Morgunblaðið - 18.05.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1983
39
Raungengi krónunnar
ekki lægra frá 1971
MEÐALVERÐ erlendra gjaldmiðla hef-
ur á soinni helmingi síðasta árs og það
sem af er þessu hækkað töluvert um-
fram mun innlendrar og erlendrar verð-
bólgu, samkvæmt upplvsingum í Hag-
tölum mánaðarins fyrir maí.
Þar segir ennfremur, að raungengi
krónunnar hafi lækkað töluvert á
þessu tímabili. Samkvæmt lauslegum
bráðabirgðatölum um raungengið á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs, má
ætla að það hafi verið 9,7% lægra en
í fyrra og um 17% lægra en árið 1981.
Hefur raungengi krónunnar því
ekki verið lægra frá árinu 1971.
Þessa þróun má ennfremur glöggt
sjá á meðfylgjandi línuriti, sem sýnir
ársfjórðungslegt raungengi krónunn-
ar frá fyrsta ársfjórðungi 1978 til
fyrsta ársfjórðungs 1983.
„Þessar staðreyndir sýna að mjög
langt hefur verið seilst að undan-
förnu í notkun gengisins til að mæta
viðskiptahalla og erfiðleikum út-
flutnings- og samkeppnisgreina.
Raungengið virðist að vísu hafa
hækkað nokkuð frá fyrsta ársfjórð-
ungi til byrjunar maí (5—6%) en get-
ur varla talizt of hátt miðað við
reynslu fyrri ára og líklega jafnvæg-
isstöðu helztu hagstærða, sé jafn-
framt gert ráð fyrir að önnur hag-
stjórnartæki gegni hlutverki sínu,“
segir í Hagtölum mánaðarins.
Hefja áætlunarsiglingar
til Portúgals og Spánar
EIMSKIP hefur ákveðið að hefja nú
fastar áætlunarsiglinar til Portúgals
og Spánar. Skeiðsfoss, eitt skipa fé-
lagsins, verður haft í þessum sigling-
um og verður boðið upp á reglubundna
flutninga einu sinni í mánuði, að sögn
Þórðar Sverrissonar hjá Eimskip.
„Við munum hafa fasta viðkomu í
tveimur höfnum í Portúgal, Lissa-
bon og Leixoes, en viðkoma á Spáni
verður í Bilbao. Samtímis þessu
verður opnuð þjónustuhöfn í Barce-
lona, og vörum verður safnað þar og
þær sendar til Islands um Bilbao.
Umboðsmenn verða þeir sömu og
verið hafa,“ sagði Þórður Sverris-
son.
Eins og áður sagði mun Skeiðs-
foss annast þessar siglingar í fram-
tíðinni. „Skipið er með kælilestum
og því sérstaklega útbúið til flutn-
inga á saltfiski, og er auk þess búið
til gámaflutninga.
„Viðskipti íslands við Portúgal og
Spán eru afar mikilvæg fyrir okkur
íslendinga, vegna mikils útflutnings
af saltfiski til þessara landa. Út-
flutningur á saltfiski til Portúgal er
um 37 þúsund tonn á ári, en til
Spánar um 10 þúsund tonn árlega.
Innkaup okkar frá þessum þjóðum
hafa hins vegar verið mun minni, og
er því ójafnvægi í þessum viðskipt-
um,“ sagði Þórður ennfremur.
„Ein af ástæðunum fyrir þessu er
óregluleg flutningsþjónusta frá
þessum löndum. Með tilkomu þess-
ara áætlunarsiglinga bjóðast hins
vegar reglubundnar ferðir frá þess-
um löndum, og mun það auðvelda
innflytjendum að geta annazt við-
skipti við þessar þjóðir," sagði Þórð-
ur.
Meginlandsdeild Eimskips mun
hafa umsjón með þessum nýju áætl-
unarsiglingum, og eru þar veittar
allar nánari upplýsingar um þær, að
sögn Þórðar Sverrissonar hjá Eim-
skip.
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI ~ EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón: Sighvatur Blöndahl
Endurmat vörubirgða milli
innkaupatímabila nú heimilt
VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á fundi
sínum fyrir skömmu, að heimila
endurmat vörubirgða í heildsölu og
smásölu á milli innkaupatímabila.
Þessi nýja regla felur í sér að þegar
breyting á gengi nemur 3% eða meiru
frá því gengi, sem var í gildi við
greiðslu vörunnar í banka, er heimilt
að endurmeta vörubirgðir, smásali
miðar við dagsetningu sölunótu heild-
sala.
í annan stað heimila þessar nýju
reglur endurmat mánaðarlega mið-
að við 1. dag mánaðar hverju sinni.
Heildsali eða smásali getur því
endurmetið að vild 1. dag mánaðar
eða þegar gengisbreyting nemur
3% eða meiru.
Varðandi mánaðarlegt endurmat
er skerðingarákvæði um að ekki er
heimilt að endurmeta við fyrstu
mánaðarmót eftir innflutning eða
dagsetningu sölunótu.
C.S. AUTOGUMMI
SUM.
^ GÆÐA ^
ÞJÓNUSTA
MEÐ
GÆÐA
^VÖRUM^
HEILSOLUÐU
RADIAL
DEKKIN
v KOMIN /í
VEIADEILD SAMBANDSINS
HJÓLBARÐAR Höföabakka 9 Rvik S.83490
HITAMÆLINGA-
MIÐSTÖÐVAR
fyrir báta,
skip og iönaö
Fáanlegar fyrir sex, átta, tíu, tólf, sextán, átján eöa
tuttugu og sex mælistaöi.
Ein og sama miöstöðin getur tekið viö og sýnt
bæði frost og hita, t.d. Celcius +200+850 eða
0+1200 o.fl.
Hitaþreifarar af mismunandi lengdum og með mis-
munandi skrúfgangi fáanlegar.
Fyrir algengustu rið- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Það er hægt að fylgjast með afgashita, kæli-
vatnshita, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum,
frystum, lestum, sjó og „man ekki fleira í bili“ í einu
tæki.
Lofaöu okkur að heyra frá þér.
@flyiTÍmÐ(?)(Ulir & ©® reykjavik. icelano
Vesturgötu 16. Símar 14680 — 13280.
JEurgMííiMnfoifo
MetsöluNcid á hverjum ciegi!