Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 Einar Vilhjálmsson: „Ég ætla að ná þeirri fullkomnun í spjótkasti sem ég mögulega get“ Sjaldan fellur epliö langt frá eikinni, segir máltækiö, og víst er þaö rétt þegar maöur lítur til afreksmannsins Einars Vilhjálmssonar sem hefur á þessu ári skotist upp á frægöarhimininn í íþróttunum. Einar er nú einn af tíu bestu spjótkösturum heims. Einar er sonur Vilhjálms Einarssonar; skólameistara á Egilsstööum og konu hans, Gerðar Unndórsdóttur. Vilhjálmur Einarsson er einn mesti afreksmaóur sem Islendingar hafa eignast í íþróttum og vann til silfurverölauna á Ol-leikunum í Melbourne í Ástralíu 1956 í þrístökki. Þá átti Vilhjálmur um tíma heimsmetsjöfnun í þrístökki, 16,70 m. í gærdag hélt Einar Vilhjálmsson utan til Finnlands til þess aö taka þátt í fyrsta heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Helsinki. Einar mun á miðvikudag keppa í undanrásunum og ef hann kemst í aðalkeppnina þá keppir hann til úrslita á föstudaginn. Einar hefur kastaö 90,66 metra á árinu og er yngsti maðurinn sem vitað er um sem kastað hefur spjóti yfir 90 metra. Einar er fæddur í Reykjavík 1. júní árið 1960. Þaö var vel vió hæfi að spjalla viö þennan unga afreksmann áður en hann hélt utan í sína stærstu keppni til þessa og láta hann segja örlítið frá sjálfum sér. Kynntist öllum íþróttagreinum — Ég hóf ungur aö æfa íþróttir, faöir minn var með sumarbúöir í Reykholti og þar stunduðum viö bræöurnir allar greinar íþrótta en mest þó knattleiki. Pabbi lagöi áherslu á aö viö fengjum að kynn- ast sem flestum greinum og lagöi höfuöáhersluna á aö viö heföum gaman af þessu. Hann ýtti aldrei á eftir okkur og fyrir hann var þaö ekkert kappsmál aö viö stunduö- um iþróttir. Þetta kom bara allt af sjálfu sér. — Sextán ára gamall tók ég þátt í frjálsíþróttamóti í Borgarfiröi og keppti þá í öllum greinum, lá viö. Ég man eftir því aö í spjótkast- inu kastaöi ég kvennaspjóti og kastaöi þá 57,80 metra. Á þessum árum tók ég þátt í ýmsum mótum á vegum UMSB og haföi gaman af. En knattleikirnir áttu þó hug minn allan. Ég lagöi stund á handknatt- leik. Ég stundaði nám viö fjöl- brautaskólann í Breiðholti og lék þá um tíma meö meistaraflokki KR. Hætti öllum íþróttum — Á árunum 1978—79 hætti ég alveg í íþróttum. Ég var aö Ijúka stúdentsprófi og útskrifaöist voriö 1979. Ástæöan fyrir því aö ég hætti var meðal annars sú aö sumariö á undan haföi ég lagt spjótkastiö fyrir mig en ekki geng- iö of vel. Ég kastaöi 67,36 en meö því aö æfa vel bætti ég mig upp í 68,82 metra. Þetta var ég frekar óánægöur með. Sumariö 1980 hóf ég æfingar í spjótkasti aftur og gekk nokkuó vel um sumariö. Ég bætti árangur minn í öllum mótum sumarsins og var ánægöur með þaö. Árangur minn var þessi: 63,70, 70,18, 73,26, 75,56, og á síðasta mótinu, sem var Noröurlandameistaramót unglinga í Malmö, kastaöi ég 76,76 metra og setti nýtt íslandsmet. Eft- ir aö ég vann þennan titil geröi ég þaö upp viö mig aö ég myndi ein- beita mér aö þessari íþróttagrein. Kastaöi 81,22 árið 1981 — Ég æföi nokkuö vel um vet- urinn og reyndi aö undirbúa mig af kostgæfni fyrir sumariö. Þetta sumar var ég við vinnu á Eddu hót- elinu í Reykholti og átti ekki gott meö aö æfa mikið. En ég reyndi aö fremsta megni aö samhæfa æf- ingar og mikla vinnu. Þá átti ég viö meiösli aö stríöa og keppti ekki oft þetta sumar. En mér tókst þó aö bæta árangur minn. Á meistara- móti íslands setti ég nýtt íslands- met og kastaöi 81,22 metra. Þetta sumar stóö ég á tímamótum. Ég var búinn aö gera þaö upp viö mig aö fara í læknanám viö Háskólann hér heima og var búinn aö innrita mig í læknadeildina. En þá skipaö- ist veöur i lofti. Fékk tilboö frá Texas — í lok sumarsins fékk ég bréf frá háskólanum í Austin í Texas, Efni bréfsins var á þá leið að mér var boöiö aö stunda nám viö skól- ann mér aö kostnaöarlausu, og jafnfram boöiö aö keppa fyrir hönd háskólans í frjálsum íþróttum. Ég kannaöi þetta mál vel og náms- styrkur sá sem mér var boöinn var svo freistandi að ég sló til. Þetta sama haust fór ég utan til Texas og innritaöist í háskólann í læknis- fræöi. Þetta var viöburöaríkt sumar fyrir mig. Ég kastaði vel yfir 80 metra í spjótinu, fékk námsstyrk frá háskóla í Bandaríkjunum og síóast en ekki síst kvæntist ég unnustu minni. Árangur Einars • Árangur Einars Vil- hjálmssonar í spjótkasti frá upphafi: 1976: 52,48 m 1977: 59,72 m 1978: 67,36 m 1979: 68,82 m 1980: 76,76 m 1981: 81,22 m 1982: 80,64 m (meiddur) 1983: 90,66 — ÞR Mikil viöbrigöi að æfa í Texas — Ég fór utan til náms og æf- inga haustið 1981. Þaö voru mikil viöbrigöi fyrir mig aö hefja nám og æfingar viö háskólann í Austin. Álagiö á mér var tvöfalt. Námiö var mjög erfitt og framan af haföi ég frekar lítinn tíma til þess aö stunda æfingar. En meö því aö nýta tím- ann eins vel og kostur var og skipuleggja hverja stund þá tókst þetta. — islendingar voru vel kynntir viö skólann í Austin, og þaö hjálp- aöi verulega. Óskar Jakobsson sem veriö haföi þar viö nám var búinn aö vera góö landkynning. Hann vakti mikla athygli fyrir góöa frammistöðu í kastgreinum og jafnframt vegna þess hversu fjöl- hæfur kastari hann var. Óskar keppti í spjóti, kringlu og kúluvarpi meö mjög góöum árangri og náði í mörg stig fyrir skólann í hinum ýmsu keppnum. Þá þótti hann til mikillar fyrirmyndar hvaö alla framkomu snerti. Þetta átti líka viö um aöra íslenska íþróttamenn sem þarna höföu stundaó nám. — Ég þakka þessu ekki síst aó ég fékk tækifæri til þess aö stunda nám viö skólann. Þaö er ekki lítils viröi í dag aö fá allan námskostnaö greiddan þegar maöur er viö nám í bandarískum háskóia. Meiddist í olnboga — Ég varö fyrir því óhappi aö meiöast í olnboga þennan vetur • Einar Vilhjálmsson er mikill keppnismaður og ekki ósjaldan í mót- um hefur hann tryggt sér sigurinn í síöasta kasti. Hér er Einar aö undirbúa sitt síöasta kast í sex landa keppninni í Edinborg. En þá kastaði hann 88,54 metra og sígraöi meö miklum yfirburðum. Morgunbiaðið/Þórarinn Ragnarsson. • Einar Vilhjálmsson, yngsti maöurinn í h< laga stíl minn í spjótkasti meö innhverfri fl viö æfingar, og þaö setti strik í reikninginn. Ég náöi þó því aö veröa í fimmta sæti á bandaríska háskólameistaramótinu, kastaöi þá 78,68 metra. Þegar ég kom heim um sumariö fór ég aö vinna í byggingarvinnu og gat lítiö æft, en hélt mér þó vel viö. Þegar ég fór aö skána í olnboganum fór ég aö kasta örlítið og náöi lágmarkinu til þess aö fara á Evrópumeistaramótiö í Grikk- landi. — Evrópumótiö í Grikklandi var í raun fyrsta stórmótiö sem ég tók þátt í og á því móti náöi ég mér í dýrmæta reynslu. Þar gerði ég líklega öll þau mistök sem en.n maöur getur gert á stóru móti. Þau mistök koma ekki fyrir aftur. En þarna fékk ég hinsvegar tækifæri til aö horfa á flesta bestu spjót- kastara heimsins. Af því læröi ég mikið. Uppfullur af hugmyndum — Þegar ég fór aftur utan tii náms haustió 1982 var ég uppfull- ar af hugmyndum um tækni, út- færslu o.fl. Ég lagói mig þá allan fram um aö ná réttri tækni því aö það er svo geysilega mikilvægt aö tæknin sé góö. Innhverf íhugun — I heilar tvær vikur lagöi ég mig allan fram um að skynja rétta tækni og ég einbeitti mér aö því aö fá tilfinningu fyrir réttri útfærslu. Þetta geröi ég meö innhverfri íhug- un og meö því aö liggja langtímum saman yfir myndsegulböndum þar sem ég skoöaöi kaststíl minn. Þá fékk ég þaö smátt og smátt inn í hugann hvernig ég gæti lagaö stíl minn. Þá ráöfæröi ég mig viö þjálf- ara minn. Spjótkast er fyrst og fremst tæknigrein en ekki afl- raunagrein. Spjótkastiö gerir kröfu um liöleika og samstillt átak. — Þá er afar mikilvægt, og á þaö hef ég lagt áherslu, aö í at-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.