Morgunblaðið - 27.03.1983, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 27.03.1983, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 57 Evelyn Waugh. Myndin er tekin 1961. Sir John Gielgud Jeremy Irons um í Oxford, entust ævilangt. M.a. kynntist hann vel Beauchamp- fjölskyldunni á Madresfield, sem margir vilja halda fram að sé fyrirmynd Marchmainfjölskyld- unnar á Brideshead. Eftir háskólanám var Waugh í vafa um hvað hann ætti að taka sér fyrir hendur. Hann eyddi nokkrum árum í föðurhúsum og kannaði ýmsar leiðir til að ala önn fyrir sér. Prentiðn var ein af þeim leiðum. Hann velti því fyrir sér að gerast kaþólskur prestur, byrjaði á skáldsögu og reyndi fyrir sér í blaðamennsku. Tvo vetur reyndi hann fyrir sér við kennslu, en var rekinn fyrir drykkjuskap og óspektir. Hann giftist 1928 Evelyn Gardner, og honum þótti sýnt, að sú atvinna, sem þeim væri helst samboðin, væri ritstörf. Fljótlega slitnaði upp úr hjónabandinu og tók Waugh það mjög nærri sér. I sjö ár eftir skilnaðinn var hann í ferðalögum um Miðjarðarhafið, í Afríku og í Suður-Ameríku. Af- raksturinn af þessu flökkulífi urðu nokkrar ferðabækur og síðan skáldsagan A Handful of Dust. Anthony Andrews í hlutverki Se- bastian Flyte. Sir Laurence Olivier Hann snerist til kaþólskrar trú- ar 1930. Hann gifti sig aftur 1937 Lauru Herbert, sem var af aðals- ættum eins og fyrri kona hans. Þegar seinni heimsstyrjöldin braust út var Evelyn Waugh 36 ára að aldri og lét hann þegar skrá sig í herinn. Hann var gerður að höfuðsmanni en féll í ónáð hjá yf- irmönnum sínum vegna hirðuleys- is um aga og reglur. 1943 var hann sendur til þjálfunar í fallhlífar- stökki, en svo fór að hann braut bein í fæti við æfingar og varð að hætta. — Efniviður rithöfundar — Hann hafði fengið hugmynd að nýrri skáldsögu og fór fram á leyfi til ritstarfa. Honum var veitt leyf- ið og hann settist að á gistihúsi í Devon og hóf að rita Brideshead Revisited. Þegar því verki var lok- ið var hann sendur til Júgóslavíu til aðstoðar skæruliðum Títós hershöfðingja, en þar lenti hann í flugslysi og var veitt lausn frá herþjónustu. Eftir stríð gerðist hann afkastamikill við ritstörfin en heilsu hans fór hrakandi. Hann þjáðist af þunglyndi og svefnleysi. Börnin voru farin að heiman og samkvæmislífið hafði misst að- dráttaraflið. Síðasta bók hans, A Little Learning, var upphaf ævi- sögu sem honum auðnaðist ekki að ljúka. Hann lést af hjartaslagi á páskadag árið 1966. Bókmenntafræðingar hafa spreytt sig á því að finna fyrir- myndir í lífi höfundar að flestum aðalpersónum í Brideshead Revis- ited og hefur orðið vel ágengt. Svo mikið er víst að engin skáldsagna hans ber eins mikinn keim af sjálfævisögu og þessi. Waugh sagði: „Rithöfundur sest ekki að skrifborðinu gjörsneyddur reynslu og minni. Efniviður hans er sam- bland alls þess sem hann hefur sjálfur séð og reynt." — ai. 400-600m2 húsnæði óskast Húsnæði fyrir rekstur auglýsingastofunnar óskast. Um er að ræða almennan skrifstofurekstur, teiknistofur og kvikmyndagerð. Kaup eöa leiga Nánari upplýsingar gefur Daníelsson sími 43311 Krístínar M Byko-húsinu Nýbýlavegí 6 sími (91)-43311 i opna eg bakarí og konditori að Grensásvegi 48. Ég býð alla hjartanlega velkomna með kaffi og kökum. Opiö frá kl. 10—4 2ípetmi*;tfafeari GRENSASVEGI 48 SÍMI 81618 BAKARI — KONDITORI — KAFFI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.