Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 1
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 177. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Morgunblaöid/ Emilía. Blaðberar Morgunblaðsins heimsækja Kaupmannahöfn Hópur blaðbera Morgunblaðsins, sem eru vinnings- hafar í áskrifendasöfnun blaðsins, sem fram fór nú í júní, lagði af stað í vikuferð til Kaupmannahafnar í boði blaðsins á laugardaginn var. í Kaupmannahöfn verður Tívolíið heimsótt og Krónborgarkastali verður skoðaður. Þá verður ritstjórn Politiken heimsótt og farið í dýragarðinn. Neðri röð, talin frá vinstri: Elín úr Garðinum, Sigurður úr Kópavoginum, Hildur úr Þor- lákshöfn, Ríkharður frá Ólafsvík. Efri röð frá vinstri: Kolbrún frá Vestmannaeyjum, Viktor Urbancic, starfsmaður útbreiðsludeildar Morgunblaðsins, Svava, flugfreyja hjá Flugleiðum, Hafdís frá Hellis- sandi, Svanfríður frá ísafirði og Jón úr Reykjavík. Sjá frásögn á bls. 3. Afvopnunarviðræður stórveldanna: Bjartsýni eykst á bak við tjöldin Washington, 8. ágúst. AP. HÁTTSETTIR embættismenn í Wash- ington eru margir hverjir þeirrar skoð- unar að samkomulag um afvopnunar- mál náist að öllum líkindum er líður á næsta ár, sennilega í síðasta lagi snemma næsta sumar. Umræddir embættismenn hafa ekki viljað láta nafna sinna getið, en haft er eftir þeim, að Sovétmenn hafi sýnt fram á svo miklar og ákveðnar tilslakanir á bak við tjöld- in, að ráðamenn í Washington séu farnir að taka þá alvarlega. Til dæmis hafa Sovétmenn ýjað að því að nokkrir andófsmenn fái að flytjast úr landi fyrir áramót. Þá var nýlega gengið frá fimm ára kornsölusamningi og lögðu Sovét- menn sérstaka áherslu á að sá samningur næðist fljótt og vel. Þá hafa Sovétmenn stungið upp á ýms- um tilslökunum í afvopnunarvið- ræðunum sem fram hafa farið í Genf að undanförnu. Umræddir embættismenn segja ekkert geta komið í veg fyrir að Bandaríkin og önnur NATO-ríki myndu setja niður hinar 572 meðal- drægu kjarnorkuflaugar í Vestur- Evrópu sem mikill styrr hefur stað- ið út af. Sovétmenn myndu þá mót- mæla, en það væri einungis í áróð- ursskyni. Myndu yfirvöld í Moskvu síðan vera lítt eða ekki til viðtals næstu mánuðina, en með vorinu myndi alvaran taka við á nýjan leik og þá myndu báðir aðilar vera ólmari en nokkru sinni fyrr að ná samkomulagi. Chad: Khadafy hótar að granda bandarískum flugvélum N’djamena, ('had, 8. ágúst. AP. Bandaríkjastjórn ákvað um helg- ina að senda tvær AWACS-njósna- flugvélar til Hissine Habre, forseta Chad, til þess að gera honum land- vörnina auðveldari gegn skæruliðun- um og Líbfumönnunum sem sótt hafa grimmilega fram að undan- rórnu. AWACS-vélarnar lögðu af stað á laugardaginn og með þeim orrustuþotur til að verja þær hugs- anlegum árásum. Líbiumenn hafa tilkynnt að vogi bandarísku flugvél- arnar sér inn yfir líbíska grund, verði þær umsvifalaust skotnar niður. Það var hin opinbera fréttstpfa Líbíu, Jana, sem greindi frá þessu í gær, en í orðsendingu frá banda- ríska utanríkisráðuneytinu sagði að til þess myndi ekki koma, að flugvélarnar færu yfir líbískt landsvæði. Hann bætti því við, að flugvélarnar myndu ekki hafa miðstöð í Chad, heldur í ná- grannaríkinu Súdan. Loftárásir Líbíumanna á eyði- merkurborgina Faya-Largeau héldu áfram í gær og þrátt fyrir að þeir hafi neitað því að standa að umræddum árásum, var ein sprengjuþota skotin niður á laug- ardaginn og flugmaður hennar handtekinn. Var um Líbíumann að ræða og var hann hafður til sýnis á almenningstorgi í höfuðborginni N’djamena í gær. Höfðu stjórn- völd í Chad eftir flugmanninum, að allar sprengjuþoturnar væru mannaðar Líbíumönnum, auk þess sem fjöldi líbískra hermanna berðist við hlið uppreisnarmann- anna á vígstöðvunum í norður- hluta landsins. Sagði hann einnig Hissine Habre, forseti Chad. að þoturnar vörpuðu fyrst og fremst fosfórsprengjum og nap- almi. Var haft eftir honum að ný og mikil stórsókn væri í undirbún- ingi og ætti hún að gera út um stríðið. Bandaríska utanríkisráðuneytið greindi frá því í gær, að það hefði vissu fyrir því að allt að 2000 líb- ískir hermenn væru í röðum skæruliða á vígstöðvunum við Faya-Largeau. John Hughes, tals- maður ráðuneytisins, sagði að flestir líbísku hermannanna hefðu blandað sér í átökin eftir miðjan júlí. „Ef um stórsókn verður að ræða með Líbíumenn í broddi fylkingar, er ekkert vafamál að Bandaríkin og Frakkland myndu líta slíkt mjög alvarlegum augum. Hvað við gerum fer mjög eftir því hvað Frakkar ákveða að gera í stöðunni og þeir hafa ekki lýst yfir að þeir myndu alls ekki standa að hernaðaríhlutun. Því hefur verið fleygt, en orð þeirra hafa verið tekin úr samhengi og annar skiln- ingur lagður í þau.“ Hissine Habre, forseti Chad, hvatti Frakka enn einu sinni til að senda franskan herafla til lands- ins í gær, en þeir hafa svarað því að það muni þeir ekki gera „í stöð- unni“. Yfirvöld í nágrannaríkinu Zaire hafa vaxandi áhyggjur af umsvifum Líbíumanna í Chad og gangi mála. Þeir hafa þegar veitt Chad mikla aðstoð, en ákváðu í gær að senda 700 hermenn til viðbótar. Var það Nessie? Drumnadrochit, Skotlandi, 7. ágúst. AP. BANDARÍSKI náttúruljós- myndarinn Erik Beckjord telur sig hafa náð Ijósmyndasyrpu af fyrirbæri á Loch Ness sem er „illútskýranlegt". Beckjord hef- ur dvalið ásamt föruneyti sínu við skoska stöðuvatnið fræga síðustu vikurnar og hefur hópur- inn bæði leitað í djúpinu með kvikmyndavélum og Ijósmynd- að yfirborð vatnsins. „Það er rétt að taka það strax fram, að það sem ég sá og myndaði gæti hugsanlega hafa verið furðuleg alda, en ég tel persónulega að það sé ólíklegt. Þetta sannar ekkert um tilvist „Nessie", en það fór ekkert á milli mála, að þarna var eitthvað vægast sagt und- arlegt á ferðinni," sagði Beckjord og lýsti síðan fyrir- bærinu: „Þetta var svart á litinn og um það bil 6 metrar á lengd. Vatnið var næstum slétt, en fyrirbærið virtist synda létti- lega og það sem upp úr stóð minnti helst á bát sem er á hvolfi. Lengst af sá ég bara ólguna, en fjórum sinnurn skaut því upp úr eins og hnísu.“ Stjórn Guatemala steypt af stóli Guitemala 8. ágúst. AP. STJÓRNARBYLTING var gerð í Guatemala í gær, en þó sagði í óstaðfestum fréttum að forseti landsins, Efrain Rios Montt, héldist cnn við í forsetahöllinni ásamt nokkrum stuðningsmönnum sínum. Hvatamaður valdaránsins var Oscar Humberto Meija Victores varnarmálaráðherra. Sjónarvottar við forsetahöllina sögðu vestrænum fréttamönnum að Montt væri enn í höllinni í gærkvöldi og skothríð glumdi við frá henni. Nokkur lík lágu skammt frá forsetaskrifstofunum og banda- rískur blaðamaður sem lengi hefur búið í Guatemala, Robert Rosen- house, sagði fréttaskýrendum að svo virtist sem valdaránið væri ekki endanlega í höfn þó horfurnar á því að það mistækist úr því sem komið væri, væru hverfandi. Herþyrlur og brynvarðir herbíl- ar umkringdu forsetahöllina í allan gærdag og gærkvöld og útvarps- stöðvar kepptust við að lesa upp lista stuðningsmanna hins nýja valdhafa. Þar var jafnframt lesin upp tilkynning frá Meija Humb- erto og stuðningsmönnum hans. Þar sagði, að tilgangurinn væri að bæta ástand það í landinu sem minnihlutaklika Montts hefði skapað. „Ofstækisfullur trúarhóp- ur hefur misnotað aðstöðu þá sem Montt hefur boðið honum,“ sagði í tilkynningunni. Rios Montt komst til valda í Guatemala 22. nóvember 1982, er hann stjórnaði sjálfur valdaráni. Rios Montt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.