Morgunblaðið - 26.01.1983, Side 8
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983
Formadur skíöadeildar KR, Valur Jóhannsson, viö stjórnstöð nýju stólalyftunnar í Skálafelli, en hún var næstum komín á kaf í snjó vegna þess
mikla fannfergis sem verið hefur að undanförnu. Kri»tj.n Kín>n«<on
Valur Jóhannsson:
Lengsta stólalyfta
á landinu
— Stólalyftan, sem búiö er aö
reisa hér, er sú lengsta á landinu.
Hún er sett upp á besta staö í fjall-
inu. Er 1.200 metra löng og mjög
fullkominn. Afkastageta hennar er
1.200 manns á klukkustund. Nú
þegar er búiö aö leggja þrjár
brautir frá henni niöur fjalliö. Fyrir
byrjendur, þá sem eru meöalgóöir
skíöamenn og svo fyrir þá sem
telja sig færa í flestan sjó.
— Framkvæmdir viö stólalyft-
una hafa gengiö meö afbrigöum
vel. Þaö var áriö 1981, sem farið
var aö hugsa í alvöru um þessa
lyftu og eins og svo oft áöur hjá KR
var ekki setið viö oröin tóm. Upp-
setning hófst í haust og þaö tók
rúmlega þrjá mánuöi. Kostnaöur
viö lyftuna er nú farinn aö nálgast
10 milljónir króna. Það ríöur því
mikiö á fyrir okkur aö aösókn aö
henni veröi góö í vetur svo aö viö
fáum eitthvaö upp í þann mikla
kostnað sem lagt hefur verið útí.
Þaö hefur oft í gegn um árin veriö
erfitt aö komast hingaö uppeftir í
Skálafell en nú hefur vegurinn ver-
iö lagaöur og hækkaöur mikiö
upp. Er þaö tii mikilla bóta. Nú, ég
vil endilega koma því aö hér, aö
félagar í skíöadeild KR hafa unniö
alveg ótrúlega mikiö starf í sam-
bandi viö allar framkvæmdir hér í
Skálafelli, jafnt aö sumri sem vetri.
Og þaö væru miklir peningar sem
þurft heföi aö leggja út ef þurft
heföi að greiða alla þá vinnu.
„KR-ingar hugsa stórt og þegar þeir
framkvæma kemur ekkert annað
til greina en stórframkvæmdir“
„Það leikur enginn vafi á
því að skíðasvæöið hér í
Skálafelli er það besta á
Stór-Reykjavíkursvæöinu.
Hér eru bestu skíðabrekkurn-
ar og um leið þær lengstu.
Brekkurnar hér eru líka við
allra hæfi, jafnt fyrir byrjend-
ur og þá sem lengra eru
komnir í skíðaíþróttinni. Þá
mun nýja stólalyftan ger-
breyta allri aðstöðu hér hjá
okkur enda er það stórkost-
legt að hér skuli vera risin
lengsta stólalyfta á íslandi,“
sagði Valur Jóhannsson
formaður Skíðadeildar KR er
blaðamaður Mbl. spjallaði viö
hann í Skálafelli fyrir
skömmu. Viö höfðum komið
okkur þægilega fyrir í skíða-
skála deildarinnar og yljuðum
okkur á heítum kaffisopa, því
að okkur var orðið hálfkalt
eftir að hafa verið úti í skaf-
renningsbyl, þegar Valur var
að sýna mér nýju lyftuna og á
göngu okkar um hið stór-
glæsilega skíöasvæði KR. En
skíðasvæðið dregur fleiri iðk-
endur að sér með ári hverju.
Og ekki á aðsóknin eftir að
minnka núna þegar hin
glæsilega stólalyfta verður
tekin í notkun.
Ég bað Val aö lýsa starfi skíöa-
deildarinnar fyrir mér i stórum
dráttum. í hverju starfsemin væri
fólgin, og hvaö réöi því að ráöist
væri í svona stórkostlegar fram-
kvæmdir á svæðinu.
— KR-ingar hugsa stórt, og
þegar þeir framkvæma þá kemur
ekkert annaó til greina en stór-
framkvæmdir, sagöi Valur.
Fyrsta stóra T-skíðalyftan sem
reist er hér á landi rís í Skálafelli
árið 1961. Hún var jafnframt fyrsta
fasta skíóalyfta landsins. Áöur var
risinn veglegur skáli hér, sá sem
við erum nú í. Hann er 130 fer-
metrar aö grunnfleti og hefur þjón-
aö meölimum deildarinnar mjög
vel í mörg undanfarin ár.
Nú eru um 800 meðlimir í skíöa-
deild KR. Starfið er margvíslegt.
Stjórn deildarinnar er þannig variö
aö viö erum meö sérstaka menn í
svokallaóri rekstrarstjórn. Sú
stjórn fer alfarió meö allan rekstur
á mannvirkjum þeim sem hér eru.
Einar Þorkelsson er formaöur
rekstrarstjórnar og hefur ásamt
þeim mönnum sem i stjórninni eru
unnið mikiö og gott starf. Nú eru 8
skiðalyftur hér í Skálafelli. Ein
stólalyfta, 3 T-lyftur, tvær spjalda-
lyftur og loks eru hér tvær barna-
lyftur. Af þessari upptalningu má
sjá aö viö erum orönir vel settir hér
á skíóasvæöinu hvaö lyftur snertir
og getum tekiö á móti miklum
fjölda fólks.
— Ég hugsa aö lauslega áætl-
aö séu eignir deildarinnar hér í
Skálafelli ekki undir 60 milljónum
króna væru þær settar í mat.
Skíðaskálinn leigður
út til skólanna
— Frá því um miöjan janúar
leigjum viö út skíðaskálann til
skóla og má segja aö hann sé upp-
pantaóur alveg fram í lok apríl. Um
helgar er hann hinsvegar notaður
fyrir félagsmenn eingöngu. Þaö
koma margir félagar hingað upp-
eftir á föstudagskvöldum og eru
hér fram á sunnudag. Um helgar er
oftast mikill fjöldi hér á skíöasvæö-
inu og ég giska á aö í góöu veóri
þá sé hér oft um 3.000 manns um
helgar og meö tilkomu nýju.stóla-
lyftunnar á sú tala eftir aó hækka.
Nýr snjótroðari
tekinn í notkun
— Nú viö erum líka búnir aö
fjárfesta í nýjum snjótroðara og
lögö veröur mikil áhersla á aö allar
skíðabrekkurnar veröi sérlega vel
troönar. En þaö hefur oft viljaö
vanta í skíöalöndum okkar að
troöa brekkurnar nægilega vel. Því
betur sem skíöabrekkurnar eru
troðnar því meiri ánægja er aö
renna sér í þeim fyrir skíðafólkiö.
Snjótroöarinn okkar er af full-
komnustu gerð, meö tönn, og eru
afköst hans mikil, jafnvel við erfiö-
ar aðstæöur.
— Skíöafólk í dag gerir miklar
kröfur og því ætlum viö aö reyna
aö hafa skíðalandið okkar eins vel j notkun í vetur.
úr garöi gert og mögulegt er. Niöri aö hvíla sig og
viö nýju stólalyftuna er þegar risin þess sem þar
þjónustumiöstöö sem tekin veröur staöa.
Þar veröur hægt
boróa nesti auk
veröur snyrtiaö-
Hinn fullkomni snjótroðari sem skíöadeild KR-inga festi kaup á í
haust. Hann veröur í fremstu víglínu í allan vetur viö aö gera skíða-
brekkurnar sem best úr garði.
Skíðaíþróttin
á vaxandi vin-
sældum að fagna
— Skíöaíþróttin hefur átt alveg
ótrúlega miklum vinsældum aö
fagna hér á landi undanfarin ár og
iökendum hennar fer sífellt fjölg-
andi. Þaö er því fagnaðarefni
finnst okkur KR-ingum, að geta
boðið upp á svona fullkomna aö-
stööu eins og raun ber vitni hér í
Skálafelli.
— Viö munum starfrækja
skíöaskóla hér í vetur fyrir almenn-
ing alla daga vikunnar viö lyftu 5
og 6. Lögö verður áhersla á aö
veita þeim sem eru aö byrja góöan
undirbúning og kennslu.
— Viö sjáum hér ár eftir ár
sama haröa kjarnann á skíöunum,
en svo er líka alltaf aö bætast viö
nýtt og nýtt fólk. Sér í lagi finnur
maöur mikinn mun á því hversu
heilu fjölskyldurnar koma nú meir
en áöur. Enda er skíöaíþróttin ein
besta og heilsusamlegasta íþrótta-
greinin sem öll fjölskyldan getur
stundaö saman.
Meðlimir deildarinnar
fá ýmislegt frítt
— Hvaö varöar sjálfa meðlim-
ina í skíöadeild KR þá er reynt að
veita þeim ýmsa aöstööu fría. Þeir
greiöa jú allir félagsgjöld en fá í
staöinn fría gistingu í skálanum um
Hefur komiö í Skálafell á
hverjum vetri síðan 1936
Skíöaíþróttin er
stórkostleg, segir
Einar Sæmundsen
„ÉG kom fyrst hingað í Skálafell
áriö 1936, og hef komið á hverj-
um vetri eíðan. Aldrei misst úr
vetur,“ sagöi Einar Sæmund-
sen, fyrrverandi formaður KR,
en hann er einn af þeim sem
lætur sig aldrei vanta um helgar
á skíðasvæöi félagsins. Einar,
sem er orðinn 63 ára gamall,
skíðar af miklum krafti og
kunnáttu niður allar brekkur
þrátt fyrir aidurinn, enda er
varla hægt aö sjá á honum aö
hann sé orðinn 63 ára þó svo aö
kirkjubækurnar segi það.
„Skíöaíþróttin er stórkostleg.
Hún býöur upp á góöa hreyfingu
og svo öll þessi útivist. Hún gerir
manni svo gott,“ sagði Einar.
„Þaö hefur mikil breyting oröiö á
hér í Skálafelli eins og annars
staöar hvaö varðar framfarir og
tækni. Mesti munurinn liggur
samt í sjálfum skíöaútbúnaóin-
um. Hann er oröinn svo góöur í
dag og gerir mönnum þetta létt.
Ég get fullvissað alla um aö maö-
ur byrjar aldrei of seint á að
stunda skíðin. Og ef eldra fólk er
hrætt viö aö fara aö renna sér,
þá er bara aö kaupa sér göngu-
skíöi og fara aö ganga. Skíöa-
íþróttin hressir, bætir og kætir,“
sagöi Einar um leiö og hann
renndi sér á fullri ferö aö lyftunni,
albúinn aö fara í næstu ferö.
— ÞR
• Einar Sæmundsen brosmildur
og hress að vanda. Hann hefur
stundað skíðaíþróttina í Skála-
felli síðan 1936.
Ljósm. Kristján Einarsson