Morgunblaðið - 18.05.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 18.05.1983, Síða 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1983 Að lokinni alkirkjuráðstefnunni „Líf og friður“ í Uppsala: Getur kirkjan áorkað ein- hverju f friðarmálum? Eru kirkjuleiðtogar hjá sitthvoru stórveldinu með baráttu sinni gegn kjarn- orkustyrjöld og framleiðslu að hleypa óvininum inn í landið? — eftir Pétur Þorsteinsson Sigtuna, 27. apríl. Hvað skyldi hafa áunnizt með því, að 160 kirkjuleiðtogar frá 60 löndum þinguðu í fjóra daga um friðarmál? E.t.v. lítið finnst sum- um. Aðeins sjö síðna plagg, þar sem samþykkt var, að kjarnorku- vopn skyídu afmáð með öllu innan fimm ára, og unnið skyldi að því, að jarðargæðum yrði réttlátlega skipt á grundvelli réttvísi og sam- stöðu. Að hernaðarframleiðslu í heiminum verði breytt til frið- samlegrar framleiðslu. En einnig var samþykkt að styðja og styrkja friðarhreyfingar og hernaðar- andstæðinga og kristnir menn hvattir til þess að taka þátt í frið- arhreyfingum. Allt og sumt, segja sumir. Hverju skiptir, þótt þetta sé samþykkt? Ekki kemur það á friði. Áfram æðir vitskert vígbún- aðarkapphlaupið. Það er í sjálfu sér rétt, að ekki hætta stórveldin að framleiða kjarnorkuvopn og eyðileggja þau, sem fyrir eru, þótt þessi samþykkt hafi verið gerð. En það hefur verið samþykkt óumdeilanlega, að kristnir menn, hvar svo sem þeir í flokki standa, afneita með öllu spurningunni um kjarnorkuvopn. Þar er ekki um neitt samkomulag að ræða. Aðeins dauða eða líf að tefla. 400 kfló af undirskriftum Það má telja að upphaf fjölda- hreyfingarinnar gegn kjarnorku- vopnum hafi verið í sambandi við það, þegar NATO ákvað í des. 1979 að fjölga kjarnorkueldflaugum í Vestur-Evrópu. Er fjöldahreyfing- in einna sterkust í Hollandi. Þar hafa biskupar í stærstu kirkju mótmælenda ekki aðeins fordæmt notkun kjarnorkuvopna, heldur hafa þeir einnig mótmælt því að ætlunin skuli vera að setja þau niður í Evrópu. Kaþólsku biskup- arnir í Hollandi eru að vinna að hirðisbréfi, þar sem lagst er gegn kjarnorkuvopnum. Þýskaland er enn mikilvægara en Holland fyrir NATO, þar sem það liggur að tveimur Varsjár- bandalagsríkjum. Þar hefur frið- arhreyfingunni vaxið fiskur um hrygg undanfarið. í löndum Evr- ópu gengu um 400 þúsund manns í mótmælagöngum um páskana. í Englandi hefur enska kirkjan lát- ið gera skýrslu, sem fjallar um kjarnorkuvopn og kristna ábyrgð. Þar er komizt að þeirri niðurstöðu m.a. að England skuli ekki hafa kjarnorkuvopn í landinu né kaf- báta með kjarnorkuvopn. f Banda- rikjunum hafa kaþólsku biskup- arnir gefið út hirðisbréf, þar sem kjarnorkustríð er fordæmt og mótmælt er stefnu Bandaríkjanna í kjarnorkumálum. Þá hefur Jó- hannes núverandi páfi sagt það, að þeir sem berjist gegn kjarn- orkuvopnum sækist aðeins eftir langvarandi og djúpum friði. Hér í Svíþjóð stóð kirkjan fyrir undirskriftarsöfnun til stuðnings friðar í heiminum. Söfnuðust 400 kíló af undirskriftum eða rúmlega ein milljón undirskrifta. (f hverju kílói eru um 2.500 undirskriftir.) Voru þessar undirskriftir afhent- ar forseta friðarráðstefnunnar, sem framlag Svía til friðarmála í heiminum. Jafnframt hefur verið sterk andstaða gegn ákvörðun stjórnvalda um að framleiða orrustuþotu JAS, sem á að vera tilbúin árið 1987 og verið hamrað á því, að nær væri að fjölga at- vinnutækifærum handa þeim, sem nú ganga um atvinnulausir. Kallað eftir guðfræði friðarins Fulltrúar þriðja heimsins lögðu áherzlu á það, að framlag þeirra gegn kjarnorkukapphlaupinu væri ekki af ótta við að lenda endilega í kjarnorkustyrjöld. Heldur gætu þeir eygt von, að þeirra helzta vandamál, hungrið, mætti þannig leysa. Sá kostnaður sem fer í að framleiða kjarnorkuvopn gæti notazt mun frekar við að fram- leiða mat handa hungruðum. Jafnframt því, sem þeir gætu einnig átt þess kost að menntast, fá sjúkraþjónustu og heilsugæzlu. Allt miðaðist þetta að því, að það ríkti réttlæti í heiminum. Fyrr myndi ekki friður ríkja en réttlæti væri komið á manna í milli. Því eru helztu spurningar þeirra, sem fjalla um guðfræði réttlætis og friðar í dag ekki fólgnar í því, hvort eitthvert stríð sé réttlátt eður ei. Heldur hvernig megi koma á friði, koma í veg fyrir stríð, og með hvaða leiðum. Guðfræðin hefur ekki hingað til fjallað svo mikið um það, hvernig koma megi í veg fyrir stríð. En nú er kallað eftir þeirri guðfræði sem ákafast. M.a. hefur úr þessum jarðvegi sprottið guðfræði, sem kölluð hefur verið frelsisguðfræði. Er hún runnin upp í Suður- Ameríku hjá guðfræðingnum Gustavo Gutiérrez á 7. og 8. ára- tugnum. Snýst frelsisguðfræðin um það m.a. að Kristur sé frelsar- inn í vopnaskaki nútímans, og þannig holdgist fagnaðarerindið fyrir framan byssukjafta ein- ræðis- og kúgunarstjórna latnesku Ameríku. Þannig ræðst guðfræðin gegn þeim hugsunarhætti, að hernaður sé nauðsynlegur. Hernaðarhugs- unarhátturinn er stærsta og mesta vandamál andlegrar heilsu- gæzlu í heiminum í dag. Stjórnar stjórnmálaframvindu, eyðileggur samskipti landa í milli, grefur undan fjárhag landa og ræður vís- indalegum framförum. Allt talið vera nauðsynlegt í nafni hernað- arins. „Það, sem við höfum mest að óttast er sovézka hættan," segja Bandaríkjamenn. „Það, sem við höfum mest að óttast er Banda- ríska hættan," segir Rússar aftur á móti. Trúin á lausn tækni og hernaðar hefur verið alls ráðandi. Hræðslan og óttinn hefur gert af- vopnun óraunverulega og óger- lega. Stjórnmálamenn hafa verið uppteknir af því að banna vopn, sem ekki eru til, samþykkja að framleiða ekki vopn, sem ekki nokkur stjórn hefur hugsað sér að framleiða, friðlýsa svæði, þar sem enginn býr, svo sem Suðurskauts- landið, hafsbotninn og tunglið, og hindra aðra í því að framleiða vopn, sem þeir sjálfir framleiða. Öryggið fæst ekki með enn meira vopnakapphlaupi. öryggið verður að vera grundvallað á friði og réttvísi. Því verður guðfræði friðarins að grundvallast í guð- fræði um stjórnmál. Jafnvel, þótt menn hafi litla trú á stjórnmála- mönnum. Skipti engum togum að málverkið tókst á loft — rætt við Guðmund Karl Ásbjörnsson listmálara um heima og geima í Yestursal Kjarvalsstaða stendur nú yfir sjning á málverkum Guðmundar Karls Ásbjörnssonar listmálara. Á sýningunni eru 95 verk, flest unnin með vatnslitum en nokkur unnin með olíu, og megnið af þeim gerð á þessu og síðasta ári. Á sýningunni eru aðallega landslagsmyndir víða af landinu, en kannski sérstaklega í nánd við Reykjavík, af Þingvöllum, Hafnarfirði og Suðurnesjum og norðan úr Svarfaðardal svo eitthvað sé nefnt. Blm. Morgunblaðsins hitti (iuðmund Karl að máli á Kjarvalsstöðum einn góðviðrisdaginn fyrir stuttu og eftir að hafa litast um á sýningunni, var sest niður með kaffibolla í kaffistofunni og rætt um heima og geima, ekki síst Guðmundur Karl Ásbjörnsson listmálari við eitt verka sinna á sýningunni á Kjarvalsstöðum. Henni lýkur 23. maí. Morgunbl./Emilia. um geima. „Það er allur gangur á því,“ svaraði Guðmundur Karl spurn- ingunni, hvort hann lyki við mál- verkin úti í náttúrunni þar sem hann hefur komið sér fyrir með strigann, penslana og trönurnar. „Ef ég er vel upplagður og það gengur vel, kemur það oft fyrir. Veðráttan spilar þar mikið inn í líka. Rakastig er ákaflega mikil- vægt. Útivinnustofan er Blazer- jeppinn minn þegar gerir slæm veður, en áður en ég komst yfir hann, hafði ég oft staðið úti í aus- andi rigningu og mörgum vind- stigum, og málað. Ég man að einu sinni þar sem ég var að máia kom hvirfilvindur, sem feykti mér um koll og það skipti engum togum að málverkið sem ég var að vinna við tókst á loft í hvirflinum og ég sá á eftir því þar til það var orðið lítill depill hátt uppi í loftinu. Það lenti svo á mosaþembu og sá ekki á því. Þetta var enginn smásveipur fyrst honum tókst að velta mér um koll og þá var rigningin þannig að ekki var á mér þurr þráður. Svo ég hef lent í ýmsum barningi í sambandi við veðráttu. Stundum er það betra, þá kveikir það í mér og ég neyðist til að vera snöggur og vinna hratt." Það skiptir þig ekki máli í hvernig veðri þú málar? „Nei, veður skiptir ekki máli í myndum mínum, en það má helst ekki vera þannig að mér sé ekki stætt úti. Og verst er mér við þoku og slyddurigningu. í stórhríð gæti maður ekkert gert. Þó að á þessari sýningu séu mestmegnis landslagsmyndir, þýðir það ekki að ég sé aðeins landslagsmálari. Ég fæst ekki síð- ur við portrett og fantasíur, þó ég hafi ekki haldið sýningu á þeim verkum hér. Þegar ég er á íslandi fæst ég meira við landslagsmynd- ir, en þegar ég er erlendis mála ég portrett meira, einnig gömul hús og þorp.“ Hefur þú orðið fyrir áhrifum frá öðrura málurum íslenskum? „Valtýr Pétursson gagnrýnandi Morgunblaðsins segir mig vera undir áhrifum frá Asgrími Jóns- syni. Ég vil hvorki játa því né neita. Allir listamenn eru undir áhrifum frá öðrum. Það væri kannski nær sanni að segja að við Ásgrímur séum undir áhrifum frá Monet eða Cézanne. Ef fígúratífir málarar í impressjónískum eða expressjónískum stíl færu að mála uppi á fslandi, hlytu að koma fram sameiginieg einkenni. Ef Cézanne eða Monet hefðu komið til íslands og málað hér hefðu þeir orðið fyrir áhrifum frá ítölskum renaiss- ance-málurum þó það komi minna fram landslagsmyndum mínum. Þeir fengust fyrst og fremst við portrett eða hópmyndir — lands- lagsmyndir voru þá varla þekktar, byrjuðu á renaissance-tímanum með Leonardo da Vinci og fleirum. f hverjum listamanni er saman- safn af áhrifum úr hinum og þess- um áttum. Ef svo væri ekki, væri málaralistin á steinaldarstigi. Og hvað telst frumlegt og hvað ekki? Ef ég sýni til dæmis íslensk landslagsmálverk í Þýskalandi, þá eru þau talin ákaflega frumleg og sérstæð í augum Þjóðverja. Bæði mótíf og litasamsetning. Þau virð- ast ekki eins í augum okkar fs- lendinga sem erum vanir lands- laginu og náttúrunni og höfum átt málara sem gert hafa náttúrunni prýðileg skil. Hvort litið sé á landslagsmálara sem frumlegan virðist fara mikið eftir því hvar myndir hans eru sýndar. Og persónulega held ég að það sé ekki heppilegt að menn séu að gera sig út til að vera sérstaklega frumlegir. Staðreyndin er að þá verða þeir eitthvað allt annað en þeir sjálfir eru. Menn, sem hlaupa á eftir hvaða tískustefnu sem vera skal, bara eftir því hvernig hún er þann daginn, eru eins og ungl- ingarnir, sem elta tískuna hverju sinni, hversu fáránleg sem hún kann að vera.“ Hvað flnnst þér þá skemmtilegast að fást við í málaralistinni?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.