Morgunblaðið - 26.01.1983, Side 10
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983
Stólalyftan í Hlíðarfjalli. Þarna eru ekki margir í lyftunni en oft á tíðum
myndast langar biðraðir við hana á góðviðriadögum. Mj>nd sk»Pii
Úr Hlíöarfjallí. Skíöakennsla í fullum gangi.
Mynd Snorri
Hlíðarfjall einn
stærsti fólk-
vangur Akureyrar
— „ráöamenn hafa lokað augunum of mikiö fyrir því,“ segir
Þröstur Guöjónsson, formaöur SRA
Hlíðarfjall við Akureyri hef-
ur löngum verið talinn skíða-
paradís okkar íslendinga.
Skíðalandið er mjög gott og
fjölbreytt, og býður upp á
marga möguleika. Alpagrein-
ar hafa alla tíð staöiö í mikl-
um blóma á Akureyri, en nor-
rænu greinarnar hins vegar
setið á hakanum. En undan-
fariö hefur áhugi almennings
á skíðagöngu aukist stórlega,
þar sem og annars staöar á
iandinu, enda aðstaða fyrir
göngumenn senniiega hvergi
betri en einmitt á Akureyri og
í nágrenni bæjarins.
— Hlíðarfjall er einn stærsti
fólkvangur bæjarins, en mér finnst
ráöamenn í bænum hafa lokaö
augunum allt of mikiö fyrir því þeg-
ar auka á lyftukostinn hjá okkur,
sagði Þröstur Guöjónsson, for-
maður Skíöaráös Akureyrar, í
samtali við blm. — Starfsemin í
fjallinu þjónar ekki eingöngu
keppnisfólki heldur öllum almenn-
ingi í bænum og okkur vantar
geysilega mikið nú. Viö höfum ver-
iö í biöstööu i sex til sjö ár, og viö
stöndum í staö í lyftumálum, en
aftur á móti erum viö vel búnir í
sambandi viö troðara, sagöi Þröst-
ur.
— Þess misskilnings gætir
einnig töluvert hjá fólki hér í bæn-
um aö staöurinn sé aöeins eöa
mun meira ætlaöur fyrir keppnis-
fólk. Fólk segir oft aö ekki sé hægt
að vera í fjallinu þar sem alltaf sé
verið aö keppa. Þetta er mesti
misskilningur. Þaö er rétt aö hér
eru mjög oft mót, en hér er pláss
fyrir alla í einu. Keppendur nota
aðeins einn möguleika af þremur
sem hægt er að nota hér.
Þröstur sagöi aö aökomufólk
heföi minnkaö komu sína í Hlíöar-
fjall vegna lyftuskorts. — Fólk hef-
ur þaö gaman af þvi aö fara á skíði
að þaö nennir ekki að bíöa lengi í
röð viö lyftu, sagöi Þröstur. — í
fyrra var hér mikið af skóla- og
vinnuhópum yfir helgar, en þaö er
staöreynd aö vinsældirnar hafa
minnkað og ástæöan er lyftuskort-
ur, á því er enginn vafi.
Fram kom í upphafi aö alpa-
greinar hafa ætíö veriö mjög vin-
sælar í bænum, en undanfariö hef-
ur fólk aukiö mjög aö ganga á
skíöum. Þröstur var spuröur hvort
Akureyringar ættu oröiö marga
keppendur í göngu.
— Þaö er nú ekki stór hópur
sem æfir reglulega, en þaö er góö-
ur hópur. Þrír af okkar mönnum
eru nú viö æfingar í Austurríki, og
um mánaöamót kemur hingaö ís-
firöingur og kennir göngu í þrjár til
fjórar vikur til aö byrja meö a.m.k.
Bak viö þaö liggur sú hugsun aö
kenna fólki á gönguskíði og
stækka þannig keppnishópinn og
fá yngri keppendur.
— Aöstaöa fyrir alpagreina-
menn hefur alltaf veriö mjög góð
hér í bænum, og nú er aöstaöa
göngumanna einnig oröin mjög
góð. Upplýsta göngubrautin í
Kjarnaskógi hefur verið göngunni
mikil lyftistöng, en hún er einmitt
mest fyrir almenning. Hún nýtist
best á tímabilinu nóvember til
febrúar, en eftir þaö fer fólkiö frek-
ar í fjalliö þegar birta fer til að nota
dagsbirtuna. Þá er fjalliö vinsælla
um helgar, en þá eru þar alltaf
troðnar brautir.
— f Kjarnaskógi er troöin tvö-
föld slóö á hverjum degi og veriö
er aö endurbæta aöstöðuna þar.
Þar er snyrting opin fyrir almenn-
ing, og þar er einnig veitt þjónusta
í sambandi viö skíöaiökunina
sjálfa. Fólki er sagt til viö gönguna
og leiðbeint aö bera undir skíöin.
Nú, í Hlíöarfjalli eru ætíö troönar
brautir fyrir almenning um helgar
og aöstaöan góö þó vanti lýstan
hring, en þaö kemur væntanlega i
framtíöinni.
„Stökkpallur —
engir stökkvarar"
— í sambandi viö stökkiö þá er
þaö aö segja aö hér er enga
stökkvara aö finna, en aftur á móti
eigum við einn besta stökkpall
landsins. Þaö þarf lítiö til, að koma
honum i þaö ástand aö hægt sé aö
keppa á honum, og viö höfum ver-
iö aö vonast eftir því aö áhugi á
stökkinu ykist, eftir aö fariö var aö
keppa í því á Andrésar andar-
leikunum.
— Á leikunum höfum viö búiö
til pall úr snjó og krakkarnir hafa
stokkiö þar í „fullum herklæöum"
— þ.e. á svigskíöum og á venju-
legum klossum, þó þaö sé nú ekki
mjög vinsælt hjá forráöamönnum
þeirra byggöarlaga sem leggja
mikla áherslu á stökkiö.
„Við erum með
bestu brautirnar“
— Hvaö aöstöðuna varöar þá
held ég aö í Bláfjöllum séu bestu
tækin varöandi lyftukost og flutn-
ing á fólki. En ég er sannfærður
um aö viö erum meö bestu og fjöl-
breyttustu brekkurnar. En þaö
verður aö viöurkenna, aö við erum
ekki iengur í fararbroddi eins og
viö vildum vera. Undanfarin ár höf-
um viö verið aö bíöa eftir aö hinir
staöirnir nái okkur, en nú tel ég aö
þeir séu komnir fram úr.
— En nú er ný diskalyfta á fjár-
hagsáætlun. Hún veröur 150 metra
löng og á aö ganga upp frá Strýtu.
T-lyftan sem er á þeirri leiö mun
færast niður i skíöalandið og flytja
fólk upp í Strýtu, sem sagt sömu
leið og stólalyftan gerir nú. Þannig
aukum við flutningsþoliö upp í
Strýtu til muna og breikkum um
leið svæöiö um helming. Þetta er
nauösynlegt vegna almennings, en
auövitaö mun keppnisfólkiö einnig
njóta góös af þessu.
— Þá eru tvær færanlegar tog-
lyftur nú í tolli og eiga þær aö
koma í staö togbrautanna, sem nú
eru í neöstu brekkunum. Kaölarnir
eru raunverulega stórhættulegir
og alls ekki æskilegir.
í Hlíöarfjalli er rekinn skíðaskóli
og sjá starfsmenn Skíöastaða um
hann. Aö sögn Þrastar er alltaf góö
Þröstur Guðjónsson, formaður
Skíðaráös Akureyrar. Mvnd sii
aðsókn í skólann, en hann er bæöi
fyrir byrjendur og þá sem lengra
eru komnir í íþróttinni. Kennarar í
skólanum kenna eftir bandarísku
kerfi, en þeir sóttu námskeið til
Bandaríkjanna í sambandi viö
skíöakennslu.
Hvernig er meö fjármál SRA?
— Viö erum nú ekki alltof vel
settir fjárhagslega. Ég get nefnt
þaö aö ef við náum yfir 100 krökk-
um í keppni í vetur — og þali
borga æfingagjöld — náum viö
þannig um 10% upp í kostnað viö
rekstur ráösins. Aöalkostnaöarliö-
urinn er, hjá okkur eins og öörum,
þjálfaralaun og ferðakostnaöur, og
þaö sem upp á vantar reynum viö
aö ná í meö betli og ýmsum hefö-
bundnum aðferöum.
Aö sögn Þrastar á Skíöaráö Ak-
ureyrar ein fullkomnustu tímatöku-
tæki sem hér er aö finna, en ráöiö
telur nauösynlegt aö eignast önnur
slík þannig aö hægt veröi aö þjóna
því sem þurfi. — Þaö er mjög
brýnt aö eiga tvö sett. Þeir sem
keppa á vegum SRA, ungir jafnt
sem gamlir, gera alltaf kröfur til
okkar um allt sé í lagi í mótshald-
fhcií aö viö séum með almennilegar
stangir, að brautirnar séu góöar
og aö tímatökutækin séu í lagi.
— Þetta er auðvitað geysilega
mikil vinna aö standa í þessu. Hér
er eitthvaö um að vera um hverja
einustu helgi frá 14. janúar þangaö
til í byrjun maí. Um þessar mundir
má segja aö viö séum í fjallinu um
sjö tíma á dag, en þegar lengra
líöur er fólk hér aö störfum allt upp
í 10 tíma laugardaga og sunnu-
daga. Þetta er auövitað allt sjálf-
boðavinna, varla þarf aö taka þaö
fram.
— En hér er sem betur fer mik-
ill áhugi og nóg af fólki til aö vinna.
Þaö var mjög snjöll hugmynd þeg-
ar svokallað Foreldraráö var stofn-
aö fyrir nokkrum árum. í því eru
foreldrar krakka yngri en 12 ára og
koma þau mikiö meö krökkunum
og hjálpa til. Foreldraráðiö sér um
allt mótshald fyrir krakkana og fer
meö þeim í feröir. Starf Foreldra-
ráös hefur gefist mjög vel.
Síöan má segja frá því í lokin aö
Skíöaráöiö lætur taka öll mótin í
vetur upp á myndband, sem því
var gefiö, og er þaö aö sögn Þrast-
ar liöur í þeirri þjónustu sem ráöiö
reynir aö veita keppendum sínum.
Þeim gefst svo kostur á að fylgjast
meö keppnunum eftir á og á þaö
bæöi viö um alpagreinar og göngu.
Tímans rás veröur ekki viö snúið
og nú tröllríöur myndbandaæöiö
landsmönnum eins og allir vita.
Viöa er þaö til mikillar óþurftar, en
vonandi veröur ekki um slíkt aö
ræöa hjá SRA. Vonandi veröur
þaö til aö bæta árangur og auka
áhuga enn frekar.
— SH.
Rúta — full af ungum og áhugasömum skíðamönnum — komin upp í
Fjall og ekkert eftir nema að drífa sig á skíðin og af stað. Algeng sjón
í Hlíöarfjalli. Mynd Skapti