Morgunblaðið - 09.08.1983, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
Margt manna var við setningu þingsina en þar voru samankomnir fulltrúar allra Norðurlandanna. Meðal viðstaddra var forseti íslands, Vigdís Finnbogadótt-
ir, en hún flutti ávarp við þingsetninguna.
Norræna umferðarslysalæknaþingið:
Umferðarslys einnig vanda-
mál heilbrigðiskerfísins
Við setningu þingsins fhitti Matthías Bjarnason ávarpoorð og sést hann hér í
Olafur Ólafsson, landlcknir.
í GÆR hófst að Hótel Esju norrænt
umferðarslysalæknaþing. Þingið var
sett kl. 10.00 árdegis og flutti forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir, stutt
ávarp við setninguna. Þá var við-
staddur setninguna framkvæmda-
stjóri Evrópudeildar Alþjóðlegu heil-
brigðisstofnunarinnar, Dr. Leo
Kaprio, og flutti hann einnig stutt
ávarpsorö. Einnig ávörpuðu sam-
komuna þeir Matthías Bjarnason,
heilbrigðismálaráðherra, Jón Helga-
son, dómsmálaráðherra og Rune
Andréasson, framkvæmdastjóri
IAATM.
Þetta er í annað sinn sem Norð-
urlöndin halda þing af þessu tagi
og er þetta fyrsta þingið sem hald-
ið er eftir að íslendingar gengu í
samtök umferðarslysalækna
(Traffik medicin).
Þingið er að þessu sinni helgað
málefnum fatlaðra og óvarðra
vegfarenda, en þingið mun einnig
fjalla um öryggismál og slysa-
valda í umferð.
Þingið er opið öllum þeim sem
áhuga hafa á umferðarslysum og
leiðum til að fækka þeim en meðal
markmiða „Traffik medicin" er
einmitt að stuðla að fækkun um-
ferðarslysa og óhappa. í dag mun
t.d. sækja þingið hópur hafn-
firskra kvenna sem eiga það sam-
eiginlegt að hafa misst barn í um-
ferðarslysi.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var í gær kom fram að um-
ferðaróhöpp væru ekki einungis
vandamál þeirra sem að umferð-
armálum starfa heldur væri þetta
einnig vandamál heilbrigðiskerfis-
ins. Mikill kostnaður er samfara
sjúkrahúslegu og oft skaðast
menn illa í umferðarslysum þann-
ig að sumir þurfa jafnvel að dvelj-
ast á sjúkrahúsum til æviloka. Þá
Dr. Leo Kaprio, framkvæmdastjóri
Evrópudeildar Alþjóðlegu heilbrigð-
isstofnunarinnar.
sagði Davíð Á. Gunnarsson að
kostnaður ríkisins við öll umferð-
arslys á einu ári væri sambæri-
legur við rekstrarkostnað Land-
spítalans.
Þá kom fram hjá Ólafi Ólafs-
syni, landlækni, að !A allra dauða-
slysa hér á landi væru umferðar-
slys. Þar af væri helmingur allra
þeirra sem slösuðust tvítugir eða
yngri. Hann sagði að með ákveðn-
um aðgerðum hefði tekist að
fækka slysum og sjúkrahúsinn-
lögnum um 20—30% á undanförn-
um árum á hinum Norðurlöndun-
um en hér á landi hefði þeim hins
vegar fjölgað.
Þá var einnig talað um hvort
aukin umferðarfræðsla, og aukin
fjárveiting til slíkrar fræðslu,
myndi ekki skila sér í lægri kostn-
aði við heilbrigðiskerfið. Var í því
sambandi bent til ársins 1968 þeg-
ræðustól. Sitjandi við hlið púltsins er
ar mikil umræða fór fram um
breytinguna úr vinstri umferð í
hægri. Á því ári voru dauðaslys 14
færri en árið áður og einnig urðu
slys á fólki 80 færri en árið áður.
Kostnaður við umferðarbreyting-
una var hins vegar 39 milljónir
króna miðað við verðlag í ágúst
1982.
Á þinginu í gær voru flutt þrjú
íslensk erindi, en alls mun um
helmingur allra erinda á þinginu
verða fluttur af íslendingum.
í erindi Ólafs Ólafssonar, land-
læknis, kom m.a. fram að hin háa
slysatíðni meðal unglinga benti til
að auka þyrfti kröfur til öku-
kennslu og veita aðhald við endur-
nýjun ökuskírteina. Einnig taldi
ólafur að viðhalda bæri og efla
þyrfti umferðarfræðslu í skólum
og í fjölmiðlum. Þá taldi hann
einnig að leita þyrfti leiða til að
auka notkun öryggisbúnaðar í bif-
reiðum, m.a. bílbelta, sem löngu
hefðu sannað gildi sitt.
Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri
Ríkisspítala, flutti erindi um
kostnað umferðarslysa í þjóðfé-
laginu. f erindi hans kom m.a.
fram að á sama tíma og tíðni um-
ferðarslysa fækkaði á hinum
Norðurlöndunum þá ykist tíðni
umferðarslysa hér á landi. Hins
vegar benti hann á að tíðni dauða-
slysa færi lækkandi hér, eins og á
hinum Norðurlöndunum, og væri í
meðallagi miðað við hin löndin.
Þá fjallaði Guttormur Þormar,
yfirverkfræðingur umferðardeild-
ar Reykjavíkur, um norræna
könnun sem gerð var sameiginlega
á umferðaröryggi.
Þinginu verður fram haldið í
dag og á morgun, en þá mun því
Ijúka.
Flugleiðir
taka hljóð-
láta „Áttu“
á leigu
FLUGLEIÐIR hafa tekið á leigu far-
þegaþotu af gerðinni DC-8-71, sem
mun koma inn í áætlun félagsins á
Norður-Atlantshafinu í stað þotu af
gerðinni DC-8-63, sem verður notuð í
pílagrímaflug félagsins milli Alsír og
Jeddah, en það hefst 18. ágúst nk.
Sæmundur Guðvinsson, frétta-
fulltrúi Flugleiða, sagði aðspurður
að einn dagur færi í þjálfun
áhafna, en síðan færi vélin beint
inn í áætlun, en hún er með sæti
fyrir 249 farþega, eins og DC-8
þotur félagsins.
Vélin, sem Flugleiðir hafa tekið
á leigu er knúin sérstaklega hljóð-
látum hreyflum, auk þess sem hún
eyðir minna eldsneyti en eldri vél-
ar félagsins. Þá er nýja vélin út-
búin með nýlegri breiðþotuinn-
réttingu, sem gerir hana mun
skemmtilegri fyrir farþega.
Flugleiðir hafa um nokkurt
skeið verið með flugvélamál sín á
Norður-Atlantshafinu til athug-
unar, en samkvæmt nýjum lögum
I Bandaríkjunum er bannað að
fljúga vélum til landsins eftir 1.
janúar 1985, fari gnýr þeirra yfir
ákveðin hávaðamörk, en vélar
Flugleiða fylla þann flokk. Þeir
valkostir, sem helst hafa verið til
umræðu hjá félaginu eru kaup á
breiðþotum, annað hvort af gerð-
inni DC-10 eða TriStar, eða þá að
skipta um hreyfla á DC-8 þotum
félagsins og fá í þær nýjar inn-
réttingar, en ákvörðun þar að lút-
andi hefur ekki verið tekin.
Eldur í
Kleppsspítala
ELDUR kom upp í gluggatjöldum
í herbergi á deild 11 á annarri hæð
í Kleppsspítala síðdegis á sunnu-
dag. Slökkviliðið var kallað á vett-
vang, en starfsfólki hafði tekist að
kæfa eldinn þegar slökkviliðið bar
að garði. Litlar skemmdir urðu á
herberginu.
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu á Járnsíðunni I
fyrri viku, að Ingvi Þór Kormáks-
son var sagður syngja á sólóplötu
sinni, Tíðindalaust..., sem kom
út fyrir nokkru. Hið rétta er, að
þeir Guðmundur Hermannsson og
Sverrir Guðjónsson syngja öll lög-
in á plötunni. Ingvi er hins vegar
höfundur þeirra og leikur auk þess
á hljómborð.
2—3 þúsund manns á útifundi að lokinni friðagöngu
MILLI tvö og þrjú þúsund manns
voru á útifundi Samtaka herstöóva-
andstæðinga í Lækjargötu á laugar-
dagskvöldið samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar í Reykjavfk, en
fundurinn var haldinn að lokinni
friðargöngu frá hliði Keflavíkur-
flugvallar til Reykjavíkur. Þá var
einnig mynduö keðja milli banda-
ríska sendiráðsins við Laufásveg og
þess sovéska við Garðastræti.
„Við erum mjög ánægðir með
þessar aðgerðir, þáttöku og allt
annað. Þetta var miklu umfangs-
meira en til dæmis 1981 og það má
frekar miða við gönguna 1976, sem
var mjög fjölmenn," sagði Guð-
mundur Guðlaugsson hjá Samtök-
um herstöðvaandstæðinga, en
hann treysti sér ekki til að segja
nákvæmlega um hve fjöldinn hefði
verið mikill. Guðmundur sagði að
gönguveður hefði verið ágætt. Að
vísu hefðu tvívegis komið skúrir
meðan á göngunni stóð, en það
hefði verið lygnt.
Fundurinn samþykkti ávarp,
sem var afhent bæði í sendiráði
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Friðargangan kemur niður Miklubrautina.
Hluti keðjunnar sem mynduð var milli sendiráða Bandarfkjanna og Sovétríkjanna.
Morgunblaðið/ Guðjón.