Morgunblaðið - 27.03.1983, Síða 27

Morgunblaðið - 27.03.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 75 Trúarglíma Hallgríms felst í því að nálgast aga hinnar sígildu, stöðugu iðkunar rétttrúnaðarins, og hemja og bæla sveiflurnar yfir i hina gleymskufullu rómantísku trú, sem Sigurður Nordal kallar svo, en nánar segir hann um þessa tvenns konar trú í „Trúarlífi Síra Jóns Magnússonar": Til er tvenns konar trúarlíf, tvenns konar kristni, sem kalla mætti hinn klassíska og hinn rómantíska kristindóm. Tak- markið er hið sama, það sem Matthías kallar að njóta nálægðar og notasemi drottins. En leiðirnar eru ólíkar. Hinn rómantíski trúmaður hefur ekki hemil á höfðinu, hann leyfir huganum að reika „í skýjum flögrandi drauma". Hann bíður þess, að hjartað sé stillt til þess að finna návist guðs síns, stund- um í mikilli sorg og stundum í gleði. Hvort tveggja getur þó brugðist, það er undir ýmsum geðbrigðum komið. Þess á milli er hann vegalaus. Hann getur kastast á milli dýrðlegrar hug- ljómunar og þreifandi tómleiks og örvæntingar. — Hinn klass- iski kristindómur fer aðra leið. Honum nægir ekki að láta trú- arlífið vera nokkurs konar and- legt happdrætti. Hann telur það ekki viðunanlegt, að maðurinn bíði þess aðgerðaíaus, að andinn vitji hans, og þaðan af síður, að hann freisti drottins með því að skyggja á náðina með reikulum hugrenningum. Hann vill glíma við drottin sinn, eins og Jakob: Ég sleppi þér ekki, fyrr en þú blessar mig. — Og það er sama sem að glíma við sínar eigin hugsanir, sem hann telur við- ráðanlegri en geðbrigðin. Þess skal hér aðeins stuttlega getið, að samsvarandi mun þess- ari tvenns konar trúrækni má greina í öllum andlegum iðkun- um og þroska. — Hin róman- tíska bókmenntastefna metur mest ósjálfráða afburði, anda- gift og innblástur, sem kemur eins og leiftur, en lítur tor- tryggnum augum á iðjusemina, stritið, áreynsluna, eins og sé þetta ósamboðið eðlis-geníinu, sem er eftirlæti hennar. Agætt dæmi um hinn stritandi listamann, sem finnur innblástur- inn gegnum iðjusemina var franski rithöfundurinn Emile Zo- la, en Matthías Jochumsson er gott dæmi hins mistæka skálds sem aðeins fer á kostum þegar andinn er yfir honum. Hallgrímur Pétursson virðist hafa verið e.k. sambland af þessum tveim lista- mannsgerðum, enda hefur mönnum sýnst hann hafa misst skáldskapargáfuna á sumum skeiðum ævi sinnar. Engu er líkara en hin agaða vinna Hallgríms í trú sinni og hin sterka samsemd sem hann finnur við píslarsöguna í Passíusálmun- um hafi einnig agað hann sem skáld. Verið gæti þá að þar sé komin ein meginástæðan fyrir því hvers vegna hann hætti svo snögg- lega við að snúa Samúelsbók Gamla testamentisins í sálma, er hann hóf vinnu við Passíusálm- ana: (ii) KroHsfcrli ad fylgja þínum fýsir mig, Jesú kær. Va»g þú veiklcika mínum, þó verói ég álengdar fja*r. I»á (rú og þol vill þrotna, þrengir ad neyðin vönd, reis þú vió reyrinn brotna og rétt mér þína hönd. Sú andlega fullnægja og ham- ingja sem trúin getur veitt, felst m.a. í vissunni um hinn rétta veg til lífsins. Leiðarljósið f Passíu- sálmunum er píslarsaga Krists: (9) Kvalafór, Jesú, þessi þín, sem þá gekkstu einu sinni, veri kraftur og verndin mín, svo veginn lífsins ég finni. Lát ekki djöful draga mig í dofinleik holdsins blinda til sekta og synda. fcg bió af ást og alúd þig ákefó hans burt að hrinda. (41) l»á sólarbirtunni eg sviptur er, sjón og heyrn tekur ad dvína. Kristur ber krossinn eftir Piombo. Hugleiðing kristinnar sálar eftir húðstrýkingu Krists. (Málverk eftir Velazquez). raust og málfæri minnkar mér, myrkur dauóans sig sýna, í minni þér, drottinn sæll, þá sé sonar þíns hróp á krossins tré. Leið sál til Ijóssins mína. Með þetta í huga ásamt með iðkun bænarinnar upplýsist „sjón hjartans" (32. sálmur), persónu- leikinn þroskast og göfgast og sál- in öðlast frið: 0) Af því læri eg að elska ei frekt eigin gagn mitt, svo friður og spekt þess vegna raskist. Þér er kært þolinmæði og geð hógvært. (10) ó, Jesú, láttu aldrei hér anda þinn víkja burt frá mér, leið mig veg lífsins orða, svo hjartað bæði og málið mitt mikli samhuga nafnið þitt. Iloldsgirnd og hræsni forða. (21) Heyri eg um þig, minn herra, rætt í hjálpræðisorði þínu, allt sýnist mér þá búið og bætt bölið í hjarta mínu. í sakramentinu sé ég þig, svo sem í líking skærri, með náð mér nærri. ó, hvað gleður sú ásýnd mig. Kngin finnst huggun stærri. (48) (•egnum Jesú helgast hjarta í himininn upp ég líta má, guðs míns ástar birtu bjarta bæði fæ ég að reyna og sjá. Ifryggðarmyrkrið sorgar svarta sálu minni hverfur þá. (43) Herra Jesú, ég þakka þér, þvílíka huggun gafstu mér, ófullkomleika allan minn umbætti guðdómskraftur þinn. Um mótlætið orti Hallgrímur ódauðlegan sálm og læt ég hann fylgja hér óstyttan vegna þess hve vel hann sýnir hina einlægu trú- festi Hallgríms: l*ú kristin sála þjáð og mædd og þreytt af krossins byrði, ei vanmegnastu, vertu’ ei hrædd, þótt vilji drottins yrði; l»rey, þol og líð, bið, vona, bíð; l»itt böl fær góðan enda; l»á neyð er hæst, er herrann næst; l»ér mun hann fógnuð scnda. I»ú sjer, hve móðir mildigjörn oft mædd þó til þess neyðist að aga hart sín ástkær börn, frá illu svo þau leiðist; Og viðkvæm þá hún eftir á sitt örmum barnið vefur og tirafoll af þerrar öll og alla blíðu gefur. Svo fer og drottinn að við oss, hans orðin þar um hljóða; Á leggur hirting, hryggð og kross; (>ss hann vill allt hið góða. í hörmung mitt geð mýkir sitt sá mildi faðir blíður. I»á elskar best, sem agar mest. Hann er þeim næst er líður. I»ótt Hnnist langt að líða þér, það lítil stund má heita. I»ess gæt, að eilífð eftir fer. I»ar æ mun drottinn veita oss unun þá, sem aldrei má upp hugsa mannlegt hjarta. Vert kyrr í lund, sú kemur stund, sem kveikir Ijósið bjarta. í Jesú nafni bið og bíð, því brátt þinn ástvin kemur. Ef ásýnd hans þér birtist blíð, hvað böl þitt stillir fremur? Hann græðir sár og sorgartár ei sífellt lætur renna. I»inn hug við allt það hugga skalt, sem hans þér orðin kenna. Nú lofum guð, sem glaða von oss gaf í raunum vöndum og lét sinn góða líknarson oss leysa’ úr dauðans böndum. Hans andinn kær er ætíð nær þeim öllum, kvöl sem líða, í þraut skal nú með þökk og trú ég þreyja vona’ og bíða. Og þá er eftir að geta um af- stöðu Hallgríms til sálarinnar. Þar aðhylltist hann samskonar tví- hyggju og samtímamaður hans, heimspekingurinn Descartes, gerði fræga í kenningakerfi sínu, en þessi tvíhyggja var ráðandi skoð- un á 17. öld: Aðskilnaður sálar og líkama. Afstöðu sálar og líkama lýsir Hallgrímur á snilldarlega einfaldan hátt í 17. Passíusálmi: Sálin í útlegð er, æ meðan dvelst hún hér í holdsins hreysi naumu, haldin fangelsi aumu. Dauðinn með dapri sút dregur um síðir út hana, þá hreysið brotnar. Holdið í jörðu rotnar. Heilræðin Eitt af því, sem gerir það að verkum að Passíusálmarnir hafa lifað svo góðu lífi hér í meir en 300 ár, er mannvitið og heilræðin sem Hallgrímur setur þar fram á svo ljósan hátt að helst má líkja við sálfræðileg sannindi. Og hver og einn finnur annaðhvort sjálfan sig í þessum sannleikskornum mann- þekkingarinnar eða er knúinn til að taka afstöðu til heilræðanna. Mörg þessara sannmæla eru á formi boðorða: „Lát af illsku, en elska gott ... athugagjarn og orð- var sért/ einkum þegar þú reiður ert“ (28), „hætt er rasanda ráði“ (46), „sem best haf gát á sjálfum þér“ (50): (37) (■irnist þú, barn mitt, blessun fá, björg lífs og gæfu fina, forcldrum skaltu þínum þá þóknun og hlýðni sýna. 1 ngdómsþverlyndið oftast nær ólukku og slys að launum fær. Hrekkvísa hefndir pína. (13) Lærðu, ef lygum mætir, lífsreglu, sál mín, hér: Með forsi og þjóst ei þrætir. Þrálega svo til ber, hógvær þögn heiftir stillir, heimskorður sannleik spillir oft fyrir sjálfum sér. Hallgrímur leitar einnig að skýringu á því sem aflaga fer hjá mönnunum: „Undirrót allra lasta/ ágirndin kölluð er“ (16). Og hin rétta innstilling trúmannsins er síðan í 16. sálmi: Brot þín skalt bljúgur játa, en bið þó guð um náð, af hjarta hryggur gráta, en heilnæm þiggja ráð. Hmfram allt þenktu þó: Son guðs bar þínar syndir og, svo þú miskunn fyndir, saklaus fyrir sekan dó. Að lokum Það er sárt til þess að vita hversu fáa.nýja aðdáendur þetta stórkostlega verk Passíusálmarnir vinnur sér á ári hverju, þrátt fyrir það að þeir eru lesnir í útvarpið á hverri föstu. Er þar eflaust ýmsu um að kenna, víða er pottur brot- inn í skólakerfinu o.s.frv. Það er einnig sárt til þess að hugsa að sá fagri heimur sem Hallgrímur Pét- ursson sýnir okkur með lífi sínu og list skuli ekki tilheyra fleirum en hann gerir. Fáir hugsa um að „fegra hjarta sitt og snyrta hugs- un sína“. Slíkt er auðvitað ekki kennt í skóla, og það brauðfæðir heldur ekki heiminn. En maðurinn lifir ekki á brauði einu saman. Mig langar samt til að ljúka þessari samantekt með því að gera orð Sigurðar Nordal að mínum. Ég veit að þau ná tæplega til þeirra sem þyrftu á þeim að halda, en þau eru í svo miklu samræmi við þá manngildishugsjón sem Passíusálmarnir boða, en svo fáum tekst að tileinka sér: Þú veist ekki, hvað svipur þinn gæti orðið heiðríkur og augun djúp, ef þú kynnir enn að biðja bænirnar þínar á kvöldin með sömu barnslegu einlægninni og þegar þú varst sjö ára. (Líf og dauði, bls. 87)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.