Morgunblaðið - 20.03.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
21
Kjötinu skipað upp í Gdynia.
Á götuhorni í Varsjá. Einar Sigurðsson, fréttamaður á útvarpinu, Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar, og Sigurjón Heiðarsson, skrifstofustjóri stofnunarinnar.
þótti þar vel að verki staðið, betur
en þeir áttu kannski von á, en ef-
uðust þó ekki um að allt væri með
felldu og að maturinn hefði lent í
höndum réttra viðtakenda. Það
var líka staðfest á fundi með
starfsmönnum kaþólsku kirkjunn-
ar þar sem þeir greindu nákvæm-
lega frá úthlutuninni.
Islendingar gjöfulastir
f Varsjá höfðum við mest sam-
starf við séra Zdzislaw Pawlik,
sem er formaður fyrir kirkjuráði
lútersku safnaðanna f landinu.
Hann er þeim Hjálparstofnunar-
mönnum að góðu kunnur frá fyrri
ferðum þeirra til Póllands enda
hefur hann fyrir hönd lúterska
kirkjuráðsins séð um að dreifa
langmestu af matvælaaðstoðinni
frá fslandi. Á fundi, sem hann
boðaði til í húsi kirkjuráðsins,
skýrði hann frá starfseminni og
fór mörgum fögrum orðum um
framlag íslensku þjóðarinnar til
hjálparstarfsins í Póllandi. Hann
nefndi það sem dæmi, að miðað
við höfðatölu væru íslendingar tíu
sinnum stórvirkari en Norðmenn,
sem þó bera jafnan höfuð og herð-
ar yfir aðrar þjóðir i alþjóðlegu
hjálparstarfi.
Ég spurði séra Pawlik þeirrar
spurningar hver væri hin raun-
verulega þörf fyrir matvælaaðstoð
við Pólverja og sagði, að þrátt
fyrir matvælaskömmtun og vöru-
þurrð í verslunum væri ekki að sjá
að fólk væri illa haldið, a.m.k. ekki
i augum útlendings, sem gerði
stuttan stans í landinu. Pawlik
sagðist skilja það en benti á, að
ástandið væri skást í stærstu
borgunum þar sem ókyrrðin hefði
verið mest. í öðrum borgum og úti
á landsbyggðinni væri ástandið
hins vegar allt annað og verra.
Berklaveikin, sem búið hefði
verið að útrýma að mestu í Pól-
landi, væri nú aftur farin að
stinga sér niður og einnig skyr-
bjúgur, sem eingöngu stafaði af
næringarskorti. Með tilkomu
skömmtunarmiðanna hefðu bið-
raðirnar að visu minnkað mjög en
það væri þó athyglisvert, að um
30% þessara miða skiluðu sér
ekki. Það væri vegna þess, að sum-
ir hefðu ekki einu sinni efni á
þessum litla skammti, heldur lifðu
mest á grænmetisrusli, sem eng-
inn matur væri í. Séra Pawlik
sagði, að sú hjálp, sem íslendingar
hefðu innt af hendi, væri ómetan-
leg og miklu meiri en þær gætu
gert sér í hugarlund sjálfir. Pól-
verjar stæðu í þakkarskuld við ís-
lensku þjóðina, sem seint yrði
greidd.
Guðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar-
innar, lét nokkur orð falla af þessu
tilefni og sagði, að íslendingar litu
ekki á aðstoðina sem ölmusu,
heldur sem hjálp við fólk í nauð-
um. Þeir tímar kæmu vonandi, að
pólska þjóðin yrði sjálf aflögufær
og gæti þá miðlað öðrum.
Tveir pakkar á mann
Erindi okkar í Póllandi var nú
lokið og ekkert eftir nema kveðja.
Vegabréfsáritunin gilti aðeins
fram á föstudag og því vissara að
taka daginn snemma til að lenda
ekki í neinum vandræðum. Við
áttum ekki pantað far með ferj-
unni og ókum því í einni striklotu
frá Varsjá, 6—700 km leið, og
komum til Swinoujscie um kvöldið
klukkan sjö en ferjan átti að fara
á miðnætti. Við vorum fyrsti bíll
og þeir voru ekki margir, sem áttu
eftir að bætast við. Tollskoðunin
hófst hins vegar ekki fyrr en um
tíu og því máttum við dúsa í bíln-
um í um þrjá tíma eða þangað til
flokkur hermanna kom á vett-
vang, vopnaðir og með sérþjálfað-
an blóðhund til að leita að laumu-
farþegum í bílunum. Þeir voru
vissulega ekki árennilegir pólsku
hermennirnir en eftir að við vor-
um sloppnir í gegn og inn á hafn-
arsvæðið þar sem við biðum ferj-
unnar, þá komu þeir til okkar einn
og einn og báðu um sígarettur.
Skammturinn var ákveðinn tveir
pakkar á mann og voru þeir þá
fljótir að stinga þeim á sig og
koma sér á sinn stað á verðinum.
Til Ystad í Svíþjóð komum við á
laugardagsmorgni og var haldið
beint til Málmeyjar þar sem ferj-
an var tekin yfir til Kauprr.anna-
hafnar. Loftleiðavélin átti að fara
heim eftir stutta stund og því
kvöddum við þá Guðmund og Sig-
urjón í Kastrup. Þeirra ferð var
ekki lokið, þeir áttu eftir að fara
til Genfar til fundar við hjáipar-
stofnunarmenn frá öðrum þjóð-
um.
Sveinn Sigurðsson.
Verslunin
Dagný
er fflutt að Laugaveg 58. Rýmingarsala
heldur áfram á prjónakjólum, peysum,
pilsum og blússum. Allt nýjar og fyrsta
flokksjt/örur. Dagný Laugaveg 58.
AO ENDURHEIMTA LÍKAMANN
Námskeið í lifeflisæfingum
i fræöslumiðstöðinni Miö-
garöur hefst 2$. mars kvöld-
námskeið í lífeflisæfingum
Alexander Lowen.
Lífeflisæfingarkerfiö er stund-
um nefnt „yoga tuttugustu
aldarinnar" og þykir henta vel
sem alhliöa heilsurækt.
Ávinningur af lífeflisæfingum
er m.a.:
• Losa um vöövaspennu
• Sfuöla aö aukinni blóörás
• Dýpka öndunina
• Útrás innibyrgöra tilfinn-
inga
• Auka kynferðislega vellíöan
• Stuðla aö alhliða slökun
Leiöbeinendur: Guömundur
S. Jónasson, Hilmar ö. Hilm-
arsson.
Tími. 8 kvöld í einn mánuö.
Kl. 20—22.30 mánudags- og
föstudagskvöld.
Þátttökugjald: 1.400 kr. Lesefni innlfaliö.
Skráning og upplýsingar: S: (91) 12980 kl. 10—16 og 19—22.
______ X /mOG/tRDOR
r-----------------|
• KEFLVIKINGAR
iSUEXJRNESJAAAENN
FEREAKYNNING I SIABVi
SUNNUCW3SK\ÖLD |
DAGSKRÁ: Skemmtunin hefst kl. 8.30.
BENIDORM feröakynning: Jórunn Tómas- ■
dóttir fararstjóri sýnir kvikmynd frá Benidorm ■
og kynnir hana.
TÍSKUSÝNING: Nýjasta tískan í fatnaöi frá
Blondie, Keflavík.
Bingó: Spilaö veröur um BENIDORM-sólar-
ferðir og fleira. * -
HAPPDRÆTTI: í vinning er vandaö gíra- < ■
reiöhjól j |
VERÐ: Aögöngumiöinn kostar aöeins 150 kr. p B
og innifaliö í honum er eitt bingóspjald og
kaffiveitingar.
KYNNIR: Kynnir kvöldsins er Einar Júlíusson. |g |
cd <
FERÐA S
miðstoðin;
AÐALSTRÆTJ' 9 S.28J33j