Morgunblaðið - 09.08.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
Frjósemi íslensku
minkanna svipuð og
í nágrannalöndunum
Þrátt fyrir veirusjúkdóm sem herjar á stofninn
FRJÓSEMI minka á íslensku
minkabúunum er í ár 3,56 hvolpar á
hverja ásetta minkalæðu að meðal-
tali yfir allt landið, að sögn Sigur-
jóns Bláfelds, loðdyraræktarráðu-
nauts Búnaðarfélags Islands. í fyrra
var frjósemin heldur betri, eða 3,9
hvolpar að meðaltali.
Beið bana
MAÐURINN sem lést í umferð-
arslysi í Garðabæ síðastliðið
fimmtudagskvöld, hét Bjarni Þór
Magnússon, sjómaður, til heimilis
að Hvanneyrarbraut 83 á Siglu-
firði. Hann var fæddur í Vattar-
nesi við Reyðarfjörð 24. september
1933. Hann lætur eftir sig tvær
uppkomnar dætur.
Þrátt fyrir að stór hluti íslenska
minkastofnsins sé sýktur af veiru-
sjúkdómi sem hefur áhrif á frjó-
semi dýranna, þá er frjósemi
minkanna hér á landi svipuð og í
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi eftir
þeim upplýsingum sem Sigurjón
hefur aflað sér, en þar er hún 3,3
til 3,4 hvolpar að meðaltali á
hverja ásetta læðu. En Danir
skera sig úr með langbestan ár-
angur af Norðurlandaþjóðunum
með hvolpi meira að jafnaði á
hverja ásetta læðu, eða 4,5 hvolpa.
Loðfeldur á Sauðárkróki náði
bestri frjósemi af minkabúunum,
4,2 hvolpum, en þar var skipt um
stofn í vetur og allar læðurnar á
fyrsta ári. Árangurinn á Sauðár-
króki lofar því góðu með frjósemi
nýja stofnsins. Grávara á Greni-
vík var með næstbestu frjósemina,
eða 4 hvolpa að jafnaði. Frjósemin
þar var best yfir landið áður, eða
4,6 hvolpar að jafnaði, en eitrun
kom upp í búinu í sumar svo að
margir hvolpar drápust. Stærsta
minkabú landsins, sem er á
Böggvistöðum á Dalvík, var með
þriðju bestu frjósemina, 3,5
hvolpa að meðaltali á hverja
ásetta læðu. Minnsta frjósemin á
þessu ári reyndist vera á minka-
búinu við Höfn í Hornafirði, að-
eins 2,2 hvolpar að meðaltali, en
það bú varð fyrir miklu tjóni í vor
er margir hvolpar drápust eins og
komið hefur fram í Mbl., en ann-
ars hefði búið náð 3,7 hvolpum
sem er vel yfir meðallagi.
Strokufanginn, sem tekinn var í Breiðholti, stígur upp í bifreið Rannsóknarlögreglu ríkisins. Mynd Mbl. Emilía
Strokufangar gómaðir
FANGARNIR, sem struku af á milli klukkan 19 og 20 á föstu- gærmorgun. Skömmu síðar
Litla Hrauni á föstudagskvöldið, dagskvöldið og var eftirgrennsl- fannst hinn fanginn. Þeir hafa
voru gómaðir í Reykjavík í gær. an hafin þá þegar um kvöldið. nú verið fluttir að Litla Hrauni.
Fangarnir struku í útivistartíma Annar fannst í húsi í Breiðholti í
Friörik Ólafsson um deilur innan FIDE:
„FIDE riðar til falls, ef
fram heldur sem horfir“
Harður
árekstur
Morgunblaðið/ Július
HARÐUR árekstur varð á gatnamótum Vesturlandsvegar og Höfðabakka
laust fyrir klukkan fimm á laugardag. Fólksbifreið var ekið norður Höfða-
bakka yfir gatnamótin í veg fyrir pallbifreið, sem ekið var austur Vestur-
landsveg. Bifreiðarnar skullu harkalega saman, köstuðust á umferðarvita og
valt fólksbifreiðin. Ökumaður fólksbifreiðarinnar var fluttur í slysadeild en
meiðsli hans munu ekki talin alvarleg. Gul Ijós loguðu á umferðarvitunum
þegar óhappið átti sér stað og gilti því umferðarréttur. Biðskylda er á
Höfðabakka. Umferðarvitarnir eyðilögðust og logaði því ekki á þeim það sem
eftir lifði helgarinnar. Þetta varð til þess að tveir árekstrar urðu á gatnamót-
unum, en í hvorugu tilvikinu urðu slys á fólki.
„ÞAÐ ER Ijóst aö deilur innan
FIDE hafa nú magnast um allan
helming og FIDE riöar til falls
ef svo heldur fram sem horfir,"
sagði Friðrik Ólafsson, fyrrum
forseti FIDE, Alþjóöaskáksam-
bandsins í samtali viö Mbl.
vegna þeirrar ákvörðunar Flor-
encio Campomanesar, forseta
FIDE, að dæma Garry Kasparov
úr leik þar sem hann mætti ekki
til einvígis gegn Viktor Korchnoi
í Pasadena í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum.
„Báðir aðilar hafa sýnt óbilgirni
og virðist mér einsýnt að eitthvað
meira liggi að baki þessum deilum
nú, en af yfirborðinu verður séð.
Ef til vill hafa Sovétmenn nú séð,
að þeir keyptu köttinn í sekknum
þegar þeir studdu Campomanes til
forseta FIDE og vilja setja honum
stólinn fyrir dyrnar.
Campomanes hefur haft uppi
tilburði sem Sovétmönnum virðist
erfitt að þola. Heima fyrir er hann
vanur að menn fylgi i einu og öllu
boðum hans og bönnum, en úti í
hinum stóra heimi verður hann að
lúta öðrum lögmálum og hann
virðist eiga í erfiðleikum með að
aðlaga sig þessum breyttu aðstæð-
um. Ljóst er, að Campomanes virti
óskir þeirra Korchnois og Kasp-
arovs um einvígisstað að vettugi.
Sovétmenn hafa borið við hitum
og ófullnægjandi öryggisráðstöf-
unum í Pasadena. Hvort það er
einu skýringarnar á ákvörðun
þeirra skal ósagt látið, en höggva
hefði mátt á þennan hnút ef ein-
lægur áhugi beggja aðila hefði
verið fyrir hendi.
Kasparov hefur látið þá skoðun
í ljósi, að ólíklegt sé, að Karpov
mæti til leiks gegn Ribli eða
Korchnoi. Svo gæti farið að Cam-
pomanes lýsi Korchnoi heims-
meistara. Það yrði kaldhæðni ör-
laganna, því þeim er lítt til vina
eftir einvígi Karpovs og Korchnois
á Filippseyjum. Eftir það sakaði
Korchnoi Campomanes um undir-
lægjuhátt við Rússa. Allt um það,
þá er ljóst að þetta mál verður
ofarlega á baugi á þingi FIDE í
Manila í haust og þar getur allt
gerst," sagði Friðrik Ólafsson.
Skákmótið í Gausdal:
Margeir Pétursson
með fjóra vinninga
MARGEIR PétursHon hefur hlotið 4
vinninga aö loknum 7 umferöum á
alþjóölega skákmótinu í Gausdal í
Vorum vissir um að okk-
ur tækist að fínna vélarnar
— segir Arngrímur Hermannsson, einn leitarmannanna
„VIÐ VORUM eiginlega aldrei í vafa um að okkur tækist aö finna
vélarnar, þaö er að segja, að því gefnu að við værum að leita á réttu
svæði. Radarinn sem við notuðum er fullkominn og hentar mjög vel við
þær aöstæður sem þarna eru,“ sagði Arngrímur Hermannsson, röntgen-
tæknir, einn þremenninganna sem fóru á Grænlandsjökul nýlega í þeim
tilgangi að leita að átta flugvélum sem nauölentu á vesturströnd Græn-
lands í seinna stríði, en leiðangur undir stjórn Alaskabúans Norman
Waughan hefur leitað vélanna í sumar, og gekk hvorki né rak fyrr en
íslendingarnir komu á vettvang. Hinir íslendingarnir tveir eru Helgi
Björnsson, jarðeðlisfræðingur og Jón Sveinsson, rafmagnstæknifræðing-
„Þeir hafa varla verið með
nógu góðan radar," sagði Arn-
grímur. „Tuttugu manna leitar-
flokkur reyndi fyrst í þrjár vikur
að staðsetja vélarnar en án ár-
angurs. Þá var kafbátaradar
reyndur, en allt kom fyrir ekki.
Við komum okkur þá í samband
við leitarflokkinn og buðum
fram aðstoð okkar. Miðvikudag-
inn 27. júní flugum við til Græn-
lands og byrjuðum að leita
klukkan þrjú samdægurs. Strax
þá um daginn urðum við varir
við endurkast, sem virtist geta
verið frá tveimur flugvélum. Um
helgina grófleituðum við síðan á
öðru svæði og fengum þá margar
svaranir. Miðvikudaginn 3. ágúst
vorum við endanlega vissir um
að þetta væru flugvélarnar átta,
enda var fullkomið samræmi á
milli loftmynda sem til voru af
vélunum og þeirra merkja sem
við greindum."
Tækið, sem þeir félagar not-
uðu, er sérhannað af Raunvís-
indastofnun Háskóla íslands, og
hafa þeir Helgi og Jón átt drjúg-
an þátt í hönnun þess. Það er
sérstaklega gert til að rannsaka
botn jökla, einkum þíðjökla. Það
drífur tvö til fjögurhundruð
metra til beggja handa og eins
langt niður og með þarf! Það get-
ur þó ekki sagt nákvæmlega
fyrir um dýpt þeirra hluta sem
það nemur, en rannsóknir fs-
lendinganna bentu til að vélarn-
ar væru á u.þ.b. 27 metra dýpi.
Vélarnar fundust í 5 km fjar-
lægð frá bækistöðvum leitar-
manna, í um 800 metra hæð, 5
km frá jökuijaðri til móts við
eyna Danneborg.
Noregi. Hann varð að sætta sig við
jafntefli við finnska stórmeistarann
Westerinen eftir II tíma setu yfir
skákborðinu og þegar kapparnir
höfðu leikið 88 leiki. í 5. umferð
vann Margeir bandaríska alþjóðlega
meistarann Bass í 22 leikjum en tap-
aði fyrir Plaskett frá Englandi í 6.
umferð.
í gær tefldi Margeir svo við
sænska alþjóðlega meistarann
Axel Ornstein og bar sigur úr být-
um. Hann hefur því 4 vinninga, en
efstir eru Kudrin frá Bandaríkj-
unum og Mykop frá Finnlandi með
5 vinninga. Þeir eiga innbyrðis
biðskák og hefur Kudrin góða
vinningsmöguleika.
Árni Þ. Árnason og Hilmar
Karlsson hafa 2'k vinning að
loknum 7 umferðum. Árni gerði
jafntefli við Lind í 5. umferð, tap-
aði fyrir Anders Lundin í 6. um-
ferð en vann Norðmanninn Bards-
en í 7. umferð. Hilmar tapaði fyrir
Westerinen í 5. umferð, gerði jafn-
tefli við alþjóðlega meistarann
Burger í 6. umferð en tapaði fyrir
Lundin í 7. umferð. Báðir höfðu
þeir Árni og Hilmar mun betri
stöðu gegn Lundin, en léku sig
bókstaflega í mát á heldur slysa-
legan hátt.