Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 22

Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 Bresku þingkosnmgarnar á morgun: „Hefur verið erfitt, en Thatcher er á réttri leið“ — segir atvinnulaus, breskur verkamaður í spjalli við blm. Morgunblaðsins ára sögu hans. Eitt helsta kosn- ingaloforð Verkamannaflokksins nú, komist hann til valda, er að verja nær 11 milljörðum sterl- ingspunda í opinber framlögtil alls kyns verkefna í því augnamiði að skapa atvinnu hið bráðasta handa 2,5 milljónum manna. Jafn- framt skal hlutdeild hins opinbera í atvinnulífinu vaxa til mikilla muna með þjóðnýtingu margra stórfyrirtækja og ríkisrekstur al- mennt verða miklu meiri þáttur í þjóðlífinu en nokkru sinni áður. í utanríkis- og varnarmálum vill Verkamannaflokkurinn taka upp einhliða afvopnun á sviði kjarnorkuvopna og segja Bretland úr Efnahagsbandalagi Evrópu, sem landið gerðist aðili að fyrir 10 árum. Engum meðaldrægum kjarnorkueldflaugum skal komið fyrir í Bretlandi og þau bandarísk kjarnorkuvopn, sem búið er að koma fyrir í landinu, skulu flutt á brott. Afstaða flokksins er hins vegar nánast óljós um hvað gert ■^>ndon. 7. júní. Fri Magnúni Sinurðasyni, blaúamanni MorgunblaA.sins. „ÞJÓÐ okkar stendur á tímamótum, við verðum að gera útlæg hin myrku öfl sósíalisma og marxisma.“ Með þessum afdráttarlausu orðum hóf Margaret Thatcher kosningabarátt- una hér í Bretlandi fyrir fjórum vik- um. Þrátt fyrir meira atvinnuleysi en nokkru sinni fyrr virðast allar líkur á því að hún og íhaldsflokkur henn- ar vinni yfirburðasigur í þingkosn- ingunum á fimmtudag. Allt frá því að Verkamanna- flokkurinn ýtti Ihaldsflokknum til hliðar 1945 og kom á fót velferð- arríkinu með kostum þess og göll- um hafa andstæðurnar og klofn- ingurinn í bresku þjóðfélagi aldrei verið meiri en einmitt nú. Stuðn- ingsmenn frú Thatcher eiga vart nógu hástemmd lýsingarorð yfir það frækilega afrek hennar að koma verðbólgunni niður í 4% á ári. „Framtíðin er okkar," segja þeir, „Bretland er ekki lengur hinn sjúki maður Evrópu og við eigum eftir að verða samkeppnishæfir á nýjan leik. Við eigum eftir að slá Japani og V-Þjóðverja út. Andstæðingar Thatcher, með Verkamannaflokkinn í broddi fylkingar, halda því hins vegar fram, að þessi árangur sé allt of dýru verði keyptur. Þeir benda á, að í stjórnartíð frú Thatcher hafi atvinnuleysið nær þrefaldast og nái til meira en 3 milljóna manna, sem eru meira en 13% allra vinnu- færra manna í landinu. Jafnframt halda þeir því fram, að ástandið eigi enn eftir að versna. Á milli þessara tveggja and- stæðu flokka stendur svo banda- lag jafnaðarmanna og frjáls- lyndra, sem stofnað var fyrir hálfu öðru ári. Það hefur látið æ meira til sín taka að undanförnu og síðustu skoðanakannanir gefa til kynna að vegur þess fari vax- andi. Þetta miðflokkabandalag hefur það að takmarki að binda endi á það tveggja flokka kerfi. sem mótað hefur bresk stjórnmál í 60 ár. Forystumenn gera sér vonir um að sá dagur muni rísa, að bandalagið komist í oddaaðstöðu á breska þinginu og geti haft afger- andi áhrif á stjórnmál í landinu. Einhliða afvopnun Frá því Verkamannaflokkurinn missti völdin í kosningunum 1979 hefur stefna hans sveigst æ meira til vinstri og er talin vinstrisinn- aðri nú en nokkru sinni í nær 90 Leiðtogar þriggja stærstu stjórnmálaflokkanna. Foot, Thatcher og Jenkins. Danmörku forðaÖ frá stjórnarkreppu Kaupmannahofn, 7. júní, frá Ib Björnbak, fréttaritara Mbl. Mogens Glistrup hugsar sinn gang á þinginu í síðustu viku. Ýmis mikilvæg mál fyrir dönsku stjórnina voru ekki útrædd á þessu þingi er þinglausnir fóru fram síð- astliðinn sunnudag. Þar er um að ræða lagabreytingar varðandi mál- efni landbúnaðarins, framlag ríkis- ins til sveitarfélaga og stuðning við íbúðabyggjendur í landinu. Poul Schliiter, forsætisráðherra, hefur tilkynnt, að unnið verði að lausn þessara mála. Ríkisstjórnin hefur ekki í hyggju að verða undir í atkvæðagreiðslu á þinginu um þau heldur verður leitað samninga og þing kallað saman síðar í sumar. Það eru þrír þingmenn Fram- faraflokksins, Mogens Glistrup, Lejf Glensgárd og Mogens Voigt, sem ekki vilja styðja stjórnina í þessum málum sem og hinir tólf þingmenn flokksins. Þessi andstaða Glistrups er at- hyglisverð í ljósi þess, að búist er við að hæstiréttur Danmerkur kveði upp dóm í máli hans í lok júní og bendir flest til að hann verði dæmdur í margra ára fang- elsi. Hann mun þá að sjálfsögðu hverfa af þingi og getur það þá haft nokkur áhrif á getu stjórnar- innar til að koma málum sínum í framkvæmd. Danska borgaralega minni- hlutastjórnin hefur þurft að sætta sig við margs konar mót- læti frá því hún tók við völdum af minnihlutastjórn jafnaðarmanna og Anker Jörgensen 10. nóvember síðastliðinn. En stjórnin mun sitja áfram þrátt fyrir einstaka áföll á þingi og það verður stöðugt ljósara að hún berst fyrir því að sitja til lengri tíma. Hún virðist gædd meiri framsýni en flestar aðrar. MikiII þrýstingur var siðustu daga fyrir þinglausnir nú við að Þingið kemur aftur saman síðar í sumar Poul Schliiter forsætisráðherra þungur á brún. reyna að fá mikilvæg mál af- greidd. Stjórnin hefur sem fyrr segir ekki komið öllum þeim mál- um sem hún leggur áherslu á í gegn um þingið, en það sem er mikilvægara er að hún hefur í höfuðdráttum fengið aðhalds- stefnu sína í efnahagsmálum í gegn og framkvæmda. Miðað er við að minnka á næstu árum hrikalegan tekjuhalla ríkis- ins og síðar að reyna að láta ríkis- búskapinn ganga án mikilla er- lendra lána. Það voru þessi er- lendu lán sem fengu meira að segja hagfræðinga og stjórnmála- menn jafnaðarmanna til að lýsa því yfir að Danmörk rambaði á barmi ríkisgjaldþrots. Tekjuhalli ársins 1983 verður að öllum líkindum milli 62 og 64 milljarðar danskra króna og eitthvað því líkar verða tölur árs- ins 1984. Erlendar skuldir nema 110 milljörðum d. króna. Það er því augljóst að það mun líða á löngu þar til fjárhagur danska ríkisins verður kominn á réttan kjöl. Ekki einungis „neyðarráðstafanastjórn“ Þegar stjórnin kom til valda höfðu margir þá trú að hún yrði skammlíf. Einnig var það mál manna að forsætisráðherrann gæti fallið í þá freistingu að boða fljótlega til kosninga til að auka fylgi íhaldsflokksins og fjölga fulltrúum hans á þingi. ótvíræður leiðtogi flokksins er Poul Schluter forsætisráðherra og allt virðist benda til þess að hann gæti auð- veldlega tvöfaldað þingmanna- fjölda sinn sem nú er 26. En for- sætisráðherrann hefur ekki fallið í þá freistni. Stjórn Schluters og Christo- phersen hefur alveg frá upphafi einsett sér að verða ekki einungis „neyðarráðstafanastjórn" sem sæti um skamma hríð. Með í stjórnarsamstarfinu eru íhalds- flokkurinn, Venstre-flokkurinn, miðdemókratar og Kristilegi þjóðarflokkurinn. Til að koma málum sinum fram á þingi hefur stjórnin einnig notið stuðnings Róttæka vinstriflokksins og Framfaraflokksins. Eftir klofning í þingflokki Framfaraflokksins hafa hinir síðastnefndu einnig sagt skilið við hina árangurslausu andstöðupólitík sem Mogens Glistrup fylgir. Þetta er kannski að einhverju leyti skylt því, að hann á nú yfir höfði sér niður- stöðu hæstaréttar síðar í þessum mánuði og þar með verður hann hugsanlega að segja skilið við stjórnmálin að sinni. Aukin bjartsýni Fæstir neita því að þessi fjög- urra flokka stjórn hafi verið far- sæl í starfi. Enginn hafði trú á því fyrir hálfu ári, að vextir í Dan- mörku gætu lækkað úr 20 af hundraði niður í 14, eins og gerst hefur. Það er ekki einungis að þakka utanaðkomandi teiknum eins og lækkun á olíuverði. Það er einnig sumpart að þakka al- mennri stefnu stjórnarinnar og því markmiði hennar að styrkja atvinnulífið, sem hefur borið árangur. í þessu felst að þessi borgaralega stjórn sýndi að hún gat leitt samninga til lykta, sem innihéldu aðeins 4% aukningu ár- in 1983 og 1984. Á þennan hátt var hægt á verðbólgunni. Andrúmsloftið í atvinnulífinu hefur greinilega breyst, sem ekki er einungis að þakka vonum sem bundnar hafa verið við alþjóðlegt verðlag. Þetta sést m.a. í kaup- höllinni, þar sem eftirspurn eftir verðbréfum hefur aukist verulega og er enn að aukast. Lifeyrissjóð- irnir eru í auknum mæli byrjaðir að kaupa verðbréf heimafyrir. Ríkisstjórninni virðist hafa tekist í raun að snúa fólki frá svartsýni til bjartsýni, eins og hún hafði einsett sér er hún tók við völdum. Ný stefna Stjórnin vinnur að því að koma fram nýrri stefnu, sem felur ekki aðeins í sér að betrumbæta stefn- una í efnahagsmálum eftir hefð- bundnum bókhaldsaðferðum. Hún vinnur að því af festu að auka þróunarmöguleika einkarekstrar og aðlaga hann að breyttum tím- um, þar sem tölvutæknin ryður sér til rúms. Þetta markmið hefur einnig unnið á innan verkalýðshreyf- ingarinnar. Aðalhagfræðingur danska málmiðnaðarsambands- ins, Steffen Moller, sem einnig er þingmannnsefni jafnaðarmanna, telur að um áramótin 1984—1985 muni hafa tekist að skapa 100.000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.