Morgunblaðið - 27.03.1983, Page 28

Morgunblaðið - 27.03.1983, Page 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 Spjallað um útvarp og sjónvarp „Þannig er nú komið fyrir þjóðinniÉ< Guðmundur G. Hagalín les þessa dagana í útvarp sögu sína „Márus a Valshamri og meistari Jón“. Sagan hefur verið á dagskrá síðan snemma í mars- mánuði. Ég hef ekki getað fylgst með frá byrjun, hef heyrt í Hagalín tvisvar og skemmt mér konunglega, hann er engum lík- ur. Karlinn er orðinn rúmlega áttræður og leikur við hvurn sinn fingur og það sem meira er, hann leikur persónur sögunnar af slíkri snilld að atvinnuleikar- ar gera ekki betur. Eftir hádegi fimm daga vik- unnar les svo Þórhallur Sigurðs- son leikari sögu Stefáns Jóns- sonar, „Vegurinn að brúnni". Þórhallur er ágætur upplesari, skýr í tali og áheyrilegur. Fyrr í vetur las Indriði G. Þorsteinsson sögu sína „Norðan við stríð". Út- varpshlustendur hafa ekki verið sviknir af góðum bókmenntum í útvarpi það sem af er vetri og vonandi hefur útvarpið fleiri góðar sögur að bjóða þegar Hagalín og Þórhallur ljúka sín- um lestri. Lestur Passíusálmanna er vandasamt verk og er misjafn ár frá ári, stundum tekst vel og stundum miður. f vetur hefur Kristinn Hallsson lesið Passíu- sálmana af slíkri prýði að allur flutningur er skýr og lifandi og er rétt að þakka hans góða fram- lag. f kvöldfréttum sjónvarpsins síðastliðið föstudagskvöld var sagt frá fyrirhuguðum hátíðar- höldum á Miklatúni og í Laug- ardal á komandi sumri sem munu gleðja yngsta fólkið á fs- landi. f Laugardal verður sirkus í gangi og á Miklatúni Tívolí, þá verður líka búið að kjósa til Al- þingis og bjart yfir þjóðlífinu eftir að lýkur þriggja ára óstjórn vinstri flokkanna. Fimmtudagur 17. mars: Illugi Jökulsson, blaðamaður, stjórnaði þætti í útvarpinu um kvöldið sem fjallaði um þann ógæfusama mann Donald Mac- Lean sem ungur maður gerðist njósnari fyrir Sovétríkin. Ferill hans var ein hörmungarsaga. hann var námsmaður í Cam- bridge á þriðja áratugnum ásamt Kim Philby, Guy Burgess og Anthony Blunt sem einnig gerðust agentar sovésku leyni- þjónustunnar KGB: Donald MacLean var góður námsmaður, kominn af yfir- stéttarfjölskyldu en hneigðist snemma til þunglyndis, drykkju- skapar og kommúnisma. Hann gekk í utanríkisþjónustu Breta, var í París er síðari heimsstyrj- öldin hófst og eftir stríð í Wash- ington þar sem hann komst yfir upplýsingar varðandi kjarnorku- leyndarmál og sendi austur til Moskvu. Hann flúði til Rúss- lands um það leyti sem upp komst um njósnir hans, á 38 ára afmælisdegi sínum um 1950, og lést þar einn og yfirgefinn fyrir um það bil þremur vikum og hafði þá lengi verið algjört úr- hrak. Þáttur Illuga Jökulssonar varpaði skýru ljósi á feril Don- ald MacLeans. Föstudagur 18. mars: Ég opnaði fyrir útvarpið klukkan hálfellefu árdegis og þulur kynnti næsta dagskrárlið, „Það er svo margt að minnast á“. Umsjónarmaður Torfi Jónsson. Þátturinn var helgaður Sigurði Nordal, heimspekingi og rithöf- undi. Lesinn var kafli úr bók hans „Fornar ástir" og ýmis samtíningur og svo greinar um Sigurð frá fyrri árum. Nordal var merkur maður og líklega einn gáfaðasti Islending- urinn sem uppi hefur verið fyrr og síðar. Hann skrifaði mikið um ævina í blöð og tímarit og þekk- ing hans á ýmsum málum var mikil. Þættir Torfa Jónssonar eru oftast vandaðir. Fyrr í vetur hlustaði ég t.d. á þátt um Hall- dór Laxness sem var eins og þátturinn um Sigurð Nordal fróðlegur og skemmtilegur. Laugardagur 19. mars: „Seðlar" (Dollars), bandarisk bíómynd frá 1971, aðalhlutverk Warren Beatty, Goldie Hawn og Gert Frobe, kom á skjáinn klukkan níu eftir kvöldfréttir og auglýsingar. Öryggissérfræðing- ur og vinkona hans skipuleggja óvenjulegt rán úr bankahólfum manna sem hafa auðgast á glæpastarfsemi. Ég reyni yfir- leitt að horfa á myndir þar sem Goldie Hawn er í aðalhlutverki. Stúlkan er myndarleg. Miðaldra piparsveinar komast allir á hreyfingu þegar hún brosir, stúlkutetrið, og þegar mótleikar- inn er Warren Betty, sem ég hef lengi haft álit á sem góðum leik- ara, þá er tekinn fram besti stóllinn á heimilinu, sest fyrir framan sjónvarpstækið og slappað af. Ég varð fyrir von- brigðum. Myndin er léleg og er varla sæmileg afþreyingarmynd hvað þá meira. Mikill eltinga- leikur á bifreiðum er í lok mynd- arinnar sem skapar svolitla spennu um stund. Þegar honum er lokið og parið hittist með þýf- ið úr bankanum í hjólhýsi langt frá þeim stað þar sem ránið var framið og hoppar síðan uppí rúm, þá er myndin búin og áhorfendur anda léttar. Sunnudagur 20. mars: Dagurinn heilsaði með ný- föllnum snjó og messu hjá Hjálpræðishernum sem var út- varpað fyrir hádegi. Söngvarar og hljóðfæraleikarar á vegum Hersins fluttu fagra tónlist og fagran söng og Ingibjörg Jóns- dóttir, brigader, predikaði. Það er alltaf einhver stemmning í kring um Hjálpræðisherinn og mikið um að vera. Meðal fyrstu bernskuminninga eru samkomur sem Herinn gekkst fyrir á götu- hornum við daufa ljósbirtu en mikla innri gleði. „Glugginn", þáttur um menn- ingarmál og listir, hófst í sjón- varpinu klukkan hálfníu síðdegis að loknum fréttum og kynningu á dagskrá næstu viku. Svein- FEFMINGflFGJÖF semfengur erí Gjafabréf á eítt af tölvunámskeíðum FRAMSÝN er í senn gagnleg gjöf og gleðiefní. Áhugi ungs fólks á tölvum og tækní þeím tengdum er þegar vaknaður. Þau gera sér grein fVrir því að tölvan á eftír að veíta þeim ómældar ánægjustundír og jafn- framt að aukin þekking á tölvum tryggir stöðu þeírra í tæknivæddum heimi_____________ FRAM TÖLVUSKÓLI TÖLVUNÁM ER FJÁRFESTING í FRAMTÍÐINNI Tölvuskólinn FRAMSÝN, Síðumúla 27, Pósthólf 4390,124 Reykjavík, sími: 39566 Til sölu Grove 375 45 tonna cab vökvakrani með 152 feta lyftihæö. Aðalbóma 125 fet + 27 fet jib. Kraninn er í mjög góðu ástandi. Uppl. í síma 71347 eftir kl. 19.00. Höfum fengið fallegt og gott úrval af hinu viðurkennda og vinsæla þýska MÖVE baðlíni. Handþurrkur (hand- klæði), baðþurrkur, gestaþurrkur og þvottapoka. X MÖVE Þekkt fyrir mýkt, fall- ega liti, munstur og mikil gæði. V LAUGAVEGS APÖTEK SNYRTIVÖRUDEILDIR THORELLA mi í LAUGAVEGS APÓTEKI, LAUGAVEG116 OG í „MIÐBÆ“ HÁALEITISBRAUT ______________________/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.