Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983 Hugheilar þakkir færi ég öllum þeim sem minnt- ust mín á 90 ára afmælisdegi mínum, 8. janúar 1983. Guð blessi ykkur öll. Yaldimar Jóhannsson frá Kljá. ARKIMEDES tölvuskóli Raunverulegt tölvunám BASIC — FORRITUN I. Byrjendanámskeið í BASIC-forritun hefst 14. febrú- ar '83. Forkröfur eru engar. Námsefni: Grundvallarhugtök um tölvur, helstu skipanir í BASIC-forritun, flæðirit. BASIC — FORRITUN II. Framhaldsnámskeið í forritun hefst 15. febrúar '83. Forkröfur eru Forritun I eða hliöstæð kunnátta. Námsefni: Gerö og uppbygging forrita, sérhæföar BASIC skipanir. Hagnýt verkefni leyst meö tölvu. Verð á námskeiöi kr. 1.550,- fyrir 20 klst. Kennari Steinþór D. Kristjánsson. innritun og upplýsingar í síma 17040 kl. 16—22 og í síma 50615 á kvöldin og um helgar. ARKIMEDES — Tölvuskóli, Laugavegi 97. Borð og 4 stólar kr. 5.570.- Stærð á borði 95 cm stækkun 40 cm. Litur Ijóst og brúnbæsað. SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU VALHÚSGÖGN ÁRMÚLI 4 SÍMI82275 eftir DREW MIDDLETON Hermenn íraka mega nú verja sitt eigið land og verða því harðari í horn að taka en nokkru sinni áður. Ekki búizt við afgerandi úr- slitum milli írana og íraka Snemma á mánudagsmorgun hóf fjölmennt herlið Irana nýja til- raun til þess að sækja inn í Irak. Þúsundir hermanna tóku þátt í þessum sóknaraðgerðum, sem út- varpið í íran lýsti sem öflugustu sókn Irana allt frá því að styrjöldin hófst í september 1980. Sagði út- varpið ennfremur, að her írana hefði ruðst yfir skotgrafir og jarðsprengjusvæði, náð undir sig hundrað fermílna landsvæði og „brotið á bak aftur hernaðarmátt hers íraks“ í héraði því, sem nefn- ist Misan og er um 300 km fyrir suðaustan Bagdad. Herstjórn íraks staðfesti, að íranski herinn hafi gert til- raun til innrásar inn í Misan- héraðið, en samkvæmt frásögn út- varpsins í Bagdad hafði her íraks tekizt að gersigra tvö írönsk her- fylki, sem tóku þátt í innrásinni. Hefðu 6.894 menn úr liði Irana verið felldir og fjölmargir verið teknir til fanga. Þá var því enn haldið fram, að flugher íraks væri mun öflugri en flugher Irans, bæði að því er snertir fjölda flugvéla, búnað og kunnáttu flugmanna, hefði eyðilagt fjölda skriðdreka og komið á algerum yfirráðum íraka i lofti yfir bardagasvæðinu. Ekki hefur verið unnt að stað- festa þessar fréttir, þar sem er- lendum fréttamönnum hefur ekki verið leyft að fara til vígstöðvanna og kynna sér það, sem þar hefur gerzt. Þá hefur hvorki leyniþjón- usta Bandaríkjanna né nokkurs annars vestræns ríkis ekki viljað staðfesta þessar fréttir hernaðar- aðila af gangi mála á vígstöðvun- um, hvorki þær, sem borizt hafa frá Teheran né Bagdad. Menn þykjast hins vegar gera sér grein fyrir því, að þessi styrjöld hefur færzt á nýtt stig, ef frásagnir Ir- ana af sigurvinningum þeirra eru sannar. Þetta er fjórða sókn írana frá því í júlí sl. og var henni lýst sem lokasókn styrjaldarinnar af Hash- emi Rafsanjani, forseta íranska þjóðþingsins. „Þjóðin væntir þess, að þessi hernaðarsókn verði loka- þátturinn í stríðinu," var haft eft- ir honum í útvarpinu í Teheran. Sókn írana nú var valinn jæssi tími til þess að minnast þess, að nú eru fjögur ár liðin frá bylting- unni í íran, sem fór fram undir forystu Ayatollah Khomeini, en íranir skjóta eldflaug í stríðinu við íraka, sem nú hefur staðið í fjögur ár. hinn 11. febrúar 1979 sagði síðasta ríkisstjórn Mohammed Reza Pahl- avis keisara af sér. Forsætisráð- herra hennar var Shahpur Bakhti- ar. Margt hefur þótt benda til þess undanfarna daga, að stórsókn Ir- ana væri yfirvofandi og sam- kvæmt frásögn forystumanna fr- aka áttu franir að hafa safnað saman 150.000 manna herliði í þessu skyni. Svo virtist sem sóknaraðgerðum frana væri fyrst og fremst beint gegn A1 Amarah, sem er borg við þjóðbrautina, er liggur frá norðri til suðurs, frá Bagdad til hafnar- borginnar Basra í Suður-írak. Ef frönum tækist að ná A1 Amarah á sitt vald, þá myndu þeir samtímis ná að stöðva alla umferð fraka um þjóðbrautina og þar á meðal alla herflutninga milli Bagdad og Basra. Ýmsir hafa orðið til þess að draga i efa yfirlýsingar frana um, að herliði þeirra hafi tekizt að ná skjótum og miklum árangri í sóknaraðgerðum sínum nú. Er á það bent, að svæðið, sem íranir réðust á, hafi verið víggirt ramm- lega af frökum frá því að herlið frana kom sér fyrir sl. haust í hæðum þeim, sem liggja meðfram landamærum ríkjanna á þessum slóðum. Mikilli árás frana í nóvember sl. var hrundð af frökum, sem beittu þá óspart stórskotaliði og flugvél- um. Aður höfðu íranir reynt að sækja inn í frak í norðri, á því svæði sem heitir Mandali en verið hraktir til baka. f júlí höfðu íranir ráðizt inn í frak nálægt Basra, en orðið að hörfa til baka eftir harða mótspyrnu fraka. Ef íranir hyggjast nú sækja fram á svæði því sem nefnt er Fakeh, þá verða þeir að fara um opna sléttu til þess að geta ráðizt á virki fraka og víggirðingar, sem búin eru fallbyssum, eldflaugum og skriðdrekum. Talið er að að- staða fraka sé betri á þessu svæði til varnar en frana til sóknar, nema því aðeins að þeir síðar- nefndu hafi náð að verða sér úti um fjölda af nýjum herflugvélum. Eins og í fyrri sóknarlotum frana myndu frakar heyja varnarstríð, þar sem þeir réðu yfir öflugum varnarvirkjum meðfram attri vfg- línunni og væru studdir úr lofti af vel búnum flugher sínum, sem væri mun öflugri en flugher frana. franir hafa reynt að festa kaup á herflugvélum og öðrum vopnum í Asíu og Austur-Evrópu frá því snemma sl. haust, en árangur þeirra hefur verið fremur litill í því efni. Er talið, að efnahagur fr- ana standi ekki það traustum fót- um, að þeir geti varið stórfé til hergagnakaupa. Aðstaða fraka í styrjöldinni nú er af mörgum talin fremur góð. Þá má búast við því, að þeir muni sýna af sér meiri hörku nú, er þeir eiga sitt eigið land að verja, heldur en í sóknaraðgerðum þeirra inn í fran 1980 og 1981. (N.Y. Times News Service)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.