Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Umsjón: Sighvatur Blöndahl Methagnaður hjá Norsk Data 1982: 10% hagnaðarmarkinu náð í fyrsta skipti MIKILL uppgangur hefur verið hjá nurska fyrirtækinu Norsk I)ata á síðustu árum og á dögunum tilkynnti fyrirtækið, að hagnaður af rekstri þess á síðasta ári hefði verið í námunda við 9,2 milljónir Bandarfkjadoll- ara, sem svarar til liðlega 175 milljóna íslenzkra króna. Ef þessi rekstrarniðurstaða er borin saman við niðurstöðu árs- ins 1981, kemur í ljós, að aukn- ingin milli ára er í námunda við 60%. Heildarrekstrartekjur Norsk Data á liðnu ári voru í námunda við 87 milljónir Bandaríkjadollara, sem er um 27% aukning frá árinu á undan. Heildarpantanir á framleiðslu Norsk Data á síðasta ári voru að upphæð liðlega 84,2 milljónir Bandaríkjadollara, en voru til samanburðar um 70,4 milljónir Bandaríkjadollara á árinu 1981. Aukningin milli ára er því lið- lega 19,6%. Að sögn talsmanns fyrirtæk- isins hefur aukningin komið nokkuð jafnt fram á innlenda markaðnum og þeim erlenda. Sérstök aukning hefur orðið í sölu Norsk Data á sérstökum bókhaldsvélum og síðan í nýrri „smátölvu", sem nefnist ND-500. Við skoðun á rekstrarniður- stöðum Norsk Data kemur í ljós, að fyrirtækið hefur nú í fyrsta sinn náð því takmarki sínu, að vera með hagnað upp á yfir 10% af veltu fyrirtækisins. Þá kemur í ljós, að meðalhagnaðaraukning á ári síðan 1973 er um 55%. Aðeins eitt norskt fyrirtæki hefur betri stöðu á almennum hlutafjármarkaði, en það er Norsk Hydro. Svisslendingar eyða um 9.370 milljónum króna í atvinnuuppbyggingu SVISSNESKA ríkisstjórnin hefur ákveðið að hrinda í framkvæmd sérstakri áætlun um atvinnuupphvggingu í landinu, vegna vaxandi atvinnuleysis, en kostnaðurinn við þessa áa'tlun er metin upp á tæplega 1.000 milljónir svissn- eskra franka, sem svarar til 9.370 milljóna íslenzkra króna. Tilkynning um þessa aætlun kemur í kjölfar frétta þess einis, að atvinnuleysi hefur ekki verið meira í Sviss sl. sex ár, auk þess sem þjóðarframleiðsla hefur dreg- izt saman á síðustu tveimur árum. Efnahagssérfræðingar telja engar líkur á bata í efnahagslífi landsins fyrr enn í fyrsta lagi eftir mitt þetta ár og reyndar sé ólík- legt, að sá bati verði að raunveru- leika fyrr enn undir lok ársins. Meginþáttur áætlunar stjórn- valda, er að stórauka innkaup ríkisins á ýmsum iðnaðarvörum, en verðmæti þeirra innkaupa er áætlað um 650 milljónir svissn- eskra franka, eða sem nemur um 6.090 milljónum íslenzkra króna. Gert er ráð fyrir, að þessar pant- anir verði gerðar á næstu sex mánuðum og síðan komi fram- leiðslan til afhendingar á næstu 2—3 árum. Bandarískir bflaframleiðendur: Reikna með 6,8% fram- leiðsluaukningu á 2. ársfjórðungi þessa árs. BANDARÍSKIR bílaframleiðendur virðast heldur vera að taka við sér, ef marka má framleiðsluáætlun þeirra fyrir 2. ársfjórðung þessa árs. Sam- kvæmt henni ráðgera þeir, að framleiða 1.670.000 bíla, sem er liðlega 6,8% fleiri bílar, en á sama tíma í fyrra. þýðir, að aukningin milli 1. og 2. ársfjórðungs er liðlega 10,7%. Talsmaður framleiðenda sagði að ef þessar áætlanir stæðust og síðan yrði framleiðslan á 3. og 4. ársfjórðungi sú sama og á síðasta ári, þá yrði um 10% framleiðslu- aukningu að ræða í heildina á ár- inu, en á síðasta ári voru fram- leiddir samtals um 5.074.000 bílar. Hins vegar reikna framleiðend- urnir með að draga heldur úr vörubíla- og vöruflutningabíla- framleiðslu sinni á 2. ársfjórð- ungi, eða um 5,2%. Verði fram- leiddir um 565.000 bílar. Framleiðsla bandarísku bíla- framleiðendanna verður ef að lík- um lætur um 1.508.000 bílar, sem Verðmætaaukning í útflutningi aðeins 29,7% árið 1982: Innflutningur dróst veru- lega saman undir lok árs VERÐMÆTI útflutnings íslendinga á síðasta ári var aðeins liðlega 29,7% meira, í krónum talið, en það var á árinu 1981. Til samanburðar voru almennar verðlagsbreytingar í landinu vel yfir 60% á síðasta ári og meðalgengi erlends gjaldeyris í fyrra er talið vera 61% hærra, en árið 1981. Verðmæti útflutningsins í fyrra var tæplega 8.479 milljónir króna, en var liðlega 6.536,2 milljonir kró Verðmæti útflutnings íslend- inga í desembermánuði sl. var tæplega 1.232 milljónir króna, en var til samanburðar liðlega 880,6 milljónir króna í desember árið 1981. Verðmætaaukningin milli ára er því liðlega 39,9%. Ef litið er á innflutninginn kemur í ljós, að verðmæti hans í fyrra var tæplega 11.647 millj- a árinu 1981. ónir króna, en var á árinu 1981 7.484,7 milljónir króna. Verð- mætaaukningin milli ára er því liðlega 55,6%. Verulega dró úr innflutningi undir lok ársins, sem m.a. má sjá af því, að verðmæti innflutn- ings í desember sl. er 1.139 milljónir króna, en var í des- ember 1981 liðlega 997,4 milljón- ir króna. Verðmætaaukningin milli ára er aðeins liðlega 14,17%. Vöruskiptajöfnuður íslend- inga var á síðasta ári óhagstæð- ur um liðlega 3.168 milljónir króna, en var óhagstæður um liðlega 948,5 milljónir króna á árinu 1981. í krónum talið er upphæðin því liðlega 234% hærri á síðasta ári, en árið á undan. Vöruskiptajöfnuðurinn, sem hlutfall af útflutningi landsmanna er, er um 37,4%. Sumaráætlun Arnarflugs: „Verðum með nokkra aukn- ingu frá síðasta ári“ segir Halldór Sigurðsson, sölu- og markaðsstjóri Arnarflugs „VIÐ VERÐUM meó nokkra aukningu frá þvi a siðasta ari,“ sagði Halldór Sigurðsson, sölu- og markaðsstjóri Arnarflugs, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir undirbúningi félagsins að sumaráætlun í farþegaflugi milli landa, en það hófst eins og kunnugt er á síðasta ári. „Við höfum sett upp fjórar ferðir í viku til Amsterdam í Hollandi, á þriðjudögum, fimmtudögum og tvær á föstu- dögum. Fimmtudagsferðin verð- ur svokallað „Kombiflug", þ.e. fluttir verða farþegar og vörur samtímis. Þá höfum við sett upp tvær ferðir í viku til Dússeldorf í Vestur-Þýzkalandi og verða þær báðar farnar á laugardögum. Loks verður ein ferð í viku til* Zúrich í Sviss á sunnudögum," sagði Halldór ennfremur. Aðspurður um gang áætlun- arflugsins á síðasta ári, sagði Halldór það hafa gengið vonum framar og hefði sýnt ótvírætt, að góður grundvöllur er fyrir þessu flugi. Þá var Halldór inntur eftir flugvélakosti til áætlunarflugs- ins. „Við munum nota hina nýju Boeing 737-200 þotu félagsins í öllu áætlunarflugi félagsins frá og með sumaráætlun um mán- aðamótin marz-apríl nk. Sú vél hentar okkur alveg sérstaklega vel, en um er að ræða nýlega svokallaða „Kombivél", þe. vél, sem getur flutt samtímis far- þega og vörur, sem er sérstak- lega hagstætt fyrir okkur, eink- um með tilliti til síaukinna vöruflutninga félagsins. Þá hefur verið sett ný innrétt- ing í þessa vél, þe. sæti og fleira, þannig að hún er í raun eins og ný. Reyndar er þetta rekstrar- lega hagkvæmasta vél, sem við gátum fengið, auk þess sem ör- yggistuðull Boeing 737-véla er einhver sá hæsti í heimi," sagði Halldór. Halldór sagði aðspurður, að Arnarflug hefði fyrst íslenzkra félaga tekið Boeing 737-vél í sína þjónustu, en það var vorið 1981. „Sú vél var notuð í leigu- verkefni Arnarflugs fyrir brezka flugfélagið Britannia Airways. Síðastliðið haust náð- ust síðan óamningar um áfram- hald á þessu flugi fyrir Brit- annia og var þá jafnframt geng- ið frá því, að við gætum notað vélina tvisvar í viku í áætlunar- flugi félagsins í vetur, þ.e. á þriðjudögum og föstudögum og hefur það form komið mjög vel út,“ sagði Halldór. Loks var Halldór spurður um leiguflug félagsins í sumar. „Það er ljóst, að um nokkra aukningu verður að ræða. Þegar hafa tek- izt samningar vjð Samvinnu- ferðir-Landsýn, Útsýn, Ferða- miðstöðina og Sögu, en auk þess gætu fleiri aðilar bætzt við, auk erlendra ferðaskrifstofa, sem við höfum átt samstarf við á liðnum árum,“ sagði Halldór Sigurðsson, sölu- og markaðs- stjóri Arnarflugs, að síðustu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.