Morgunblaðið - 09.08.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGOST 1983
21
• Frá setningarathöfn heimsleikanna í frjálsum íþróttum á sunnudag. Liö íelands og ísrael ganga samhliöa inn á aöalleikvanginn. Fánaberi
íslenska liösins er tugþrautarmaöurinn Þráinn Hafsteinsson, síöan kemur Siguröur Helgason, fararstjóri, Ágúst Þorsteinsson sem keppir í
maraþonhlaupi og Vésteinn Hafsteinsson sem keppir í kringlukasti. Sex íslenskir frjálsíþróttamenn taka þátt í leikunum. Auk þeirra þriggja sem
þarna ganga inn keppa þau Einar Vilhjálmsson í spjótkasti, Þórdís Gísladóttir í hástökki og Oddur Sigurösson t 400 m hlaupi. Símamynd AP.
Heimsleikarnir í Helsinki:
Þrefaldur sigur
Bandaríkjanna
í 100 m hlaupi
ÚRSLIT fengust í þremur grein-
um á heimsleikunum í frjálsum
íþróttum í gærkvöldi. i 100 m
hlaupi karla sigraöi Bandaríkja-
maöurinn Carl Lewis örugglega á
10,07 sek., en þrír fyrstu menn í
hlaupinu voru Bandaríkjamenn.
Heimsmethafinn Calvin Smith
varö annar, hljóp á 10,21 sek. og
Emmit King varö þriöji á 10,24
sek. Skotinn Allan Wells, Ól-
ympíumeistarinn frá því í
Moskvu, varö svo í fjóröa sæti á
10,27 sek. Ekki var Lewis ánægö-
ari en svo meó hlaup sitt, að þeg-
ar tímarnir komu á Ijósatöflu
leikvangsins þá hristi hann höf-
uðið og virtist vera mjög vonsvik-
inn. Aö fá þrjá fyrstu menn f
hlaupinu er mikill sigur fyrir
Bandaríkin.
Úrslit í 100 m hlaupi karla:
Carl Lewis, Bandar. 10,07
Calvin Smith, Bandar. 10,21
Emmit King, Bandar. 10,24
Sara Simenoni
meiddist illa
Olympíumeistarinn Sara Sime-
oni frá Ítalíu var borinn af leik-
vanginum í Helsinki eftir aö hafa
tognaö illa þegar hún var aö
keppa í hástökki þar. Simeoni var
búinn aó stökkva 1,84 og var aö
hlaupa aö ránni til aó reyna við
1,87 þegar hún féll skyndilega til
jarðar. Læknir ítalska liösins
sagöi aö það heföi veriö vinstri
fóturinn sem gaf sig hjá henni en
hún hefur átt viö meiósl aö stríóa
aö undanförnu í hægri fætinum.
Hún sagöi sálf aó þetta væri trú-
lega vegna þess að hún hefói lagt
svo mikla áherslu á aö æfa hægri
fótinn til aö geta keppt í Helsinki
að hún hefói gleymt aö halda
þeim vinstri viö.
Allan Wells, Bretl. 10,27
Juan Nunew, Dóm. lýöv. 10,29
Christian Haas, V-Þýskal. 10,32
Paul Narracott, Ástral. 10,33
Desai Williams, Kanada 10,36
Marlies Goehr frá A-Þýskalandi
sigraði í 100 m hlaupi kvenna á
10,97 sek. Bandaríska stúlkan Ev-
elyn Ashford, sem var álitin sigur-
stranglegust, sleit vööva í læri í úr-
slitahlaupinu og varö aö hætta um
miðbik hlaupsins, en þá var hún í
forystu. Ashford á heimsmetiö í
100 m hlaupi kvenna. Hún sagöi
viö fréttamenn í gær eftir að hafa
fengiö meöferð í sjúkrahúsi. „Ég á
eftir aö komast aftur á hlaupa-
brautina, þaö eru Ol-leikar næsta
ár.“
Úrslit í 100 m hl. kvenna:
Marlies Goehr, A-Þýskal. 10,97
Marita Koch, A-Þýskal. 11,02
Diane Willlams, Bandar. 11,06
Merlene Ottey, Jamaika 11,19
Angella Bailey, Kanada 11,20
Helina Marjamaa, Finnl. 11,24
Angella Taylor, Kanada 11,30
Pólverjinn Hoffman kom mjög á
óvart meö sigri í þrístökki. Hann
stökk lengst 17,42 metra. Banda-
ríkjamaöurinn Banks, sem varö
annar, stökk 17,50 metra í síöasta
stökki sínu, en hárfínt ógilt.
Úrslit í þrístökki
karla uröu þessi:
Zdzislaw Hoffman, Póll. 17,42
Willie Banks, Bandar. 17,18
Ajayi Agbebaku, Nígeríu 17,18
Mike Conley, Bandar. 17,13
Vlastimil Marinec, Tékkósl. 17,13
Jan Cado, Tékkósl. 17,06
Bela Bakosi, Ungverjal. 16,83
Al Joyner, Bandar. 16,76
Peter Bouschen, V-Þýskal. 16,70
Gennadi Valiukevbic, Sovétr. 16,41
Bedros Bedrosian, Rúm. 16,18
Stephen Hanna, Bahrain 14,69
Sjá fréttir frá mótinu á
bls. 25.
• Carl Lewis sigraöi (100 m hlaupinu á 10,07 sek, Lewis keppir líka í
langstökki og 4x100 m boðhlaupi og allir spá honum þremur heims-
meistaratitlum ( Helsinki. Sjálfsagt gæti hann líka sigrað í 200 m ef
hann væri þar þátttakandi. Hér sést Lewis á verðlaunapallinum.
Stór íslenskur
sigur í gærkvöldi
ÍSLENDINGAR unnu stóran sigur
á Færeyingum, 6—0, í landsleik í
knattspyrnu, sem fram fór (
Njarðvíkum. íslenska liöið hafði
algjöra yfirburöi í leiknum og
hefði vel átt að geta skoraó fleiri
mörk. Leikurinn fór fram viö
slæm skilyröi, rok og rigningu.
í hálfleik var stöan 2—0. Gunn-
ar Gíslason skoraöi fyrsta markiö
úr vítaspyrnu á 23. mín„ Óli Þór
Magnússon skoraöi svo á 31. mín.
í síöari hálfleik skoruöu Ragnar
Margeirsson á 51. mínútu, Sæ-
björn Guömundsson á 54. og 74.
mínútu og Óli Þór á 61. mínútu.
islenska liöiö lék oft mjög vel sam-
an í leiknum og náöi góöum leik-
köflum þrátt fyrir erfiö skilyröi.
Nánar veröur greint frá leiknum
á morgun. —ÓT/ ÞR
„Vinn gull í
Los Angeles“
ALBERTO Juantorena eöa „El
Caballo" (hesturinn) eins og
hann er oft kallaður slasaöist á
fyrsta degi heimsmeistaramóts-
ins í Helsinki og var borinn út af
leikvanginum í sjúkrabörum og
var fluttur beint á skuröborðið
þar sem hann gekkst undir 25
mín. aógerð á lærvööva.
Alberto er frá Kúbu og vann hug
otg hjörtu áhorfenda þegar hann
varö fyrsti maöurinn til að vinna
bæöi 400 og 800 metra hlaup í
sömu keppninni á 0I leikunum T
Montreal áriö 1976. Hann slasaöist
í 800 metra hlaupinu en þar haföi
hann forustu og stutt var i markiö
en hann leit viö til aö athuga
hversu langt forskot hann heföi og
datt þá og slasaöi sig eins og áöur
sagði, en hann náöi því þó aö
veröa annar því hann var kominn
yfir marklínuna þegar hann datt.
„Ég verö aö vinna til gullverð-
launa á sumarleikunum í Los Ang-
eles á næsta ári,“ sagöi þessi 32
ára hlaupari eftir aö búiö var aö
skera hann upp og tilkynna honum
aö hann yröi aö vera í gifsi í að
minnsta kosti fjórar vikur og aö
hann næöi sér ekki aö fullu fyrr en
eftir 2—3 mánuöi, en Alberto var
ekki alveg á því og sagöist ætla aö
byrja aö æfa eins fljótt og hann
gæti og þaö yröi ekki svo langt
þangað til.
FH gpgn
liði IBV
í KVÖLD fer fram fyrri leikur-
inn í undanúrslitunum í bik-
arkeppni KSÍ. FH-ingar fá liö
ÍBV í heimsókn á Kaplakrika-
völlinn og hefst leikur liðanna
kl. 19.00. Síðari leikurinn er á
morgun á Akranesi.
Eðvarð með
íslandsmet
EÐVARÐ Eövarösson sundkappi
úr Njaróvíkunum setti nýtt fs-
landsmet í 100 m baksundi í gær
á Evrópumeistaramóti unglinga
sem fram fer í Frakklandi, en Eö-
varó synti á 1:03,21 mín. og hafn-
aöi í 19. sæti. Eldra metið var
1:04,50.
I 100 m bringusundi voru tveir
keppendur frá íslandi, Arnþór
Ragnarsson úr Hafnarfiröi, og Eö-
varö. Eövarö synti á 1:13,32 mín.,
en Arnþór á 1:16,78 min. og lentu
þeir í einu af neðstu sætunum.
Ragnar Guömundsson keppti í 400
m skriösundi og hafnaði í síöasta
sætinu á tímanum 4:27,71 og í
1500 m skriðsundi fékk hann tím-
ann 17:17,22 mín. í 200 m bringu-
sundi keppti Arnþór og fékk hann
tímann 2:47,48 mín., en þaö er
langt frá hans besta.
Sem dæmi um þær öru framfarir
sem eru í sundinu, má nefna, aö
tími Eövarös í 100 m baksundi
heföi nægt til aö koma honum í
úrslit í fyrra, en í ár ekki nema í 19.
sætiö. — SUS
• Eðvarð hefur sett tvö ný ís-
landsmet í Frakklandi.