Morgunblaðið - 18.05.1983, Page 22

Morgunblaðið - 18.05.1983, Page 22
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1983 Einar örn, sætari en nokkru sinni, Bylurinn þótti standa sig vel. tekur lagið med Issl „Rokk gegn atvinnuleysi“ í Sigtúni: Stórgóðir tónleikar og lausir viö öll vandamál Það er orðlð langt síðan ég hef verið ó góðum tónleikum. Því kom þaö nokkru róti á hugann að kom- ast á tvenna slíka á tveimur dög- um. Fyrri tónleikarnir voru meö Grýlunum í Klúbbnum sumardag- inn fyrsta, en sama kvöld fögnuöu þær tveggja ára afmæli sínu og nýrri plötu. Sándiö var „pottþótt" og hljómsveitin í mjög góöri æf- ingu. Þegar þetta tvennt helst ( hendur er útkoman undantekn- ingalaust góö. Takk fyrir mjög ánægjulega kvöldstund Grýlur. Hinir tónleikarnir voru „Rokk gegn atvinnuleysi" í Sigtúni föstudaginn 22. april. Fram komu einar átta hljómsveitir. Lítið virðist hafa fariö fyrir auglýsingum um þessa tónleika, því ekki voru margir mættir á staö- inn þegar fyrsta hljómsveitin átti aö vera byrjuð. Af þessum sökum lét ég mig hverfa og kom aftur rúmum klukkutíma seinna. Þá haföi fyrsta hljómsveitin lokiö sér af og Egóiö var í síöasta laginu. Baðveröirnir voru fyrstir og aö sögn voru Pollock-bræöurnir og Steinþór í Q4U þar á ferö. Um Egóiö get ég lítiö sagt en geri ráö fyrir aö þaö hafi verið gott. Ekki get ég heldur veitt neinar upplýsingar um næstu hljóm- sveitina sem var Bylur. Tónlist þeirra er rokk og ekki ósvipuö og á „Arg- us“-plötu Wishbone Ash, nema hvað allur hljóöfæraleikur er mun einfald- ari hjá Bylnum. Á eftir þeim koma upþ á sviðiö Einar purrkur og hljómsveit hans, Iss! Hafi Purrkurinn veriö aö gera athyglisveröa hluti þá er Issl engu störi. Einari fer fram sem hljóðfæra- leikara og er fikt hans nú fariö aö passa inn í sums staöar. Þá var komið að Vonbrigöum aö stíga inn á sviöiö og komu þeir mér á óvart meö mikilli keyrslu. Þeir strákarnir sköp- uðu mikla stemmningu og voru klappaöir tvisvar upp af upptrekkt- um áhorfendum. Er þaö víst aö hér er á feröinni flokkur sem á bjarta framtíö fyrir sér ef fram heldur sem horfir. Næstsíöasta hljómsveitin á dagskránni var Puppets. Þar eru Ei- ríkur og Sigurgeir fyrrverandi Start- arar á ferö ásamt Ásgeiri purrk og Richard Corn. Nokkuö hefur verið um mannabreytingar hjá þeim félög- um en ekki virtist þaö koma niöur á þeim. Tónlistin er hrátt kraftmikiö rokk á ameríska stórkarlavísu. (Hvernig sem hægt er aö útskýra þaö nú.) Þegar hér var komiö hélt undirrit- aöur heim vegna þreytu og missti því af Taþpanum. Ef aö líkum lætur hef- ur hann veriö stórgóöur endir á frá- bærum tónleikum. Sándiö var gott hjá öllum þeim hljómsveitum sem ég heyröi og engin vandamál. Þegar ein var hætt tók viö stutt hlé og skömmu seinna kom sú næsta, og hóf að spila án nokkurra vandræöa. Segj- ast veröur aö slikt er helst til sjald- gæft á tónleikum hérlendis og eiga allir aöstandendur hrós skiliö. Þegar áhorfendur voru flestir voru 700 manns í húsinu og þaö var nóg til aö tónleikarnir stæöu undir sér. Þaö er frábært og vona ég bara aö fram- hald verði á svona uppákomum. FM Uriah Heep lifir enn Ný plata á næstu grösum Enginn skyldi voga sér aö halda aö Uriah Heep-flokkurinn hafi lagt upp laupana. Nú á næstu dögum er enn ein breiöskífan (guð má vita hversu margar þær eru orðnar alls) væntanleg frá sveitinni og ber hún nafnið „Head First.“ Síöasta plata Uriah Heep, sem hét „Abominog", þótti vera besta plata sveitarinnar frá byrjun, a.m.k. frá sjónarhóli bárujárns- rokkaranna. En auövitað hefur oröiö breyting á liösskipaninni rétt eina feröina. Bob Dainsley hefur sagt skilið viö hana opg gengiö til liös við Ozzy Osbourne. Hans sæti tekur Trevor Bolder, sem sagöi skilið viö Uriah Heep 1981 til og gekk til liðs viö Wishbone Ash. Snýr sum- sé aftur. 20 vinsæl- ustu lögin . í Bretlandi Það er oröið nokkuö langt um liöið frá því breski vin- sældalistinn var birtur á Járn- síðunni. Eitt og annaö hefur komið í veg fyrir birtingu hans, en hérna er hann sumsé kom- inn á ný. 1 ( 1) True/SPANDAU BALLET 2 ( 3) Fascination/HUMAN LEAGUE 3 ( 8) Temptation/ HEAVEN 17 4 ( 2) Words/F.R. DAVID 5 ( 6) Dancing Tight/ GALAXY 6 ( 5) Pale Shelter/TEARS FOR FEARS 7 ( -) Candy Girl/NEW EDITION 8 ( 7) We Are Detective/ THOMPSON TWINS 9 (16) Our Lips Are Sealed/ FUN BOY THREE 10 ( -) Can’t Get Used to Losing You/BEAT 11(4) Beat It/MICHAEL JACKSON 12 ( -) Blind Vision/BLANC- MANGE 13 ( 9) Let’s Dance/ DAVID BOWIE 14 (11) True Love Ways/CLIFF RICHARD 15 (13) Friday Night/KIDS FROM FAME 16 (10) Church of the Poison Mind/CULTURE CLUB 17 (12) Love Is a Stranger/ EURYTHMICS 18 (17) Blue Monday/NEW ORDER 19 (19) The Last Film/ KISSING THE PINK 20 (15) Rosanna/TOTO Óvenju litiö hefur veriö um hræringar á breska listanum að undanförnu, eins og best sést á þessum því þar eru aöeins þrjú ný lög. Reyndar mun von á nýrri lítilli plötu frá Police innan skamms og hún gæti því gert skurk á listanum. Djúpt í iörum Austurstrætis Rabbað við þrjár Vogir í hl.iómsveitinni Mogo Homo Hljómsveitin Mogo Homo hefur skotið upp kollinum á ný eftir mikla og langa þögn, a.m.k. lítur það þannig út frá sjónarhóli umsjónarmanns Járnsíðunnar. Reyndar mun sveitin hafa starfað með höppum og glöppum allt frá því hún var stofnuð, en botninn fór úr henni þegar höfuöpaurinn, Óskar Þórisson, hólt til Japan. Hann sneri reyndar heim og við það var lífi blásið í glæðurnar á ný. Það gekk ekki svo ýkja vel að fá feril sveitarinnar á hreint er ég heimsótti hann og söngkonur hennar í iðrum Austurstrætisins, þar sem æfingahúsnæði sveitarinnar er. Uppruna- lega voru þeir Óskar og Óöinn Guöbrandsson tveir í sveitinni. Þá bættist gítarleikarinn Tommi við og loks söngkonurnar tvær, Sunna María Magnúsdóttir og Steinunn Halldórsdóttir. Reyndar er ekki alveg á hreinu hvort Steinunn kom í flokkinn é undan Tomma, eða öfugt. Látum það þó liggja á milli hluta. Heilaþvottur Tommi þessi auglýsti eftir að kom- ast í hljómsveit, en reyndist vera mik- iö „heavy-metal“-frík aö eölisfari þegar til kom. Óskar bendir stoltur á þá staðreynd, aö með reglubundnum heilaþvotti sé honum hægt og bítandi aö takast að beina Tomma inn á aðr- ar og betri brautir og aö tónlistin, sem Mogo Homo er aö leika í dag, sé miklu betri en allt helv. .. bárujárniö. Þegar ég heyröi síöast í Mogo Homo voru þeir Óskar og Óöinn að baksa viö aö framleiöa einskonar tölvupopp meö aöstoö trommuheila og segulbanda. Útkoman varö æriö misjöfn, en sumum féll þetta vel í geö — öörum eölilega ekki. En hvaö kom til aö þessi mikla fjölgun varö innan sveitarinnar? Ég spuröi þremenn- ingana, sem allir eru í Vogarmerkinu, um ástæöur þess. „Þaö er nú löng saga aö baki þessari fjölgun," sagöi Óskar og dæsti. Samkvæmt upplýsingum hans og söngkvennanna tveggja bættist gítarleikarinn fyrst inn í og geröi góða hluti. Síöan dróst Steinunn inn i spiliö sem söngkona og söng um hríð meö systur Óskars. Hún hætti svo og þá vantaöi aöra söngkonu. Einhverra hluta vegna dróst Sunna Maria inn í spiliö, þótt hún þekkti Steinunni nánast ekkert — þær eru aöeins i sama skóla. I raun þekkjast meölimir hljómsveitarinnar ákaflega lítiö innbyrðis, ef Óskar og Óöinn eru undanskildir. Fyrstu vikurnar hafa því fariö í þaö aö kynnast, rétt eins og aö æfa saman. Mánuður — Hversu lengi hefur hljómsveitin veriö í núverandi mynd? „Ekki lengi,” svöruðu þau öll meira eöa minna í kór. „Ætli það sé miklu meira en mánuöur." — Eruö þið búin aö æfa mikiö saman? „Nei, viö getum nú varla sagt það. Við æföum reyndar mjög vel fyrir fyrstu tónleikana okkar, en nú erum viö báöar í prófum í MH, þannig aö tíminn er stundum ansi naumur. Eig- inlega ættum við aö vera heima aö lesa núna, viö stálumst bara út,“ sagöi Steinunn. — Hafiö þið komiö fram í þessari mynd á opinberum stööum? „Já, já. Þrisvar sinnum í Safari.” — Hvernig gekk þaö? „Þaö gekk nú bara vel,” sögöu þau, en bættu siöan viö á öllu lægri nótum: „i þaö minnsta í fyrsta skipt- ið.“ Þau hertu sig upp og héldu áfram: „Þá skemmtum viö líka tiltölu- lega snemma um kvöldiö, á bilinu hálftólf-tólf, og allt var í lagi. En i síöari skiptin var þaö öllu verra. Þá skemmtum viö svo seint, aö enginn virtist nenna aö hlusta á okkur. Þaö þýöir ekkert aö bjóöa upp á skemmtiatriöi í íslenskum veitinga- húsum á þessum tíma nætur. Dæmið er bara svo einfalt." Upprunans leitað — Hvernig tónlist leikur Mogo Homo í dag? „Tja, þaö er nú dálítiö erfitt aö skilgreina hana," sagöi Óskar. Hann haföi alla jafna orö fyrir hópnum, en stelpurnar skutu af og til inn í setn- ingum. Einkum þó Steinunn, sem er öllu frakkari. „Þetta er eiginlega tón- list, þar sem viö förum „back to our roots,“ sagöi Óskar aftur. „Viö höfum sagt skilið viö tölvupoppiö og tekiö til við létt popp." Upphófust nú miklar vangaveltur um hvaöa áhrifa gætti helst hjá sveit- inni. Niöurstaöan varö sú, að þar væri aö finna gamla Motown-fíling- inn, reaggae, funk og allan þremilinn. En umfram allt væri þetta tónlist, sem fólk gæti dansað við. — Hafiö þiö ekki hugsaö ykkur aö veröa ykkur úti um trommuleikara? „Jú, jú, það hefur oftlega komið til tals," sagöi Óskar. „Yfirleitt hefur þaö bara verið svo, að viö höfum ekki fundiö nógu góöan trommara. Ef svo hefur veriö, höfum við kannski ekki getaö sætt okkur viö hann.” „Ég vil endilega fá trommara í bandiö," bætti Steinunn viö. — Hvaða hlutverki gegniö þiö söngkonurnar í þessari sveit?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.