Morgunblaðið - 20.03.1983, Blaðsíða 46
Atvinnumenn í íþróttum
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
Sá tekjuhæsti
fær 40 milljónir
króna í árslaun
— og þá eru auglýsingatekjurnar ekki teknar með
OFT ER það rætt manna á meðal hverjar tekjurnar séu. Því að á þeim
byggist jú afkoma manna. Hér á landi í dag þykir það sjálfsagt nokkuð gott
ef einstaklingur hefur um 350 til 450 þúsund krónur í árstekjur og eru þær
tekjur þá sjálfsagt í efri mörkunum. Oft heyrum við ævintýralegar háar
upphæðir þegar sagt er frá tekjum þeim sem atvinnumenn í fþróttum hafa.
Þær upphæðir eru hreint ótrúlegar háar. Atvinnumenn í íþróttum eru jú
ekkert annað en skemmtikraftar og þeir draga að sér raikið af áhorfendum
og þar sem í all flestum tilfellum eru íþróttafélög þeirra rekin sera gróðrafyr-
irtæki. Það er því ekkert mál að greiða stórstjörnu mikla peninga ef hún
dregur að sér mikið af áhorfendum sem greiða stórfé í aðgangseyrir. En
hverjir skildu nú vera tekjuhæstu atvinnuíþróttamenn í heiminum í dag?
Tekjuhæstu íþróttamennina er
að sjálfsögðu að finna í Bandaríkj-
unum. í hnefaleikum eru jafnan
miklir peningar í boði nái menn
langt í íþróttinni. Heimsmeistar-
inn í léttþungavigt, Sugar Ray
Leonard, hefur haft allt að 400
milljónum ísl. króna fyrir nokkra
hnefaleikakeppnir, en í þeim var
meðal annars verið að keppa um
heimsmeistaratitilinn í íþróttinni,
og þá gefa sjónvarpstekjur jafnan
mikið í aðra hönd.
Körfuknattleiksmennirnir, Mos-
es Malone og Karem Abdul Jabar
hafa mikla tekjur. Malone fær 40
milljónir fyrir hvert keppnistím-
abil með Philadelpia 76ers. Jabar
fær rétt rúmlega helminginn af
þessari upphæð eða 24 milljónir
króna fyrir hvert keppnistímabil
með Los Angels Lakers sem er eitt
besta körfuknattleikslið Banda-
ríkjanna.
Kylfuboltaleikmaðurinn Gary
Carter (Baseball) fær tæplega Ö9
milljónir króna í laun fyrir hvert
keppnistímabil. Þá má nefna einn
frægasta íshokey-spilara Banda-
ríkjanna Wayen Gretsky sá fær
um 24 milljónir króna í árslaun.
Þá munu nokkrir af frægustu leik-
mönnum bandarískrar knatt-
spyrnu hafa ævintýralega háar
tekjur en þó ekki yfir 20 milljón-
um króna í árslaun.
Knattspyrnumenn:
Hvað skildu knattspyrnumenn í
Evrópu hafa í laun? Það leikur
sjálfsagt mörgum forvitni á að
vita það. Það munu vera smáaurar
miðað við þá kappa sem við töld-
um upp að framan. Aðeins einn
knattspyrnumaður kemst með
tærnar þar sem þeir hafa hæl-
anna. Það er Maradonna. Hann
fékk ævintýralega háa upphæð
þegar hann fór til F.C. Barcelona.
Talið er að Maradonna hafi um 18
milljónir króna í laun, og síðan
mjög góðar auglýsingatekjur eins
og reyndar allir þeir íþróttamenn
sem verða heimsfrægar stjörnur.
Þær tekjur cru oft meiri en sjálf
launin.
Stjörnur V-Þýskalands, Rumm-
enigge og Breitner sem taldir eru
launahæstir þar í landi hafa í
kringum 5 milljónir króna í árs-
tekjur fyrir það eitt að leika
knattspyrnu. Á Ítalíu og á Spáni
hafa nokkrir leikmenn hærri upp-
hæðir en þeir eru ekki margir.
Tennis og golfleikarar geta haft
miklar tekjur en það ræðst af því
Hnefaleikakappinn Sugar Ray Leonard til hægri, heimsmeistari í léttþunga-
vigt, er ekki á flæðiskeri staddur með 400 milljónir króna fyrir nokkrar
keppnir.
Körfuknattleiksstjarnan Karem Abdul Jabar er einn þekktasti íþróttamaður
Bandaríkjanna. Arstekjur hans fyrir það eitt að leika körfubolta með Los
Angeles Lakers nema 24 milljónum íslenskra króna. En hann er ekki sá
tekjuhæsti. Moses Malone sem er til hægri á myndinni hefur nýverið slegið öll
met hvað varðar launagreiðslur í bandarísku atvinnumannadeildinni í körfu-
knattleik. Malone fær 40 milljónir króna fyrir hvert keppnistímabil. Þetta eru
eingöngu launagreiðslur svo eru allar auglýsingatekjur eftir.
BENIDORM
Páskaferð 30. mars/tvær vik-
ur. Verð frá: 11.900 í íbúð.
Beint dagflug
FERPA
!Mi
LONDON
Páskaferð: 29. marz-5. aprll.
Morgunverður innifalinn. Góð
hótel á ýmsum stöðum um
borgina. Verð frá 8.787. Ath.:
Vikuferðir alla þriðjudaga.
S. 28133
AMSTERDAM
Páskaferð: 29. mars-5. aprll.
Verð frá: 8.494 morgunverður
innifalinn. Ath.: Amsterdam-
flug alla þriðjudaga og föstu-
daga.