Morgunblaðið - 09.08.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
23
Sveinn Björnsson:
Kostar um 140
milljónir króna
að reka íþrótta-
hreyfinguna í ár
Morgunblaðið haföi samband við
Svein Björnsson, forseta ÍSÍ, til
aö fá upplýsingar um hversu mik-
ið þaö kostaði aö standa straum
af íþróttahreyfingunni og einnig
til aö forvitnast aöeins um stöðu
sérsambanda, en eins og flestum
er kunnugt virðist staöa þeirra
vera nokkuö bágborinn, aö
minnsta kosti sumra þeirra.
Sveinn sagöi aö þeir hjá ÍSÍ
fengju árlega ákveöna upphæö frá
Alþingi og þaö væri síðan í þeirra
verkahring aö skipta þeirri upp-
hæö bróöurlega á milli allra aöila
og þaö væri ekki hlupið aö þvi ef
allir ættu að veröa ánægöir.
„Þaö kostaöi 85 milljónir aö
reka íþróttahreyfinguna áriö 1982
og ef viö reiknum meö 60% verö-
bólgu og svipuöum umsvifum þá
veröur sú tala líklega um
130—140 milljónir á þessu ári. Viö
fáum frá ríkinu yfirleitt um 7—9%
af heildarkostnaðinum og í fyrra
fengum við samtals 6 milljónir,
sem viö þurftum að skipta á milli
280 íþróttafélaga, 28 héraössam-
banda og 17 sérsambanda, þannig
Heimsmet
í 4x400 m
BANDARÍSKIR unglingar settu
nýtt heimsmet unglinga í 4x400
metra boöhlaupi í frjálsíþrótta-
landskeppni bandarískra og so3-
vézkra unglinga, sem háö var í
Bandaríkjunum á dögunum.
Unglingasveitin hljóp á 3:03,72
mínútum og bætti fyrra heimsmet-
ið, sem austur-þýzkir hlauparar
áttu, um tæpa sekúndu. Fyrra met-
iö var 3:04,58 mínútur. f banda-
rísku sveitinni voru Michael Cann-
on, David Jackson, Clinton Davis
og James Rolle.
aö þaö sjá allir aö þaö eru ekkl
háar fjárhæöir sem hver fær.“
Sveinn sagöi aö þaö væri rótt aö
taka fram aö sum sveitar- og bæj-
arfélög styddu mjög vel viö bakið á
íþróttahreyfingunni heima fyrir og
nefndi hann í því sambandi
Reykjavík og Hafnarfjörö. Reykja-
víkurborg greiddi til d æmis á síö-
asta ári um 50—60% af húsaleigu
fyrir félögin yfir veturinn og ýmis-
legt fleira og í Hafnarfiröi fá félögin
afnot af húsinu án þess aö borga
neitt.
Sveinn sagöist vilja taka fram aö
sum sérsamböndin stæöu nokkuö
vel og mætti þar nefna skíöasam-
bandið, sem ekki fær krónu í aö-
gangseyri; þeim heföi tekist aö
rétta úr kútnum á síöasta ári eftir
aö hafa veriö nokkuö fyrir neöan
strikiö. Einnig heföu þeir staöiö sig
vel hjá sundsambandinu, en þar
heföu þeir átt tekjuafgang á síö-
asta ári þrátt fyrir takmarkaðan
áhorfendafjölda og væri þaö vel af
sér vikiö hjá þeim. Hjá öörum væri
ástandiö mjög slæmt, einkanlega
hjá þeim stærri sem yröu aö hafa
mikil samskipti viö aörar þjóöir
vegna landsliöa og þátttölu þeirra i
mótum erlendis. _sUS
Öldunga-
mótinu
frestaö
OLDUNGAMÓTI í frjálsíþróttum
hefur veriö frestaö til laugardags-
ins 3. september næstkomandi.
Mótiö fer fram samhliöa bikar-
keppni frjálsiþróttasambandsins
í fjölþraut og verður háö á Laug-
ardalsvelli.
Mikió að gera hjá
íslenskum dómurum
Óli Olsen, milliríkjadómari í
knattspyrnu, mun dæma lands-
leik Noregs og A-Þýskalands sem
fram fer í Noregi í næsta mánuði.
Með Óla fara tveir línuveröir en
ekki hefur verið ákveöiö hverjir
þaö veröa.
UEFA hefur ákveöiö aö íslenskir
dómarar skuli dæma tvo leiki í 1.
umferö Evrópukeppninnar í
knattspyrnu. Þessir leikir eru leikur
Odense og Liverpool í Evrópu-
keppni meistaraliða og fer sá leik-
ur fram í Danmörku og Glaskow
Rangers og Valerra frá Möltu.
KDSÍ mun velja þá dómara sem
eiga aö dæma og einnig línuveröi,
en ekki hefur enn veriö ákveöiö
hverjir þaö veröa sem dæma.
Kjartan Ólafsson mun dæma
landsleik Dana og Hollendinga í
Evrópukeppni 16 ára og yngri, sem
fram fer á næstunni.
— sus
Heimsmetaregn
í sundinu
Bandaríkjamaöurinn Rick Car-
ey er iöinn við að setja heimsmet
í sundi þessa dagana. Á laugar-
daginn setti hann nýtt heimsmet
í 100 m baksundi á móti í Kali-
forníu, synti á 55,38 sek. en eldra
metiö átti landi hans John Napier
og var þaö 55,44 sek. Fyrr á þessu
sama móti setti Carey heimsmet
í 200 m baksundi þegar hann
synti á 1:58.93 mín. en eldra met-
ið átti hann sjálfur.
Steve Lundquist bætti eigiö
heimsmet í 100 m bringusundi,
synti á 1:02.34 mín. eldra met hans
var 1:02.53 mín. Enn eitt heims-
metiö sá dagsins Ijós á þessu móti
í Bandaríkjunum þegar Matt
Gribble synti 100 m flugsund á
53,64 sek. og 16 ára stúlka batt
svo endahnútinn á þetta metaregn
þegar hún synti 50 m skriösund á
25,62 sek., sem er auövitaö nýtt
heimsmet.
• Heimir Karlsson á hér í baráttu viö Benedikt Einarsson (nr. 5) viö mark ísfiröinga en skaili Heimis fór rétt
yfir markiö aö þessu sinni en Heimir skoraöi bæöi mörk Víkinga í þessum leik. Morgunblaöiö/Guöjón
Meistaraheppnin ekki
með liði Víkings
„ÉG HELD aö viö höfum veriö frekar óheppnir aö fá ekki bæöi stigin í
þessum leik. Viö vorum betri aöilinn, sérstaklega í seinni hálfleik og
þá fengum við oft góð færi sem okkur tókst ekki aö nýta, en þaö eru
mörkin sem telja. Eg held aö eftir þetta sé eina raunhæfa markmiöiö
hjá okkur aö stefna aö því að halda okkur í deildinni og ég stefni að því
að skora mörk til aö það geti orðið aö raunveruleika," sagöi Heimir
Karlsson leikmaöur hjá Víkingi eftir aö þeir höföu gert jafntefli, 2—2,
viö ísfirðinga í 1. deildinni á laugardaginn.
Fyrri hálfleikurinn var nokkuö
fjörugur, liöin sóttu til skiptis og
talsvert var um góö færi. Strax í
upphafi átti Amundi góöan skalla
aö marki en Ögmundur varöi vel.
Skömmu síðar átti Ámundi slæma
sendingu á Heimi og hann þurfti
ekki annað en renna boltanum í
netiö og Víkingar þar meö komnir
í forustu. Á 20. mín sendi Jón
Björnsson góöan bolta til Kristins
sem var frír í vítateig Víkinga,
Ögmundur fór út á móti en Kristinn
lék skemmtilega á hann og skoraöi
af öryggi.
Aðeins fimm mín. síðar var
Kristinn aftur á ferðinni, fékk bolt-
ann á vítateigslínu, snéri sér við og
skaut fallegu skoti neöst í mark-
hornið. Mjög vel gert hjá Kristni,
sérstaklega fyrra markiö. Þaö
munaöi ekki nema hársbreidd aö
Jón Björnsson jafnaöi fyrir Víkinga
skömmu síðar, en þá átti hann
þrumuskalla rétt framhjá sam-
skeytunum á eigin marki.
Þaö voru ekki liðnar nema rétt
sex mín. af síöari hálfleik þegar
Víkingum tókst aö jafna. Þórður
tók langt innkast, Aöalsteinn nikk-
aöi boltanum lengra inní teiginn, á
Stefán sem renndi á Heimi og
hann var öryggiö uppmálaö þegar
hann skoraöi sitt annaö mark í
leiknum. Þaö sem eftir var af leikn-
um sóttu Víkingar svo til látlaust
og oft áttu þeir góö færi en alltaf
tókst ísfiröingum að bjarga á síö-
ustu stundu. Einu sinni átti Heimir
þrumuskot og stefndi boltinn í
markiö þegar varnarmaöur komst
fyrir hann og lenti boltinn greini-
lega í hendinni á honum en ekkert
var dæmt. Aöalsteinn átti sláar-
skot undir lok leiksins og varnar-
menn ÍBÍ björguöu nokkrum sinn-
um á marklínu og leiktíminn rann
út án þess aö Víkingum tækist aö
skora.
Víkingar léku oft mjög vel í
þessum leik en duttu þess á milli
mikiö niöur, en sumar sóknir
þeirra voru skemmtilega útfæröar.
Heimir, Ómar og Þóröur voru best-
ir en einnig átti Andri ágætan dag
og fer honum nú fram meö hverj-
um leik. Hjá ÍBÍ voru Kristinn, Guö-
mundur og Atli bestir og var oft
gaman aö fylgjast meö Guömundi,
þar er ungur og mjög efnilegur pilt-
ur á feröinni.
Bikarkeppni KSÍ
Undanúrslitin
UNDANÚRSLIT bikarkeppni KSÍ verður í kvöld og annaö kvöld. í kvöld
leika á Kaplakrikavelli liö FH og Vestmannaeyja en á Akranesi leika á
morgun Skagamenn og Breiöablik. Ógerlegt er aö spá einhverju um
úrslit í þessum leikjum þó svo ÍBV veröi trúlega að teljast sigurstrang-
legri í leiknum í kvöld, en allt getur gerst í bikarkeppninni og auövitað
er þaö styrkur fyrir FH-inga aö leika á heimavelli. Báöir leikirnir hefjast
kl. 19. — SUS.
Víkingur
— ÍBÍ 2:2
Einkunnagjöfin:
Víkingur: Ögmundur Kristinsson
6, Þóröur Marelsson 7, Magnús
Þorvaldsson 5, Stefán Halldórsson
6, Ólafur Ólafsson 6, Ómar Torfa-
son 7, Andri Marteinsson 6, Jó-
hann Þorvarðarson 6, Aöalsteinn
Aöalsteinsson 6, Heimir Karlsson
7, Ragnar Gíslason 6, Gunnar
Gunnarsson (vm) 5, Óskar Tóm-
asson (vm) 4.
ÍBi: Heiöar Sigtryggsson 6, Rún-
ar Vífilsson 6, Benedikt Einarsson
6, Ámundi Sigurösson 6, Jón
Björnsson 6, Kristinn Kristjánsson
7, Jóhann Torfason 6, Örnólfur
Oddsson 6, Jón Oddson 5, Guð-
mundur Magnússon 7, Atli Ein-
arsson 7, Bjarni Jóhannsson (vm)
lék of stutt.
í stuttu máli:
Laugardalsvöllur 1. deild.
Víkingur — ÍBÍ 2—2 (1—2).
Mörkin: Heimir Karlsson (14.
min. og 52. mín.) skoraði mörk
Víkings en Kristinn Kristjánsson
(20. og 25. mín.) skoraði fyrir iBi.
Gul spjöld: Gunnar Gunnarsson
Víkingi og Atli Einarsson ÍBi.
Dómari: Friöjón Eövaldsso.n og
var hann fremur slakur.
Áhorfendur: 410. — SUS.
Staðan í
1. deild
ÍA 13 8
KR 13 4
Þór 13 4
UBK 13 4
ÍBK 13 6
ÍBV 12 4
Þróttur 13 4
Víkingur 13 2
ÍBÍ 13 2
Valur 12 3
1 4 24—10 17
7 2 13—14 15
6 3 14—12 14
5 4 14—11 13
1 6 18—22 13
4 4 21—16 12
4 5 15—22 12
7 4 13—15 11
7 4 13—17 11
4 4 16—22 10