Morgunblaðið - 26.01.1983, Side 6

Morgunblaðið - 26.01.1983, Side 6
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983 ■ Fólkvangurinn í Bláfjöllum: Fjölbreytilegt skíðaland með lyftum fyrir 6.400 manns á hverri klukkustund — eftir Elínu Pálmadóttur, stjórnarformann Bláfjallanefndar SÍÐAN stofnaö var til fólk- vangs í Bláfjöllum fyrir 10 ár- um og sjö sveitarfélög lands- ins tóku sig saman um aö byggja þar upp skíöastað fyrir almenning í nánd viö mesta þéttbýlissvæði lands- ins, hefur jafnt og þétt verið unnið að því að bæta aöstöö- una með árlegum vegabótum, lyftukaupum, byggingu veg- legrar þjónustumiðstöðvar, lagningu rafmagns og bættri lýsingu, troðarakaupum o.s.frv. Jafnframt hafa skíða- félögin þrjú, sem þar hafa komið sér fyrir, líka bætt sína aðstöðu með auknum iyftu- kosti. Áhugi almennings og aðsókn í skíðalandiö hefur fylgt eftir og meira en þaö, svo ekki hefst undan meö þjónustu. En ótal verkefni eru framundan í þessari skíða- paradís, sem býður upp á fjöl- breyttari möguleika til útiveru og skíðaiðkana en nokkur annar staður. Einmitt þessa dagana er stjórn Bláfjallafólkvangs að fara yfir og taka afstööu til sölutilboða sam- kvæmt auglýstu útboöi um nýja af- kastamikla stólalyftu, sem áform- aö er aö reisa næsta sumar í Suö- urgili. Eru komin tilboö frá 12 aöil- um um lyftur meö afkastagetu allt frá 1000 manns og upp í 1800 manns á klukkutíma. En ef miöaö er við 1200 manna afköst eöa svipuö og í stólalyftunni í Kóngs- gili, eins og hugmyndir eru um, verður næsta vetur hægt aö flytja samtímis í lyftum á svæöinu upp í brekkurnar um 6500 manns á klukkutíma, ef allar eru í gangi. Þ.e. 2300 manns í tveimur stóla- Þegar margt er um manninn í Bláfjöllum myndast langar raðir við lyfturnar eina og þessi mynd sýnir. Með tilkomu nýrrar stólalyftu verða raðirnar vonandi styttri. lyftum, 2800 manns í lyftum skíöa- félaganna þriggja, 1400 manns í 5 dráttarlyftum Bláfjallastjórnar og 1—2 þúsund manns í minni lyftum og lausum lyftum. Ætti þá aö vera leyst verulega úr biöraðavandan- um, sem veriö hefur á mestu anna- tímum. Ekki er því þó aö leyna aö persónulega finnst mór — í sömu bjartsýni sem fyrr á enn aukinn áhuga — freistandi ef hægt yröi aö taka í notkun þriggja stóla lyftu meö afkastagetu upp í 1800 manns á klukkutíma, enda kemur þaö dæmi inn í þann erfiöa sam- anburö sem nú er unnið aö á flóknum og mismunandi tilboóum. Ekki skiptir siöur máli, að með nýju stólalyftunni í Suðurgili — sem er syöst eöa innst í Bláfjöllum — opnast almenningi nýtt og sór- lega aögengilegt skíðaland meö fjölbreyttum brekkum af öllum geröum. I grein í nýju hefti af franska blaðinu Express er grein um hinn gífurlega vaxandi áhuga á skíöa- íþróttinni í Frakklandi og umferö- arerfiðleika í skíöabrekkum þeirra, ásamt könnun á óskum skíöafólks. Þar kemur fram að þótt um helm- ingur skíöamanna hafi getu fyrir ofan 3ja stig, þá kjósi langflestir aö vera á skíðum í áreynsluminni og auöveldari brekkum. Og í Suöurgili eru einmitt fyrir hendi mjúkar brekkur fyrir hvern sem er, auk þess sem hægt er að velja sér þær brattari. Nýja lyftan mun einnig auka dreifingu skíöafólksins um brekkurnar, sem er líka öryggisat- riöi auk þess sem þaö er ánægju- legra. Á stóru skíöastöðunum er- lendis hafa menn oröiö víöa áhyggjur af þrengslum í brekkun- um viö lyftur, sem að sjálfsögóu getur líka valdiö hættu hér með aukinni aösókn. Vil ég þá geta þess í leiðinni, aö stórhætta stafar af lausum hundum, sem fólk hefur stundum meö sér, þeir trufla og flækjast fyrir skíðamönnum í brekkunum þar sem þeir elta vit- anlega húsbændur sína. Ætla ég aö nota tækifæriö til aö skora á fólk aó skilja þetta og sleppa ekki hundum lausum í skíöalandinu. Bönn eru alltaf leiöinleg, en svo fór þó eftir margra ára tilraunir til aó fá snjósleóafólk til aö halda sig í hæfilegri fjarlægð frá skíöafólkinu, aö banna hefur oröiö alfariö um- ferö snjósleöa í skíöalandinu í Bláfjöllum. Ætlunin er sem sagt aö koma í sumar og fyrir næstu skíöavertíö upp afkastamikilli stólalyftu í Suó- urgiii. Þegar fyrstu langtímaáætl- anir voru geröar um skíöasvæöi í Bláfjöllum, fékk Bláfjallanefnd hingaö austurrískan sérfræöing um uppbyggingu skíöasvæöa, sem benti á aö brekkumöguleikar til skíöaiökana væru ekki ótakmark- aöir og aö vanda þyrfti staösetn- ingu á lyftum og val á þeim. Stærstu gilin, sem koma þarf fyrir afkastamiklum lyftum í eru þrjú talsins, þ.e. Kóngsgiliö meö stóla- lyftunni, sem er oröiö all vel nýtt, Eldborgargil, þar sem Fram er þegar meö lyftu, og Suðurgiliö, sem nú fær stólalyftu. En á milli hafa skíðafélögin komiö sér fyrir meö góöar dráttarlyftur, Breiða- blik í Drottningargili noröan Kóngsgils, Ármenningar í Sól- skinsbrekku sunnan þess og Fram nyrst eöa í Eldborgargilinu. Er fjöl- breytnin og dreifingin um fjallgarð- inn því aö veröa jöfn og góö. Og Bláfjöllin aö veröa fjölbreyttasta skiðasvæðiö sem völ er á. Auk þess sem göngumöguleikar eru ótakmarkaöir í víöáttu fólkvangs- ins. Bættir vegir auka nýtinguna Á þessum 10 árum hefur árlega veriö haldið áfram vegabótum, enda var aðeins skröltfær slóö þessa rúmlega 10 km leiö af aöal- vegi á skíöasvæöiö í upphafi, og vegurinn lá aö auki á kafla svo ná- lægt fjöllunum aö hann var alltaf á kafi eftir fyrstu snjóa. Hefur árlega veriö hækkaður kafli af veginum, nú síðast frá Eldborg aö Rauöu- hnjúkum og í sumar þaðan uþp undir bílastæöin. Nú f haust tókst aö fá eina milljón króna aukalega til aö lagfæra fyrir veturinn mikinn farartálma, sem er háa brekkan neðarlega á veginum, þar sem oft hafa oröið verulegar tafir í hálku og snjó. En meö hverjum vegar- kaflanum sem hægt er að hækka Hvernig getum við snúið okkur við í brekkunum? A mynd eitt hefst snúningurinn meö pví aó neóra skíðinu er lyft. Sjá mynd 2. Haldíð skíóastöfunum vel í sundur og fyrir aftan ykkur, og veriö í góðu jafnvægi á efra skíðinu. Sjá mynd 3 og 4. Stigió niður með neðra skíöið og beygið ykkur aðeins í hnénu, en gætið þess aö vera í góöu jafnvægi og nota skíðastafina vel. Beygið ykkur aðeins áfram og færiö efra skíöið rólega yfir og athugið vel að halda skíðastöfunum út á réttan hátt eins og sýnt er á myndunum. Ef skíöafólk lendir í mjög brattri brekku og treystir sér ekki til þess að snúa sér við, hvað á þá til bragös að taka? Jú, er ekki rétt að setjast í brekkuna og hafa skíðin aðeins í sundur eins og sést á mynd 1. Lyfta síðan neðra skíðinu vel upp, sjá mynd 2. Hitt skíðið fylgir vel á eftir, sjá mynd 3 og 4. Og loks má standa á fætur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.