Morgunblaðið - 18.05.1983, Page 13

Morgunblaðið - 18.05.1983, Page 13
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1983 íþróttabandalag Keflavíkur „Markmiðið að halda sæti í fyrstu deild“ GÍSLI Eyjólfsson hóf knattspyrnu- feril sinn með Víði í Garði, en flutti sig til Keflavíkurliðsins 1979. Hvenær hófstu að leika knattspyrnu, Gísli, og af hverju fluttir þú úr Garðinum yfir í Keflavík? „Ég hóf að leika knattspyrnu með Víði 15 ára gamall og lék með liðinu í 7 ár. Ég fór yfir til Keflvíkinga einungis til þess að læra meira, þeir buðu upp á meiri möguleika, í þjálfun og kunnáttu." Hvernig líkar þér svo að leika í Keflavík? Það hefur löngum verið sagt hér í nágrannabyggð- um Keflavíkur, að ef einhver Gísli Eyjólfsson knattspyrnumaður skarar fram úr þá steli Keflvíkingar honum. „Hvað mér viðkemur er þetta alrangt. Það lagði enginn að mér að koma. Ég fór einungis knattspyrnunnar vegna, ég vissi að þar gæti ég lært meira, og ég hef ekki orðið fyrir vonbrigð- um.“ Og hverju viltu spá um gengi liðanna í 1. deild í sumar? „Þetta var erfið spurning. Markið okkar númer eitt er að halda okkur í fyrstu deild. Allt þar fyrir ofan er sigur. Hvað spánni viðvíkur held ég að ég spái: Víkingur nr. 1, Breiðablik nr. 2 og Akranes nr. 3.“ - ÓT. „Ef áhorfendur standa sig munu strákarnir standa sig“ ÞJÁLFARI ÍBK í sumar verður Guðni Kjartansson. Guðna þarf nú vart að kynna fyrir íslenskum knattspyrnuáhugamönnum, hvort sem rakinn er ferill hans sem knattspyrnumanns eða þjálfara. En til vonar og vara skulum við aðeins drepa á það helsta. Guðni hóf að leika knattspymu með meistaraflokki ÍBK árið 1964, að vísu mest á bekknum, eins og hann orðar það sjálfur, en það ár urðu Keflvíkingar íslandsmeistar- ar í fyrsta sinn. Eftir það lék Guðni með Keflvíkingum til ársins 1973, en þá varð hann að ganga undir uppskurð, svo að árin 1974 og 1975 féllu úr. Árið 1976 lék svo Guðni aftur, en meiðslin sögðu til sín svo að hann hætti, en fór þó aðeins inn á árið 1978, en það ár þjáifaði Guðni liðið í fyrsta skipti, allt sumarið. Auk þess að þjálfa lið Keflvíkinga árin 1975 og 78—81 hljóp Guðni oft í skarðið þegar erlendir þjálfarar hlupu í burtu fyrir lok keppnis- tímabils. Þá þjálfaði Guðni landsliðið í tvö ár, árin 1980 og 81. Árið 1973 var Guðni svo kjör- inn íþróttamaður ársins, og það eitt ætti að nægja til að lýsa hin- um glæsilega knattspyrnuferli Guðna. En nú gefum við Guðna orðið. Guðni Kjartansson — Hvernig hefur æfingasókn- in verið? „Æfingasóknin hefur verið 100%. Það vantar engan, nema að hann sé fárveikur. Breiddin er svo mikil að það skiptir engu máli þó að einn eða tveir séu for- fallaðir, það sýnir árangurinn í B-keppni Litla bikarsins." — Hverju viltu spá um gengi liðsins í sumar? „Númer eitt er að ná lengra en í fyrra. Þá var liðið neðst þeirra liða, er sluppu við fall. Ég mun sætta mig við að liðið verði um miðju, og allt þar fyrir ofan verður óvænt gleði." — Og hverju viltu svo spá um gengi liðanna í 1. deild í sumar? „Eg vil engu spá um þrjú efstu sætin, en ég held að þau muni skiptast á milli Víkings, Breiða- bliks og Akraness." — Viltu segja nokkur orð að lokum? „Ég vil bara hvetja áhorfend- ur til að mæta á vellinum, ef þeir standa sig þá munu strákarnir standa sig.“ __ót. „Ánægður ef liðið verð- ur fyrir ofan miðjua Hversu lengi hefur þú verið formaður deildarinnar, Magnús? Ég tók við í júní í fyrra, var þá varaformaður, en tók við for- mennskunni þegar þáverandi form. flutti af landi brott. Hefurðu sjálfur leikið með meistaraflokki? Nei, en ég lék með öllum yngri flokkunum, en hætti eftir 2. flokk vegna vinnunnar. Ég var hljómlistarmaður, og það var kvöldvinna, eins og knattspyrnu- æfingarnar. Og hvernig gengur svo starf- semin, æfingar og hinn eilífi höfuðverkur, fjármálin? Við höfum æft mjög vel í vet- ur, byrjuðum fyrir áramót og áhuginn er mikill. Fjármálin eru alltaf sama baslið. Við skuldum núna rúmar 300.000 kr. eftir tvö síðustu keppnistfmabil. Ýmsar fjáröflunarleiðir eru í gangi, en Magnús Daðason þær gera ekki meir en halda í horfinu. Aukinn áhorl'endafjöldi gæti þó breytt miklu fjárhags- lega, auk þeirrar hvatningar sem það yrði fyrir liðið til aukinna dáða. í fyrra mættu að meðaltali 637 áhorfendur á leik. Það eru ívið færri en árið áður, þrátt fyrir að liðið léki nú í 1. deild, en árið 1981 í 2. deild. Hverju viltu svo spá um gengi liðsins í sumar? Ég yrði ánægður, ef liðið yrði fyrir ofan miðju, en þetta er ungt lið og á framtíðina fyrir sér. En ég tel raunhæft að spá því að 'iðið verði alveg um miðja deild. En hverju viltu svo spá um úr- slit sumarsins í deildinni? Ég spái að Víkingur verði í fyrsta sæti, Þór Ak. í öðru, enda eru þeir búnir að fá svo frábær- an markvörð, og í þriðja sæti verða Akurnesingar. Þorsteinn Bjarnason, Björgvin Björgvinsson, Páll Þorkelsson, mið- markvörður, 26 ára, framherji, 22 ára, versl- vallarspilari, 21 árs, verslunarstjóri. unarmaður. verslunarmaður. Skúli Rósantsson, fram- Óli Þór Magnússon, herji, 22 ára, verslunar- framherji, 20 ára, verka- maður. maður. Kári Gunnlaugsson, bakvörður, 28 ára, toll- vörður. Óskar Færseth, bak- Hermann Jónasson, Björn Ingólfsson, mið- vörður, 24 ára, trésmið- framherji, 22 ára, pípu- vörður, 23 ára, rafvirki. ur. lagningamaður. Einar Ásbjörn Ólafsson, Skúli Jónsson, mark- Freyr Sverrisson, mið- miðv. spilari, 24 ára, vörður, 19 ára, nemi. vallarspilari, 20 ára, lögreglumaður. nemi. Sigurður Björgvinsson, Jóhann Ingi Jóhanns- Ingvar Guðmundsson, miðvallarspilari, 24 ára, son, framherji, 20 ára, miðvallarspilari, 19 ára, verslunarmaður. verslunarmaður. nemi. Kúnar Georgsson, bak- Sigurbjörn Gústafsson, íngiber Oskarsson, mið- vörður, 27 ára, verslun- 27 ára, verslunarmaður. vörður, 26 ára, útgerðar- armaður. maður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.