Morgunblaðið - 26.01.1983, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 26.01.1983, Qupperneq 16
56 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983 „Þetta svæöi býð- ur upp á óendan- lega möguleika“ — segir Valur Pálsson, formaöur skíöadeildar ÍR, um skíöasvæöi ÍR-inga á Hamragilssvæöinu Á síðustu árum hafa ÍR- ingar byggt upp hina ákjós- anlegustu aðstöðu til skíða- iðkana á landi sínu viö Hamragil, örskammt frá Kol- viðarhóli. Þar eiga þeir skíða- skála með gistiaöstöðu fyrir eitt hundrað manns og komn- ar eru þar fjórar lyftur, sem flutt geta 2.600 manns upp brekkurnar á hverri klukku- stund. Morgunblaöið tók formann skíðadeildar ÍR, Val Pálsson, tali til að fræöast um skíðaaöstöðuna í Hamragili. „Þarna eru brekkur allt aö tveir kílómetrar á lengd, allar troönar. Lytturnar flytja menn neöst neöan úr Hamragilinu upp á tind Skarösmýrarfjalls, 1250 metra vegalengd, en þar stendur mönnum opiö eitthvert skemmti- legasta skíöasvæöi hér sunnan- lands. Þaðan er hægt að ganga um allt Hengilssvæöiö, allt inn í Innstadal, og munum viö merkja göngubrautir á svæöinu nú í vetur. Þetta svæöi býöur upp á óendan- lega möguleika," sagöi Valur, „langar brekkur og flatar efra, en svo er giliö brattara fyrir þá sem vilja erfiöara land. Svæöið uppfyllir því óskir flestra." ÍR-svæöið er, eins og áður sagöi, í nágrenni Kolviöarhóls. Ek- iö er út af Suðurlandsvegi rétt áöur en komiö er aö brekkunum fyrir neöan Hveradali. Geröar voru miklar endurbætur á veginum á svæöinu á síöastliðnu sumri, þar sem gamli vegurinn vildi lokast fljótt, var mjór og lágur. Er þar nú kominn sex metra breiöur upp- hækkaöur vegur, sem Valur sagöi vera mikla breytingu til batnaðar. Frá þjóöveginum upp í Hamragil eru þrír kílómetrar. Fluttu úr Bláfjöllum „Viö höfum byggt þetta svæöi upp á síöustu 6—7 árum, allt í sjálfboöavinnu félaga í skíöadeild- inni, nema veginn, viö fengum til- boö í hann. Skálinn var aö vísu kominn hér áöur, eöa fyrir 20 ár- um. Viö fluttum í Bláfjöll þegar þau opnuöu, en fluttum fljótt burtu, þar var hreinlega ekki pláss. Fólks- fjöldinn var svo mikill og þrengslin svo yfirþyrmandi, aö viö sáum strax fram á aö þar myndum viö aldrei geta byggt upp neitt félags- starf, og viö fórum á okkar gamla svæöi aftur og hófumst strax handa, og er uppbygging svæöis- ins langt komin. Viö byrjuöum strax á því aö kaupa eina lyftu, og síðan hefur þetta prjónaö utan á sig jafnt og þétt," sagöi Valur. Valur Pálsson sagði aö skíöa- svæöi ÍR-inga yröi opiö alla daga frá klukkan 10 til 18, frá og meö þessari helgi, nema þriöjudaga og fimmtudaga, þá yröi opiö til klukk- an 21.45 á kvöldin. Lýsing væri i brekkunum á kvöldin. Sérstakar feröir væru á skíöasvæöiö á veg- um ferðaskrifstofu Úlfars Jakob- sen á þriöjudags- og fimmtu- dagskvöldum, og einnig um helg- ar. Skíðakennsla Um helgar starfrækja ÍR-ingar skíöaskóla á svæöinu sínu fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir, börn og fulloröna. Nám- skeiö eru frá kl. 12.30 til 15. hvorn dag og stjórna þeim læröir kenn- arar. Veröur þessi skíöaskóli starf- andi í allan vetur og er innritun á staönum. Að auki eru svo sérstak- ar skíöaæfingar fyrir keppendur ÍR, en þjálfun þeirra annast Björgvin Hjörleifsson og Höröur Sverrisson. I skíöaskálanum er gistiaöstaöa fyrir um 100 manns. Er hann leigö- ur út um helgar, og skólanemend- ur gista hann jafnan í miöri viku í skíðaferöum skólanna, þannig aö þar er jafnan fjölmenni, aö sögn Vals. Valur sagöi alla snyrtiaöstööu vera í góöu lagi á svæöinu, og einnig væri veitingarekstur í smá- um stíl í þjónustumiöstööinni og i skálanum. Tveir fastir starfsmenn eru á svæöinu og sjá þeir um rekstur skálans og um lyfturnar. Sími er í skíöaskálanum. Ókeypis í barnalyftu Eins og áöur sagöi hafa ÍR-ingar lagt lyftur frá botni Hamragils og upp á tind Skarösmýrarfjalls og þaðan er hægt aö renna sér niður tveggja kílómetra brekku niöur í giliö, meö 300 metra fallhæö. En einnig hafa þeir komiö fyrir barna- lyftu neöst á svæöinu, kaöallyftu, sem börnin raöa sér í, aö sögn Vals, og fá þau ókeypis afnot af lyftunni. Sagöi Valur aö i framtíö- inni stæöi til aö setja upp fleiri barnalyftur á svæöinu. „Þaö er út af fyrir sig mikill kost- ur hversu þetta svæöi er nálægt þjóðveginum; aöeins þrír kílómetr- ar á malbikiö. Aökoman er nú orö- in góð eftir endurbætur á vegin- um,“ sagði Valur. Hann sagöi aö á síöasta ári heföu framkvæmdir Lokaspretturinn upp á tind Skarðsmýrarfjalls. Þessi lyfta er 750 metra löng, en að henni liggur önnur lyfta neðan úr Hamragili. Á tindi Skarösmýrarfjalls opnast stór svæði, sem henta bæði göngumönnum og þeim sem vilja bruna niður brattar brekkur. ÍR-inga á svæöinu kostaöjjm þrjár milljónir króna, þar af fóru 1,5 milljónir í lyftu og hálf í nýjan brautatroðara. Valur sagöi aö Reykjavíkurfé- lögin (R, KR og Víkingur heföu meö sér samstarf aö þvi leyti til, aö árskort, sem þau seldu á svæöum sínum, giltu á skíðasvæöum þeirra allra. í eigin landi „Þetta er okkar eigið land, Hamragilslandiö," sagöi Valur, „og hér er elzta skíöasvæöi Reykjavík- ur. Og reyndar eru fleiri lyftur en okkar á landi ÍR, því Víkingar hafa af því afnot og lyfta þeirra í Sleggjubeinsdal er á okkar landi. Þaö var í apríl 1938 að ÍR keypti Kolviðarhól og byggöi þar fullkom- iö skíðaheimili. ÍR-ingar voru þó áöur en þeir keyptu Kolviöarhól farnir aö stunda skíði, því þar héldu þeir skíöanámskeiö um páskana 1937, og aftur seinna. Þar var komiö upp skíöalyftu, á Þver- felli, og er þaö fyrsta skiðalyfta á íslandi. Fljótlega hófust reglu- bundnar skíðaferöir um helgar aö Kolviöarhóli. Feröir voru meö vörubifreiðum frá Þrótti, sem sett voru á farþegaskýli. Seinna var svo Kolviöarhóll seldur Reykjavikur- borg, félagiö varö sér út um land í næsta nágrenni, sem kennt er viö Hamragil. Reyndar var þaö svo, aö meöan fólagiö starfaöi á Kolviö- arhóli, fóru margir inn í Hamragiliö, en þaö fór heldur í taugarnar á ýmsum hjá félaginu, sem endaöi meö því aö Hamragilssvæöiö var keypt," sagöi Valur Pálsson, for- maöur skíöadeildar ÍR, aö lokum. — ágás. Uppdráttur af skíöasvæði ÍR-inga á Hamragilssvæöinu. Hæðarmunurinn frá þjónustumiðstöðinni við lyftuna í gílsbotninum upp á tind Skarðsmýrarfjalls, en þar á milli hafa ÍR-ingar lyftuvætt, er 300 metrar. Lyftur ÍR-inga geta flutt 2.600 manns á klst. Skíöaskáli ÍR í Hamragili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.