Morgunblaðið - 20.03.1983, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 20.03.1983, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983 Eftir Val Ingimundarson Sem kunnugt er hófust í vikunni viðræður milli kristi- legra demókrata (CDU/CSU) og frjálsra demókrata (FDP) um framhald á stjórnarsamstarfi flokkanna í Vestur-Þýskalandi. Það er því ekki úr vegi að grafast fyrir um orsakir og afleiðingar kosningaúrslitanna en þar fóru kristilegu flokkarnir með öruggan sigur af hólmi. Meginorsök hins mikla fylgis kristilegra demókrata í kosning- unum er án efa sú að kjósendur treysta þeim betur en sósíaldemó- krötum til að glíma við efnahags- örðugleika þjóðarinnar og atvinnuleysið. Enda má segja að kosningabarátta kristilegu flokk- anna hafi einkum miðast við að reyna að sýna fram á að stjórn Helmut Kohls hefði náð árangri í efnahagsmálum á stuttum valda- ferli sínum og ástæða væri til að ætla að bjartari tímar færu í hönd. Að mínum dómi hefur hins vegar örlað á þeim misskilningi í sjaldan farið dult með þá skoðun sína að Kohl sé starfi sínu ekki vaxinn. Að vísu tók Strauss kansl- arann í sátt eftir stjórnarskiptin á síðasta ári, en ekki er ljóst hvort ástæðan hafi einungis verið sú að stuðla að einingu kristilegu flokk- anna í kosningabaráttunni. A.m.k. getur sú togstreita milli Kohls og Strauss, sem leynist undir misvísu yfirborðinu, magnast hvenær sem er á nýjan leik. Og eftir þróun mála í stjórnarmyndunarviðræð- unum að dæma er ekki fráleitt að ætla að það verði fremur fyrr en síðar. Helmut Kohl kanzlari og Strausa. Franz Jósef Strauss, forsætisráðherra Bæjaralands varpar eldiblöndnum geislum persónu sinnar á Bonn þessa dagana, en hvort hann er sjö sinnum fegurri en sólin skal ósagt látið. Hans Jochen Vogel, flokksoddviti sósíaldemókrata. vestrænum fjölmiðium að kosn- ingarnar hefðu fyrst og fremst snúist um hvort setja skuli upp bandarískar eldflaugar í Vestur- • Þýskalandi í lok þessa árs eða ekki. Ef það hefði ráðið úrslitum sæti núverandi stjórn sennilega ekki að völdum því að samkvæmt skoðanakönnunum er meirihluti Þjóðverja andvígur því að eld- flaugunum skuli komið þar fyrir. ’ Sigurvegarar kosninganna, kristi- legir demókratar, eru á hinn bóg- inn hlynntir staðsetningu þeirra ef afvopnunarviðræður risaveld- anna í Genf fara út um þúfur. I Einnig má geta þess að ritari CDU, Heiner Geissler, sagði við höfund þessarar greinar að mestu mistök sósíaldemókrata í kosn- ingabaráttunni hefðu að hans hyggju verið þau að leitast við að setja eldflaugamálið á oddinn. Staöa Kohls Það er engum vafa undirorpið að staða Helmut Kohls hefur styrkst mjög meðal kristilegra demókrata í kjölfar kosninganna og má segja að hann sé nú óum- deilanlegur leiðtogi þeirra. Það mikla traust, sem kjósendur sýndu honum, mun að öllum lík- indum kveða niður óánægjuraddir innan flokksins, en allt frá því að Kohl tók við stöðu formanns CDU 1973, hefur hann átt undir högg að sækja og forystuhæfileikar hans verið dregnir í efa. Hinn öldungis máldjarfi formaður systurflokks kristilegra demókrata (CSU), Franz Jósef Strauss, hefur t.a.m. Strauss ekki utanríkisráöherra Það má telja nokkuð víst að utanríkisráðherrastaðan í næstu stjórn falli Strauss ekki í skaut, enda þótt flokkur hans, CSU, í Bæjaralandi, hafi hlotið 59,5% at- kvæða í kosningunum og bætt við sig fylgi. Ástæðan til þess er sú að frjálsir demókratar hafa lýst yfir því að meginforsenda áframhald- andi stjórnarsamvinnu þeirra og kristilegu flokkanna sé að formað- ur FDP, Hans Dietrich Genscher, verði áfram utanríkisráðherra. Þó má gera ráð fyrir að frjálsir demókratar þurfi vegna fylgis- tapsins að láta af hendi eitt þeirra fjögurra ráðherraembætta sem þeir höfðu fyrir kosningar. Er tal- ið að landbúnaðarráðherrann, Jós- ef Ertl, verði að sætta sig við þau grimmu örlög að hverfa úr stjórn- inni. En því hefur einnig verið fleygt að Strauss kunni að sækjast eftir stöðu fjármálaráðherra í stjórn Kohls, en hann gegndi því embætti áður í samsteypustjórn kristilegu flokkanna og sósíal- demókrata 1966—1969. Það verður erfitt fyrir Kohl að neita Strauss um þá stöðu, en þó ber að geta þess að núverandi fjármálaráð- herra, Gerhardt Stoltenberg, hef- ur trausta fylgismenn að baki sér. — Enda kveðst Stoltenberg eiga rétt á að halda embætti sínu sök- um þess að hann hætti sem forsætisráðherra Slésvíkur og og Holtsetalands til að taka sæti í stjórninni síðasta haust. Strauss Petra Kelly, leiðtogi græningja. lýsti ennfremur yfir áhuga sínum í vikunni á að verða viðskipta- ráðherra, en frjálsir demókratar höfnuðu því að Ottó Lambsdorff mundi víkja úr þeirri stöðu. Eins og sakir standa er þvi erfitt að spá hvort Strauss hreppi lykilembætti í næstu stjórn, en sá ólíklegi kost- ur er þó fyrir hendi að hann láti sér nægja að verða varakanslari og ráðherra án ráðuneytis, eða jafnvel varnarmálaráðherra. En hvað sem þessum getgátum líður ætti að skýrast nú um helgina hvort valdasókn Strauss í Bonn beri árangur. Tap sósíaldemókrata Hið mikla fylgistap sósíaldemó- krata (SPD) í kosningunum má einkum rekja til þess að þeim soz W.8% CDU/CM Z8.2% ÓPD 953 Ví/ 2 VJ.9 FDP 6.9% GXfcH 5.6% /m 'JJ ‘57 '6/ 6S '69 '72 '76 'tO 'Si Á þessu línuriti má sjá fylgi vestur-þýsku flokkanna í Þýskalandi frá stofnun Sambandslýðveldisins 1949 fram til 1983 (teikning Karl Aspelund). Magnast togstreitan milli Kohls og Strauss? tókst ekki að sannfæra kjósendur um ágæti þeirra efnahagsaðgerða, sem flokkurinn hafði á stefnuskrá sinni til að vinna bug á atvinnu- leysinu. Af þeim sökum hafa ef- laust margir launþegar, ekki síst verkamenn, sem að öllu jöfnu hefðu greitt sósíaldemókrötum at- kvæði sitt, stutt kristilega demó- krata að þessu sinni. Önnur skýr- ing er sú að kjósendur hafi viljað koma í veg fyrir samvinnu sósíal- demókrata og græningja, sem samkvæmt skoðanakönnunum áttu þess kost að ná oddastöðu á þingi. En að sögn fyrrnefnds Geisslers vó það einnig þungt á metunum hve kosningabarátta sósíaldemókrata var illa skipu- lögð; og gildir þá einu hvort um kosningafundi eða auglýsingar var að ræða. Þó að Hans Jochen Vogel, kanslaraefni sósíaldemókrata, hafi beðið mikinn ósigur í kosn- ingunum er það mál margra að SPD hefði misst enn meira fylgi ef hans hefði ekki notið við. T.d. er talið að Vogel hafi tekist að sætta a.m.k. um stundarsakir hinar stríðandi fylkingar á vinstri og hægri væng flokksins. Og má það teljast góður árangur ef tekið er tillit til þess að hann hafði einung- is fjóra mánuði til að festa sig í sessi sem leiðtogi flokksins. — Enda hafa sósíaldemókratar farið þess formlega á leit við Vogel að hann verði í forsvari fyrir þá í stjórnarandstöðu, sem bendir til þess að honum hafi ekki verið kennt um ófarir flokksins í kosn- ingunum. Hans Dietricb Genscher, formaður frjálsra demókrata. Óvænt fylgi FDP Segja má að það, sem einkum hafi einkennt kosningabaráttuna, hafi verið sú óvissa hvort frjálsir demókratar annars vegar og græningjar hins vegar hlytu til- skilið atkvæðamagn til að komast á þing. prj£isjr demókratar stóðu jafnvel enn verr að vígi því að í kjölfar stjórnarskiptanna í októ- ber sl., þegar þeir slitu 13 ára stjórnarsamstarfi við sósíaldemó- krata, sneru kjósendur í vaxandi mæli baki við flokknum. Úrslit fylkiskosninganna í Hessen og Hamborg seint á síðasta ári báru því öldungis vitni. Því kom árang- ur frjálsra demókrata nú mjög á óvart þó að flokkurinn hafi misst talvert fylgi frá kosningunum 1980, en þá uppskar hann 10,6% atkvæða. Á hitt ber þó að líta að atkvæðafjöldi frjálsra demókrata 1980 var sá mesti sem þeim hafði hlotnast í 19 ár. Stjórnmálahæfi- leikar formanns FDP, Genschers, voru taldir ein helsta ástæða hinnar miklu fylgisaukningar flokksins 1980, en fyrir þessar kosningar höfðu veður skipast í lofti. Genscher var þá í hópi óvin- sælustu stjórnmálamanna Þjóð- verja og má til sanns vegar færa að hann hafi sopið seyðið af brotthlaupi frjálsra demókrata úr stjórn Helmut Schmidts. En nú bendir hins vegar ýmislegt til þess að persónufylgi Genschers hafi vaxið á ný, enda þótt margir kunnir frjálsir demókratar hafi sagt sig úr flokknum í mótmæla- skyni við hina nýju stefnu, sem T

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.