Morgunblaðið - 18.05.1983, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 18.05.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAf 1983 35 Við höfum ekki Gandhi, en við höfum hvert annað Við úthlutun Óskarsverðlaun- anna nú á dögunum hlaut kvik- myndin um Gandhi 8 Óskarsverð- laun. Þó verður sá boðskapur, sem þar kemur fram ekki metinn til neinna verðlauna. En sá friðar- boðskapur, sem kemur þar fram, verður öllum, sem sjá myndina, til umhugsunar. Menn segja, að það væri betra ef fleiri þess háttar menníwæru til í heiminum í dag. Þá væri hann betri. En menn frið- arins hafa'ekki verið velkomnir hingað til. Þeim hefur iðulega ver- ið fargað. Hvort sem þeir hafa heitið Anwar Sadad, Marteinn L. King, John Lennon eða þá friðar- furstinn sjálfur Jesús Kristur. En við þurfum ekki að láta hugfallast við það. Við höfum hvert annað til þess að byggja upp samfélag trú- ar, vonar og kærleika. Með þeim kærleika, sem Kristur kenndi okk- ur, að við ættum að bera til náungans. Við verðum að virða rétt hver annars til þess að lifa í sátt og samlyndi, í friði hvert með öðru. Kristur hefur verið allt of lengi í hugum fólks afmarkaður við ákveðna bása í samfélaginu og það eigi ekkert við, að vera að fara með hann í burtu af þeim básum. Hann sé jafnvel bezt geymdur þar. Er þá ekkert að angra menn að óþörfu. Trúin á Guð hefur verið einstaklingsbundin, ekki samfé- lagshvetjandi á hinum félagslega og stjórnmálalega grundvelli. Því sér kristna friðarhreyfingin það sem markmið sitt, að hvetja hið almenna sóknarbarn til að velta spurningunni um frið og réttlæti fyrir sér í viðkomandi söfnuði. Markmiðið er það, að kirkjan verði friðarhreyfing í sjálfu sér. Að hróp um frið heyrist frá hverj- um prédikunarstóli og hver kór kyrji friðarsöngva. Ein hönd getur ekki byggt upp frið, eitt auga get- ur ekki séð, hvernig á að koma á friði, ein rödd getur ekki hrópað, svo fólkið heyri og trú eins getur ekki byggt upp bræðrasamfélag. En ef tveir og tveir verða að hundruðum og hundruðin að milljónum, þá er markið ekki langt undan. Kemur Kristur á kjarnorkuskýi? í trúarjátningunni, sem við ját- um við skírn, fermingu og ævin- lega í messum, þá segir í lok ann- arrar greinar trúarjátningarinn- ar, að við endi tímanna muni Kristur koma frá Guði til að dæma lifendur og dauða. Fagnað- arerindið er ekki aðeins boðskapur um líf og frið. Heldur er það einn- ig boðskapur um dóm. Kristnir menn hafa allt frá því að Kristur dó og fór til himna verið að bíða eftir honum. Finnst sumum sú bið vera orðin æði löng, og hafa getið sér þess til, að hann komi aftur til jarðarinnar, þegar eitt allsherjar kjarnorkuský grúfir yfir allri jörðinni, eftir styrjöld manna á milli. Sem kristnum manni finnst mér hæpið að trúa því. Hvað þá, að viðkomandi geri nokkuð til þess, að svo verði. Ekki biðjum við um, að sem fyrst komi til kjarn- orkustyrjaldar, þegar við biðjum í Drottinlegu bæninni, „til komi þitt ríki“, sem það ríki, þegar Kristur hefur sigrað Djöfulinn endanlega í endurkomunni. Við höfum val hér á jörðunni, meðan við lifum hér. Við verðum dæmd fyrir okkar ómennsku, ef allt hefur orðið eyðileggingunni að bráð. Hverju ætlum við að svara Kristi þá? Hvernig verður útlít- andi á jörðunni, þegar Kristur kemur aftur til að dæma lifendur og dauða? Verður þá blómstrandi trjágarður eða líflaust, útbrunnið og eyðilagt land. Það er í okkar valdi að velja. Friðarguðfræði okkar þarf að vera hugarfarsbreytandi. Að hatur breytist í ást, myrkur í Ijós, öfund í ánægju, óheilindi í heilindi, o.s.frv. Því þarf bæn okkar að vera sú: „Guð breyttu heiminum. En byrj- aðu á því að breyta mér.“ — pÞ Höfundur greinarinnar, Pétur Þorsteinsson er guðfræóingur að mennt og er nú við framhaldsnám í Sríþjóð. „Það er allt jafn skemmtilegt. Það er ekki síst gaman að mála portrett til dæmis ef ég vel fyrir- myndina sjálfur. Það getur verið leiðinlegt að mála portrett eftir pöntun. Það fer eftir því hvernig fyrirmyndin er. Yfirleitt er það nú einhver uppstilling, eins og maður í stól, kannski bankastjóri eða háttsettur opinber starfsmaður, sem þegar er annaðhvort kominn í kör eða dauður; tala ekki um ef þarf að gera málverk eftir ljós- myndum af fyrirmyndinni. Það er lítið gaman. Ef ég myndi mála portrett, til dæmis af þér, hvers- vegna þá ekki að mála þig þar sem þú ert að skrifa þetta. Þá myndi ég ekki reyna að ná andlitinu sér- staklega, því það fylgir alltaf, heldur myndi ég reyna að ná skap- gerðinni, hinum innra manni, eins og da Vinci sagði. Til þess þarf góðan mannþekkjara." í sýningarskrá stendur: „Guð- mundur Karl Ásbjörnsson er fæddur á Bílduda! 21. des. 1938. Dvaldist hann til sjö ára aldurs á Húsavík og kom þá þegar fram hjá honum mikill áhugi fyrir teiknun og málun.“ Svo ég spyr Guómund Karl, hvort hann hafi frá bernsku ætlað sér að verða málari. „Þegar ég var yngri var það fernt sem mig langaði til að gera. Að verða málari, tónlistarmaður, kjarneðlisfræðingur eða stjarneðl- isfræðingur. Ég varð málari — en ég veit að minnsta kosti nægilega mikið til að geta búið til kjarn- orkusprengju, og hún myndi virka, svo framarlega sem ég hefði efnið í hana." Og þá fórum við að tala um geima. — ai. Þjódleikhúsið: Aukasýning hjá Borge Victor Borge mun koma fram á tveimur skemmtunum í Þjóðleikhús- inu. Uppselt er á þá fyrri, en Borge hefur fallizt á aukasýningu á mánu- dagskvöldið. Leikið á Harðang- ursfiðlu í Norræna húsinu NORSKI fiðluleikarinn Sven Olav Lyngstad og Jónína Gísladóttir halda tónleika í Norræna húsinu miöviku- daginn 18. mái kl. 20.30. Á efnisskrá verður norsk þjóðleg tónlist, og verða m.a. annars nokkur lög leikin á Harð- angursfiðlu. Segir Sven Olav I.yngstad nokkuð frá þessu sérstæða norska strengjahljóðfæri. Sven Olav Lyngstad lauk námi í fiðluieik við tónlistarháskólann í Þrándheimi árið 1980, en frá 1981 hefur hann verið við sérnám í Bandaríkjunum, nú sem stendur við Eastman-tónlistarskólann í Rochester, N.Y. »4» »U — •*++ ■----* ' 4 % SUJVÍARTIM Til þess aö starfsfólk okkar geti betur notið sumarsins veröur skrifstofa okkar aö Lágmúla 5, Reykjavík, opin frá 15. maí til 1. september FRÁ KL. 8.00 TIL KL. 16.00 mánudaga til föstudaga Viö munum eftir sem áöur kappkosta aö veita góða pjónustu. 5^. Tryggingafélag bindindismanna Lágmúla 5 -105 Reykjavík, sími 83553 PEUGEOT ara rypvarrKir Peugeot bjóöa nú fyrstir allra á islandi 6 ára ryðvarnar- ábyrgð á allar gerðir bíla sem þeir framleiða. Til að hindra ryðmyndun þá fara bílarnir í gegnum 10 þrepa meðferð á mismunandi framleiðslustigum Sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum, sem gerir bílana ákjósan- lega í akstri á vondum vegum. Bílarnir eru bæði framhjóla- og afturhjóladrifnir. Frönsk smekkvísi hvar sem litið er á bílana. HAFRAFELL VAGNHÖFÐA 7o 85-2-11

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.