Morgunblaðið - 27.03.1983, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 27.03.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 51 Gamanleikur á fjalir LA nk. miðvikudag: Frumsýning á „Spékoppum“ Akureyri, 24. mars. SÍÐACTA frumsýning Leikfélags Ak- ureyrar á þcssu starfsári verður mið- vikudaginn 30. mars nk. l>á frumsýnir félagið gamanleikinn „Spékoppa" eft- ir franska leikritahöfundinn Georges Feydeau. Flosi Ólafsson. leikari og rit- höfundur, þýddi verkið úr frönsku og er jafnframt leikstjóri. Jón l’órisson hannaði leikmynd og búninga og Viðar Garðarsson sér um lýsingu. Leikritið var skrifað árið 1910 og er talið eitt af bestu verkum Feyde- au. Leikurinn gerist á heimili postu- línsframleiðanda nokkurs í París. Hann hefur fundið upp nýja gerð postulíns, sem vera á óbrjótandi, látið steypa úr því næturgögn og hyggst selja þau franska hernum í stórum stíl. Af því tilefni býður hann yfirmanni í franska hermála- ráðuneytinu í kvöldverð. Báðir eiga þeir óstýrilátar eiginkonar og má segja að heimboðið fari á annan veg en til var stofnað. Leikarar í „Spékoppum" eru: Þrá- inn Karlsson, Sunna Borg, Marinó Þorsteinsson, Ragnheiður Tryggva- dóttir, Gunnar Ingi Gunnsteinsson, Kristjana Jónsdóttir og Theódór Júlíusson. Aðstoðarleikstjóri sýningarinnar er Ragnheiður Tryggvadóttir, yfir- smiður leikmyndar Bjarni Ingvars- son og búningameistari Freygerður Magnúsdóttir. G. Berg. ÍJr „Spékoppum". Frá vinstri: Marinó Þorsteinsson, Sunna Borg og Þráinn karlsson í hlutverkum sínum. Ljóamynd: I.jósmyndaalofa Páb, Akureyri. Leikendur í leikritinu Barn í vændum, sem er að koma upp hjá Ungmennafélaginu Ármanni á Kirkjubæjarklaustri. Ungmeniiafélagid Ármann frumsýnir Barn í vændum UNDANFARNAR 6 vikur hafa stað- ið yfir æfingar hjá Ungmennafélag- inu Armanni á Kirkjubæjarklaustri á leikritinu Barn í vændum eftir norska leikarann og leikritahöfund- inn Sverre Gran. Þessum æfingum hefur stjórnað Jónína Kristjánsdóttir leikstjóri úr Keflavík. Ármenningar hafa áður notið tilsagnar hennar í leiklist en það var sl. vetur,'er hún setti leikrit Jónasar Árnasonar, Skjaldhamra, upp hér á Kirkju- bæjarklaustri. Leikritið Barn í vændum er gamanleikrit sem gerist nú á tím- um og greinir frá einni helgi í lífi Bing-Eriksen fjölskyldunnar. Með hlutverk í leiknum fara þau: Soffía Ragnarsdóttir, Júlíus Oddsson, Sólveig Davíðsdóttir, Sigmar Helgason, Jóna Borg Jóns- dóttir og Kristín Ásgeirsdóttir. Ákveðið hefur verið að frum- sýna leikritið nk. þriðjudagskvöld JAFNDÆGURSVAKA á vori verður í Bessastaðakirkju mánudaginn 28. marz, kl. 20.30. Er það kirkjukvöld helgað baráttunni við áfengisbölið. Tónlist munu flytja Jónas Þórir Þórisson orgel, Graham Smith fiðla og Garðakórinn syngur undir stjórn Þorvaldar Björnssonar í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli. Einnig eru fyrirhugaðar sýningar víðar á Suðurlandi m.a. í Árnesi, á Flúðum, í Gunnarshólma og Vík í Mýrdal. organista. Nína Björk Árnadóttir les eigin ljóð. Pjetur Þ. Maack flytur hugleiðingu. Bjarni Karls- son og Hrönn Steingrímsdóttir lesa úr verkum Tennessee Willi- ams. Sr. Bragi Friðriksson fer með ritningarorð og bæn. Bessastaðakirkja: Jafndægursvaka á vori Páska-® rokk i Við endurtökum rokkiö á síðasta degi fyrir paska — miövikudaginn 20. marz nk. Dansað til kl. 3 x/ oq svo frí 'A Allir koma í rokkstuði og djamma eins og gert var í þá gömlu góðu daga. sés’ 20- v, A5° a«9'e,í' e'

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.