Morgunblaðið - 18.05.1983, Page 4

Morgunblaðið - 18.05.1983, Page 4
Bflar MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1983 Renault 11 Renault 11 reynsluekið í Frakklandi: Renault 11 er tiltölulega sportlegur að framan. sem ennfremur hefur verið kom- ið fyrir mjög fullkomnu sterió- tæki. Stjórntækjum fyrir sterió- tækið hefur síðan verið komið fyrir í stýrishjólinu til að auð- velda ökumanni að hafa stjórn á því. GÍRSKIPTING — PEDALAR Bíllinn er boðinn fjögurra eða fimm gíra beinskiptur og einnig þriggja gíra sjálfskiptur. Það fer ekki á milli mála, að fimm gíra bíll með stærri vélunum kemur skemmtilegast út. Vinnslan í honum er mjög góð. Þá kemur sjálfskipti bíllinn ennfremur mjög skemmtilega á óvart. Skiptingunni er haganlega fyrir komið og tiltölulega stutt er milli gíra og ekki er neinn losarabragur á kassanum. Um pedalana er það að segja, að þeir eru ágætlega staðsettir. Brems- ur eru tiltölulega mjög léttar og virka vel. AKSTURSEIGINLEIKAR Aksturseiginleikar Renault 11 eru skemmtilegir. Hann er nokk- uð stífur, ólíkt því sem maður á að venjast í frönskum bílum, þannig að hann leggst lítið niður í hornin í kröppum beygjum, sem mér finnst persónulega kostur. Bíllinn liggur mjög vel á vegi, hvort heldur ekið er á steyptum hraðbrautum, eða á malarvegum. Sérstaklega kom mér á óvart hversu hratt var hægt að aka bílnum á hrað- brautum, án þess að fá það á tilfinninguna, að hann væri far- inn að losna. Bíllinn er lipur í bæjarumferð og auðvelt er að skjótast á honum. Það verður hins vegar að segjast, að Renault 11 með minnstu vélinni, 1.108 rúmsentimetra, er í það latasta blessaður. Bílarnir komu mjög vel út í benzíneyðslu. Var meðal- eyðslan eftir 2.500 km blandaðan akstur aðeins um 7 lítrar á hverja 100 km, sem verður að teljast mjög gott, því bílunum var ekkert hlíft. Niðurstaða þessa reynsluakst- urs er því sú, að Renault 11 er að mínu mati mjög vel heppnaður fjölskyldubíll. Það fer virkilega vel um ökumann og farþega, auk þess sem íburður er tiltölulega mikill í innréttingu. Aksturseig- inleikar eru góðir, hvort heldur er á steyptum vegum, eða á möl. Þá spillir benzíneyðslan ekki fyrir, en hún er lítil eins og áður sagði. TC-GTtMIX-n.-ftTI.-UTS-Aaloaallc-TCF.-a Kle< tronli ■ A 2483 L 1769 P 944 T 152 G 1660 M 1344 O 915 U 470 H 1405’ 1410 M 1324 S 423 U 493 Skemmtilegur íburðar- mikill fjölskyldubíll — Góðir aksturseiginleikar — Óvenjugóð sæti — Eyðslugrannur Sighvatur Blöndahl RENAULT 11, sem margir hafa lýst sem nánari útfærslu af Ren- ault 9, sem kom á markaðinn fyrir tveimur árum og hefur notið mik- illa vinsælda, m.a. verið kosinn bfll ársins í Evrópu og Bandaríkjunum, hefur vakið athygli á bflasýningum í Evrópu. A dögunum reynsluók ég hinum ýmsu útfærslum af Renault 11 um 2.500 km vítt og breitt um Frakkland og er ekki hægt að segja annað en að bfllinn hafi komið skemmtilega á óvart, sér- staklega fannst mér bflarnir með stærri vélunum koma vel út, auk þess sem elektróníska útfærslan höfðar örugglega til margra. Bfll- inn er boðinn í 11 mismunandi út- færslum. í fáum orðum er megin- munurinn á Renault 9 og Renault 11 sá, að nýi bfllinn er með skut- hurð og því þrennra eða fímm dyra, en Renault 9 er í hefðbund- inni útfærslu, fernra dyra. ÚTLIT Hönnun Renault 11 hefur tek- izt mjög vel hvað útlit snertir. Bíllinn samsvarar sér mjög vel og er hann ágætlega straumlín- ulaga. Vindstuðullinn er um 0,35 Cw, sem er mjög gott af bíl í þessum stærðarflokki að vera. Bíllinn er frekar samþjappaður niður að framan, sem gefur hon- um sportlegt yfirbragð, en aðal- ljósin eru tvískipt. Tvö ferhyrnd ljós, en stefnuljósunum hefur verið komið fyrir í stuðaranum á mjög snyrtilegan hátt. Stuðarar bílsins eru töluvert miklir að vöxtum, en eigi að síður mjög snyrtilegir. Afturljósin eru til- tölulega stór og sér því vel á þau. DYR — RÝMI Eins og áður sagði er bíllinn eftir vali þrennra eða fimm dyra, en hann er með stórri skuthurð, sem mjög haganlegt er að ganga um. Reyndar eru dyr bílsins almennt tiltölulega stór- ar, þannig að ágætt er fyrir stærri menn að ganga um þær. Ólíkt mörgum frönskum bílum falla dyr mjög þétt að stöfum og ekki vottar fyrir dósarhljóði. Þegar setzt er undir stýri verður þess strax vart, að vel hefur til tekizt með rými. Pótarými er mjög gott og hliðarrými er ágætt. Loftrými mætti vera ei- lítið meira fyrir mjög stóra menn. Sömu sögu er að segja af rými fyrir farþega frammi í. Hvað varðar rými fyrir farþega aftur í bílnum, þá er það með ágætum, reyndar óvenjulega gott af bíl í þessum stærðar- flokki. Sérfræðingar Renault hafa gert átak í því að hanna framsætin á þann veg að rýmið fyrir farþega aftur í verði, sem allra mest. Þá er loftrými enn- fremur ágætt. Vel fer um tvo fullorðna aftur í, þannig að segja má, að Renault 11 sé ágætur 4—5 manna fjölskyldubíll. SÆTI — INNRÉTTING Framsætin í Renault 11 eru einhver þau beztu, sem undirrit- aður hefur setzt í. Stuðningur þeirra er með ólíkindum góður, hvort heldur um bak- eða hlið- arstuðning er að ræða. Það verð- ur að vísu að hafa hinn hefð- bundna fyrirvara á dómum um sæti, að þar er matið persónu- bundnara en í sambandi við flesta aðra hluti í bílum. Ég fann varla fyrir neinni þreytu eftir að hafa ekið bílnum daglangt um 1.000 km, sem segir óneitanlega ákveðna sögu um ágæti sætanna. Þau eru klædd mjög skemmti- legu tauáklæði, en auk þess er hægt að fá bílinn með leður- áklæði. Hvað varðar aftursætið, sem er í formi hins hefðbundna bekks, þá er það ágætt. Um inn- réttinguna almennt er það að segja, að hún er íburðarmeiri en venjan hefur verið í Renault-bíl- um í þessum stærðarflokki. Reyndar virðist, sem um stökk- breytingu hafi verið að ræða, þegar Renault 9 kom á markað- inn fyrir tveimur árum, svo frábrugðinn var hann hinum eldri bílum. MÆLABORÐ Um tvö gjörólík mælaborð er að ræða í Renault 11. Annars vegar hefðbundið borð, sem þó hefur ákveðið sportlegt útlit og hefur verið þjappað vel saman, þannig að stjórntæki eru vel inn- an seilingar, og hins vegar mælaborðið í elektrónísku út- færslunni, sem er mjög nýstár- Fimm dyra. Eins og sjá má er haganlegt að ganga um bflinn. Mælaboröiö hefur nýstárlegt yfirbragð. legt og framandi. I elektrónísku útfærslunni er m.a. rödd, sem tilkynnir bílstjóranum um ýmsa hluti, sem fara úrskeiðis, t.d. ef hurðir eru ekki nægilega vel lok- aðar, ef olíu vantar á bílinn, ef handbremsan er á og svo fram- vegis. Maður kipptist óneitan- lega við, þegar maður var ávarp- aður út úr mælaborðinu. Dýrari útfærslur bílsins eru með raf- drifnum rúðum og miðstýrðri læsingu og eru stjórntækin fyrir það í kassa milli sætanna, þar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.