Morgunblaðið - 15.04.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.04.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1983 47 Ó F R J Ó S E M 1 II H m T 1 egar um ófrjósemi er aö ræöa, má í allt aö því 40—50% tilvika rekja ástæöur hennar ýmist beint og að öllu leyti eöa þá aö nokkru leyti til karlmannsins. Á síöastliönum 40—50 árum hafa orðið mjög miklar breytingar á viðhorfum í læknisfræöi aö því er varðar þann þátt, sem karlar eiga í ófrjósemi. Nú á dögum er fariö aö líta á hlutdeild þeirra í þeim vanda- málum, sem tengjast ófrjósemi hjóna, allt öðrum og raunsærri augum. Hér áöur fyrr var litið svo á, aö ófrjósemi ætti fyrst og síðast rætur sínar aö rekja til konunnar. Konan var látin gangast undir víðtækar prófanir og alls konar læknisfræöi- legar athuganir geröar á henni, áö- ur en farið var jafnvel aö ýja í þá átt, aö karlmaðurinn kynni að eiga einhvern þátt í ófrjósemi hjónanna. Margir karlmenn voru auk þess einkar ófúsir aö láta sýnishorn af sæöi sínu til læknisfræðilegra at- hugana á rannsóknarstofum. Þaö er langt frá því aö þessi viðhorf karlmannsins séu meö öllu horfin. Sú skoðun, sem ríkti fyrir um mjög víða, að ófrjósemi hjóna gæti aðeins í örfáum tilvikum stafaö af völdum karlmannsins, hefur nú orðiö aö víkja aö fenginni staðbetri vitneskju, þar sem í Ijós hefur komið, aö í um það bil helmingi tilvika er þaö einmitt karlmaður- inn, sem er aöal orsakaþáttur ófrjóseminnar. Of fáar sáðfrumur Þetta mat á því háa hlutfalli, sem ófrjóir karlmenn eru taldir eiga í heildartölum um ófrjósemi hjóna, hefur tekiö aöeins smá- vægilegum breytingum eftir aö vís- indalegri athugun lauk fyrir skömmu, en hún beindist einkum að því aö geta skilgreint á nýjan leik, hver þyrfti að vera lágmarks- tala sáöfruma í sáðfalli viö getnaö til þess að karlmaður geti talizt frjór. Hin venjulega orsök ófrjósemi karlmanna, það er að segja of lítill fjöldi sáöfruma eöa tregar hreyf- ingar sáöfrumanna í sæðisvökvan- um, stendur í engu sambandi viö styrkleika kynhvatarinnar eöa karl- mennsku viökomandi manns. Þrátt fyrir þann liffræðilega mismun, sem er á sjálfri kynhvötinni og frjósemi karlmanns eöa karl- mennsku hans, — mismunur, sem ætti að vera öllu nægilega kunnur — er samt sem áöur enginn vafi á því, aö ófrjóir karlar leggja mjög oft þetta tvennt, ýmist tilfinninga- lega eöa jafnvel vitsmunalega, næstum alveg aö jöfnu. Krafan um aö hafa samfarir við konu sína samkvæmt fastri fyrir- fram ákveöinni áætlun og eins aö leggja fram sýnishorn af sæöi sínu til athugunar á rannsóknarstofu veröur æriö oft til að íþyngja sál- arlífi karlmannsins. Honum getur því verið mikill léttir í því aö ræöa þessar hliöar málsins viö lækni sinn, og eins getur það oröiö hon- um veigamikil hjálp aö gerast þátttakandi í stuöningshópi ófrjó- samra hjóna til þess aö koma í veg fyrir, aö hann falli t sjálfsáliti, sök- um rangra hugmynda um þaö, í hverju ófrjósemi hans sé í raun og veru fólgin. Sæðissýni allrafyrst Þær aðferöir, sem mest tíðkast nú á dögum viö aö meta frjósem- isstig karlmanns, eru aöallega ferns konar og í nánum tengslum hver viö aöra. í fyrsta lagi tekur læknirinn skýrslur af sjúklingnum, framkvæmir líkamlega skoöun, lætur rannsaka sæöi hans og i fjóröa lagi er svo framkvæmd sér- stök skoöun á konunni eftir aö hjónin hafa haft samfarir. í flestum tilvikum, þegar hjón leita læknishjálpar vegna ófrjó- semi, er þaö frásögn sjúklinganna sjálfra af vandkvæöunum, sem kemur fyrst, og læknirinn skrifar því næst skýrslu sína um aödrag- anda sjúkdómstilfellisins. Því næst framkvæmir læknirinn nauðsyn- lega skoöun, og aö lokum fara svo fram prófanir á rannsóknarstofum. Aö því er varðar athugun á frjó- semi karlmannsins, eru athugan- irnar oft geröar í þveröfugri röö viö það, sem lýst var hér aö ofan. Algengast er, aö þaö sé konan eöa þá hjónin bæöi saman, sem leita til sérfræöings í kvensjúk- dómum. Þaö kemur því oft fyrir, aö þessi sérfræðingur fari fram á, aö gerö veröi athugun á sæöi eigin- mannsins á rannsóknarstofu, án þeSs aö hafa fyrst einu sinni skoö- aö hann. Karlmanninum er því aö- eins vísað til sérfræðings í þvag- færasjúkdómum, ef athuganir á sæöi hans hafa leitt í Ijós, aö um óeölilega lága tölu sáöfruma sé aö ræöa í sáðfalli hans, eða aö sáö- frumurnar hreyfi sig mjög tregiega. Þaö er þessi greining á sæöi karlmannsins, sem fyrsrtf öllu ber aö framkvæma, þegar fram fer læknisfræöileg athugun á ófrjó- semi hjóna. Slík greining á ástandi sæðisins á einnig þá fullan rétt á sér, þótt karlmaöurinn hafi áöur getið börn; meö árunum geta orð- iö breytingar á frjósemi karl- mannsins til hins verra. Greining á sæði Þegar sæöissýniö hefur borizt rannsóknarstofunni, er fyrst gerð athugun á magni sáöfruma — þaö er skráö hve margar milljónir sáöfruma sé aö finna í hverjum rúmsentimetra. Þá er gerö athug- un á kviki sáöfrumanna, þaö er aö Útdráttur úr bókinni „Að verða þunguð á 9. áratugnum(í eftir dr. Robert H. Glass og dr. Ronald J. Ericsson í eftirfarandi grein, sem er önnur í röðinni í greinaflokki um ófrjósemi eftir þá dr. Robert H. Giass og dr. Ronald J. Ericsson, sem birtist hér í biað- inu, ræða höfundarnir lífeðlisfræðilegar og sálfræðilegar ástæður þess, að oft reynist eitthvað það að hjá karlmanninum, sem veldur því að hjón geta ekki eignazt börn. segja hve há hundraðstala sáö- frumanna sé á öflugri hreyfingu í sæöinu. Einnig fer fram athugun á morphologíu sáðfrumanna eöa sköpulagi þeirra, og sú hundraðs- tala sáðfruma, sem virðast að öllu leyti eölilegar í útliti, skráö niöur. Venjulegast finnast allmargar bólgufrumur, þ.e.a.s. hvít blóðkorn í sáöfallinu, og sé fjöldi þeirra afar mikill, táknar þaö, aö um sýkingu sé aö ræða. Þaö eru tveir þættir, sem geta virkað truflandi á rétta túlkun læknisins á greiningu rannsókn- arstofu á sæöinu. i fyrsta lagi eru þaö þau frávik, sem veröa á sæö- iseinkennum í sáöfalli sama karl- mannsins í mismunandi skipti. Þaö kemur í Ijós, að oft er um mjög mikinn mismun aö ræöa í fjölda sáöfruma sama karlmanns, þegar sýnin eru tekin úr fleiri sáðföllum hans. Þannig kom í Ijós, aö ein- staklingur, sem lagöi fram fleiri sýni af sæöi sínu, haföi viö talningu sáðfruma í rannsóknarstofu ýmist 3 milljónir sáöfruma í rúmsenti- metra sæöis, 55 milljónir á rúmsentimetra og svo 10 milljónir á rúmsentimetra í þremur sýnum, sem tekin voru í röö til athugunar, og þaö án þess aö unnt væri aö merkja nokkrar breytingar á heilsufari hans eöa á líkamsstarf- semi. Þaö ætti því aö taka að minnsta kosti þrjú sýni af sæöi karlmanns til athugunar og grein- ingar, áöur en fariö er aö flokka hann annaöhvort sem heilbrigöan og eölilegan í þessum efnum, undir frjósemismörkunum eöa ef til vill með öllu ófrjóan, ef engar lifandi sáðfrumur finnast í sæöi hans. Tímabundin ófrjósemi Ófrjósemi karlmanns kann jafn- vel aö vera aöeins tímabundiö fyrirbrigöi, þegar engar sáöfrumur reynast vera í sæöi hans af völdum eiturverkana, sem viðkomandi ein- staklingur hefur þó aðeins oröiö fyrir aö vissu marki og skamman tíma. Þaö tekur unga frumu í kyn- kirtlum karlmannsins 74 daga aö þroskast upp í fullgeröa sáðfrumu,- og þaö kann því aö taka aö minnsta kosti allan þann tíma, eftir aö karlmaðurinn hefur oröið fyrir einhverjum þannig kvilla — til dæmis haft háan hita eöa sýkst af vírussjúkdómi — þar til eölilegur fjöldi sáöfruma fer aftur að finnast í sáöfalli hans. Þá er þaö einnig annar þáttur, sem veldur erfiöleikum viö mat lækna og túlkun þeirra á niöur- stööum sæöisgreiningar. Þessir erfiöleikar felast í þeim ríkjandi ágreiningi sem uppi er um þaö, hvaö teljast skuli eölilegur lág- marksfjöldi kvikra sáðfruma í sáö- falli karlmannsins. Margar læknis- fræðilegar rannsóknarstofur og margir læknar halda sig viö lág- markstöluna 60 eða 80 milljónir sáðfruma í rúmsentimetra sæöis, þrátt fyrir ýmsar vísindalegar at- huganir, sem virka mjög sannfær- andi og benda eindregið til þess, aö tala þungana taki ekki aö minnka fyrr en fjöldi kvikra sáö- fruma í sáðfalli karlmannsins sé aö staðaldri oröinn minni en 20 millj- ónir á rúmsentimetra. Alvarleg mistulkun Þessi ágreiningur um þaö, hvar mörkin fyrir ófrjósemi karla liggi, getur svo leitt til þess, aö margir karlmenn, sem samkvæmt nútíma skilgreiningu læknisfræðinnar hafa til aö bera nægilega getu til eöli- legs getnaöar — það er aö segja meö 20 milljónir kvikra sáöfruma í rúmsentimetra sæöis eða meira — eru teknir til læknismeðferðar sem ófrjóir væru, og sú ákvöröun lækn- isins verður þá aö teljast byggö á röngum upplýsingum og þar meö á röngum forsendum. í slíkum tilfell- um beinist þá athygli læknisins frá konunni, þótt einmitt hjá henni kunni að finnast aðal tálminn á því, aö til getnaöar komi. Það er full ástæða til þess aö benda aftur á það, aö þegar 20 milljónir sáö- fruma finnast í rúmsentimetra sæöis eöa jafnvel minni fjöldi, hef- ur reynslan sýnt, aö fjöldi þungana er sæmilega mikill. Þaö kynni vel að vera, aö upplýsingar um fjölda kvikra, eölilega skapaðra sáö- fruma í sáöfallinu sé mun betri grundvöllur til að dæma frjósem- ismörk karlmannsins eftir, en eins og er, liggja ekki fyrir nægilega áreiöanlegar tölur um hlutfall þungana miöaö viö fjölda kvikra sáöfruma í sáövökva karlmanns- ins. Læknisfræðilegar leiðbeíningar Hafi fyrsta sýniö af sæöi til at- hugunar á rannsóknarstofu reynzt vera óeölilegt í samsetningu sinni, er mjög ráölegt aö láta annaö sýni úr öðru sáöfalli koma til sams kon- ar athugunar hjá sömu rann- sóknarstofu, áöur en karlmaöurinn leitar til sérfræöings í þvag- færasjúkdómum, sem kann aö hafa „áhuga á ófrjósemi“. Margir sérfræöingar í þvagfærasjúkdóm- um hafa afar takmarkaöan áhuga á þeim vandamálum, sem standa í sambandi viö ófrjósemi, og eru þar af leiðandi ekki alltaf sem bezt aö sér í þeim efnum. Af þessum sök- um getur oft á tíðum reynzt mikil hjálp í því aö spyrjast einfaldlega fyrir hjá öörum læknum, hvort nokkur af nálægum starfsbræör- um þeirra, meö þvagfærasjúk- dóma sem sérgrein, njóti sérstaks álits vegna mikillar þekkingar og reynslu í meðferð ófrjósemi hjá körlum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.