Morgunblaðið - 20.03.1983, Síða 45
fjárfestingastefnu, sem ríkt hefði
í heilbrigðismálum undanfarin ár.
Þannig hefði afar miklu fjár-
magni verið varið til þess að skapa
skilyrði víða á landinu fyrir sér-
hæfða læknisþjónustu, sem óraun-
hæft er fyrir þjóð með 230 þúsund
íbúa að reka á fleiri en einum stað.
Á sama tíma hefur uppbygging á
aðstöðu fyrir raunhæfa sérfræði-
lega þjónustu verið í fjársvelti.
Háskóli íslands hornreka
Verst hefur þó verið búið að
þeirri rannsóknastarfsemi, sem
gæði og öryggi heilbrigðisþjónust-
unnar stendur og fellur með, enda
virðast vísindi ekki eiga upp á
pallborðið hjá íslensku fjárveit-
ingavaldi. Þannig eru nú ekki
nema þrjár þjóðir, sem verja
lægra hlutfalli þjóðartekna til
þekkingarsköpunar en íslend-
ingar.
Að lokum þakkaði Helgi SÍBS
og Samtökum geg'n astma og
ofnæmi fyrir hina rausnarlegu
gjöf. Reynslan hefði þegar sannað
hversu mikilvæg framlög félags-
samtaka geta verið fyrir uppbygg-
ingu og starfrækslu heilbrigðis-
þjónustunnar. Hér væri jafnframt
verið að stuðla að því, að ný sér-
grein í læknisfræði gæti skotið
rótum á íslandi. Þessi sérgrein
hefði til þessa fyrst og fremst snú-
ist um grundvallarrannsóknir og
ætti því sérstaklega erfitt upp-
dráttar gagnvart fjárveitinga-
valdi, sem léti aðalþekkingar-
smiðju þjóðarinnar, Háskólann,
lepja dauðann úr skel. Kvaðst
Helgi vona að þetta framlag SÍBS
og Samtaka gegn astma og of-
næmi til rannsókna í ónæmisfræði
væri forboði þess, að vísinda-
starfsemi í landinu myndi í vax-
andi mæli njóta góðs af frum-
kvæði, framsýni og dugnaði ein-
staklinga og frjálsra félagssam-
taka eins og tíðkast hjá þeim þjóð-
um, sem við eigum mest samskipti
við.
Línusvæði
afnumið í
Reykjafjarðarál
f OKTÓBER sl. bannaði ráðuneytið
togveiðar á svæði í Reykjafjarðarál f
því skyni að stuðla að auknum línu-
veiðum á þessu svæði.
Bann þetta átti að gilda til 31.
apríl nk., en þar sem í ljós hefur
komið, að línuveiðar eru aðeins í
óverulegum mæli stundaðar á
þessu svæði, hefur ráðuneytið
ákveðið að togveiðibannið falli úr
gildi 31. mars nk.
(Frétutilkynning)
Tfe
1
resió af
meginþorra
þjóóarinnar
daglega!
Bílasýning
Nú breytir Ford um svip
Viö sýnum í fyrsta skipti á íslandi
FORD
SYNUM EINNIG:
Ford Fiesta — Escort — Taunus
° Og svo er alltaf
fra verksrn heitt kaffi a könn-
Vífilfelli. unni
Opiö laugardag og sunnudag frá kl. 10—17.
SVEINN EG/LSSON HF
SKEIFUNNI 17
SÍMI85100