Morgunblaðið - 15.04.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1983
55
l í u ! í í {!
m \ * i [ ■ 15r
aMAsÆakséh*
II r*
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS „
/HA Uhr/'L) IT
Því miður er lítið sagt
Guðrún Á. Símonar skrifar og
svarar stjórn Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands:
„Ég þakka kurteislegt svar, en
lítið sannfærandi fyrir mig.
Því miður hefi ég dregið að
svara. Það vill svo til, að ég á ekki
kost á þvi að hafa heila stjórn til
að taka upp hanskann fyrir mig
eins og framkvæmdastjórinn Sig-
urður Björnsson.
Það væri hægt að halda, að mér
væri illa við hjónin. Það er mesti
misskilningur. Ég er einfaldlega
ekki sammála þeim. Ég kann ekki
við þeirra hugsunarhátt gagnvart
íslenskum söngvurum. Ef stjórnin
hefur algjörlega með verkefnaval-
ið að gera, hefur þá Guðmundur
Jónsson verið einn af þeim, sem
valdi sjálfan sig í „La Traviata",
„Otello", „Tosca" og fleiri verk-
efni?
Guðmundur Jónsson hefði átt
að leiðrétta með „Toscu". Hann
var á sínum tíma mjög glæsilegur
„Scarpia". Þetta er bara ekki í
fyrsta skipti sem svona mistök
hafa gerst hér viðvíkjandi frum-
flutningi á ýmsum verkum. For-
ráðamenn „vilja" kannski ekki
vita betur, það gæti stundum verið
óþægilegt, það er að segja ef mað-
ur vill fá „hrósið" fyrir að koma
einhverjum merkilegum viðburð-
um af stað.
í stjórn Sí eru menn sem vita
mætavel að það hefur verið og er
ennþá mikill klíkuskapur í söng-
og tónlistarmálum hér. Mér finnst
eins og þeir séu að klappa á koll-
inn á mér og segja: „Svona Guðrún
mín, vertu ekki með þessa vit-
leysu, hér er allt í lagi.“
Sætar en
ábyrgðar-
lausar
Kona skrifar:
„Þær voru sætar og elskulegar
konurnar af kvennalistanum í
sjónvarpinu á þriðjudaginn, en
þeim tókst ekki að segja okkur af
hverju við eigum að kjósa þær á
þing. Þær komu að vísu á framfæri
nokkrum fallegum stefnumálum.
Eins og við hin vilja þær gera allt
fyrir alla.
Hjá konunum kom ekkert fram
sem ekki er á stefnuskrá allra
hinna flokkanna, t.d. samfelldur
skólatími og sveigjanlegur vinnu-
tími. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gert meira en að setja þessi mál á
stefnuskrá. Hann hefur lagt fram
tillögur til úrbóta á þingi og í borg-
arstjórn og hafið aðgerðir.
(Fræðslunefnd Reykjavíkur sam-
þykkti t.d. nýlega að lengja skóla-
dag sex ára barna um klukkustund
og viðvist þeirra í skólum í fjórar
stundir á dag, eins og skýrt var frá
í Morgunblaðinu fyrir stuttu.)
Mér finnast huggulegu konurnar
á kvennalistanum hættulegar, þvi
að þær eru að biðja fólk að kjósa
sig á þing á grundvelli mjög
þröngrar stefnuskrár. Þær virðast
ekki gera sér ljóst, að 100% verð-
bólga er alvarlegur hlutur. Efna-
hags- og atvinnulff landsins er að
hrynja eftir margra ára óstjórn og
við erum að sökkva f erlent skulda-
fen. Framboðskonurnar hafa ekki
áhyggjur af efnahagslegu sjálf-
stæði þjóðarinnar og skilja ekki
hver vá er fyrir dyrum. Hver á að
reisa efnahagslífið úr rústum og
hvar ætla konurnar að fá peninga
til að gera allt það góða sem þær
boða? Það á enginn að bjóða sig
fram til þings sem ekki getur svar-
að þessum spurningum, en kvenna-
listinn gerir ekki einu sinni tilraun
til þess.“
Rögnvaldur Sigurjónsson,
píanóleikari og fyrrverandi for-
maður FÍT, skrifaði mikla
skammargrein til Sigurðar
Björnssonar vegna erlends píanó-
leikara, sem fór sem einleikari til
Þýzkalands með SÍ. Sigurður
treystir ekki íslenskum píanóleik-
urum, frekar en söngvurum. En
hvað með hann sjálfan? Er hann
ekki íslenskur?
Nú spyr ég: Hvernig stóð á því,
að stjórn SI tók ekki upp hansk-
ann fyrir Sigurð Björnsson, þar
sem að stjórnin segist ráða um
verkefnaval SÍ. Getur hugsast að
þeir hafi verið sammála Sigurði,
eins og þeir voru núna og áður
fyrr.
Hvar myndu meðlimir SI
standa ef þeir fengju ekki sín
tækifæri? Sí samanstendur af
fólki með reynslu, fólki með litla
reynslu, byrjendum nýsloppnum
úr tóníistarskólum, einleikurum
og útlendingum. Ég hefi séð
nokkra af þessum gömlu, sem spil-
uðu hjá Bjarna Bö, þegar ég var 17
ára og söng með hjómsveit hans,
og þeir eru ennþá að puða.
Ég tel að stofnanir eins og Þjóð-
leikhúsið, Sinfónían og Ríkisút-
varpið, sem eru styrktar af ríkinu
hafi ekki leyfi til að nota aðstöðu
Þuríður Kristjánsdóltir skrifar:
„Velvakandi.
Mikil gróska hefur verið í lista-
lífinu á öllum sviðum undanfarið
og veitt mikla ánægju í hvers-
dagsleika lífsins.
Listamennirnir hafa lagt hart
að sér og verk margra verið mjög
góð og eiga þeir þakkir skilið.
Nú eru nokkrar íslenskar
kvikmyndir í gangi og gaman að
fylgjast með. Miklar fjárhæðir eru
í húfi í hverri einstakri kvikmynd
og erfitt að segja fyrir fram, hver
dregur að sér mestu athyglina.
Seinasta myndin, sem ég sá, var
„Á hjara veraldar". Myndin líður
ekki úr huga mér fyrir hvað hún
var fögur. Hún var eins og röð af
listaverkum, þar sem Reykjavík
og fleiri staðir voru eins og töfrum
sína fyrir sínar fjölskyldur. Það
mætti a.m.k. vera í hófi.
Því miður er lítið sagt, allir
hafa hag af því að „þegja allt í
hel“. Á meðan íslenska óperan er
ekki styrkt af ríkinu, þá ræður
hún sínu verkefnavali.
Það eru 19 ár síðan að ég kom
heim frá Bandaríkjunum. Ég var á
góðum aldri, akkúrat 40 ára göm-
ul. Ég hefi fengið eitt óperuhlut-
verk, þ.e. „Freyju" í „Þrymskviðu",
og hef ég verið talin ein af fremstu
söngkonum hér.
Ég gat ekki beðið í mörg ár eftir
hlutverkum, sem ekki komu og
sneri mér að því að verða
skemmtikraftur. Ég þakka það
einni tegund af klíkuskap, þegar
Guðlaugur Rósinkranz færði upp
„Brúðkaup Figarós" með frú sína í
aðalhlutverki, og flestum fannst
víst ágætt, og sumir tóku meira að
segja þátt í þessu mikla „fíaskó".
Sieglinde Kahmann hefur verið
hér búsett í sex ár og fengið sex
stór óperuhlutverk, fyrir utan
margt fleira. Hér eru söngvarar,
sem fá lítil tækifæri, en þegar þeir
fá tækifæri er það fyrir þá eins og
í gamla daga, þegar maður átti að
fara í sparifötin á hátíðisdögum.
Dæmi svo hver sem vill.“
gæddir. Margar tökur, innan húss
og utan, voru alveg afbragð. Þetta
var allt svo fágað, uppstillingar
svo sérstakar, á svolítið hærra
plani en við eigum að venjast.
Söguþráðurinn var nokkuð
draumkenndur, en þá reynir á
ímyndunarafl hvers og eins.
Mamman var, fannst mér, andleg
systir svo margra, sem missa lífs-
drauminn í vaskinn, svo brauð-
stritið eitt verður eftir og þreytan.
Sonurinn virtist rótlaus eða smá
geggjaður og dóttirin, ja, hvað
skal segja, var hún ánægð með sitt
hlutskipti sem alþingismanns
o.s.frv.?
Ég óska Kristínu Jóhannesdótt-
ur og hennar samstarfsfólki til
hamingju með þessa fallegu mynd
og bið þeim blessunar á lista- og
lífsbrautinni."
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Kápan hengur á snaganum.
Rétt væri: Kápan hangir á snaganum.
„Á hjara veraldar": Mæðginin (Þóra Friðriksdóttir og Arnar Jónsson).
„Á hjara veraldar“:
Eins og röð
af listaverkum
J
Hittu
höfuðið
Hittu naglann á höfuðið með handverkfær-
um frá okkur. Við bjóðum úrval af handverk-
færum, rafmagnsverkfærum, málningarvör-
um, lími, þéttiefnum, lökkum, skrúfum,
boltum, róm, lyklaefni, penslum, lásum,
læsingum, og fí. fí. Okkar verð er þér
hagstætt. Komdu í heimsókn.
JPPBUÐiN
VJÐ HÖFNJNA
Mýrargötu2 - sími 10123
OPIÐ í HÁDEGINU OG Á
LAUGARDÖGUM TIL HÁDEGIS
PER HANSEN
VERKT0JMASKINER
VANTAR YÐUR
NOTAÐAR
JÁRNSMÍÐAVÉLAR?
Við verðum í Reykjavík frá 15,—19. apríl og búum á
Hótel Esju — sími 82200.
Verið velkomin í heimsókn til okkar.
Við höfum myndir og upplýsingar yfir þær vélar sem við
getum afgreitt nú þegar af lager okkar í Kaupmannahöfn.
MEÐAL ANNARS:
• Fræsivélar
• Borvélar
• Rennibekki
• Plötusmíðavélar
• Höggpressur
• Sagír/sjálfvirkar
• Hjólsagir/sjálfvirkar
• Slípivélar o.m.fl.
Við vonum að á okkar stóra lager séu vélar sem henta
yður, ef ekki þá getum viö með stuttum fyrirvara útveg-
aö allar geröir járnsmíðavéla frá viðskiptavinum okkar.
PER HANSEN
VERKT0JMASKINER A/S
Frekari upplýsingar.
IVFTARA-OG
VÉIAMÓAUfTAn
Ármúla 8. — Sími 84858.