Morgunblaðið - 18.05.1983, Qupperneq 1
Miðvikudagur 18. maí - Bls. 33-56
Ók á zebrahest
í Safari-rallinu
að var Finninn Ari Vat-
anen sem varð sigurveg-
ari í hinu árlega Marl-
boro Safari Rally sem fram fer
ár hvert í Kenya. Rallakstur
þessi er einn sá erfiðasti sem
keppt er í ár hvert. Eknir eru
rúmlega þrjú þúsund kílómetrar
við hin erfiðustu skilyrði.
Vatanen sem ók Opel Ascona
fékk fæst refsistig, 396, í keppn-
inni. Þessi þrítugi Finni sem
varð heimsmeistari í rallakstri
árið 1981 er einn af þekktustu
rallökumönnum heims.
„Ég ætlaði mér bara að kom-
ast í mark, það var takmarkið.
Þetta er svo ströng keppni að
það er gott að ná bara að ljúka
henni,“ sagði Vatanen við frétta-
menn eftir keppnina.
Næstu tveir bílar í mark voru
af tegundinni Audi Quattro,
Finninn Mikkola varð í öðru sæti
en Frakkinn Micéle Mouton varð
þriðji.
Sem dæmi um þá erfiðleika
sem urðu á vegi ökumannanna
má nefna að Mikkola ók á Zebra-
-hest á miklum hraða og missti
við það stjórn á bifreið sinni og
fór út af veginum. Aðeins 40
mínútum síðar ók hann á stóran
stein og eyðilagði öxulinn í bíl
sínum. Einn keppandinn, sem ók
á Range Rover-jeppa, varð að
hætta 70 kílómetra frá markinu
þar sem hann velti bíinum á
slæmum vegi og við það stór-
skemmdist hann. Rallakstur í
Afríku er mjög vinsæll og eru
keppendur jafnan frá mörgum
þjóðlöndum.
ÚRSLITIN í Marlboro Safari-rallinu
Vatanen/Harryman, Opal Aacona 396
Mikkola/Hertz, Audi Quattro 402
Michéle Mouton/Pona, Audi Quattro 4S5
Jayan Shah/Khan, Dataun 240 RS 478
Takaoka/Sunahara, Subaru 4 WD 1800 831
Iwaae/Vinayak, Dataun PA 11 843
Takahaahi/Pringle, Subaru 4 WD 1800 882
Johnny Hellier/Hope, Peugeot 504 907
Duncan/Bennett, Dataun Pick up 1200 913
Azar Anwar/Davia, Dataun 160 J 959
Erfiöri keppni lok-
iö og full ástæöa til
aö fagna sigrinum.
Finninn Vatanen
og aöstoöarmaöur
hans hafa veriö
mjög sigursælir í
mörgum erfiðum
rallkeppnum aö
undanförnu.
íslandsmótið
hefst í dag
Stærsta íþróttamót sem fram fer
hér á landi í ár, íslandsmótið í
knattspyrnu, hefst í dag. Fjöldi
þátttakenda í mótinu verður að
þessu sinni rúmlega fimm þúsund
talsins í öllum flokkum. Alls verður
leikið i 1.652 klukustundir í mótinu,
en í því fara fram 1.338 leikir. Tvö
hundruð sjötíu og eitt lið hefur til-
kynnt þátttöku að þessu sinni og er
þar um met að ræða.
Flest eru liðin í 5. aldursflokki,
fimmtíu talsins, og gert er ráð fyrir
því að þar séu keppendur um 950
talsins. Leikið er í fjórum deildum í
meistaraflokki karla. í fjórðu deild
leika nú 37 lið en 16 lið í þriðju deild.
Við þetta bætast svo 84 leikir í
bikarkeppni KSÍ í hinum ýmsu
flokkum, svo og tuttugu og einn
landsleikur sem fram fara í sumar.
Af þessari upptalningu má sjá að
knattspyrnumenn og -konur eiga er-
ilsamt keppnistímabil framundan.
Morgunblaðið mun kynna alla
leikmenn 1. og 2. deildar og spjalla
lítillega við þjálfara, fyrirliða og
formann viðkomandi knattspyrnu:
deilda og fá álit þeirra á mótinu. í
blaðinu í dag eru þrjú lið kynnt,
Breiðablik, Keflavík og KR.
Á myndinni hér að neðan má sjá
einn efnilegasta leikmanninn í 1.
deildinni, Sigurð Jónsson frá Akra-
nesi, kljást um boltann við Ómar
Torfason, Víkingi.