Morgunblaðið - 20.03.1983, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
41
Clifford F. Germain
- Minningarorð
Clifford fæddist í New York
Mills, N-Y 1. ágúst 1920, sonur
hjónanna Louise og Frank Ger-
main. Hann lést í Bridgeport
Conn. að morgni 28.2. ’83 í starfi
sínu. Hann dvaldi hér á stríðsár-
unum og tók tryggð við landið.
Hér kvæntist hann eftirlifandi
konu sinni, Ingibjörgu B. Sæ-
mundsdóttur, dóttur hjónanna
Guðlaugar Jóhannsdóttur og Sæ-
mundar Þórðarsonar. Árið 1945
fluttust þau til USA með einkason
sinn, Richard. Clifford kom nokkr-
um sinnum í heimsókn og naut sín
best við veiðar, sér í lagi við Þing-
vallavatn. Fyrirhugað var að
koma í heimsókn til íslands á
þessu ári en af þeirri ferð verður
ekki.
Guð styrki eftirlifandi konu
hans, son, tengdadóttur og barna-
börnin 3.
Mágkonur og svilkonur.
Legsteinar
Framleiðum ótal
tegundir legsteina.
Allskonar stærðir og
gerðir. Veitum fúslega
upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val
legsteina.
S.HELGASOHHF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 SlMI 76677
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
Sýnir í Ás-
mundarsalnum
JÓN Þ. Eggertsson hefur opnað
málverkasýningu í Ásmundarsal
við Freyjugötu í Reykjavík. Á sýn-
ingunni eru 70 olíu- og vatnslita-
myndir, sem flestar eru frá síð-
ustu tveimur árum. Þetta er
þriðja sýning Jóns í Reykjavík, en
hann hefur einnig haldið sýningar
á Vestförðum. Meðfylgjandi mynd
af Jóni við nokkur verka sinna tók
ól. K.M.
Sýning á fluguköstum á Tjörninni næstkomandi þriðjudag:
Kunnur bandarískur veiði-
maður í heimsókn í Reykjavík
CAM SIEGLER, sem er þekktur bandarískur fluguveiðimaður og útilífs-
maður, verður í Reykjavík frá og með sunnudeginum 21. mars og til
fimmtudagsins 25. mars næstkomandi. Er hann hérlendis til þess að hitta
íslenska stangaveiðimenn og áhugamenn um veiöar með flugu. Mun Siegler
gangast fyrir sýningu og sýnikennslu í fluguköstum, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Menningarstofnun Bandaríkjanna.
I fréttatilkynningunni kemui
fram, að Siegler sé geysivel þekkt-
ur í Bandaríkjunum vegna starfs
síns í sjónvarpi, útvarpi, blöðum
og tímaritum. Hann hefur flutt
fyrirlestra og haft sýnikennslu í
fluguveiði og öðrum þáttum sem
snerta útilíf og má þar á meðal
nefna andaveiðar, gæsaveiðar,
tjaldútilegur og fleira. Siegler var
einn af upphafsmönnum þess að
veiða á flugu í söltu vatni, að því
er fram kemur í fréttatilkynning-
unni, og á síðastliðnu ári var hann
valinn „frægasti bandaríski úti-
lífsmaðurinn", The most famous
American outdoorsman, af jap-
anska tímartinu „Japan Öut-
doors“.
Cam Siegler hefur víða farið og
veitt margar tegundir fiska á
stöng og má m.a. nefna að hann
hfur nýlega veitt 32ja punda lax,
26 punda sjóbirting, 83ja punda
„Tarpon", 21 punds „Blue fish“ og
27 punda „Delphin", að því er í
fréttatilkynningunni segir. Áhugi
Cam Siegler á veiðum vaknaði
þegar hann var fimm ára gamall,
en fyrst á veiðiferli sínum var
hann undir handleiðslu föður síns
og síðar með Joe Brooks, sem er
þekktur veiðimaður.
Siegler er staddur hér á landi
fyrir hönd fyrirtækisins Eddie
Bauer, sem alþjóðlegur sölustjóri,
en fyrirtækið selur ýmiss konar
útilífsfatnað.
í fréttatilkynningunni kemur
ennfremur fram, að sá draumur
Sieglers, að veiða lax á flugu á
íslandi, hafi enn ekki ræst.
Cam Siegler mun gangast fyrir
sýningu á fluguköstum á syðstu
Tjörninni í Reykjavík, næst Há-
skólanum, næstkomandi þriðju-
dag, 22. mars, og hefst sýningin
klukkan 17.00.
en heí^fJJa?n'S^ér NóSar erU
um 26.000 3
i ia 2-6ida9-
SvniVcenns\aW-
Ortó^Gurn. a
Ortódeuri
Hafste»nnHatUtt^e.nkurnWr'rg
OrKideum JP 0<ur. .....
ská\a og 9a ; Rtómava', sla'^
>W*XS£*^***
Otkkleuoa1
Gróðurhúsinu