Morgunblaðið - 27.03.1983, Síða 1
Sunnudagur 27. marz - Bls. 49-88
ekki
tófunni
í haust kom út ný skýrsla um plöntur og dýr í hættu á Norðurlöndum. Eyþór
Einarsson grasafræðingur og formaður Náttúruverndarráðs gerði á fundi ráðsins
í febrúar grein fyrir samstarfi Norðurlanda um vernd dýra- og plöntutegunda, sem
taldar eru í hættu, en hann hefur verið fulltrúi íslands í því samstarfi. Kom þar
fram að ísland er nú eitt Norðurlandanna, sem ekki hefur samþykkt tillögur þær,
sem lagðar eru fram í skýrslunni. Einnig gerði Eyþór grein fyrir stöðu ýmissa
náttúruverndarmála á vegum Evrópuráðsins. Þar kom fram að Bern-samþykktin,
þ.e. sáttmáli um verndun lífvera og lífsvæða, hefði nú verið undirrituð af öllum
aðildarríkjum Evrópuráðsins nema íslandi og Möltu, sem hefði tilkynnt að farið
væri að undirbúa það. Þetta varð tilefni til þess að blaðamaður Mbl. gekk á fund
Eyþórs Einarssonar til að fræðast um plöntur og dýr í hættu hér á landi sam-
kvæmt Norðurlandaskránni og um það hvar við stöndum varðandi Evrópusam-
starf um náttúruvernd.
Tófan er orðin sárasjaldgæf á Norð-
urlöndum, þótt hún sé enn nokkuð
algeng hér. Við berum því ábyrgð á
að henni verði ekki útrýmt. Þessa
mynd, sem Páll Hersteinsson tók,
hefur Landvernd gefið út á póst-
korti.
Fálkinn er sjaldgæfur og
mjög eftirsóttur fugl.
Þessvegna er
stofninn svo
viðkvæmur.
Megum
útrýma
SJÁ VIÐTALIÐ Á BLS. 54-55