Morgunblaðið - 27.03.1983, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
77
Guðmundur G. Hagalín
björn I. Baldvinsson, umsjónar-
maður þáttarins, kom víða við.
Hann heimsótti Þjóðleikhúsið,
ræddi við Svein Einarsson, Þjóð-
leikhússtjóra um nýtt verk sem
er að koma á fjalirnar, „Órest-
eiu“ eftir gríska skáldið Eskýlos,
og sýnd voru atriði úr leikritinu
þar sem Arnar Jónsson var í
hlutverki spáguðsins Appolon og
Helga Bachmann og Hjalti
Rögnvaldsson í minni hlutverk-
um.
Leiðtogi Jazzvakningar, félags
jazzgeggjara, hinn kunni jass-
áhugamaður Vernharður Linnet,
var gestur Sveinbjarnar og sagði
frá útgáfu á jazzplötu til minn-
ingar um Gunnar heitinn
Ormslev. Ég heyrði ekki betur en
að Vernharður segði sögu jazzins
í stuttu spjalli af svo mikilli
Sveinbjörn I. Baldvinsson
þekkingu að Múlinn má fara að
vara sig. Leiðtogi jazzvakningar
var líka byrjaður að safna
jazzplötum um leið og hann gat
lesið af bók, sjö eða átta ára.
Sveinbjörn heimsótti nýja
menningarmiðstöð í Breiðholt-
inu. Hann tók tali Markús örn
Antonsson, borgarfulltrúa,
stjórnarformann menningar-
miðstöðvarinnar, Elfu Björk
Gunnarsdóttur, borgarbókavörð,
og Elísabetu Þórisdóttur sem
starfar við stofnunina. Ekki fór
það framhjá sjónvarpsáhorfend-
um að menningarmiðstöðin er
glæsilegt hús. Starfsemi menn-
ingarmiðstöðvarinnar er að hefj-
ast með samsýningu sextán
myndlistarmanna, leiksýningum
og tónleikum og síðar mun Borg-
arbókasafnið opna þar útibú.
Sveinbjörn spjallaði við Egil
Eðvarðsson og Snorra Þórisson
um „Húsið", hina nýju íslensku
kvikmynd sem verið er að sýna í
Háskólabíói, og sýnd voru atriði
úr myndinni.
Þáttur Sveinbjarnar I. Bald-
vinssonar var frábær. Vandaður
og vel unninn og tók fyrir það
helsta sem er að gerast í menn-
ingarlífi og listum þessa dagana.
Sveinbjörn opnaði Gluggann
uppá gátt og leyfði okkur í rúm-
an hálftíma að fylgjast með mik-
illi grósku í listum og menning-
arlífi.
Rétt fyrir dagskrárlok í sjón-
varpi eða um klukkan hálfellefu
hófst fyrsti þáttur af fjórum um
Biblíuna, „Að ljúka upp ritning-
unurn". Séra Guðmundur Þor-
steinsson, prestur í Árbæjar-
sókn, fjallaði um biblíuna frá
ýmsum hliðum og rætt var við
Sigurbjörn Einarsson, fyrrver-
andi biskup, um áhrif hennar
hér á landi fyrr og nú. Biblían
hefur að geyma andleg auðæfi
sem mölur, ryð og jafnvel óða-
verðbólga fá ei grandað og reglu-
legur lestur Biblíunnar er til
blessunar og styrks í daglegu
amstri. Þessi fyrsti þáttur af
fjórum var mjög fróðlegur. Sig-
urbjörn Einarsson ræddi þýð-
ingu Biblíunnar, boðskap hennar
og sagði frá þeim góðu áhrifum
sem lestur Biblíunnar hefur haft
á hann. Var það ákaflega fróðleg
og lifandi frásögn eins og við var
að búast af jafn miklum gáfu-
manni og Sigurbirni fyrrverandi
biskup.
Mánudagur 21. mars:
„Móna“, ný bresk sjónvarps-
kvikmynd, var á dagskrá sjón-
varpsins klukkan tíu um kvöldið.
Myndin lýsir vináttu einmana
roskins liðsforingja úr fyrra
stríði og unglingsstelpu. Stúlkan
tekur að venja komur sínar á
heimili liðsforingjans í sumar-
bústað sem stendur ekki fjarri
heimili stúlkunnar. Hún kveikir
upp í arninum og þvær upp leir-
tau í eldhúsi. í fyrstu er liðsfor-
inginn beinlínis argur og leiður
yfir heimsóknum stúlkunnar og
heimtar að fá að vera einn. Þeg-
ar hún byrjar að veita honum
aðhlynningu í veikindum hans,
þá breytist viðmót liðsforingjans
og í lok myndarinnar þykir þeim
innilega vænt hvoru um annað,
stúlkunni og liðsforingjanum.
Myndin er sérstæð og nokkuð
óvenjuleg en litið verður úr ann-
ars ágætum efnivið.
Þriðjudagur 22. mars:
Jón Steinar Gunnlaugsson
lögmaður, varaformaður SÁÁ,
og Guðjón Magnússon vara-
landlæknir sátu fyrir svörum í
þætti Ingva Hrafns Jónssonar og
Halldórs Halldórssonar, „Á
hraðbergi", í sjónvarpinu seint
um kvöldið. Umræðuefni var
fjársöfnun Samtaka áhuga-
manna um áfengismál sem
stefna að byggingu sjúkrastöðv-
ar fyrir alkóhólista sem ljúka á í
haust. Nokkur gagnrýni kom
fram í þættinum á skipulag fjár-
söfnunarinnar og þátt fyrirtæk-
isins Frjáls framtaks í þeirri
skipulagningu. ólík sjónarmið
gerðu vart við sig og ekki er víst
að öll sú gagnrýni sem fram kom
eigi rétt á sér. Málefnið er brýnt
og á skilið stuðning sem flestra.
Barátta áhugafólks um áfeng-
ismálin ' hefur vakið mikla at-
hygli og félagsskapurinn hefur
unnið kraftaverk í baráttunni
gegn áfengisbölinu.
Miðvikudagur 23. mars:
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
var með þátt sem hann kallar
„Lag og ljóð“ í útvarpi skömmu
fyrir hádegi. Hann kynnti
norska vísnatónlist með þjóð-
lagatríóinu Simre sem hann
sagði koma til Islands næsta
haust. Norskur trúbador tók lag-
ið, söng um lífið og tilveruna og
síðar í þættinum sungu norskir
þjóðlagasöngvarar norskan
texta við þekkt íslenskt þjóðlag.
Vísnatónlist er skemmtileg og
þessi þáttur Aðalsteins Ásbergs
var ágætur.
Á meðan Dallas-hyskið var á
-Uagskrá í sjónvarpsþættinum
seint um kvöldið lá umferð niðri
við Miklubrautina og svo hefur
sjálfsagt verið víðar í Reykjavík.
Fólk hópast að sjónvarpinu á
meðan á útsendingu stendur,
þannig er nú komið fyrir þjóð-
inni sem á bæði Hallgrím Pét-
ursson og Halldór Laxness. Dall-
as höfðar til lægstu hvata
mannskepnunnar. Flestar per-
sónur í þessum framhalds-
myndaflokki eru siðlaus úrhrök.
J.R. er klepptækur, mannaum-
inginn á verulega bágt.
Ólafur Ormsson