Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÁGÚST ÁSGEIRSSON Kosningar f skugga mikilla efnahagsörðugleika í Nfgeríu Og við því er búist að Þjóðar- flokkurinn verði hlutskarpastur nú, en auk þess er baráttan um forsetastólinn þó fyrst og fremst talin standa milli Shagari, sem er 62 ára, Obafemi Awolowo, hins 74 ára leiðtoga Einingar- flokksins, en hann hefur í 40 ár verið í fremstu línu í nígerískri pólitík, og Nnamdi Azikiwe, hins 78 ára leiðtoga nigeriska Al- þýðuflokksins, en hann var fyrsti forseti landsins. Shagari sækir fylgi fyrst og fremst til norðurhluta Nígeríu, þar sem fyrst og fremst búa menn af Hausa-fulani ætt- flokknum, en þeir eru múham- eðstrúarmenn. Fylgi Awolowo er fyrst og fremst á svæðum Yoru- ba í suðvesturhluta landsins, þar sem stærstur hluti íbúa eru kristnir menn, en Azikiwe á mestu fylgi að fagna á svæðum kristinna manna í austurhluta landsins, þar sem áður var Biafra. Svik og prettir? Allir flokksleiðtogar hafa beint og óbeint sakað hvorn ann- an um tilraunir til að hagræða úrslitum eða vera með áform þar að lútandi. Einkum er ágreining- ur um fjölda kjósenda og sagði kosningastjóri Einingaflokksins til dæmis að milljónir drauga- nafna væru í kjörskrám. Var flokki Shagari forseta kennt um, en fulltrúar hans vísuðu þessum ásökunum á bug. Þó vekur það kosningabaráttunnar að reyna að tryggja heiðarlegar kosn- ingar, því fátt virtist flokkana greina á um samkvæmt stjórn- málayfirlýsingum þeirra vegna kosninganna. Engar stefnuskrár Reyndar er eins og flokkarnir hafi komist að samkomulagi um að óþarfi væri að leggja mikið í stefnuskrár, þar sem mestur hluti kjósenda væri hvort eð er ólæs. Betra væri að gefa munn- leg kosningaloforð, því þau væri auðveldara að svíkja. Einn flokkanna var t.d. ekkert að hafa fyrir því að gefa út stefnuskrá og skrár hinna voru fátt annað en ljósmyndir. Stefnan sem fram kom í þeim flestum er nánast sú sama. Erfiðir tímar Kosningarnar fara fram á erf- iðum tímum. Harðar efnahags- aðgerðir hafa leitt til skorts á matvælum og öðrum nauðsynj- um. Verðhækkanir hafa verið gífurlegar á síðustu mánuðum, einkum á hlutum sem erfitt er að verða sér úti um, t.d. hafa hjólbarðar sjöfaldast í verði frá í fyrrasumar. Þá telur alþýðu- samband landsins, en innan þess eru 47 verkalýðsfélög, að fimmt- ungur meðlima hafi verið sagt upp störfum frá í fyrrasumar. Efnahagur Nígeríu er í mesta ólestri, fyrst og fremst vegna minni tekna af olíuútflutningi, og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væri löngu búinn að taka í taum- ana ef kosningarnar hefðu ekki verið i aðsigi. Búist er við að stofnunin gefi út lyfseðil að þeim loknum, þar sem helzta meðalið verður verulegur niðurskurður opinberra útgjalda, afnám niðurgreiðslna á matvælum, af- nám verðhafta og, eins og jafn- an, gengisfelling. Efnahagsvandræði Nígeríu eru hluti af enn stærra vanda- máli flestallra Afríkuþjóða, vítahringur fátæktar gerir ál- funni enn erfiðara að brauðfæð- ast. Fyrir 30 árum, eða um 1950, voru Afríkumenn sjálfum sér nógir í matvælum, en 1978 urðu þeir að flytja inn 12 milljónir smálesta af kornmat og 1990 er talið að þörfin verði 45 milljónir lesta, þar af þurfi Nígeríumenn að flytja inn 15 milljónir lesta af korni. Af þessum sökum eru Nígeríu- menn taldir í auknum mæli þurfa á ölmusugjöfum að halda, þeir muni ekki hafa efni á að borga nema lítinn hluta af raun- verði innfluttra nauðsynja. Eins og aðrar þjóðir álfunnar stefna þeir í enn meiri skuldir og eiga því undir höfði að verða enn háð- ari öðrum. Af þessum sökum er því spáð að í uppsiglingu sé ný „nýlenduvæðing" í Afríku, gjald- þrota ríki með sveltandi munna muni reynast tilbúin til að gjalda það stórum að fá skips- farma af hrísgrjónum, hveiti og olíu. Spilling Vaxandi óánægja og óþolin- mæði gerir vart við sig í Nígeríu vegna augljósrar spillingar. íbú- ar gera sér í auknum mæli grein fyrir því að fyrir stjórnmála- mennina er pólitíkin aðferð til að auðgast. Hún veiti aðgang að hinni opinberu hít. Margir stjórnmálamannanna eru orðnir milljónerar og einkaþotur hafa tekið við af Mercedes-bílum sem stöðutákn. f hæðni er sagt að þingmaður sé sá sem býr í húsi sem ríkið mubbli upp, og leiti sér að auðgunarsamningum í vinnu- tíma en semji lög í frítíma. Og sagt er í gamni um stjórnina að í henni séu verktakar, sem stöð- ugt séu í leit að verkefnum fyrir sig og sina. Ættflokkahollusta Þegar á reynir má út frá því ganga að Nígeriumenn haldi tryggð við ættflokka sína, og að ættflokkatryggð hafi ráðið úr- slitum að þessu sinni, þó kjós- endur hafi geta borið saman fer- il flokkanna síðustu fjögur árin. Einnig má búast við að aðsetur og trúmál hafi haft sín áhrif á kosningarnar. Ættflokkaskiptingin setti sitt mark á kosningabaráttuna, því allir flokkarnir biðluðu óspart til ættflokkanna með loforðum um að fjölga fylkjum og veita hinum ýmsu ættbálkum meira sjálf- ræði. í framhaldi af þessu hefur verið lögð inn 51 beiðni um stofnun nýrra fylkja í Nígeríu. Það kemur sér kannski vel fyrir væntanlega sigurvegara að hafa ekki gefið of mikið af skriflegum loforðum, og eins mun það áhrif hafa á framvindu þessa máls, svo og ýmissa annarra, hvernig til hefur tekist að tryggja heið- arlegar og réttlátar kosningar. (Byggt á Obtierver, New York Times og Newsweek.) KOSNINGARNAR, sem hófust í Nfgeríu um helgina munu standa næstu þrjár helgar, og verður því ekki Ijóst fyrr en í byrjun næsta mánaðar hver með völd fer í landinu næstu fjögur árin. Nígería er eitt auðugasta ríki Afríku en á samt við gífurlegan efnahagsvanda að stríða, erlendar skuldir nema 10 milljörðum sterlingspunda, eða rúmum 400 milljörðum króna. Og það er m. a. vegna þessara gífurlegu skulda sem sérfræðingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington bíða útkomu kosninganna, en í septemberbyrjun munu þeir setja nýjum valdherrum vissar leikreglur, sem líklega munu koma enn meira við kauninn á 100 milljónum þegna landsins en kosningaloforð stjórnmálamannanna. ess vegna segja Nígeríu- menn að það verði ekki þjóð- in sem sigri í þessum kosningum eins og í kosningunum 1979, en þá fengu Nígeríumenn lýðræð- islega kjörna stjórn eftir 13 ára herstjórn. Sex flokkar taka þátt í kosn- ingunum nú, en á kjörskrá eru um 65 milljónir. Flokkarnir eru Þjóðarflokkur Nígeríu (NPN), Alþýðuflokkur Nígeríu (NPP), Alþýðuflokkur Stór-Nígeríu (GNPP), Þjóðfrelsisflokkurinn (PRP), Einingarflokkur Nígeríu (UPN) og Framfaraflokkur Níg- eríu (NAP). Jafnframt því sem kosið er til þings eru kosnar stjórnir fylkj- anna 19 og fulltrúar á þing þeirra. í kosningunum 1979 náði flokkur Shehu Shagari forseta, Þjóðarflokkur Nígeríu, yfirhönd- inni í þingi landsins og sjö fylkj- um. Einingarflokkurinn sigraði í fimm fylkjum og hinir flokkarn- ir náðu völdum í a.m.k. tveimur fylkjum hver. furðu að kjósendum hefur fjölg- að um 34% frá 1979, samkvæmt kjörskránum. Hefur þeim fjöl- gað mjög misjafnt eftir svæðum og hafa flokkarnir krafist skýr- inga á þeim mismun. I einu fylki hefur þeim til dæmis fjölgað um 94% en fækk- að um 12% í öðru. Og Bola Ige, fylkisstjóri í Oyo, segir að í einni borg fylkisins séu 52 þúsund manns á kjörskrá þótt íbúar hennar séu aðeins 15 þúsund talsins. Þegar kjörskráin var fyrst birt í apríl sl. varð uppi fótur og fit þegar mjög margir uppgötvuðu að þar var nöfn þeirra ekki að finna. Mbakwe fylkisstjóri í Imo fann til dæmis ekki sitt nafn í henni eða nöfn 500 annarra ættmenna, og gerði veður út af því. Af framansögðu þykir ljóst að svik og prettir hafi verið hafðir í frammi kosningunum, þrátt fyrir heitstrengingar flokksleið- toganna um að tryggja réttlátar kosningar. Var það eitt aðalmál Olíuhreinsunarstöð í Warri f Nígeríu. 17 Útsala - - Útsala I I Mikill afsláttur. Glugginn I Laugavegi 49. % í DAG kynnum við System 2 veggeiningarnar sem gefa þér jafn- marga möguleika til aö gera fallegu stofuna þína fallegri en hugmyndaflug þitt nær. Þetta eru skápaeiningar í stæröun- um H87xB82xD38 cm og H87xB50xD38 cm, sem má raöa hliö viö hliö eöa ofan á hver aöra, — allt eftir þvi hvaö er nauðsynlegt og snoturt. System 2 er viöurkennd gæöavara — meö 3ja ára ábyrgö á smíði, og skáparnir fást í beyki, dökklitu kótó, mahony, beyki meö rauðum eöa hvítum hurð- um og svo alveg hvítir. Þaö er engin tilviljun aö System 2 skáparnir eru mest seldu einingaskápar á Norðurlöndum. Þú getur keypt þá smám saman eftir því sem þörf þin vex. Nr. 36: reol Nr. 38: kommode Nr. 34: hi-fi element Nr. 29: skab s I Nr. 22: vitrine Nr 28: kommode Nr. 20: skab Aðeins 25% útborgun og eftirstöðvar á 6—8 mánuðum Líttu inn. Það borgar sig HÚSGAGNAHÖLLIN BlLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.