Morgunblaðið - 20.03.1983, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
Daniel Charbonnier:
„Sumir gætu haldið að ég
væri aðallega bíómaður"
Aö undanfórnu hefur mikið boriö á framlagi Frakka í
menningarlífinu í Reykjavík og er þar skemmst aö minnast
kvikmyndavikunnar frönsku í Regnboganum, tónleika vísna-
söngkonunnar Andréa og sýningarinnar á Ijósmyndum Emils
Zola.
Blm. Mbl. leit við í menningar-
deild franska sendiráðsins nú um
daginn og hitti þar að máli Daniel
Charbonnier menningarfulltrúa.
Hann hefur starfað hér af miklum
dugnaði síðastliðna 15 mánuði en er
á förum fljótlega.
„Þetta starf hér hefur verið mér
frábær reynsla. ísland er einstakt
land og hef ég hvergi vitað jafn
mikla grósku í menningarlífi. Tím-
inn hefur að vísu verið stuttur, það
tekur tíma að komast inn í menn-
ingu landsins og sjá hvað helst vek-
ur áhuga fólks. Astæðan fyrir því
að kvikmyndasýningar hafa verið
meira áberandi en annað sem við
höfum haft fram að færa er sú að
þegar maður sér tölur eins og þær
að hver íslendingur fari að meðal-
tali í bíó tíu sinnum á ári er það
fyrsta sem manni dettur í hug að
gera hér, svo flestir megi verða að-
njótandi, er að sýna hér franskar
kvikmyndir. Annars á ísland met í
fleiru en bíóaðsókn, hér er líka
ótrúleg aðsókn að leikhúsum og
tónleikum og dagblöð eru hér með
útbreiðslu sem hvergi er hægt að
finna hliðstæðu við í Evrópu og þó
víðar væri leitað.
Við megum þó alls ekki einskorða
okkur við kvikmyndirnar, en þær
ná til flestra og vekja meiri athygli
en ef við tökum sem dæmi franskar
bækur. Það tekur mikinn tíma að
koma þeim á framfæri hér, það þarf
að útbúa með þeim skýringar og
árangurinn ... ja, kannski um tfu
manns lesi hverja bók. Þarna erum
við einmitt komin að því atriði sem
helst stendur okkur fyrir þrifum
varðandi samskipti við önnur lönd,
tungumálið. Franskan er erfitt
tungumál fyrir Islendinga að læra
og verður því til þess að einangra
Frakkland frá íslandi svolítið. ís-
lensku fólki finnst það eflaust ekki
árennilegt að ferðast eða stunda
nám í landi þar sem erfitt er að
gera sig skiljanlegan og kýs heldur
að fara þar sem hægt er að tala
ensku, skandinavísku eða þýsku.
Ég vil þó benda á hversu góður
kostur fyrir námsmenn Frakkland
er, þar sem skólagjöld eru engin eða
sáralítil, og þrátt fyrir allt er alls
ekki erfiðara að fara til Frakklands
en annarra landa. Reyndin hefur
líka verið sú að á síðastliðnu ári
tvöfaldaðist tala þeirra sem fá
vegabréfsáritun til lengri tíma og
eru íslenskir námsmenn í Frakk-
landi nú um 150.
Það er erfitt að svara því hvort
áhugi ykkar á Frakklandi sé gagn-
kvæmur, Frakkland er svo stórt
miðað við fsland, og það er nú því
miður þannig að meirihluti Frakka
er ekki einu sinni viss um hvar ís-
land er.
Á þessu varð nú samt breyting til
batnaðar þegar Vigdís var kosin
forseti, en sá atburður vakti athygli
á þessu litla sérstaka landi og er
ímynd þess í hugum þeirra Frakka
sem eitthvað þekkja til fslands,
hreint, tært og frjálst náttúruríki,
þó fsland sé ekki aðeins það. Hvort
grundvöllur væri fyrir fslenska
kvikmyndaviku í Frakklandi? Ég
veit það ekki. Það er eiginlega
ómögulegt að sjá fyrir hvernig það
myndi ganga. fsland er svo sér-
stakt, það yrði sérstakt fólk sem
veldi sér íslenska mynd til að sjá, af
þeim 300 mismunandi myndum sem
hægt er að velja á milli daglega.
En íslensk kvikmyndagerð hefur
þrátt fyrir stutta sögu vakið
óvenjulega athygli. Má nefna sem
dæmi að franska blaðið Le Monde
sagði í skrifum sínum um norrænu
kvikmyndahátíðina sem haldin var
í Helsinki fyrir skömmu að af þeim
sextán myndum sem sýndar hefðu
verið, voru það íslensku myndirnar
sem mest komu á óvart, og má
finna þar mjög jákvæð skrif um
nýjustu íslensku myndirnar. Nú,
„Franskan er erfitt tungumál ...
Mynd Mbl./Ól.K.M.
X
BCntT DAGHUGI SOtSKIWIÐ fl
PÁSKAFERÐ 30. MARZ:
Eins og áður býóur FERÐAMIÐSTÖÐIN þessa
vinsælu feró á suðurströnd Spánar til borgar-
innar BENIDORM. Þaó vorar snemma á Hvítu
ströndinni og meðalhitinn á þessum árstíma er
um 24 stig. Vegna hins þægilega loftslags og
vorhlýinoa nýtur þessi staöur mikilla vinsælda
Evrópubúa sem stytta veturinn meó dvöl um
Páskana á BENIDORM ströndinni. Njótiö þess í
fimmtán daga ferö 30. marz. Dvalið í íbúðum
eða hótelum með fæói.
Verð frá: 11.900 í íbúöum.
BENIDORM ELDRI BORGARA 13. APRÍL:
Sérstaklega þægileg ferð fyrir eldriborgara í
fylgd hjúkrunarfræöings. Dvalið í góóum íbúð-
um eða á hótelum meó fæði. Voriö er sannar-
lega komió á þessum tíma og hitinn ákafléga
þægilegur. Brottför 13. apríl. heimkoma 11. maí
(28 dagar) Verð frá 12.900 í (búðum.
Fjögurra vikna ferð fyrir þriggja vikna verð.
SUMARÁÆTLUN:
Alls verða farnar níu ferðir til BENIDORM í sum-
ar, flogið er í beinu leiguflugi. Lengd ferða er 3
vikur. Gistimöguleikar eru allmargir, íbúðir eða
hótel og mismunandi veróflokkar. Gerið sjálf-
stæðan samanburó á verði og greiðslukjörum.
Sumaráætlun: 30. marz (páskaferð) 13. apríl, 11.
maí, 1. júní, 22. júní, 13. júlí, 3. og 24. ágúst, 14.
sept. 5. okt.
BEINT DAGFLUG
PANTIÐ TÍMANLEGA
IFERÐAMIÐSTÖDIIM
AÐALSTRÆTI9
SÍMI28133 11255