynst að aka vegna dimmviðris.
Það má vafalaust búast við að
færð sé sums staðar farin að
þyngjast. Veðrið er nú heldur far-
ið að ganga niður. Kísilbílar komu
ekki frá Húsavík í dag. Ekki hafa
orðið verulegar rafmagnstruflanir
í þessu óveðri hér. Við þurfum því
ekkert að kvarta.
Kristján
Jólaóratoría
eftir J.S. Bach
í Langholts-
kirkju
JÓLAÓRATORÍA eftir J.S. Bach
verður flutt í fyrsta skipti hér á
landi óstytt í Langholtskirkju 28.
og 29. desember. Vegna lengdar
verksins er því skipt á þessa tvo
daga. Báðir tónleikarnir hefjast
klukkan 20.30.
Einsöngvarar eru Ólöf K.
Harðardóttir, Solveig M. Björl-
ing, Michael Goldthorpe og
Halldór Vilhelmsson. Kamm-
ersveit annast undirleik, kon-
sertmeistari er Michael Shelt-
on. Stjórnandi er Jón Stefáns-
son. Sala aðgöngumiða er haf-
in.
Jólaóratorían verður flutt í
hinu nýja kirkjuskipi Lang-
holtskirkju. Þar hefur verið
komið upp bráðabirgðahita-
kerfi. Nýlega afhenti kórinn
gjaldkera sóknarnefndar 210
þúsund krónur sem söfnuðust á
„hitatónleikum". Kór Lang-
holtskirkju stóð fyrir þeim í
desemberbyrjun og var til-
gangur þeirra að safna fé fyrir
hitalögn í kirkjuna.
(ílr (réUililkynniiiKu)
VORUURVAL
VÖRUGÆÐI
VÖRUAFSLÁTTUR
20% afsláttur af flestum vörum
INNKAUPAKARFA NONNA OG BUBBA, KEFLAVÍK
NAUTAKJOT
af nýslátruðu
Nautasnitchel
Nautagullasch
Nauta-Roast Beef
Nauta T-Bone
Nautamörbrá
Nautafillet
Nautasteikur
Nautahakk
FUGLAR
Unghænur
Kjúklingar
Rjúpur
Hamflettar rjúpur
LAMBAKJÚT
1/1 skrokkar
1/2 skrokkar
Læri
Hryggir
Frampartar
Útb. læri
Okkar
verð
220,00
147,00
190,00
119,00
256,00
256,00
79,00
105,00
58,00
120,00
85,00
95,00
57,35
57,35
72,90
72,90
51,65
139,00
Leyft
verö
293,00
223,00
247,00
158,00
316,00
316,00
95,20
153,20
63,00
139,00
66,20
66,20
85,00
85,00
59,50
162,20
HANGIKJÖTIÐ VINSÆLA
frá Búrfelli, SS, SÍS, Kjötveri og aö norðan
Okkar Leyft
verö verð
Útb. hangikjötslæri 175,00 198,70
Útb. hangikj.frampartur 125,00 144,20
1/1 hangikjötslæri 99,50 114,20
1/1 hangikjötsframpartar 60,35 69,00
FOLALDAKJOT
af nýslátruðu
Folaldasnitchel 139,00
Folaldagullasch 123,00
JÓLASVÍNAKJÖTIÐ
Útb. svínahnakki, reyktur
Útb. svínahamborgarhryggur
léttreyktur frá SS
Útb. svinahamborgarhryggur,
reyktur frá Ali
Svínahamborgarhryggur
m. beini frá SÍS
Útb. svínahamborgarhryggur
reyktur frá SiS
Ný svinalæri
Leyft verð
218,50
Awaiit á boöstólum um 60
Tdif’ Wölboröinu. Bjóöun,
SSTm. .U heitt .lélu. og
qrillaða kjúklinga.
NÝR FISKUR
Ýsuflök í raspi — Kryddlegin ýsuflök — Fisk-
karbonaöi — Fiskfars — Höfum vel kæsta Þor-
láksmessuskötu.
ÞAÐ ERU 6 BAKARÍ
sem koma daglega meö brauö og kökur i
Nonna og Bubba.
• Jólaölið með allt að 25% afslætti
• Jólaávextir með allt að 20% afslætti
• Mikid úrval af jólasælgæti
• Jólaísinn frá MS og Kjörís
• 130 tegundir af kexi.
Verzlunin Nonni og Bubbi, Keflavík