Morgunblaðið - 26.01.1983, Page 22
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983
„Þeir sem eru í skíöa-
ráði vita hvað þeir eiga
að gera við sinn frítíma“
— segja formaöur og gjaldkeri Skíöaráös Húsavíkur
Ljósm. Skapti IlallgrímsNon
Árni Sigurðsson, formaður Skíðaráðs Húsavíkur, (t.v.) og Sigurgeir
Aðalgeirsson, gjaldkeri við skíðaskálann, uppi á Stöllum. A milli
stendur Regína, dóttir Sigurgeirs.
í Reykjavík og nágrenni er tölu-
verð vegalengd í skíöasvæði íbú-
anna, en ekki er svo alls staðar á
landinu. Að öllum líkindum er
hvergi styttra á skíði en á Húsa-
vík, en þar geta bæjarbúar hæg-
lega gengið með skíöi sín eöa
jafnvel rennt sár að heiman í
neðstu brekkuna. Neðsta lyfta
þeirra Húsvíkinga er aöeins um
200 metra frá hótelinu. Uppi á
Stöllum hitti blm. að máli þá Arna
Sigurðsson formann skíöaráös-
ins og Sigurgeir Aðalgeirsson
gjaldkera og sögöu þeir vissu-
lega mikinn kost hve stutt væri í
skíöalandið, en því fylgdi einnig
ókostur. — Þetta er mjög nálægt
sjó, og snýr einnig móti sól,
þanníg aö maður bókstaflega sér
snjóinn hverfa þegar tekur að
hlýna. En helsti kosturinn viö
þetta er að fólk losnar algerlega
við mikinn tilkostnaö i sambandi
viö ferðir, sögðu þeir félagar.
Að sögn þeirra er mikill áhugi á
skíöaíþróttum í bænum og er upp-
vöxtur göngunnar mikill. — Hér er
skíöalandið mikiö notaö af öllum
aldurshópum, og er opiö fyrir al-
menning fimm kvöld í viku. Þaö er
mjög algengt aö fólk skelli sér á
skíöi þegar vinnu er lokiö kl. 5, og
er þaö nálægöin sem gerir það aö
verkum.
— Viö erum meö keppnisfólk í
öllum flokkum alpagreina, og í
unglingaliöinu eru um 15—20
manns sem æfa. Síöan er mikill
fjöldi í yngri flokkunum, en há-
punktur vetrarstarfsins hjá þeim er
þátttaka í Andrésar andar-leikun-
um á Akureyri. Viö sendum 55
krakka þangað í fyrra og þeir
veröa örugglega ekki færri núna.
Við höfum tvo þjálfara fyrir keppn-
isfólkið, Ingþór Sveinsson og Björn
Olgeirsson, en viö erum ekki meö
keppendur í norrænu greinunum.
„Troðum göngubrautir
á hverjum degi“
— Meiningin er hjá okkur að
troöa göngubrautir á hverjum degi
þegar snjór og veöur bjóöa upp á
slíkt, og er áhugi fólks á því mikill
og almenningur notar aöstööuna
vel.
Þegar spurt er um aðkomufólk,
segjast þeir veröa aö viöurkenna
að undanfarin ár hafi eftirspurnin
minnkaö nokkuö frá því sem áöur
var. — Á síðustu árum hefur mis-
tekist aö nokkru leyti aö laöa
hingaö fólk á skíöi. Margir hafa
veriö búnir að panta hér pláss, en
síöan oröiö að hætta viö vegna
snjóleysis. Á þaö aðallega viö um
páska en undanfarin ár höfum viö
einmitt veriö mjög óheppnir með
hvaö lítill snjór hefur veriö hér á
páskum.
„Góð samvinna við
bæjarfélagið“
Árni og Sigurgeir sögöu Skíöa-
ráöið hafa átt mjög gott samstarf
viö bæjarfélagiö. — Viö höfum
fengiö mjög góöan stuöning frá
bæjarfélaginu. Fyrir þremur árum
keyptum viö tvær lyftur, og síöan
keyptum viö troöara í fyrra. Þá hef-
ur veriö byggt hér viö skíöaskál-
Veitt í gegnum ís og ekiö á snjósleðum:
„Held aö þetta
geti orðið bráð-
sniðug nýjung“
— segir Auöur Gunnarsdóttir hótelstjóri
— Við munum aðallega leggja
áherslu á heilsuvikurnar í vetur —
en aftur á móti minni á skíöin en
áður, en þegar góður snjór er, get-
ur skíðaiðkun auðvitað orðið
punkturinn yfir i-ið í heilsuvik-
unni, sagði Auður Gunnarsdóttir,
hótelstjóri Hótels Húsavíkur, í
spjalli við Vlbl.
Þessi orð Auðar má fólk þó ekki
taka þannig að varla verði hægt að
leggja leið sína til Húsavíkur til
skiðaiðkunar, þvert á móti er það
mjög heppilegt. Hér er hótelið allt-
af troðfullt um páska, segir Auður,
en á öðrum timum er það yfirleitt
ekki fullt, þó alltaf sé hér eitthvaö
af fólki. Reyndar finnst mér und-
arlegt í hve litlum mæli fólk kemur
hingað miðað við hve stutt er að
fara i skíðabrekkurnar og þægilegt
að athafna sig.
— Fólk getur labbað í lyftuna
og tekur það í mesta lagi fimm
mínútur, og þegar það er búið að
fá nóg rennir það sér einfaldlega
aftur heim á hótel. Hér er fólk
ékki háð rútuferðum eða bíla-
leigubílum og minnkar það
kostnaðinn auðvitað verulega, en
ég held að fólk hafi ekki áttað
sig almennilega á því hve hent-
ugt er að vera hér.
Hvenær hefst fólksstraumur-
inn hingað?
— Hann byrjar aldrei fyrr en
birta fer af degi. Janúar er t.d.
alveg dauður þó nægur snjór sé
fyrir hendi. Við höfum verið með
þessar vikur í átta ár og hafa
þær verið nokkuð vinsælar. Við
höfum bæði boðið upp á „helg-
arpakka" og „miðvikudags-
pakka". Hér er um að ræða
tveggja til þriggja nátta pakka
og fórum við að bjóða fólki að
koma hér í miðri viku þar sem
þá er minni aðsókn í skíðalöndin
og því meira næði, en helgarreis-
urnar hafa samt sem áður verið
vinsælli.
Eruð þið með eitthvað nýtt á
döfinni?
— Já, reyndar. Nú í febrúar
höfum við ákveðið að bjóða upp
á svokallaðan „vetrarpakka" eða
„vetraríþróttapakka" — sem
stendur yfir í 2—3 daga.
— Fólki verður boðið upp á
snjósleðaakstur, að veiða í gegn-
um ís á vatni og að sjálfsögðu
geta þeir farið á skíði sem það
vilja. Eg veit ekki til þess að upp
á þetta hafi verið boðið annars
staðar, en þetta er eitthvað nýtt
fyrir fólk. Við verðum með góðan
leiðsögumann í þessu og ég held
að þetta gæti orðið bráðsniðugt.
Það gæti farið svo að upp á
eitthvað meira yrði boðið í þess-
um pakka en það er ekki ákveðið
ennþá, sagði Auður. — SH.
-M
m
Ljósm. SH
Auöur Gunnarsdóttir, hótelstjóri Hótels Húsavíkur. „Páskarnir eru
aöal annatíminn hér eins og annars staðar," segir hún.
ann og komið þar fyrir snyrtiaö-
stööu sem tilfinnanlega hefur vant-
aö hingað til.
Húsvíkingar keyptu einnig í
haust mjög vönduö tímatökutæki
frá Austurríki, sem kostuöu 70.000
krónur, og segja þeir Árni og Sig-
urgeir Húsvíkinga nú á góöri leiö
meö aö vera mjög vel tæknilega
stadda í sambandi viö mótahald.
Afkastageta lyftanna er um 2.000
manns á klukkustund.
Húsvíkingar hafa stundaö skíöa-
íþróttina á sama staö í langan
tíma, og kom fyrsta togbrautin
1963. — Síöan þá hafa engar stór-
vægilegar breytingar oröiö á
svæöinu, segir Árni. Svæöiö er
opið alla virka daga frá kl. 10—22,
og vel sótt.
„Kom alltaf hláka
er við auglýstum“
Þegar spurt er um skíöaskóla,
segja þeir aö haldin hafi verið
kvöldnámskeið, og hafi þau veriö
ágætlega sótt. Ekki segir Árni þó
aö vel hafi tekist til aö öllu leyti. —
Við vorum orönir hvekktir á því, aö
í hvert skipti sem viö auglýstum þá
kom hláka.
— Áhuginn hér er slíkur aö í
fyrra héldum viö sex barnamót og
keppendur voru aldrei undir 100,
og mest voru 120 keppendur á
einu mótinu. Þá hefur almenningur
mikinn áhuga á því aö styöja viö
bakiö á okkur, og gott dæmi um
þaö er, aö fyrir eitt mótið í fyrra,
hringdum viö í foreldra krakka 12
ára og yngri og báöum þá aö aö-
stoöa okkur viö mótiö. Og á mót-
inu áttum viö tvöfaldan fjöldá af
portavöröum, þannig aö á þvi sést
hve margir létu sjá sig.
— Annaö dæmi um áhugann er
góö sala okkar á kortum í lyfturn-
ar. í fyrra seldum viö 400 árskort,
og þar eru göngumenn og þeir
sem kaupa dagskortin ekki taldir
meö aö sjálfsögöu. Þetta verður
aö teljast gott hlutfall í 2.500
manna bæ.
I sambandi viö starfið í vetur
kom fram aö ekki hefði verið hægt
aö byrja fyrr en um jólin. — Viö
byrjuöum á annan í jólum fyrir
keppnisfólkiö, og er þaö þremur
mánuöum seinna en i fyrra. Viö
byrjuöum þá um mánaöamótin
september-október. Ásóknin
minnkaöi þá í skíðalöndin í febrú-
ar, þannig aö almenningur hefur
ekki lengra úthald í þetta. Þá var
ásóknin að minnka þegar hún und-
ir venjulegum kringumstæöum
ætti aö vera aö aukast — þegar
daginn tekur aö lengja á ný.
Eins og annars staöar er starf
skíöaráösmanna unniö í sjálfboöa-
vinnu, og hafa þeir svo sannarlega
nóg aö gera. — Þeir menn sem
eru í skíöaráði vita hvað þeir eiga
aö gera viö sinn frítíma, sagöi Árni.
— Viö erum meö þrjá menn á
launum hérna, tvo lyftuveröi og
einn troöaramann, en síöan sjáum
viö um vörslu á efra svæöinu og
troöarann um helgar. Hér er
eitthvað um aö vera um hverja
helgi þannig aö í nógu er aö snú-
ast.
Uppi á Stöllum er fólki fariö aö
fækka, enda nokkuö liöiö á dag-
inn, þegar viö göngum út og spjall-
inu er lokiö. En niöri á Skálamel og
í Löngulaut er enn mikiö af fólki.
Krakkar meö foreldrum sínum eöa
einir sér njóta þess að renna sér
niöur brekkurnar á fullri ferö og
ekki viröist kuldinn bíta neitt á
þau, þó hann sé töluveröur.
— SH.