Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983
17
búöarhúsið í Hognerud.
að kenna 29 stundir á viku.
Eins og áður er sagt er býli
þeirra allstórt sé miðað við norsk-
ar aðstæður. Þau hafa 15 ha undir
kornrækt og fá þau 2,30 n.kr. fyrir
hvert kg af höfrum, en þá rækta
þau aðallega. Þau eru laus við
mjög erfitt illgresi er flóðhafrar
nefnast, en það lítur út tilsýndar
sem venjulegir hafrar, en gefur
enga uppskeru.
Einnig rækta þau dálítið af epl-
um, en þau eru frekar smá en
bragðið er ágætt.
Húsið þeirra er 50 ára gamalt
timburhús og 150 fermetrar að
grunnfleti og á tveimur hæðum.
Stofan þeirra er til dæmis 75 fer-
metrar. Húsinu er nú verið að
breyta í nýtísku húsnæði með öll-
um nútíma þægindum, en öll stíl-
einkenni látin halda sér. Þau hita
hús sitt upp með rafmagni, en
rafmagnsverð er hér lágt eða 17 til
22 aurar norskir fyrir hverja kíló-
wattstund. Einnig eru viðarofnar í
hverju herbergi og stór arinn í
stofunni.
Þau hjón hafa 2 dráttarvélar og
önnur þeirra er ný 88 hestafla með
drifi á öllum hjólum, en hin er um
40 hestöfl. Auk þess hafa þau
marga fylgihluti svo sem korn-
þreskivél, plóga og herfi. Einnig
hafa þau snjóblásara og snjóplóg
sem hægt er að tengja við drátt-
arvélarnar.
Einnig hafa þau 5 tonna vörubíl,
sem notaður er fyrir heimilið og
við búrekstur.
Á vetrum stundar Gjermund
skógarhögg í skógi sínum, en hann
er 90 ha stór og eru aðallega greni
og fura sem þar vaxa og dálítið af
björk. Afkastageta skógarins er
frekar lítil að sögn Gjermund eða
um 1,6 rúmmetrar af trjávið af
hverjum ha yfir árið. Ástæðan er
sú hve hátt skógurinn stendur, eða
um 200 metra yfir sjávarmáli.
Eg fæ að fara með Gjermund í
skóginn, en þar hjó hann, eða rétt-
ara sagt, hann sagaði tré með
handhægri japanskri vélsög.
Hann var vel búinn til þessarar
vinnu og var klæddur buxum sem
voru fóðraðar þannig að sögin
stoppaði af sjálfu sér ef hún kom
við þær. Þessi útbúnaður hefur
komið í veg fyrir mörg slys að
sögn Gjermund.
I skóginum er gróður að megin-
stofni sá sami og hér heima. Þar
var mikið af aðalbláberjalyngi,
bláberjalyngi, beitilyngi og fjalla-
grösum, en nafninu höfðu þeir
týnt og kallast þau nú íslandslav
en á síðari tímum hafa Norðmenn
fengið vitneskju um notkun þeirra
frá Islandi.
Eftir þessa ferð í skóginn með
Gjermund er mér betur ljós sú
staðreynd að á Islandi er hægt að
rækta skóg ef vilji er fyrir hendi,
en það tekur um 80 til 100 ár.
Gjermund segir að verð á timbri
fari nú lækkandi og munu því
margir skógarbændur ekki höggva
skóg í vetur, en Svíar borga hærra
verð fyrir óunninn trjávið en fæst
fyrir hann í Noregi og munu skóg-
arbændur, sem næst landamærun-
um búa, notfæra sér það. Hins
vegar selja Svíar unnar trjávörur
til Noregs á lægra verði en Norð-
menn geta gert sjálfir.
Gjermund má veiða 9 elgsdýr í
skógi sínum og virðist nú stofninn
vera í jafnvægi. Einnig má hann
veiða 1 dádýr.
Þau hjón hafa nú engin húsdýr,
enda offramleiðsla hér vandamál
ekki síður en á Íslandi og Gjer-
mund segir að norskir bændur fái
700 n.kr. fyrir að slátra kálfum
sínum nýfæddum og er það gert til
þess að hamla gegn offramleiðslu
á nautakjöti.
Þau hjón vinna bæði mikið að
félagsmálum innan kirkjunnar og
Gjermund fyrir félag kristin-
fræðikennara í Noregi. Sjaldan er
því vinnudegi þeirra lokið fyrr en
klukkan 9 til 10 að kvöldi. Á
sunnudögum vinna þau ekki, en
fáir helgidagar munu það vera
sem þau fara ekki til kirkju.
Þau hjón eru bæði miklir ís-
landsvinir og vita meira um ísland
og íslendinga en mörg okkar vita
um Noreg.
Hlýjum blæ andar frá hjónun-
um í Hognerud til frænda sinna í
vestri.
VIÐ HGUM NUNA
VAWELAR
.OGWÍ
ALAGER
Við eigum fyrirliggjandi
vax og vaxvélar fyrir grafíska
iðnaðinn, Leitaðu upplýsinga
hjá okkur.
Asetning
Husið opnar kl. 7. — Borðhald kl. 8. Borðapantanir @ 23335
URVAL
URVAL
í Þórscafé
sunnudagskvöld 13. febrúar.
FERÐAKYNNI
Sumaráætlun 1983.
★ Úrvalskvikmynd frá Mallorca og
★ Kynning á Mallorcá og Ibizaferð
★ Bingó — 2 sólarlandaferðir í vi
★ Skemmtiatriði: Þórskabarett.