Morgunblaðið - 26.01.1983, Side 4

Morgunblaðið - 26.01.1983, Side 4
44 MORG UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983 Beöið eftír lyftunni uppi á Seljalandsdal á ísafiröi. — Já, skíðaland okkar er sór- lega gott, og aöstaöa þar mjög góð. Svæöiö er mjög skemmtilegt frá náttúrunnar hendi. Ég held aö aöstaöan sé verulega skemmtileg fyrir hinn almenna borgara. Göngusvæðiö er gott og ég held aö þau gerist óvíöa betri hér á landi. En viö vitum aö auka veröur viö lyftukostinn vegna aukinnar aö- sóknar. Segja má aö viö höfum nú tvær og hálfa lyftu. Hér eru tvær toglyftur og einnig lítil barnalyfta. Flutningsgetan nú er 950 manns á klst. en meö lengingu annarrar lyftunnar er áformaö aö þær geti í sameiningu flutt 1500 manns á klst. Við reiknum meö aö lengingin geti oröiö á næsta ári. — Þaö hefur aö visu minnkaö í kassanum hér eins og annars staöar, og þetta er mjög fjárfrek framkvæmd, en viö vonumst til aö af þessu geti oröiö. Þegar fariö er aö tala um peninga má segja frá því aö í fyrra var 1.600.000 varið í skíðalandið og inni í þeirri upphæö er nýr troðari sem viö fengum í febrúar. Enn eitt dæmiö um aöstööu til skíðagöngu er fjögurra km leiö sem troöin hefur veriö milli ísa- fjaröar og Hnífsdals. — Viö tróö- um þessa leiö í fyrravetur og höf- um einnig þaö í vetur, sagöi Björn. — Þetta hefur verið mjög vinsælt, en brautin liggur meöfram vegin- um og er því upplýst af Ijósastaur- unum. Mikill skíðaáhugi á Isafirði: „Þegar veður er gott þá tæmist bærinn“ — segir Björn Helgason, íþróttafulltrúi, um áhuga bæjarbúa Þegar ég kom til ísafjarðar á dögunum var þar mikill snjór — mjög mikill. „Mikiö eru þeir heppnir ísfirðingar — nú er sennilega skemmtilegt í skíðalandí þeirra,“ hugsaði ég með mér. Þaö hefur vafa- lítið verið rétt hjá mér — eða öllu heldur hefði orðið skemmtilegt hefði fólk kom- ist þangað. En þar stóö hníf- urinn í kúnni. Snjórinn var eínfaldlega of mikill, þannig að skíðaáhugamenn komust ekki „upp á Dal“. — Já, þaö hefur snjóað mjög mikið undanfarið. Þrátt fyrir að við höfum látið ryðja veginn upp á Dal er orðið ófært aftur jafnharðan — þannig að nú hefur svæöið verið lokað í heila viku, sagöi Björn Helgason, íþróttafulltrúi bæjarins, er ég kom aö máli við hann. — Það kostar óhemju fé að ryðja leiðina þannig að viö höfum ekki lát- ið gera það í viku. En fátt er svo meö öllu illt aö ekki boöi nokkuö gott. Þessi mikli snjór gerir þaö aö verkum aö niöri i bænum er nú byrjaö göngunám- skeið og fer þaö fram fjóra daga vikunnar. Er þar um námskeið fyrir unglinga aö ræöa. Einnig erum viö með kennslu fyrir 16 ára og eldri og eru tveir leiöbeir.endur i því, segir Björn. — Áður höfum við veriö með kennsiu í göngu fyrir fulloröna uppi á Dal um helgar en tíöarfariö nú býöur upp á aö halda þetta hér í bænum. „Krakkarnir keyrðir upp á Dal“ Að sögn Björns hefur áhugi á skíöagöngu fariö mjög vaxandi á ísafirði undanfariö, og viröist sem gönguáhugi hafi blossað upp um allt land, hverju sem þaö er aö þakka. A íþróttasvæöinu í bænum er upplýst göngubraut og sagði Björn aö hún væri geysilega mikiö notuð. — Viö komum meö troöar- ann ofan úr fjalli og gerum þessa braut, og óhætt er aö segja aö hún sé mjög vinsæl. Þaö hafa veriö þarna allt aö 80 manns á kvöldi, en brautin er opin öll kvöld. — En þó áhugi hafi stóraukist í göngunni hefur hann alls ekki minnkað fyrir alpagreinunum og þær eru enn stundaöar af miklum krafti. Ég vil nefna það aö í vetur hefur bæjarsjóöur séö um keyrslu unglinga frá 14 ára aldri upp í Seljalandsdal fjóra daga vikunnar, og eiga unglingar úr öllum íbúö- arhverfunum möguleika á aö nota þessa þjónustu — hér í kaup- staðnum, Fjaröarbyggöinni og i Hnífsdal. Keyrsla þessi fer fram í samvinnu viö skólastjóra grunn- skólanna — og er stundatafla lag- færö þar sem þarf, þannig að allir sem áhuga hafa eiga þess að kost aö nýta sér þessa þjónustu. Þetta er mjög góöur styrkur frá bæjar- sjóöi, sagði Björn, og hefur þetta mælst vel fyrir meöal krakkanna. Isfiröingar opnuöu skíöasvæöi sitt óvenju snemma í vetur, þaö var helgina 26.—27. nóvember. Aö sögn Björns kemur þaö aöeins fyrir stöku sinnum aö þeir geti byrjaö fyrir jól, en nú hafi veriö sérlega skemmtilegt skíöaveöur fram aö jólum, og fyrstu helgina sem skíðalandiö var opið hafi verið mjög gott færi og margir á skíöum. „Göngum fram í júní“ Þegar svo vel árar fyrir skíða- menn er hægt aö byrja snemma aö hausti, en hvaö skyldu menn geta veriö lengi aö fram á vor? Björn var spurður aö því. — Viö höfum veriö á göngu- skíðum fram í júní og hefur þaö verið geysilega vinsælt. Þá færum viö okkur örlítiö lengra fram á heiðina. — Skíöasvæði okkar hefur breyst nokkuö undanfariö og það nýtist nú betur, fyrir utan lyftukost- inn sem annar ekki aösókninni um helgar. En eins og ég sagði áöan hefur áhugi á göngu aukist gífur- lega og nú ieggjum viö þrjár þraut- ir uppi á Dal. Sú neösta er fyrir byrjendur, önnur er fyrir ofan Kvennabrekkur og á Skarðsengi er braut fyrir keppnisfólk og þá sem lengra eru komnir. Brautirnar eru 3,5 og 7,5 km aö lengd og sú lengsta fer stundum upp í 10 km, sagöi Björn. Eru Isfirðingar ánægöir meö skíðaland sitt? Mynd Skapli Hallgrímsson. Björn Helgason, íþróttafulltrúi á Isafirói. „Erum með sjö þjálfara“ Nú höfum viö minnst á alpa- greinarnar og gönguna. Hvaö meö stökkiö? — Viö höfum stökkpall í Sand- felli, en áhugi á stökkinu hefur ekki veriö fyrir hendi hér í bænum und- anfariö. En viö vorum svo heppin aö fá stökkvara hér í bæinn, Viöar Konráösson, tannlækni, sem er úr frægri skíðaætt frá Ólafsfiröi, og hefur hann tekiö aö sér aö þjálfa stökkiö og reyna aö rífa það upp. Nú eru til staöar sjö þjálfarar á skíöasvæöinu: fjórir fyrir alpa- greinarnar, tveir í göngunni og síö- an einn á stökkinu. Er mikiö um aö aökomufólk sæki hingað til aö fara á skíöi? — Þaö hefur veriö nokkuö um þaö. Þaö er vinsælt hjá skóla- krökkum aö koma hingaö í hópum, og nú er búiö aö panta fyrir 200 krakka. Þau koma aö visu aldrei fyrr en í febrúar, og þá 30—40 manna hópar sem eru þrjá daga í senn. Þau hafa svefnpokapláss í Skálanum. — En auk skólakrakkanna er nokkuð um aö fólk noti sér svo- kallaða helgarpakka sem Flugleiöir og Ferðaskrifstofa Vestfjarða bjóöa upp á. Fólk byrjar aö koma hingaö um mánaöamótin janúar- febrúar, en mesti annatíminn er í febrúar og mars. Þaö er mjög stutt upp aö skíöasvæöinu úr bænum, aöeins um 3,8 km og er það mikill munur. Við höfum bent hópum sem hingaö sækja aö koma frekar í miöri viku en um helgar, því þá fær fólkiö mun meira út úr feröinni. I miöri viku eru mun færri heima- menn á staönum og þarf fólk því ekki aö bíöa lengi til aö komast í lyfturnar. „Þurfum ekki áróður“ Rekiö þiö einhvern sérstakan áróöur hér á ísafiröi til aö auka áhuga fólks á skíöaíþróttinni? — Nei, viö þurfum þess ekki. Hér er geysilegur skiðaáhugi og hefur veriö í áratugi. Straumurinn liggur þangaö sem aöstaöan er fyrir hendi, og þvi eiga inniíþrótt- irnar undir högg aö sækja hér i bænum. Nýtt íþróttahús er nú komið á fjárveitingu og reiknaö er meö aö byrjaö veröi á undirbún- ingsvinnu snemma á þessu ári. Þá mun áhugi örugglega aukast á inniíþróttum en skíöi og knatt- spyrna hafa verið allsráöandi hér. En eins og ég sagöi er skíðaáhugi hér svo almennur að viö þurfum ekki aö reka neinn áróöur fyrir honum. Þegar veður er gott tæm- ist bærinn. Allir fara þá á skíöi,“ sagöi Björn Helgason að endingu. - SH staóina um allt land — allir af sama áhuga. Aö vísu komast þeir yngstu ef til vill ekki sjálfir upp, en þá er bara að bjarga málinu ... Þessi mynd er tekin á ísafirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.