Morgunblaðið - 27.03.1983, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.03.1983, Blaðsíða 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 Veröld FRJÓVGUN / w V fo —K r,„ Sæöið úr snill-'(ö.ö ingunum Þingmenn og laga.smiðir í Kalif- orníu, sem hafa hina mestu skömm á því, sem þeir kalla „áróður- inn fyrir ofurmennakyni", eru nú að reyna að klekkja á einhverju frægasta fyrirtæki í fylkinu, „Geymslustað fyrir úrvalssæði", sæðisbanka, sem aðeins tekur við frjóöngum frá Nóbelsverð- launahöfum og frægum vísinda- mönnum. „Það, að kona, sem vill eignast barn, skuli geta keypt sér eitt stykki snilling fyrir 500 dollara, er siðferðislega vafasamt og þjóðfé- lagslega hættulegt," sagði Steve Peace, þingmaður fyrir Los Angeles á ríkisþinginu, en hann lagði nú fyrir skömmu fram frumvarp þar sem gert er ráð fyrir, að rfkið hafi strangt eftirlit með starfsháttum sæðisbanka. „í þessum efnum ríkir nú algjör ringulreið," sagði Peace. „Það er engin trygging fyrir því, að ekki sé beinlínis verið að dreifa arfbundnum sjúkdómum og þessi starfsemi býður heim alls konar svindli." Stofnendur sæðisbankans vísa þessu á bug sem tómri vitleysu. Þegar dr. Robert Graham, 76 ára gamall, sérvitur milljónamæringur, kynnti fyrst hugmyndina um sæð- isbanka Nóbelsverðlaunahafa, brostu menn bara í kampinn og af- greiddu hann sem einn af þessum furðufuglum, sem meira en nóg er af í Kaliforníu. Graham, sem er fé- lagi í MENSA, samtökum þeirra tveggja prósenta Bandaríkja- manna, sem standa efst í greindar- vísitölustiganum, brást hins vegar hart til varnar og beið ekki boðanna með að hrinda hugmyndinni í fram- kvæmd. Fjöldinn allur af kunnum gáfumönnum og Nóbelsverðlauna- höfum var beðinn um að taka þátt í fyrirtækinu og sumir brugðust vel við þeirri bón, þar á meðal þrír Nóbelsverðlaunahafar. Langflestir vísindamannanna vildu þó ekkert af þessu vita og breski Nóbelsverðlaunahafinn, Sir Geoffrey Wilkinson, sem fékk verð- launin í efnafræði árið 1973, hafði þau orð um hugmyndina, að hún væri „líffræðileg endaleysa". Bandarískar konur voru hins veg- ar margar á öðru máli og fyrir- spurnirnar streymdu til bankans. Þrjú börn sem getin eru á þennan hátt, hafa nú séð dagsins ljós og um 80 konur bíða þess að verða sæddar með úrvalssæði úr blýlögðum bankahvelfingunum. Blýið á að koma í veg fyrir geislun í hugsan- legri kjarnorkustyrjöld. Nú sem stendur á bankinn sæði úr 15 afburða vísindamönnum og stærðfræðingum og er það nóg til að gera nokkur þúsund konur ófrískar. Vísindamönnunum er ekki greitt fyrir sæðisgjöfina. Verðandi mæður verða að leggja fram 500 dollara tryggingu, sem þær fá síðan endurgreidda ef þær nota ekki sæðið. Auk þess þurfa þær að borga dálitla peninga fyrir flutning og afnot af sæðingartólun- um ef þess er óskað. Þegar konan hefur verið skoðuð og ljóst er að greindarvísitala henn- ar gerir hana þess verðuga að vera sædd með þessu úrvalssæði, þá er henni sendur listi með upplýsingum um eiginleika sæðisins. Þar er greint frá greindarvísitölu sæðis- gjafans, háralit, listrænum til- hneigingum, íþróttaafrekum og ýmsum smávægilegum ágöllum eins og nærsýni og gyllinæð. Þrátt fyrir miklar deilur um sið- ferðilegt og lagalegt réttmæti sæð- isbankans hans Grahams gerðu lagasmiðir í Kaliforníu ekkert í málinu fyrr í ljós kom, að könnun bankans á verðandi mæðrum var ekki alveg jafn fullkomin og í veðri var látið vaka. Fyrsta úrvalsbarnið úr banka- hvelfingunum, getið á síðasta sumri með sæði úr „framúrskarandi stærðfræðingi" á fertugsaldri með greindarvísitölu yfir 200, var 18 marka stúlka, sem hlaut nafnið Victoria. Síðar kom í ljós, að móðir Victoriu, Joyce Kowalski, þrítug að aldri, átti tvö önnur börn frá fyrra hjónabandi og höfðu þau bæði verið tekin af henni vega ásakana um lík- amlegar misþyrmingar. Það upplýstist einnig að þau Kowalski-hjónin fyrrverandi höfðu setið í fangelsi í fjögur ár. Þau höfðu komist yfir fæðingarvottorð löngu látins fólks og notað þau til að verða sér úti um bankalán og krítarkort í nafni þess. - WILLIAM SCOBIE Eitt stykki séní, þökk fyrir. STOKKHOLMUR Allt í steik í kynlífs- bransanum Herskáar kvenfrelsiskonur haf nú efnt til aðgerða til þess að uppra'ta leifarnar af kynlífs- og klám- iðnaði í Stokkhólmi sem ma muna sinn fífil fegri. Hópur 50 kvenna hefur skipt með sér verkurn og hafa þær allan sólarhringinn stranga aðgát á Malmskillnadsgatan, sem í daglegu tali er kölluð „Svívirðustræti", og ekki að ástæðulausu. Vökukonurnar fylgjast með því upp í hvaða bíla vændiskonur eru boðnar, skrá bíl- númerin niður og fletta upp á nafni eigendanna í opinberum skrám. Síðan skrifa þær nöfn mannanna og heimil- isföng á veggspjöld, em fest eru á opinberar byggingar og neðanjarð- arstöðvar um alla borgina. „Við viljum fá fólk til að átta sig á þeirri hneisu sem látin er við- gangast beint fyrir framan nefið á því í þessu svokallaða fyrirmynd- arsamfélagi okkar,“ segir ein þess- ara herskáu vökukvenna. Hún er Ijóshærð, miðaldra og fríð sýnum, en andlit hennar er að hálfu hulið á bak við palestínskt sjal. Hún vildi ekki segja til nafns. „Strangt tiltek- ið er þetta athæfi okkar ólöglegt,“ segir hún. „Það er hægt að sekta okkur fyrir að líma spjöldin upp, en lögreglan reynir oftast að leiða þetta hjá sér og félagsráðgjafarnir, sem hafa afskipti af vændi, eru ein- dregið á okkar bandi. Karlarnir geta bara sjálfum sér um kennt, ef við birtum nöfnin þeirra opinber- lega.“ Hinar herskáu kvenfrelsiskonur láta ekki hér við sitja, heldur gera þær líka skyndiárásir á klám- myndabúðir og þá fáu striplinga- klúbba, sem eftir eru í Stokkhólmi frá því á blómaskeiði frjálslyndis- ins á sjöunda áratugnum. Þær mála vígorð kvenfrelsishreyfinganna á glugga verzlana og klúbba og þegar viðskiptavinirnir hafa lokið sér af gera þær aðsúg að þeim. „Við vilj- um gera þeim það fyllilega ljóst, hvað þeir eru að kaupa,“ segir val- kyrjan með palestínska sjalið. Hin þrotlausa barátta hennar og stallsystra hennar hefur borið þann árangur að yfirbragð Stokkhólms hefur gerbreytzt, en borgin ein- kenndist lengi af taumlausu frjáls- ræði í kynferðismálum. Klám- myndaverzlanir eru að vísu enn starfandi, en eigendur þeirra hafa verið knúðir til að fjarlægja djarfar útstillingar. Samkvæmt nýjum lög- um eru nektarsýningar bannaðar nema á sviði, og hefur það orðið til þess að kynlífsklúbbum hefur fækk- að ört og starfsemi þeirra er ekki svipur hjá sjón miðað við það sem áður var. Fyrir skömmu var tveimur klúbbum lokað, og ein helzta tál- beitan fyrir ferðamenn í Svíþjóð, klúbburinn Chat Noir, lokar e.t.v. á næstunni. Eigandi hans, Ulrich Geismar, sem eitt sinn var kallaður klámkóngur Svía og sópaði saman fé, er nú á nástrái, að því er virðist. Hann skuldar 2,5 milljónir ís- lenzkra króna í skatta og gjaldþrot vofir yfir honum. Konungdæmi hans er greinilega liðið undir lok. - CHRIS MOSEY. Fyrst eru þeir þjóðkjörnu fjarlægðir og þá er valdaránið réttlætt í hinu óhjákvæmilega útvarpsávarpi. Hér eru þeir borðalögðu við hljóðnem- ann í Nígeríu. ■ HINIR BORÐALÖGÐU ——^^1 Byssan skákar kjörseðlinum í þriðja heiminum Ihálfu hundraði höfuðborga um heim allan eru það borðalögðu mennirnir, sem ríkjum ráða. í Suður-Ameríku eru herstjórn- irnar gamall siður og þær setja einnig mestan svip á stjórnarfarið í Afríku og um mikinn hluta Miðausturlanda og Asíu. Það verður æ algengara, að valdaræningjarnir — allt frá undir- liðþjálfum til sjálfskipaðra „marskálka" — séu ungir og óþolinmóð- ir menn, sem nýskriðnir eru úr herskóla. í Afríku t.d. eru 20 ríkisstjórnir í höndum hermanna, sem voru að jafnaði 36 ára gamlir þegar þeir hrifsuðu völdin í sínar hendur. Fyrir milljónir ungra manna í þriðja heiminum er herinn það, sem viðskiptalífið og pólitíkin er í iðnríkjum Vesturlanda, nefni- lega leiðin til valda. „í löndum þriðja heimsins er næstum öll framavon manna bund- in við ríkið og greiðasta leiðin að jötunni er í gegnum herinn," segir stjórnmálafræðingurinn Claude E. Welch, sem í næstum 20 ár hefur fylgst með herbyltingum í öllum heimshornum. Welch segir, að byltingarnar komi í kippum, oft í kjölfar efna- hagslegra erfiðleika og hann býst við nýrri öldu á næstunni ef samdrættinum linnir ekki. Frá 1958 hefur herinn reynt að ná undir sig völdunum í 190 vanþróuðu ríki og tekist það í tveimur tilraun- um af hverjum þremur. Þar af voru níu byltingartilraunir bara á síðasta ári. Könnun, sem AP-fréttastofan gerði, sýnir, að í 38 löndum eru herforingjastjórnir við völd og í að minnsta 12 öðrum komust ríkisstjórnirnar til valda með stuðningi hersins eða er í raun stjórnað af honum. Það aðdráttarafl, sem hsrinn hefur á unga menn í þriðja heimin- um, varð strax ljóst á fyrstu dögum þjóðanna sem sjálfstæðra ríkja. Sem dæmi um það má nefna, að á sjöunda áratugnum, skömmu eftir að Ghana var orðið sjálfstætt ríki, sóttu jafnan mörg hundruð menn um hverja stöðu, sem opnaðist í hernum, og ástand- ið er það sama í dag að því er fram kemur hjá Morris Janowitz, þjóðfélagsfræðingi við háskólann í Chicago. Janowitz og Welch segja báðir frá því, að æ algengara sé að hermennskan gangi í ættir, að sonur taki við af föður, og að í sumum löndum sé komin fram á sjónarsviðið sérstök hermanna- stétt. Þessi þróun hefur hins vegar ýtt undir átök innan hersins sjálfs, þar sem stríðið stendur á milli kynslóðanna, milli manna eftir tign, og milli ólíkra greina heraflans. Hugsjónir þessara ungu valdaræningja eru líka með nokkuð öðrum blæ en áður var og bera oftast keim af „barnalegri rót- tækni“, að því er Welch segir. „Þessum ungu, róttæku foringjum fer eins og ungu fólki er títt, að þeir halda sig hafa lausnina upp á vasann, að þeir geti breytt stefnunni með einum allsherjaruppskurði," segir Welch. „Það er þó alveg ljóst, að herstjórnum gengur ekki betur með efnahagsmálin en óbreyttum borgurum og oftast miklu verr.“ — CHARLES J. HANLEY

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.