Morgunblaðið - 09.08.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
15
undum og verkalýðsforingjum, á
öllum listunum voru yfirlýstir al-
þýðubandalagsmenn í meirhluta.
Þá vakti ávarp frá kvennafram-
boðinu í Reykjavík nú athygli. Það
var samið með orðalagi sem tíðk-
aðist á tímum kalda stríðsins. Til
marks um það má birta þetta:
„Fólk um allan heim ber ugg í
brjósti vegna framtíðar mann-
kynsins, en íslensk stjórnvöld láta
sér fátt um finnast, klingja glös-
um og hengja orður á aðmírála.
Riddarar ömurleikans kasta fjör-
eggi heimsins á milli sín, njósnar-
inn fyrrverandi í austri og kúrek-
inn í vestri, en íslenskir ráðamenn
horfa á í andakt." Kvennafram-
boðið hvatti síðan til þess að
mynduð verði öflug friðarhreyfing
hér landi meðal annars með því
„að taka undir kröfur erlendra
friðarhreyfinga".
Guðmundur Georgsson, lækn-
ir, einn af forvígismönnum
SHA sagði í Þjóðviljanum 17.
október 1981: „Samtök herstöðva-
andstæðinga (SHA) hafa ekki
breytt um stefnu og þau eru ekki
orðin félagsskapur friðarsinna."
Þegar sýnd var mynd af friðar-
göngunni ’83 í sjónvarpinu á laug-
ardagskvöld hrópuðu göngumenn:
„ísland úr NATO — herinn burt!“
Hvað sem þeirri viðleitni SHA líð-
ur að tengja starfsemi sína bar-
áttu erlendra friðarhreyfinga er
meginmarkmið samtakanna enn,
að Island verði varnarlaust og ís-
lendingar rjúfi einhliða samstöðu
lýðræðisþjóðanna í öryggismálum.
Á vegum sagnfræðistofnunar
Háskóla íslands ritaði Hafsteinn
Karlsson um samtök gegn hern-
um. Telur hann fjórar hreyfingar
hafa verið stofnaðar hér á landi til
að berjast gegn aðild íslands að
Atlantshafsbandalaginu og varn-
arsamstarfinu við Bandaríkin:
Andspyrnuhreyfinguna gegn her í
landi, samtökin Friðlýst land,
Samtök hernámsandstæðinga og
síðast Samtök herstöðvaandstæð-
inga. Höfundur bendir á, að starf
herstöðvaandstæðinga taki mið af
því hvort Alþýðubandalagið eigi
ráðherra í ríkisstjórn eða ekki, en
samtök þeirra hafi aldrei verið
sterkari en þegar „hægri" stjórnir
hafi verið nýteknar við völdum.
Miðað við ofurtrú herstöðva-
andstæðinga á erlendar fyrir-
myndir málstað sínum til fram-
dráttar, óyenjumikla auglýs-
ingarherferð síðustu daga og
stjórnmálaástandið innan lands
hefði Keflavíkurgangan síðastlið-
inn laugardag átt að heppnast
með ágætum vegna fjöldaþátt-
töku. Það gerðist þó ekki. Líklegt
er að nú telji ýmsir herstöðvaand-
stæðinga tímabært að gera upp
sakir við forystu Alþýðubanda-
lagsins, þar sem fram hjá þeirri
staðreynd verður ekki gengið, að á
síðasta heila árinu sem ráðherrar
flokksins sátu í háum embættum
sínum voru framkvæmdir í þágu
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli meiri en nokkru sinni síðan
1951. Stangast það illilega á við
gefin fyrirheit.
Ameðan Svavar Gestsson,
flokksformaður, sat í ríkis-
stjórninni sem samþykkti hinar
miklu varnarliðsframkvæmdir tók
Ólafur R. Grímsson að sér að
rækta tengslin við friðarhreyf-
ingarnar. Þar til hann féll út af
þingi í síðustu kosningum var
ölafur R. Grímsson formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins. í
viðtali við Dagfara i mars 1980
lýsti Ólafur mikilvægi þess „að í
fyrsta skipti hefur sósíalískur
flokkur fengið neitunarvald innan
ríkisstjórnar um meðferð her-
stöðvarinnar" eins og hann orðaði
það og bætti við: „En nú fær AB
(Alþýðubandalagið innsk. Bj.Bj.)
stöðvunarvald. Það tel ég mjög
mikilvægan áfanga. Það er viður-
kennt að sósíalískur flokkur hafi
íhlutunarrétt um þessi mál. Við
höfum beitt þessum íhlutunarrétti
og munum beita honum til þess að
koma í veg fyrir að Bandaríkin
geti rótfest herstöðina enn frekar
en þau hafa gert. Enn fremur tel
ég það ávinning að fengist hefur
viðurkenning á því að það þurfi að
draga úr efnahagslegu mikilvægi
herstöðvarinnar á Suðurnesja-
svæðinu."
„Stöðvunarvald" Alþýðubanda-
lagsins bitnaði eins og kunnugt er
einvörðungu á flugstöðinni, sem
nú hefur verið ákveðið að reisa. Á
hinn bóginn var í stjórnartíð Al-
þýðubandalagsins hafist handa
um smíði nýrra flugskýla fyrir
orrustuþotur á Keflavíkurflugvelli
og gerð olíustöðvar i Helguvík,
flugvélar varnarliðsins og önnur
tæki voru endurnýjuð. Hin flokks-
pólitíska forysta Samtaka her-
stöðvaandstæðinga hefur því
gengið þvert á gefin loforð.
Innviðir SHA eru auk þess mjög
veikir. Bragi Guðbrandsson, sem
er yfirlýstur alþýðubandalags-
maður og hefur verið framarlega í
umræðum í flokknum um hermál-
ið, sagði í Dagfara í mars 1980:
„Því miður er því þannig varið að
staða okkar gagnvart fjöldanum
er það veik að andstæðingar okkar
komast upp með það að skíra
okkur gönguliðið, pólitískur
sértrúarsöfnuður ofl. í þeim dúr,
sem á að gefa til kynna hversu
fáliðaðir við erum ... Við þetta
bætist svo að allt starf sem unnið
er á vegum SHA er borið uppi af
ákaflega fáum og ég tel að sú
hætta sé fyrir hendi að þau hrein-
lega gefi upp öndina áður en mjög
langt um líður, eins og urðu örlög
forvera þeirra! í október 1980
efndi Alþýðubandalagið til ráð-
stefnu um utanríkismál." í fjölrit-
uðum gögnum frá henni sem
dreift var á landsfundi flokksins í
nóvember 1980 stendur meðal
annars: „Að lokum ræddi Ólafur
Ragnar Grímsson um Samtök
herstöðvaandstæðinga, sem hefðu
breyst frá því að vera samfylk-
ingasamtök manna úr þremur
flokkum yfir í það að vera að
mestu samtök alþýðubandalags-
manna og æskufólks úr hópum
sem telja sig vinstra megin við
AB. Það eru engir fulltrúar her-
stöðvaandstæðinga í Framsóknar-
flokki og Alþýðuflokki lengur."
Enginn vafi er á því að
herstöðvaandstæðingum hef-
ur brugðist bogalistin. „Fata-
skipti" forystumanna Alþýðu-
bandalagsins duga ekki til að
blása nýju lífi í þessa hreyfingu.
Skýringin er einföld: málstaður-
inn er ekki nægilega góður. Einnig
þvi til staðfestingar má vitna í al-
þýðubandalagsmann, Svan Krist-
jánsson, háskólakennara, sem
sagði í Þjóðviljagrein 29. júlí 1978:
„Herstöðvaandstæðingar verða að
gefa skynsamleg svör við spurn-
ingunni: Hvað tekur við þegar her-
inn fer og ísland gengur úr
NATO? ... í stuttu máli sagt:
verkefni herstöðvaandstæðinga er
ekki eingöngu það að skipuleggja
Keflavíkurgöngur og fundi í Há-
skólabíói, þar sem menn fá venju-
lega alltaf sama skammtinn úr ís-
landsklukkunni ... Herstöðva-
andstæðingar eiga að móta nýjan
valkost í utanríkisstefnu íslands,
þannig að vitað sé hvað þeir vilja
en ekki einungis hvað þeir vilja
ekki.“
í fimm ár sátu fulltrúar her-
stöðvaandstæðinga í ríkisstjórn
og sögðu endalaust hvað þeir vildu
ekki með alkunnum afleiðingum.
Þeir hafa aldrei þorað að segja
hvað þeir vilja og ganga því ætíð í
sömu sporum.
Sterk utanhússmálning
með óvenju fallegri áferð
Hraun sparar vinnu og peninga
Ein umferð af þessari frábæru utanhúss-
málningu frá Málningu h/f jafngildir 3 til 4
umferðum af venjulegri plastmálningu.
Hraun hefur ótrúlega góða viðloðun við
flest byggingarefni og frábært veðrunarþol.
Hraun fæst með tvennskonar áferð, - fínni
eða grófri.
HRAUN
SENDIN PLASTMÁLNING
málning'f