Morgunblaðið - 27.03.1983, Síða 11

Morgunblaðið - 27.03.1983, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 59 Hörður Helgason sendiherra sextugur Enskur stjórnmálamaður, R. Peel, sem var uppi á 19. öld sagði „Það tekur þrjár kynslóðir að skapa heiðursmann." 27. mars 1923 leit einn slíkur ljós dagsins vestur á ísafirði. Hörður Helgason fyilir í dag sjötta tug ævi sinnar. Eg hygg að þessir sex tugir hafi verið á margan hátt viðburðaríkir í lífi Harðar, hann setti sér 13 ára gamall markmið sem hann hefur svo síðan fyigt eftir án þess að víkja nokkru sinni út af stefnunni. Markmið Harðar var að starfa fyrir íslensku þjóðina að utanrík- ismálum. Hann var stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1943. Þaðan lá svo leiðin til frekara náms er tryggði honum sem besta þekkingu á heimsmálum eins og þau gerðust þá, er hann kom sprenglærður frá námi í utanrík- isþjónustuna 1948. Hérna hjá okkur í þjónustunni fór Hörður eins að og Rómverjinn Syrus forð- um en hann sagði „Ef þú ætlar upp á efsta þrepið, þá byrjaðu á neðstu tröppunni." Hörður er nú sendiherra íslands í New York. Þar sem hann gætir þess að hags- munir íslands á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna séu ekki fyrir borð bornir. Ég er þeirrar skoðun- ar að öll markmið séu merkileg, svo framarlega sem mönnum tak- ist að fylgja þeim eftir. Hæfileikar Harðar til að umgangast fólk eru með þeim ágætum að ég get ekki látið hjá líða að geta þeirra að nokkru. Þegar hann var í M.A., var hann hrókur alls fagnaðar hvort sem var við íþróttir eða ann- an leik, hann lét sig ekki muna um að spila fótbolta, renna sér á skíð- um eða taka að sér helstu hlutverk í leikritum, t.d. lék hann Frænku Charleys í því ágæta verki og tókst mjög vel að skila því eins og öðru sem hann gerir. Ég veit ekki hvort minn ágæti vinur og fyrrum húsbóndi les nokkru sinni þessar línur, en mér er oft hlátur í huga þegar þú Hörður ert að undirbúa laxveiðiferðir þínar strax um ára- mót, þú ert sjálfsagt þegar byrjað- ur að líta flugurnar þínar hýru auga eins og svo margt annað fal- legt sem ber fyrir augu í þessari veröld. Kæri vinur ég vona að heilladísir vorsins verði þér og Söru alltaf fylgispakar hvert sem leið ykkar liggur út í hinum stóra heimi. Ég veit að ég tala fyrir munn alls starfsfólksins í utanrík- isráðuneytinu þegar ég tek mér í munn orð enska vfsindamannsins J. Lubbock „Allir vita að glaður vinur er eins og sólskinsdagur, sem stráir birtu allt í kringum sig, og það er á færi okkar flestra að gera þennan heim ýmist að höll eða fangelsi." Ég vona því að höf- undur tilverunnar megi gera alla daga ykkar Söru konu þinnar, að sólskinsdögum. Ég hlakka til að sjá ykkur í sumar og veit ég þarf ekki að minna ykkur á að koma með veiðidótið. Kristjín B. Þórarinsson Aldrei of seint Fátt mun falla vinum og viöskiptamönnum erlendis betur en gjafaáskrift að lceland Review 1983. Þú losnar viö allt umstangið. Útgáfan sendir fyrir þig gjafakort og hvert nýtt hefti veröur sem kveöja frá þér (auk þess aö flytja heilmikinn fróöleik um land og þjóö). Fyrirhafnarlítiö, hagkvæmt — og vel þegið af vinum í fjarlægð. Láttu nú veröa af því. Þeim fjölgar stöðugt, sem láta lceland Review flytja kveðju sína til vina um víöa veröld. 183 lcelandReview Höfðabakka 9, Reykjavík. Sími 84966. ★ Nýrri áskrift 1983 fylgir árgangur 1982 í kaup- bæti, ef óskaö er. Gef- andi greiðir aöeins sendingarkostnað. ★ Útgáfan sendir viðtak- anda kveöju í nafni gef- anda, honum aö kostn- aöarlausu. □ Undirritaöur kaupir .......gjafaáskrift(ir) aö lceland Review 1983 og greiðir áskriftargjald kr. 375 pr. áskrift aö viðbættum sendingarkostnaði kr. 75 pr. áskrift. Samt. kr. 450. □ Árgangur 1982 veröi sendur ókeypis til viötakanda(enda) gegn greiöslu sendingarkostnaöar, kr. 100 pr. áskrift. Ofangreind gjöld eru í gildi til loka apríl 1983. Áskrift öðlast gildi þegar greiösla berst. Nafn áskrifanda Sími Heimilisfang Nafn móttakanda ★ Hvert nýtt hefti af lce- land Review styrkir tengslin viö vini í fjar- lægð. Heimilisfang Nöfn annarra móttakenda fylgja með á ööru blaði. Sendið til lceland Review, Pósthólf 93, 121 Reykjavík, eða hringiö í síma 84966. Keflvíkingar Njarðvíkingar 10 ára fermingarafmæli (fermingarbörn 1973) veröur haldiö iBergási þann 30. apríl. Mætum öll. Þátttaka tilkynnist í síma 1063 Hrafnhildur, 3893 Silla, 3633 Þórunn, 2455 Sólveig. Lifandi páskaungar í glugganum BB Grensásvegi 5, Sími: 84016

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.