Morgunblaðið - 20.03.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
39
\ /
SÍÐASTI
DAGUR
tölvusýningarinnar
„Tölvur og hugbúnaöur“
er í dag
opin — kl. 13—22.
/ \
f Félag Tölvunarfrædinema. %
Tónlistarhátíð
ungra einleikara
á Norðurlöndum
verður haldin í Osló 13.—20. október
1984. Hátíðin er haldin á vegum Tónlist-
arháskólaráðs Norðurlanda.
íslenskum einleikurum, einsöngvurum og
samleiksflokkum gefst kostur á aö taka
þátt í hátíðinni.
Samnorræn nefnd velur endanlega úr um-
sóknum, en forval fer áður fram í hverju
landi fyrir sig.
Þátttakendur mega ekki vera yfir þrítugt.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 1983.
Umsóknareyðublöð veröa afhent og allar
nánari upplýsingar gefnar í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík.
fararstjóri.
þeim ekkert tiltökumál að fara
tvisvar til þrisvar í viku niður í
Taflfélag sem er á Grensásveg-
inum og oftar þegar mót eru í
gangi. Hannes er í Fellaskóla, en
Þröstur í Seljaskóla en hvorugur
vildi meina að skákin truflaði þá
nokkuð i náminu, en ekki laust
við að þeim fyndist spurningin
fáránleg. Þá er Þröstur nýbyrj-
aður í Skákskóla Friðriks
Ólafssonar, en Hannes ætlar að
byrja þar seinna.
Ætlið þið að halda áfram í
skákinni?
Nú stóð ekki á svari hjá þeim
félögum, báðir ætla að reyna að
taka þátt í opna flokknum á
Skákþingi íslands um páskana,
jafnvel þó mótið verði teflt suður
í Garðabæ. Drengjameistara-
mótinu verða þeir síðan örugg-
lega með í, en það verður háð
síðar í vor.
Margir efnilegir
unglingar
Ólafur H. ólafsson hefur í
meira en áratug verið aðaldrif-
fjöðrin í unglingastarfi TR. „Þar
skortir ekki efniviðinn og æf-
ingarnar eru fjölsóttar," sagði
ólafur, en hann bætti við að þeg-
ar unglingarnir eltust væri oft
eins og áhuginn dofnaði hjá
mörgum. Keppnisferðir eins og
sú til Finnlands væru víta-
mínsprautur, því þá fengju
margir eitthvert markmið til að
keppa að.
En eru ekki slíkar ferðir
óhemju dýrar?
„Jú, rándýrar, en margir ráða-
menn hafa mikla trú á uppeld-
isgildi skákíþróttarinnar og hafa
tekið málaleitunum okkar með
miklum skilningi, sérstaklega
vegna unglingastarfsins. Fyrir
Finnlandsferðina leituðum við
til bæjaryfirvalda í Reykjavík,
Garðabæ og Bolungarvík, því
þar eru keppendurnir tíu búsett-
ir og fengum við alls staðar
jákvæðar undirtektir. Þá hlupu
Flugleiðir einnig undir bagga
með Taflfélagi Reykjavíkur, sem
skipulagði ferðina," sagði Ólafur
að lokum.
M.P.
Nýja strengja-
sveitin heldur
tónleika
NÝJA strengjasveitin hcldur tón-
lcika í Bcssastaðakirkju mánudag-
inn 21. mars kl. 20.30 og í Bústaða-
kirkju þriðjudaginn 22. mars á sama
tíma. Á efnisskrá eru verk eftir Moz-
art, Haydn, Lutoslawski og Mend-
elssohn-Bartholdy. Einleikari á fiðlu
er Gerður Gunnarsdóttir.
Nýja strengjasveitin, sem nú er
skipuð þrettán ungum hljóðfæra-
leikurum, var stofnuð haustið
1980. Hún hefur haldið nokkra
sjálfstæða tónleika í Reykjavík.
Fyrstu tónleikamir voru í des-
ember 1980 undir stjórn Guð-
mundar Emilssonar. í ágúst 1981
fékk sveitin til liðs við sig Josef
Vlach fiðluleikara og stjórnanda
frá Tékkóslóvakíu og hélt tvenna
tónleika undir hans leiðsögn. f
nóvember 1982 lék Nýja strengja-
sveitin í Bústaðakirkju án stjórn-
anda. Á þessum tónleikum verður
einnig leikið án stjórnanda, en
konsertmeistari er Michael Shel-
ton.