Morgunblaðið - 27.03.1983, Side 7

Morgunblaðið - 27.03.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 55 er í örfáum Breiðafjarðareyjum, og burstajafna, sem aðeins vex á einum 4ra fermetra bletti á Aust- urlandi, en er algeng í löndunum i kring um okkur. En fátæklegra væri samt ef þessar tegundir hyrfu héðan, ekki sízt þegar um er að ræða að þetta er jaðarstaður fyrir þær. — En ísland hefur ekki enn samþykkt tillögurnar frá ráð- herranefndinni um að friða og gæta þessara sjaldgæfu tegunda? — Þessari skráningu á dýrum og jurtum í hættu fylgja almennar leiðbeiningar um það hvað þurfi að gera til að halda í tegundirnar. En þær reglur eru í samþykktinni svo vægar að óhætt ætti að vera að skrifa undir hana með hinum Norðurlöndunum. Yfirleitt ekki gengið lengra en að hvetja til þess að svona verði staðið að þessu. Þetta gengur mest út á það að teg- undin þurfi að hafa lífvænlegt svæði. Allar plöntur og fuglar á íslandi, sem um er að ræða, eru friðlýst og um alla hvalina gilda ákveðnar reglur. Rebbi gamli einn á sér engrar miskunnar von sam- kvæmt íslenzkum lögum. Þessi frumbyggi landsins er sá eini sem ekki á neinn rétt, heldur er hund- eltur og ofsóttur um allt. Tegundir og veiðiað- ferðir skilyrtar — Svo við vendum okkar kvæði í kross, og snúum okkur að allri Evrópu. Hvers vegna er Island svona tregt til að undirrita Bern- samþykktina? — Bern-samþykktin er undir- búin af Evrópuráðinu og ég var með í undirbúningsvinnunni. Það er búið að þýða hana, svo hún er til á íslenzku. Þarna eru taldar upp tegundir, sem eru alfriðaðar og tegundir sem má veiða með vissri aðgát. En þar eru tegundir, sem allir eru ekki sáttir við að þar séu. Finnst það eiga illa við ís- lenzkar aðstæður. Hnísan á t.d. að vera alfriðuð. Þó hún sé algeng hér norðurfrá, þá er hún víðast hvar horfin frá ströndum Evrópu. Tófan á líka að vera friðuð, en það var gert að kröfu Norðmanna og Svía. Aftur á móti eru stóru hval- irnir ekki alfriðaðir, heldur á að gæta þess að stofninn sé ekki í hættu ef þeir eru veiddir. Var gert ráð fyrir því að hvert land sem undirritar samþykktina skuld- bindi sig til að sjá til þess að nýtt- ir stofnar séu ekki ofnýttir. Nefnd á að líta eftir þessu, svo það gæti þýtt að menn þyrftu að standa fyrir máli sínu. — Þrátt fyrir þetta er hægt að undirrita samninginn með fyrir- vara varðandi ákveðnar tegundir og þau lönd, sem hafa undirritað og/eða fuilgilt hann, hafa flest gert einhverja fyrirvara. En einn viðaukinn við samninginn er skrá yfir veiðiaðferðir, ef veitt er eða talið að þurfi að halda einhverjum stofni niðri. Til dæmis er bannað að eitra. Bannað að nota svefnlyf nema samkvæmt ströngum regl- um og bannað að nota sprengiefni og svæla dýr út með reyk, eins og gert er hér á grenjum. Þetta þykja villimannlegar aðferðir, sem alls staðar er verið að leggja niður. — Eru það einungis Malta og ísland sem ekki eru með? — Allar Evrópuþjóðirnar skrif- uðu strax undir nema Kýpur, Malta og ísland. Kýpur hefur svo undirritað samþykktina síðar. Og á fundi náttúrufræðinefndar Evr- ópuráðsins nú nýlega lýsti fulltrúi Möltu, sem hafði talið vandkvæði á að skrifa undir vegna þess að breyta þyrfti svo miklu í lögum og reglugerðum í landi hans, því yfir að þeir hefðu skipt um skoðun og væru byrjaðir á slíkum breyting- um til að geta orðið aðilar. Hér er verið að athuga um aðild okkar. Menntamálaráðuneytið er hlynnt því að við undirritum og fullgild- um samþykktina, en hik er á öðr- um ráðuneytum. Svo gæti farið að við íslendingar sitjum einir eftir eins og barbarar, sem ekki vilja gangast undir alþjóðareglur um friðun tegunda og veiðiaðferðir, en ég vona svo sannarlega að til þess komi ekki. - E.Pá. jrsa j ojjíjj Fyrirpáska ferNóí i hörku samkeppní víð haenumar! Páskaeggin frá Nóa og Síríus, - eggín hans Nóa, hafa ýmislegt fram yfir þau „páskaegg“ sem hænumar eru að kreista úr sér þessa dagana. Eggin hans Nóa fást í 6 stærðum, þau eru fagurlega skreytt og búin til úr hreinu súkkulaði. Þau hafa líka mun fjölbreyttara ínnihald en egg keppinautarins, t.d. brjóstsykur, karamellur, konfekt, súkkulaðirúsínur og kropp, að ógleymdum málshættinum. Þrátt fyrir þessa kosti mælum við ekki með eggjunum hans Nóa í bakstur, ofan á brauð eða með beikoni! Eggin hans Nóa eru gómsæt, - og ár hreinu súkkulaði! X- X- ^ vt & ?| JMOl bUUi J.O J l JVl yi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.