Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 37 gegndi ýmsum trúnaðarstörfum öðrum. Eftir að hann lét af for- mennsku var honum falið að ann- ast samskipti við norræna starfs- bræður. Þar naut Kristinn sín mjög vel. Hann átti einkar gott með að umgangast fólk og var vel máli farinn og fundamaður góður, flutti ræður með ágætum án sér- staks undirbúnings og blaðalaust, og þá hvort heldur á íslenzku eða erlendum málum. Fjölmargir starfsbræður okkar á Norðurlöndum kynntust Kristni og báru mikla virðingu fyrir hon- um og vinarhug til hans. Allir sem kynntust Kristni, vissu að þar fór góður drengur og mikill atorku- og athafnamaður sem átti fáa sína líka. Kristinn brauzt úr fátækt til mikilla umsvifa á landsvísu á skömmum tíma. Slíkt lýsir auðvit- að dugnaði, greind og áræði. Hann lét sér ekki nægja að nýta þessa hæfileika aðeins í eigin þágu, heldur var hann einatt reiðubúinn að miðla öðrum með ráðum og dáð. Hafa margir bakarameistar- ar sótt til hans ráðleggingar og reynslu sem þeir munu búa að um ókomin ár. Okkur hjónunum eru ógleym- anlegir dagar sem við áttum á páskum 1982 með þeim Dýrleifu og Kristni úti í Þýzkalandi. Þau héldu þá upp á 55 ára afmæli Kristins. Vinátta og gestrisni þeirra var söm að heiman sem heima, eins og þeir þekkja sem kynnzt hafa þeim hjónum. Á þessari stundu er okkur hugs- að til eiginkonu sem misst hefur ástríkan og góðan eiginmann og vin, til barnanna og fjölskyldna þeirra sem misst hafa föður og verndara. Við söknum góðs vinar. Við hjónin sendum ykkur öllum innilegar samúðarkveðjur. Minningin um Kristinn K. Al- bertsson mun lifa. En fyrst að þú drottinn, lætur jósið þitt skína og lengir daginn fyrir þá vini þína, sem yfirleitt hafa ekkert við tímann að gera — annað en bara að vinna, og úr því að þú hefur af nægum tíma að taka, en til eru hins vegar menn, sem þurfa að vaka, þá ættirðu líka að lofa nóttinni að vera og lengja hana helzt ekki minna. (Tómas Guðmundsson) Jón Víglundsson í dag kveðjum við hinstu kveðju góðan vin okkar og félaga, Kristin K. Albertsson, bakarameistara, sem lézt þann 28. júlí sl. langt fyrir aldur fram, aðeins 56 ára að aldri. Hann hafði átt við vanheilsu að stríða um nokkurt skeið, hafði gengið í gegnum erfiðar læknisað- gerðir og voru nú vonir bundnar við að veikindi hans yrðu yfirstig- in, vonir sem nú eru brostnar. Með Kristni K. Albertssyni er genginn mikill drengskaparmað- ur, sannur boðberi fagurs mann- lífs eins og það gerist bezt, enda voru trúmennska, tryggð og góð- vild sterkir þættir í fari hans. Hann var glaðlyndur og hrókur alls fagnaðar hvar sem komið var, fjölskyldufaðir mikill sem gott var heim að sækja. Við félagar hans sem höfðum kynnst honum fyrir rúmum 30 ár- um söknum vinar í stað. Á aðeins 50 dögum höfum við misst tvo af okkar beztu vinum og spilafé- lögum, Gunnar B. Sigurðsson lézt 3. júní sl. Kristinn K. Albertsson fæddist og ólst upp á Húsavík, þar sem bryggjan og fjörurnar voru hans barnaheimili og fjallið hans gleði, eins og bann sagði oft sjálfur frá. Frá Húsavík fluttist hann til Reykjavíkur, þar sem hann hóf nám í bakaraiðn, og segja má, að síðan hafi hann helgað henni starfskrafta sína óskipta með ein- um eða öðrum hætti, bæði sem stjórnarmaður og formaður Landsambands bakarameistara svo og fyrir þá i norrænum sam- skiptum. > Kristinn var stórhuga fram- kvæmdamáður. Hann byrjaði með tvær hendur tómar, eins og sagt er. Lagði hann nótt við dag við að koma sér upp sínum eigin atvinn- urekstri. Stofnaði hann fyrst Álf- heimabakarí, en síðan reisti hann eitt stærsta bakarí hér á landi, Brauð hf., þar sem nú starfa um 70 manns. Dugnað hans og áræði róma all- ir sem til þekkja. Hann átti sér marga drauma og markmið í starfi sínu, hreif menn með sér af eldmóði fullhugans og fram- kvæma skyldi sem mest á sem skemmstum tíma. Honum var ljóst, að með nýj- ungum í iðnaði, sem tóku sífelld- um breytingum, var nauðsynlegt að fylgjast með þróun mála með öðrum þjóðum og tileinka sér í starfi aðeins það bezta. Árvekni hans og sambönd við góða félaga erlendis tryggðu það jafnan að fátt af nýmælum fór fram hjá honum. Þó auðnaðist honum ekki að fá að sjá draum sinn rætast, en það var bygging stórhýsis í Iðn- görðum, sem hann var langt á veg með kominn. Árið 1948 giftist Kristinn ynd- islegri gæfukonu, Dýrleifu Jóns- dóttur, og eignuðust þau fjögur börn, sem hvert um sig ber vitni um sína góðu foreldra og góða heimili. Dilla var jafnan traustur fylginautur, sem ávallt stóð við hlið manns síns og tók virkan þátt í starfi hans á öllum sviðum. Við áttum því láni að fagna að kynnast þessum yndislegu hjón- um. Með okkur myndaðist sterk vinátta, sem við viljum þakka fyrir af alhug. Minningarnar eru ljúfar og þær voru yndislegar samverustundirnar. Það er erfitt að hugsa sér lífið án Kidda, hans verður sárt sakn- að. Án hans getur ekkert orðið sem fyrr, en minningin um góðan dreng og félaga, hún lifir og gefur fagurt fordæmi. Elsku Dilla, við biðjum góðan Guð að styrkja þig og fjölskyldu þína í ykkar miklu sorg. Ragnheiður og Sveinn Bakarameistarann Kristin K. Albertsson kveðja félagar í Sam- tökum handverksbakara í dag hinstu kveðju og með söknuði. Margir sterkir persónuleikar hafa verið í röðum hinnar íslensku brauðgerðarstéttar, en síðustu ár- in hefur Kristinn K. Albertsson komist fyrir dugnað og atorku í fremstu röð íslenskra bakara- meistara með rekstur á fyrirtæki sínu Brauð hf., ásamt öðrum fyrir- tækjum tengdum þeim atvinnu- rekstri. Brauð hf. er stærsta brauð- og kökugerð í iðnrekstri á íslandi í dag. Enginn íslenskur bakara- meistari hefur innt af hendi jafn- mörg störf fyrir hina íslensku brauða-, og kökugerðarstétt sem Kristinn K. Albertsson. Kristinn mat mikils að íslenskir bakara- meistarar stæðu ekki að baki hin- um erlendu kollegum í iðngrein sinni og lagði að mörkum mikla vinnu á félagslegum grunni í bein- um og persónulegum tengslum við framámenn í bakaraiðn í nær- liggjandi löndum, íslenskri bak- araiðn til framdráttar. Kristni voru öll mál er vörðuðu íslenska brauðgerðarstétt heilög og þau átti að afgreiða af mynd- arskap. Það er engin tilviljun að Kristni K. Albertssyni voru falin mörg veigamikil störf fyrir hina ís- lensku brauða- og kökugerðarstétt síðustu 20 árin. Kristinn var einfaldlega bestur til að fást við hin félagslegu störf og leysti Kristinn þau af hendi af öryggi og myndarskap, m.a. svo störf hans gætu orðið til eftir- breytni. Kristinn lét þau orð falla við undirritaðan fyrir fáeinum mán- uðum að þrátt fyrir að hann væri með mestan iðnrekstur á brauði og kökum á íslandi þá væri hann mjög hlynntur Samtökum hand- verksbakara sem stofnuð voru fyrir þrem árum til þess að mynda skjólborg vegna innflutnings á erlendu brauði og kökum og hinni islensku iðngrein í brauð- og köku- gerð til varnar. Þessi ummæli um Samtök hand- verksbakara tóku af allan vafa að ekki var hætta á viðskiptaátökum milli stóriðnaðar og smáiðnaðar í þessari iðngrein frá hans hendi, loforðum Kristins K. Albertssonar var hægt að treysta. Fyrir hin margvíslegu störf sem Kristinn hefur unnið fyrir iðn- greinina hefur honum hlotnast margir heiðurspeningar iðnað- armanna innlendra og erlendra, auk heiðursgjafa og trausts sem hvetur hvern mann til frekari dáða, en nú er hann horfinn af okkar sjónarsviði og er okkur fé- lögum hans mikill sjónarsviftir. En hvað er það á við sorg eig- inkonunnar, Dýrleifar Jónsdóttur, sem studdi mann sinn á hvern þann hátt sem hún mátti og frá henni ljómaði gleði og stjórnsemi er hún stóð við hlið Kristins á hin- um mörgu samkomum bakara- meistara hér heima og erlendis. Við handverksbakarar skiljum vel þinn þunga harm, kæra Dýr- leif, og biðjum góðan Guð um styrk þér til handa. Systrunum, Önnu og Laufeyju vottum við samúð okkar. Bræðrunum, Jóni Albert Krist- inssyni bakarameistara og Kol- beini Kristinnssyni, framkvæmdastjóra og fjölskyld- um þeirra fæ.rum við handverks- bakarar okkar dýpstu samúð við fráfall atorkumikils föðurs og vin- ar. Við handverksbakarar eigum þá ósk heitasta á þessari stundu að þið bræðurnir haldið áfram á þeirri braut sem þið hafið markað með föður ykkar síðustu árin. Blessuð sé minning Kristins K. Albertssonar. Samtök handverksbakara, H. Br. Það sló magnlausri þögn á okkur öll er fregnin barst um að hann Kristinn Albertsson væri látinn, og hann, sem var hér svo glaður á meðal okkar í gær. Ein- hvern veginn var ekki hægt að sætta sig við þessa fregn, þrátt fyrir að við vissum öll hve heilsa hans var búin að vera erfið og hve mikið hann var búinn að þjást að undanförnu. En hann er horfinn yfir móðuna miklu og við vitum að hann hefur átt góða heimkomu. Kristinn var fæddur á Húsavík, sonur hjónanna Kristjönu Sig- tryggsdóttur og Alberts Fló- ventssonar, sem bæði voru ættuð úr Þingeyjarsýslu. Eignuðust þau 5 börn en 2 þeirra létust í æsku, Kristín og Kolbeinn, en þau er upp komust auk Kristins voru Sig- tryggur og Sigurlaug. Kristinn átti heima á Húsavík þar til hann var á tuttugasta aldursári, en þá hafði hann lokið bakaranámi hjá Sigtryggi Péturssyni bakara er rak brauðgerð um árabil þar á staðnum. Fluttist hann þá til Reykjavíkur og hóf starf hjá brauðgerð Mjólkursamsölunnar, en fram að þeim tíma er hann opnaði sitt eigið bakaraí hafði hann starfað hjá ýmsum fleiri brauðgerðum hér í borg. Árið 1959 setti hann á fót Álf- heimabakarí og rak það til dauða- dags ásamt sonum sínum og fjöl- skyldu. 6. september 1963 stofn- setti hann fyrirtækið Brauð hf. ásamt tveim öðrum bökurum, þeim Óskari Á. Sigurðssyni og Hauki Friðrikssyni, og ráku þeir það sameiginlega fyrstu árin en síðar keypti Kristinn hlut félaga sinna og rak það síðan í samvinnu við fjölskyldu sína. 3. júlí 1948 giftist Kristinn eftir- lifandi eiginkonu sinni, Dýrleifu Jónsdóttur, ættaðri frá Drangs- nesi í Strandasýslu, en hún er dóttir hjónanna Magndísar Ara- dóttur og Jóns Pétur Jónssonar, sem var um árabil Póst og sím- stjóri á Drangsnesi, en jafnframt annaðist hann verkstjórn í frysti- húsinu á staðnum. Þau Kristinn og Dýrleif eignuðust 4 börn talin í aldursröð: Jón Albert, Önnu Kristínu, Kolbein og Laufeyju, en öll hafa þau nú stofnað sín eigin heimili. Synirnir Jón Albert og Kolbeinn hafa rekið fyrirtækin í félagi með föður sínum undanfar- in ár. Hjónaband þeirra Kristins og Dýrleifar hefur verið mjög farsælt frá upphafi og hafa þau verið sam- hent í öllu er við kom rekstri fyrirtækjanna og þá ekki síður því er viðkom heimilinu. Barnabörn þeirra hjóna eru orðin 9 talsins. Kristinn var mikill félagsmála- maður og alla tíð í forystu bakara- meistara, þá var hann einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Kötlu og forseti hans eitt tímabil, einnig var hann mjög virkur félagi í Oddfellowreglunni. Kristinn var góður ræðumaður og alltaf mál- efnalegur í málflutningi sínum, en hann átti einnig létt með að slá á léttari strengi og var þá oft hlegið dátt í kringum hann. Kristinn var frábær stjórnandi og hafði glöggt auga fyrir öllu sem betur mátti fara, enda virtu allir starfsmenn hans hann einlæglega og mátu hans ákvarðanir. Við, sem þetta ritum, viljum færa Kristni innilegustu þakkir fyrir samfylgdina og allar þær stundir er við áttum með honum, á hans alltof skömmu ævi. Þá vilj- um við færa eiginkonu, börnum, systkinum og fjölskyldum þeirra, okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum þeim öllum Guðs bless- unar. Guð varðveiti minningu vors látna foringja. Starfsfólk Brauðs hf. og Álfheimabakaraía. Þegar sú fregn barst mér að Kristinn K. Albertsson bakara- meistari væri látinn, setti mig hljóðan. Ég kynntist Kristni fyrir 15 árum er kona mín vann í fyrir- tæki hans, síðar er varð ég félagi í Kiwanisklúbbnum Kötlu endur- nýjuðust kynni okkar. Kristinn gerðist félagi í Kötlu fljótlega eft- ir stofnun klúbbsins 1966 og gegn- di þar ýmsum trúnaðarstörfum, var hann forseti Kötlu 1972—1973 og svæðisstjóri 1973—1974, þá tók hann virkan þátt í þingum Kiwan- ismanna hér á landi og erlendis. Einnig átti Kristinn mikinn þátt í stofnun nýrra klúbba víðsvegar um landið, og var til þess tekið hve mikinn áhuga hann hafði fyrir efl- ingu og útbreiðslu Kiwanishreyf- ingarinnar. Ég minnist þess at- burðar er Kiwanismenn fóru til Færeyja vorið 1981 til að kynna sér grundvöll fyrir stofnun Kiw- anisklúbbs þar, þá varð það mitt hlutskipti að fara í þágu Kötlu. Ég var hálf kvíðinn vegna þessa ferðalags og leitaði því til eldri og reyndari félaga í klúbbnum m.a. til Kristins og bað hann að gefa mér í ferðanesti eitthvað sem að gagni gæti orðið. Var það sjálf- sagt, og hann sagði: „Vertu sjálf- um þér samkvæmur, komdu fram af hreinskilni og minnstu ein- kunnarorða Kiwanis „Við byggj- um“ fyrir þig sjálfan og fyrir aðra og þá mun þér vel farnast." Var ég honum þakklátur fyrir þessi orð sem dugðu mér vel. Þótt Kristinn gæti ekki starfað að fullu með okkur í Kctlu síðari ár vegna anna, þá var hugur hans ávallt með okkur, því hann var einlægur Kiwanismaður. Það er víst að í fé- lagsskap sem Kötlu tengjast menn sterkum vináttuböndum, og er því öllum mikil eftirsjá að góðum fé- laga. En minningarnar eru marg- ar og munum við geyma þær með okkur um ókomin ár. Ekki er það ætlun mín að rekja ættir Kristins, heldur að þakka fyrir góð kynni og ánægjulegar samverustundir á liðnum árum með Kötlufélögum. Með Kristni K. Albertssyni er fall- inn frá góður drengur. Kristinn var kvæntur Dýrleifu Jónsdóttur. Fyrir hönd Kiwanisklúbbsins Kötlu sendi ég, og kona mín, Dýr- leifu og börnum þeirra hjóna okkar dýpstu samúðarkveðjur. Trausti Jóhannsson, forseti Kötlu. í þessu fámenna þjóðfélagi okkar er það þungbært og sárt þegar öndvegis- og atorkumenn falla frá langt um aldur fram. Kristinn Kolbeinn Albertsson lést þann 28. júlí síðastliðinn, að- eins 56 ára að aldri. Kristinn var öðlingur í allri framkomu og viðkynningu. Hann var forkunnar duglegur maður allt sitt líf og það sem hann tók sér fyrir hendur var gert af mynd- arskap og atorku. Fyrir nokkrum árum fann Kristinn fyrir sjúkdómi þeim sem hann þurfti síðan að berjast við. Það var erfitt fyrir annan eins framkvæmdamann og hann að sætta sig við, því vinnusemin og áræðið var með ólíkindum. Hann gat ekki setið auðum höndum jafnvel þótt hann vissi að starf- semin væri í öruggum höndum sona sinna og fjölskyldu. Mér er það ljúft og skylt að nefna hér Dýrleifu, konu hans, sem með ósérhlífni og kærleika hefur staðið við hlið manns síns alla tíð. Ég kynntist þessari fjölskyldu fyrir rúmum 15 árum. Strax þá og ætíð síðar tók Kristinn mig sem eitt af sínum börnum. Eg er þakklátur og hreykinn fyrir að hafa kynnst og lifað með þeim sómamanni sem tengdafaðir minn var. Hann var börnum okkar ein- staklega hugulsamur og góður afi og nú þegar þau ekki lengur fá notið samveru hans og hlýju munu yndislegar minningar vera með þeim um ókomin ár. Guð blessi lífs þíns brautir þitt banastríð og þrautir og starfs þíns mark og mið. Við hugsum til þín hljóðir.— Að hjarta sér vor móðir þig vefur fast og veitir frið. (E.B.) Vilberg Vilbergsson Hatur og elska Eg á ættingja, sem reyndi að sýna mér yfirgang. Hvernig á eg að losna við illan hug, sem eg ber til lians? Eg hata þennan mann. Mér tekst ekki að breyta hugarfari mínu. Fátt veldur eins miklu tjóni á heilsu og hamingju og hatrið. Enginn hefur efni á að hata, hversu mikið fé sem er í húfi! Hatrið breiðist út eins og krabbamein og sýkir líkama og sál. Enginn getur keypt sér nýjar taug- ar eða látið gera við skaddaða sál fyrir peninga. Ráðið við hatri er kærleikur. Kærleikur er gjöf frá Guði. Hvernig getum við öðlazt kærleika Guðs? Byrjið á því að játa hatur yðar fyrir Guði! Segið honum, að þér hafið tekið skakka stefnu, að þér hafið „misst marks“, hafið syndgað. Þá mun Guð, vegna Krists, eyða hatrinu úr hjarta yðar og setja þar kærleika sinn í staðinn. Farið þvínæst til ættingja yðar og biðjið hann fyrir- gefningar. Þetta er leiðin til hamingju, ráðið til að halda góðri heilsu og til þess að þér fáið yðar hlut í arfinum. Avinningur elskunnar er ætíð meiri en ávinningur hatursins, á öllum sviðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.