Morgunblaðið - 18.05.1983, Síða 20

Morgunblaðið - 18.05.1983, Síða 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1983 í 35 dr, ert þú-Pyrstex tiífciiiá m'itt a_f þessu[" Ast er ... ... að blikka hann í baðherberginu. TM Rag U.S. Pat Ott — iH rlphts reserved •1963 Los Angetes Timts Syndicate Með . morgnnkaffinu Það eru miklir fjármunir hér, en ég sé ekki hvort það er vinningur í happdrætti — getraununum eða skattaálagningin. HÖGNI HREKKVÍSI ^ I „ HAMN ÆTMK AE> HREINSA HEF&ERQIP.v Vil ekki trúa að þessi ráðstöfun hafi verið gerð að vilja útvarpsstjóra V.G. skrifar: „Velvakandi góður. Nú langar mig að senda þér línu um það sem ferskast er í huga mín- um, en það er hlustendaskoðun Ríkisútvarpsins. Ég er sammála þeim er ásaka útvarpið fyrir, væg- ast sagt, fádæma ókurteisi við rosk- ið fólk, að það skuli vera dæmt sem kjánar eftir að hafa náð sjötugs aldri. Er ekki forsætisráðherrann 72 ára? Vill nokkur leyfa sér að halda því fram að hann sé sljór? Er ekki Bandaríkjaforseti yfir sjötugt? Finnst einhverjum hann vera „imbi“? Nei, góðir hálsar, fyrir nú utan það, að það er þetta fólk, sjötugt og eldra, sem hefur byggt upp það vel- ferðarþjóðfélag sem við lifum í, og gerir yngra fólki mögulegt að lifa því sællífi er það lifir. Ég vil ekki trúa að þessi ráðstöfun hafi verið gerð að vilja útvarpsstjóra. Þá leyfi ég mér aðeins að minnast á „ástkæra ylhýra málið“. Miklar þakkir eiga menn skilið er hafa lagt sig fram í þágu móðurmálsins, en þeirra fremstir eru um þessar mundir Árni Böðvarsson og Gísli Jónsson, og er þeirra skerfur stór. En það sem mikið veltur á, er að fólk hafi ást á og beri virðingu fyrir móðurmálinu. Það þarf að glæða málkennd nemenda í skólum og allt frá barnaskóla og uppeftir ætti að kenna nemendum að „lesa“. Það er oft ömurlegt að heyra í fjölmiðlum, hve fólk á erfitt með að tjá sig, orð- fæð og endurtekningar. Þá þykja mér mikil lýti, hvað oft koma fyrir blótsyrði, bæði í ræðu og riti. Ambögur í blöðum og öðrum fjöl- miðlum eru kapítuli útaf fyrir sig (er ég geymi til betri tíma), en það, sem ég vil aðeins drepa á, er hvern- ig blöðin leyfa sér að skipta orðum. Ein fyrsta regla, sem kennd var í barnaskóla í minnT tíð, var að skipta ætíð orði um atkvæði. Þá er það nýbreytni hjá blöðunum að skrifa „viljiðið" í stað viljið þið. Er þetta það sem koma skal? Það hvíl- ir mikil ábyrgð á fjölmiðlum gagn- vart tungunni, fréttamenn og þulir hjá sjónv. og útv. ættu allir að vera skýrmæltir og óblestir á máli. Þá vil ég senda Pétri Péturssyni Borgari skrifar: „Velvakandi. Bráðum rís eiturskýið og boðar vorið. Fuglar hósta í hverjum garði og gangandi vegfarendur marg- krossa götur á flótta. Tími eitur- hernaðar rennur upp. Menn fara með eiturbyssur og demba eitrinu yfir garðagróður, dýr og lítil mannabörn í vögnum. þul innilegar þakkir fyrir þau hugljúfu lög er hann spilar á morgnana. Pétur er einn af okkar allra bestu þulum, röddin mjög skýr og þægileg. Þá þykir mér mjög smekklegt að Pétur hefur jafnan smáþögn eftir að tilkynnt er um sorgartíðindi. Með bestu kveðju." Nú þarf ekki allt þetta eitur, „bara límhring á stofninn", segja þeir sem vit hafa á. En hvað gerist? Skýin blandast eitri. Enginn er óhultur. Menn geta ekki opnað glugga, hvað þá farið út, því eitrið stórskaðar öndunarfæri þess sem gengur inní mökkinn. Ég vona að ósk mín um gleðilegt vor rætist og fólk sjái að sér.“ Hver stjórnar þessu? Brian Eno Mike Oldfield Gary Numan Verðugir fulltrú- ar á listahátíð Kristinn Þ. Pálsson skrifar: „Ég vil taka undir það sem „gamall poppari" segir í bréfi til Velvakanda 7. maí sl. Ég er sam- mála honum i því, að listahátíð setti mikið niður, ef hún færi að velja aðra eins innantóma diskó- grúppu og Duran Duran. Jafnvel þó að hljómsveitarmenn klæðist samkvæmt nýjustu tísku, þá er músík þeirra enn ein endurtekn- ingin á fimm ára gömlu skalla- poppi. Ég vil einnig taka undir það með gamla popparanum, að lista- hátíðarnefnd snúi sér fremur til

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.